Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Síða 49
LAUGARD AGU R 28. SEPTEMBER 2002 Helga rblctö 13 V 53 Magnús Guðmundsson fyrrv. menntaskólakennari, verður áttatíu og fimm ára á morgun Magnús Guðmundsson, cand. mag. í íslenskum fræðum, Droplaugarstöðum við Snorrabraut í Reykjavík, verður áttatíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Magnús er fæddur 29.9. 1917 að Stóra-Laugardal, Tálknafirði, og ólst upp að Ytri-Sveinseyri á Tálknafirði. Hann stundaði nám við Héraðsskól- ann á Núpi við Dýrafjörð 1936-1938, lauk kennara- prófi frá Kennaraskóla íslands árið 1940 og stúd- entsprófi 1949. Hann varð cand mag í íslenskum fræðum frá Háskóla íslands 1955 og lagði einnig stund á nám við Tónlistarskóla í Reykjavík í nokk- ur ár. Magnús starfaði við sundkennslu á Sveinseyri á yngri árum, var kennari við Miðbæjarbarnaskól- ann í Reykjavík frá 1941 og síðan við gagnfræða- deild sama skóla frá 1946-1957. Hann var kennari við Verslunarskóla íslands frá 1957-1964 og við Menntaskólann í Reykjavík frá 1964-1980. Fjölskylda Magnús kvæntist 11.9. 1943 Önnu Hallgrímsdótt- ur kennara, f. 16.9. 1912, d. 14.11. 1997. Foreldrar hennar voru Hallgrímur Jónsson, skólastjóri Mið- bæjarbarnaskólans, f. 24.7. 1885, d. 7.12. 1961, og Vigdís Erlendsdóttir húsmóðir, f. 26.4. 1871, d. 17.3. 1948. Barn Magnúsar með Margréti Jóhannesdóttur er Ásdís Berg Magnúsdóttir, f. 7.4. 1937, Sigtúni 15, Patreksfirði, maður hennar er Hermann Ármanns- Þórdís (Stella) Brynjólfsdóttir afgreislustúlka er sjötug í dag Þórdís (Stella) Brynj- ólfsdóttir, Hrísmóum 9, í Garðabæ er sjötug í dag. Starfsferill Þórdís fæddist í Reykjavík 28. september 1932 og ólst upp þar og í Kaupmannahöfn. Hún gekk í S.T. Hansga- deskóla, Nörribrú í Kaup- mannahöfn, 1938-1945 og var í Reykjaskóla í Hrútafirði 1946-1948. Lengst af starfsæfinni vann hún í apóteki Hafnarfjarðar og apóteki Garðabæjar. Fjölskylda Þórdís gekk í hjónaband 9. 2. 1952. Eiginmað- urinn er Sigurður Þorsteinsson vélfræðingur, f. 1.3. 1931. Foreldrar hans voru Þorsteinn K. Sig- urðsson, f. 2.8. 1904, d. 1.3. 1987, bifreiðastjóri í Reykjavík, og Guðmundína Kristjánsdóttir, f. 14.9. 1907, d. 8.5. 1995. Börn Þórdísar og Sigurðar eru Brynjólfur, f. 8.8. 1952, prentari, kona hans er Hrafnhildur Hlöðversdóttir hárgreiðslumeistari; Steinunn Guðmundína f. 29.9. 1954, starfsmaður hjá Delta; Ruth, f. 2.4. 1957, skurðhjúkrunarfræðingur, maður hennar er Guðmundur Guðmundsson vélaverkfræðingur; Hrefna f. 16.6. 1959, tækni- teiknari, maður hennar er Baldur Baldursson framkvæmdastjóri. Barnabörn Þórdísar og Sig- urðar eru 13 og barnabarnabörnin þrjú. Hálfsystir Þórdísar, sammæðra, er Ragnheið- ur Benediktsdóttir f. 7.12. 1936. Maöur hennar var Jón Árnason en hann er látinn. Börn þeirra eru fjögur. Ragnheiður býr í Vindsor í Kanada. Hálfsystkini Þórdísar, samfeðra, eru Ólafur Frið- mar, f. 12.5. 1956 og Danfríður Kristín, f. 23.9. 1958. Foreldrar Þórdísar voru Brynjólfur Kristjáns- son, f. 8.9. 1902, d. 7.9. 1960, verkstjóri hjá Vega- gerð ríkisins og fyrri kona hans, Dagbjört Stein- dórsdóttir, f. 24.6. 1912, d. 9.11. 1968, húsmóðir. Þau skildu. Þórdís var kjörbarn þeirra en raun- móðir hennar var Sigriður Sveinbjörnsdóttir, f. 20.9. 1904, 7.5. 1948. Ætt Faðir Brynjólfs er Kristján Jóhann Páil Páls- son, f. 25.8.1880, d. 21.10.1962, bóndi í Hólslandi í Eyjahreppi, sonur Páls Kristjánssonar, f. 28.1. 1856, d. 24.9. 1921, sem Pálsætt er kennd við, og k.h., Kristínar Hannesdóttur, f. 10.2.1857, d. 11.6. 1897. Móðir Brynjólfs var Danfríður Brynjólfsdóttir, f. 24.6.1883, d. 17.8.1958, dóttir Brynjólfs Daníels- sonar og Guðríðar Þorsteinsdóttur, frá Garða- brekku, Þorsteinssonar, Loftssonar á Bolavöll- um. Snorri Hjaltason byggingarverktaki verður fimmtugur á mánudag Snorri Hjaltason bygging- arverktaki, Funafold 61, Reykjavík, verður fimmtugur á mánudaginn. Starfsferill Snorri er fæddur í Reykja- vík 30. september 1952 og ólst upp í smáíbúðahverfinu. Hann lauk sveinsprófi í húsa- smíði frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1983 og hlaut meistararéttindi byggingar- manna frá meistarskólanum i Reykjavík 1986. Snorri starf- aði við húsgagnasmíði hjá Ólafi R. Árnasyni 1970-1974, við húsasmíði hjá Búlka sf. 1979 og Trésmiðju Hornafjarð- ar 1981. Hann var sjálfstæður atvinnurekandi við húsa og innréttingasmíðar 1974-1979 og frá 1982 hefur hann rekið eigið fyrirtæki, Trésmiðju Snorra Hjaltasonar ehf. Snorri sat í stjórn félags starfsfólks í veitingahúsum 1975, í byggingarnefnd Sjálf- stæðisflokksins í Grafarvogi 1990- 1992, í stjórn hverfafé- lags Sjálfstæðisflokksins í Grafarvogi 1990-1993, formað- ur í eitt ár. Hann var í stjóm fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík 1993, í stjórn landsmálafélagsins Varðar 1991- 1995, varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1998-2002, í stjórn ÍTR og Hverfisnefnd Grafar- vogs 1998-2002, í byggingar- og sóknarnefnd Grafarvogs- kirkju 1990-1991, formaður al- menningsdeildar Fjölnis 1992, formaður UMF Fjölnis 1993- 1998 og frá 2000, í stjórn ÍBR 1998-2000, formaður Taek- wondo-nefndar ÍSÍ 2000-2002 og formaður Taekwondo-sam- bands íslands frá stofnun, 2002. Fjölskylda Snorri kvæntist 16.11.1974 Brynhildi Sigursteinsdótt- urbókara, f. 25.2. 1957. For- eldrar hennar eru Helga G. Guðmundsdóttir og Sigur- steinn Þórðarson, sem er látinn. Börn Snorra og Brynhildar eru Sigursteinn, f. 25.9. 1975, kennari, sambýliskona hans er Sigríður G. Ólafsdóttir, Reykjavík: Þórunn Kristín, f. 5.11. 1979, ferðaráðgjafi, sam- býlismaður hennar er Svan- þór Gunnarsson og eiga þau eitt barn; Ólafur Páll, f. 22.4. 1982, knattspyrnumaður, sam- býliskona hans er Hrafnhild- ur Eymundsdóttir, Reykjavík. Fyrir hjónaband átti Snorri dótturina Guðnýju Ástu, f. 11.4. 1973, maöur hennar er Steinþór Eggertsson og eiga þau þrjú böm. Systkini Snorra eru Ragna Kristín, f. 28.10. 1946, þjón- ustufulltrúi í Reykjavík, Jón Edwarð, f. 16.1. 1948, tónlist- arkennari í Reykjavík, Vignir Sveinbjörn, f. 1.1. 1951, múr- ari i Reykjavík, og Lilja, f. 16.8. 1956, tónlistarkennari í Reykjavík, Ólafur Páll, f. 3.10. 1959, d. 8.6. 1978. Foreldrar Snorra: Hjalti Ólafur Jónsson, f. 5.10. 1926, múrari, og Halldóra Þórunn Sveinbjörnsdóttir, f. 14.9. 1926, húsmóðir og skrifstofu- maður í Reykjavík. Ætt Hjalti er sonur Jóns Hjalta- sonar, f. 29.3. 1898, d. 7.12. 1972, verkstjóra í Reykjavík, og konu hans, Evu Sæmunds- dóttur, f. 22.8. 1908. Halldóra Þórunn er dóttir Sveinbjörns Rögnvaldssonar, f. 15.9. 1886, d. 23.3. 1975, bónda á Uppsölum, og konu hans Kristínar Hálfdánardótt- ur f. 22.11. 1896, d. 2.1. 1951. Snorri tekur á móti vinum og kunningjum í Golfskála GR, Grafarholti, á morgun, sunnudaginn 29. september kl. 11-14. son, f. 13.11. 1937. Börn Magnúsar og Önnu Hallgrímsdóttur eru Hallgrímur Magnússon, f. 17.1. 1949, dr. med., Grundarstíg 17, sonur hans er Einar Hallgrimsson, f. 14.3. 1985; Vigdís Magnúsdóttir, f. 14.2. 1951, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur, Baughúsum 36, maður hennar er Egill Már Guðmundsson, f. 27.1. 1952, synir þeirra eru tveir, Magnús Guðmundur Egilsson, f. 16.10. 1970, hann á soninn Pál Skirni Magnússon, f. 13.12.1993, og Arnar Óskar Egilsson, f. 16.10. 1978. Hálfsystir Magnúsar, samfeðra: Þrúður Guð- mundsdóttir kennari. Alsystkini Magnúsar: Þór- hallur Guðmundsson verkamaður, f. 9.2. 1900, d. 30.6. 1987; Helgi Guðmundsson pípulagningameist- ari, f. 16.2. 1902, d. 1.10. 1973; Hólmfríður Guð- mundsdóttir húsmóðir, f. 19.11. 1903, d. 2.5. 1989; Sigurður Guðmundsson sjómaður, f. 1904, látinn; Gísli Guðmundsson skipstjóri, f. 13.7. 1908, d. 17.2. 1943; Jóhann Guðmundsson, starfaði hjá Samein- uðu þjóðunum, f. 5.2. 1923, d. 2001. Foreldrar Magnúsar voru Guðmundur Hallsson, f. 8.4. 1864, d. 22.6. 1948, bóndi, og Margrét Einars- dóttir, f. 13.7. 1880, d. 5.7. 1972, húsmóðir. Þau bjuggu að Ytri-Sveinseyri í Tálknafirði. Höfuöstafir Kormákur Erlendsson hét maður sem lengst af átti heima á Egilsstöðum. Hann var slyngur hagyrðingur. Einhverju sinni vann hann í Skógrækt ríkisins á Hafl- ormsstað ásamt fleira fólki. Þar var þá ráðskona sem lá undir ámæli fyrir að liggja lengst af í sólbaði og gefa starsfólkinu skonrok með kaffinu. Um þetta orti Kormákur: Puöar viö pottlok, pínd undir þrœlsok, mórauö sem moldfok maddama skonrok. Helgi Seljan, fyrrum skólastjóri og alþingismaður, orti ungur að árum vísu um mann sem honum llkaði ekki við: Hlœr svo dátt, en hyggur flátt, hímir þrátt og sefur. Yrkirfátt og undur smátt andans gáttaþefur. Eftir að Guðni Ágústsson ráðherra hafði haldið fund með Norður-Þingeyingum orti Jóhannes Sigfús- son á Gunnarsstöðum: Allt sem vonum okkar brást allt sem mátti klaga, allt sem Drottni yfirsást ætlar Guðni aö laga. Sá snjalli vísnasmiður Ólafur Sigfússon í Forsælu- dal orti einhvern tíma að gefnu tilefni: Eg hef fundi átt í dag meó ýta kindum alsjáandi á eigin hag en annars blindum. Boxarinn fékk sér bi-eta en bi-etann þó vildi ekki éta úr andstœöings eyra. Ógn er aö heyra. Hann kunni ekki ketið aó meta. Ýta kind merkir maður. Takið eftir að fyrsta orðið í fyrstu línunni er Eg, ekki Ég. Að öðrum kosti er stuðlasetning vísunnar röng og það hefði Ólafur ekki látið henda sig. í síðasta þætti birtist limra um þann hápunkt íþróttasögunnar þegar boxarinn Tyson beit eyrað af mótherja sínum og fékk bágt fyrir. Mér barst nýlega önnur limra um þetta efni, höfundur er Sigurður Ó. Pálsson á Egflsstöðum. Eitt rímorð limrunnar inniheldur svokallað skriðhljóð sem lengi tíðkað- ist á Austurlandi en er nú að mestu aflagt, hér táknað með i-e: Umsjón.<*» Ragnar Ingi Aðalstcinsson ria@ismcnnt.is Og hér verða viðkvæmar sálir aö hætta að lesa því að síðasta vísan er svolítið dónaleg. Björn Ingólfsson á Grenivík kom eitt sinn inn í matvöruverslun og vildi kaupa frosið nauta- hakk. Afgreiðsludama tjáði honum þá að allt nautahakkið væri þiðið. Þetta þótti Birni undar- lega til orða tekið og orti: Merkilegt hvaö málfarssviöið margir teygja breitt og vítt. Nautahakkiö þitt er þiöið. Þér hefur sjálfsagt veriö rítt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.