Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2001, Blaðsíða 22
26
___________________________ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001
íslendingaþættir___________________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ára_________________________________
Kristrún Þóröardóttir,
Faxabraut 13, Keflavík.
Aöalheiöur Árnadóttir,
Dalbæ, Dalvík.
75 ára_________________________________
ingibjörg Magnúsdóttir,
Skipasundi 87, Reykjavík.
Ingunn Guðrún Guömundsdóttir,
Þórufelli 6, Reykjavík.
Rebekka Aðalsteinsdóttir,
Sævangi 41, Hafnarfiröi.
Jón Guðjónsson,
Grenigrund 44, Akranesi.
70 ára_________________________________
Sigríður Hauksdóttir,
Hraunbæ 110, Reykjavík.
Ragnheiöur Kristjánsd. Ogata,
Skipagötu 1, Akureyri.
Björg Benediktsdóttir,
húsmóöir og sjúkraliöi, Rauðumýri 1, Ak-
ureyri. Björg veröur aö heiman á afmæl-
'sdaginn.
Sigurbjörg Hallgrímsdóttir,
Húsabakka, Húsavík.
Sigríöur Theodóra Sæmundsdóttir,
Skaröi, Hellu.
Leifur Ársælsson,
Helgafellsbraut 23c, Vestmannaeyjum.
SO ára
Jón Otti Olafsson,
Ljósalandi 7, Reykjavík.
Ármann Jóhannsson,
Borgarholtsbraut 41, Kópavogi.
Gunnhildur Jóhannesdóttir,
Þórunnarstræti 83, Akureyri .
Gísli Hermannsson, fyrrverandi Línu-
~I verkstjóri hjá RARIK,
I Smáratúni 20, Selfossi.
Hann og kona hans Hólm-
| fríður Sigurðardóttir veröa
á feröalagi á afmælisdag-
inn
Alda Einarsdóttir,
Knarrarbergi 6, Þorlákshöfn.
50 ára________________________________
Gísli S. Eiríksson,
Hléskógum 4, Reykjavík.
Guömundur Jónsson,
Rúöaseli 92, Reykjavík.
Hlynur Árnason,
Baughúsum 22, Reykjavík.
Ómar Konráösson,
Engihjalla 1, Kópavogi.
Kristjana Kristjánsdóttir,
Esjuvöllum 17, Akranesi.
Elínborg Sigurgeirsdóttir,
Hvammstangabraut 26, Hvammstanga.
Elínborg veröur að heiman í dag.
4 Qára
Guðmundur Steinsson,
Goöheimum 19, Reykjavík.
Sigríöur Sigtryggsdóttir,
Vesturbrún 17,
Reykjavík.
Sigriöur er í
sumardvöl
á Selfossi.
Ingólfur Ármann Sigþórsson,
Rfuseli 39, Reykjavík.
Vilborg Reynisdóttir,
Óöinsvöllum 4, Keflavík.
Laufey Karlsdóttir,
Garöabraut 45, Akranesi.
Þuríöur Helgadóttir,
Borgarbraut 39, Borgarnesi.
Jóhannes Jónsson,
Heiöarbót, Húsavík.
Herdís Steingrímsdóttir,
Helluhrauni 2, Reykjahlíö.
Jón Jónsson,
Hásteinsvegi 24, Stokkseyri.
Andlát _____________
Valdimar Kristinn Valdimarsson, frá
Látrum í Aðalvík, Álfhólsvegi 36, Kópa-
vogi, lést á heimili sínu föstudaginn 6.
júlí.
Halldór Pálsson, Dalbraut 18, Reykja-
vík, andaöist á hjúkrunarheimilinu Skjóli
þriöjudaginn 26. júní. Jaröarförin hefur
fariö fram í kyrrþey.
Kristján V. Ólafsson, Birkimel 6þ,
Reykjavík, lést á hjúkrunarheimili Hrafn-
istu föstudaginn 6. júlí.
Ólöf Benediktsdóttir, Grásíðu, er látin.
Jaröarförin hefur fariö fram á Húsavík í
kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Lára Fríöa Ágústsdóttir, Lönguhlíð 3,
áöur Sólhlíö 3, Vestmannaeyjum, lést á
Uandspítala Hringbraut mánudaginn 25.
júni. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Garöar Andrésson frá Hamri, Vogagerði
18, Vogum, Vatnsleysuströnd, lést á
líknardeild Landspítalans I Kópavogi
fimmtudaginn 5. júlí.
Sextugur
Indriði Aðalsteinsson
bóndi
Indriði Aðalsteinsson bóndi,
Skjaldíonn, Hólmavíkurhreppi, er
sextugur í dag.
Starfsferill
Indriði er fæddur og uppalinn á
Skjaldfönn. Hann stundaði nám í
barnaskóla og framhaldsskóla verk-
náms í Héraðsskólanum að Reykja-
nesi við ísafjarðardjúp. Indriði hef-
ur unnið ýmis almenn störf til lands
og sjávar. Síðustu 30 árin hefur
hann verið bóndi á Skjaldfönn en
föðurættin hans hefur búið á jörð-
inni í beinan karllegg frá 1834.
Indriði hefur sinnt flestum þeim
trúnaðar- og félagsmálastörfum sem
til falla í fámennum sveitahreppi,
Nauteyrarhreppi við Djúp, er síöar
var sameinaður Hólmavíkurhreppi.
Hann hefur meðal annars verið
hreppsnefndarmaður í 16 ár og
varaoddviti um tíma, einnig for-
maður Ræktunarsambands Naut-
eyrar- og Snæíjallahrepps í 15 ár.
Indriði hefur skrifað fjölda greina
í blöð um margvísleg málefni. Hann
hefur einnig fengist við vísnasmíö-
ar og haft umsjón með vísnaefni í
blöðum á heimaslóðum.
Fjölskylda
í dag kvænist Indriði Kristbjörgu
Lóu Árnadóttur, leikskólakennara
og bónda, f. 7. ágúst 1954. Foreldrar
hennar eru Árni Hálfdán Brands-
son, skrifstofumaður og bókari, og
Þuríður Einarsdóttir, húsmóðir.
Sambýliskona Indriða var Alex-
andra Schwenkler en þau slitu sam-
búð árið 1993. Böm þeirra eru Jan-
us Örn, f. 10. janúar 1989 og Tibor
Snær, f. 5. október 1990, þeir eru
báðir búsettir í Þýskalandi.
Börn Kristbjargar Lóu eru: 1)
Árni Sveinn, f. 24. júlí 1974, sambýl-
iskona hans er Ágústa Árnadóttir,
barn þeirra er Úlfur, f. 9. júní 1999;
2) Sigurbjörg, f. 8. desember 1975,
maki Oddur Kristinsson, börn
hennar eru Hrafnhildur Lára, f. 17.
júní 1992 og Steinunn Lóa, f. 30. apr-
íl 1996; 3) Þórdís, f. 24. janúar 1990;
3) Hrafnkell, f. 16. mars 1992.
Systkini Indriða eru Krístin Aðal-
steinsdóttir, fædd 29. mars 1945 á
Skjaldfónn, húsmóðir og bókasafns-
fræðingur í Reykjavík, og Jóhann
Aðalsteinsson, fæddur 21. ágúst 1946
á Skjaldfönn, búfræðingur frá
Hvanneyri 1967, búsettur í Kópa-
vogi.
Foreldrar Indriða voru Aðal-
steinn Jóhannsson, bóndi á Skjald-
fónn, f. 16. maí 1909, d. 1. desember
1993, og Hólmfríður Indriðadóttir
frá Ytra-Fjalli, S-Þingeyjarsýslu,
húsmóðir á Skjaldfónn, f. 3. júlí
1906. Hólmfríður dvelur aðallega hjá
börnum sínum og er með lögheimili
í Reykjavík.
Ætt
Foreldrar Aðalsteins eru Jóhann
Ásgeirsson, b. á Skjaldfönn, og kona
hans, Jóna Jónsdóttir ljósmóðir. Jó-
hann var sonur Ásgeirs, b. á Skjald-
fónn, Ólafssonar og konu hans,
Steinunnar Jónsdóttur. Jóna var
dóttir Jóns, b. á Stað i Súgandafirði,
Ólafssonar. Móðir Jóns var Guð-
finna Ebenezersdóttir, b. í Innri-
Hjarðardal, Guðmundssonar, b. í
Neðri-Arnardal, Bárðarsonar, b. í
Arnardal, Illugasonar, ættföður
Arnardalsættarinnar. Móðir Jónu
var Guðrún Sturludóttir, b. í Dals-
húsum í Valþjófsdal, Jónssonar og
konu hans, Kristínar Ebenezersdótt-
ur, systur Guðfinnu.
Foreldrar Hólmfríðar voru Ind-
riði Þorkelsson, b. og skáld á Ytra-
Fjalli, og kona hans, Kristín Frið-
laugsdóttir.
Faðir Indriða var Þorkell Guð-
mundsson, b. á Skeri, Sandi, Sýr-
nesi og að lokum á Syðra-Fjalli,
Stefánssonar b. á Sílalæk, Indriða-
sonar, á Hóli í Kinn, Árnasonar
gamla, Jónssonar vinnumanns
Halls prests Eiríkssonar í Höfða.
Móðir Indriða var Ólöf Indriða-
dóttir, b. í Garði í Aðaldal, Ólafsson-
ar, b. á Skeri, Ólafssonar, b. í
Grímsnesi, Snorrasonar, Ólafsson-
ar.
Faðir Kristínar var Friðlaugur, b.
á Hafralæk, Jónssonar, nr. 77 í ætt
Magnúsar Jónssonar á Hólmavaði.
Indriði verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Sjötugur
Svavar Guðni Gunnarsson
kennari
Svavar Guðni Gunnarsson,
kennari við VMA, Mýrarvegi 116,
Akureyri er sjötugur í dag.
Starfsferill
Svavar fæddist á Búðum við Fá-
skrúðsfjörð, sonur hjónanna Finn-
boga Jóhanns Indriðasonar, f. 9.1.
1897, d. 12.11. 1970, og Björgu Lilju
Jónsdóttur, f. 15.5. 1909. Um
þriggja ára aldur var hann tekinn
i fóstur af frænda sínum Gunnari
Eiríkssyni, f. 30.9. 1901, d. 29.5.
1980, bifreiðasmið, og konu hans
Þórhildi Siguröardóttur Kjerúlf, f.
11.8. 1896, d. 10.2. 1960, og tók hann
síðar upp nafn Gunnars þar sem
þau ættíeiddu hann.
Svavar er gagnfræðingur frá
Ingimarsskólanum í Reykjavík og
hóf eftir það nám í bifvélavirkjun.
Starfaði hann við þá grein í nokk-
ur ár og hlaut meistararéttindi í
þeirri iðn.
Síðan lærði hann rafvélavirkj-
un, aflaði sér fullra réttinda í því
fagi og einnig í rafvirkjun sem raf-
verktaki. Hann stofnaöi Rafverk
á Akureyri sem er þjónustufyr-
irtæki á því sviði.
Þegar Svavari bauðst að starfa
við kennslu í sínum faggreinum
um 1970 hófst kennsluferill hans.
Hann aflaði sér kennsluréttinda í
Kennaraháskóla íslands og var í
verknámsskóla í Danmörku um
tíma til að kynnast verkgreina-
kennslu þar. Einnig kynnti hann
sér verknám í Þýskalandi. Hann
kenndi m.a. rafmagnsfræðigrein-
ar við Vélskóladeildina á Akur-
eyri, Iðnskóla Akureyrar og
Verkmenntaskólann á Akureyri
frá stofnun hans og þar til nú að
starfslok verða vegna aldurs.
Svavar kennir rafmagnsfræðiá-
fanga í fjarkennslu við VMA.
Fjölskylda
Kona Svavars var Gerður Sig-
urðardóttir, fædd í Ólafsfirði 11.9.
1929, d. 18.8. 1999, dóttir Sigurð-
ar Baldvinssonar og konu hans,
Kristlaugar Kristjónsdóttur.
Börn þeirra eru: 1) Sigurður, f.
26.3. 54, vélfræðingur; 2) Gunnar
Þór, f. 22.7. 56, bakarameistari; 3)
Kristlaug Þórhildur, f. 23.1. 60,
leikskólastjóri, og 4) Ari, f. 22.4.
64, graflskur hönnuður.
Systkini Svavars eru: 1) Jón
Óskar, f. 21.11. 1926; 2) Rósinberg,
f. 27.5. 1928, d. 13.7. 1974; 3) Hörður
Viktor, f. 19.11. 1929; 4) Freyja, f.
10.9. 1932; Fjóla, f. 11.10. 1933; 5)
Þór, f. 21.10. 1934.
Sambýliskona Svavars er Hulda
Hávarðardóttir, starfsmaður hjá
Heilsustofnun NFLÍ í Hveragerði.
Þau dveljast á Hotel Michel við
Montparnasse í París á þessum
tímamótum.
Merkir Islendingar
Henry Alexander Hálfdánarson, fram-
<væmdastjóri Slysavarnafélags íslands, var
æddur þann 10. júlí 1904 á ísafirði. Hann
auk fiskimannaprófi á ísafiröi 1921 og loft-
ikeytaprófi í Reykjavík 1926.
Henry kom víða við á sínum starfs-
'erli. Hann hóf sjómennskuferil sinn á
safirði 1919 og var á vestfirskum vél-
Játum, síðan í siglingum á íslenskum og
irlendum farskipum. Henry var búsett-
ir í Seattle í Bandarikjunum 1924 til
1925 þar sem hann stundaði síldveiðar og
iíldarverkun, hann var loftskeytamaður á
slenskum togurum 1926 til 1939 og á
Jtrandferðaskipinu Súðinni 1939-44 er varð
ýrir heiftarlegri vélbyssu- og sprengjuárás
jýskrar flugvélar 16. júni 1943. Henry var í fríi
Henry A. Hálfdánarson
er árásin var gerð en tveir skipsfélagar hans
fórust í árásinni.
Henry gerði margar mjög árangursríkar
og mikilvægar tilraunir með afllitlar
radíótalstöðvar sem hann smiðaði sjálfur
fyrir svokallað bátabylgju. Tilraunir
hans ílýttu mjög fyrir útbreiðslu þessara
mikilvægu öryggistækja.
Henry var framkvæmdastjóri Siysa-
vamafélags íslands frá 1944 og allt til
dauðadags. Hann hafði forgöngu um
stofnum Sjómannadagsins og átti sæti í
stjórn Farmanna- og fiskimannasam-
bands Islands um árabil. Hann var einnig
í stjórn slysavamadeildarinnar Ingólfs og
formaöur bygginganefndar DAS. Henry lést
inn 8. nóvember 1972.
wmm .i
n g a r DV
© 550 5000
<t> 0)
r vísir.is
á a u g FAX 550 5727 | ■ |
Þverholt 11,
t/> 105 Reykjavík
Lilja Jóhannesdóttir frá Gullbrekku verð-
ur jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 11. júlí kl. 13.30.
Hanna Sigurrós Halldórsdóttir, Baldurs-
götu 16, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Bústaöakirkju í dag klukkan 15.00.
Guðjón Þórir Tómasson verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju I dag klukkan
13.30. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Krabbameinsfélag íslands.
Erlendur Árni Ahrens trésmíöameistari,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, verður
jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju I dag
klukkan 13.30.