Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 I>V Tilvera Einu sinni islending- ur alltaf íslendingur Elías H. Snorrason hefur veriö búsettur i Svíþjoö i fimm ár en segist alltaf vera meö heimþrá. Elías H. Snorrason: Semur tónlist og býr til brjóstsykur Elías H. Snorrason, eða Elli í Eldsmiðjunni eins og hann var kall- aður í gamla daga, sendi nýlega frá sér sinn fyrsta disk sem nefnist „It’s a Beautiful Day“. Elías stofnaði á sín- um tíma Eldsmiðjuna og verslunina Kvöldúlf en fyrir nokkrum árum venti hann sínu kvæði í kross og sneri sér að andlegum málum. „Ég var áberandi í viðskiptalífinu á sinum tima en fannst alltaf vanta eitthvað upp á og fann mig að lokum í hugleiðslu. Fyrir nokkrum árum gaf ég út bók sem heitir „Ég er skínandi sól“ og er þar að vísa til þess að við erum öll skínandi sólir.“ Elías byrj- aði snemma að vinna fyrir sér og seg- ist hafa séð um sig sjálfur frá sautján ára aldri. „Ég var um tíma hálfgerður utangarðsmaður í samfélaginu en náði að rétta úr kútnum og koma mér á strik með því að stofna Eldsmiðj- una. Það má segja að ég hafi byrjað nýtt líf og orðið ungur maður á upp- leið. Ég eignaðist hús og bíl og aÚt það en fann eftir nokkur ár að það dugði ekki til og það var meira inni í mér sem vildi brjótast út.“ Syngur á þremur tungu- málum „Það er tiltölulega stutt síðan ég byrjaði að semja tónlist þrátt iyrir að hafa verið viðloðandi hana lengi. Ég var í Dómkómum í mörg ár og svo gutlaði ég líka eitthvaö á trommur. Gítarinn var þó aldrei langt imdan og síðustu árin fór ég að semja á hann. Salan á diskinum hefur gengið mis- jafnlega en þeir sem hafa hlustað á hann segja að hann vinni á með hlustun. Það hefur aftur á móti geng- ið verr að fá verslanirnar til að stilia honum upp á áberandi stað en ég reyni bara að vera duglegur að koma honum út. Ég ætlaði að vera með tón- leika til að fylgja honum eftir en hætti við. Það er of stutt til jóla og fólk allt of upptekið í jólaösinni. Textamir á diskinum eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og sænsku, og ég er viss um að þetta er í fyrsta sinn íslendingur syngur á sænsku inn á disk.“ Alltaf íslendingur Elías hefur verið búsettur í Svíþjóð í fimm ár en segist alltaf vera með heimþrá. Einu sinni íslendingur, alltaf Islendingur, eins og hann segir. „Ég kenni íslensku og er með nám- skeið í hugleiðslu sem byggjast á bók- inni minni. Síðan framleiði ég brjóst- sykur sem nefnist polkagrísir. Þetta er mjúkur brjóstsykur sem ég bý til sjáifur. Hann er ekki ólíkur gamla bismarkbrjóstsykrinum en í tuttugu sentimetra lengjum í mismunandi lit- um og bragðtegundum." -Kip Skógræktarritið, 2. tbl. 2000, komið út: íturvaxinn hlynur Ritið hefst á tveimur ræðum frá há- tíðarsamkomu á Þingvöllum 27. júní sl., í tilefiii 70 ára afmælis Skógræktar- félags íslands, ræðu Magnúsar Jó- hannessonar, formanns Skógræktarfé- lags íslands; „Góður árangur í skóg- rækt, merki um vellíðan hins náttúru- lega umhverfis", og ræðu Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra; „í skógrækt á íslandi fmnur sköpunarþörf mannsins sér viðspymu“. Þá er grein um „tré ársins“, sem er íturvaxinn hlynur í garðinum við húsið Sólheima í Bfldu- dal í Amarfirði. Sú nýlunda er að í blaðinu er innfelld mynd af „tré árs- ins“ í A-4 stærð. Þá birtist 2. grein í greinaflokki Vil- hjálms Lúðvikssonar um „Skógrækt áhugamanns- ins“ er nefiiist „Um skóg- rækt í Brekkukoti o.fl.“. Jón Geir Pétursson ritar greinina „Öldungamir í borginni". Þar er lýst gönguleið í miðborginni þar sem unnt er að skoða fimm áhuga- verð tré frá fýrstu árum tijáræktar í Reykjavík. Rætt er við Karl Eiríksson í greininni „Ræktun viö skógarmörk". Þar lýsir hann ræktun við erfið skil- yrði í StífLisdal. Sigurður Blön- dal á 3 greinar í ritinu í greina- flokkunum „Furður í skógrækt- inni“ og „Fyrr og nú“. Baldur Þorsteinsson skrifar grein um skráningu á fræi sem safnað hef- ur verið eða flutt inn á árunum 1933-1992 og 2 aðrar greinar er tengjast innflutningi tijátegunda. Þá er grein eftir Bjöm Jónsson er nefnist „Ræktun áhugamannsins. Skilar hún árangri?" Einar Gunnars- son ritar þarfa grein um „Grisjun skóga". Fjöldi annarra áhugaverðra greina er í ritinu. usgögn Bæjarhrauni 12 Hf. • Sími 565 1234 Opið alla daga til jóla 10-22 59 14(Í£uC(skartgripir Miíqð úrvaC af demanfásífirtgnpum áfrábceru verði. ‘JFattegir demantsfringar, frábcert verð. MianzFiringar Sendum myndaíista. Laugavegi 49, sími 561 7740 ólagjöfin hennar! Stuttir og síðii pelsar í úrvali Minkapelsar Tilboð 50% útborgun og eftirstöðvar vaxtalaust allt að 12 mánuðuni. Pelsfóðurs- kápur ogjakkat Ullarkápur og jakkar með loðskinni Loöskinnshúfur Loðskinnstreflar Loðskin nsh árhön d Klassískur fatnaðm Bocace-skór Þar sem vandláth versla PELSINN Kirkjuhvoli, sími 552 0160 B Raðgreiðslur í allt að 36 mánuði «T m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.