Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2002, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2002, Blaðsíða 61
r LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 JH&lgarblctö H>”V' &5, Ljónið (23. júlí - 22. ágúst) Stjörnuspekilega stjómast þú af sól- inni, miðju og orkugjafa sólarkerfls- ins. Árið 2003 virðist þú minnka væntingar þínar og verður með- vitaðri um þitt innra sjálf. Hér birtist þú upptekin/n af ímynd þinni. Þú ættir að læra að elska sjálfa/n þig upp á nýtt þegar líð- an þín er annars vegar en þegar árið 2003 er skoðað stendur við- skiptalegur ávinningur svo sannarlega upp úr. Þú ert að eðlisfari mjög árásar- gjam/-gjöm og viðurkennir það og neitar því reyndar í bylgjum. Mikið skap þitt auðveldar þér að takast á við hindranir sem birt- ast í byrjun febrúar á sama tíma og þú virðist ná valdi á skapi þínu og lætur það vinna fyrir þig. Þú virðist vera ófær eða ófús að kann- ast við innstu tilfmningar þínar og liflr gjaman hratt og á yfirborð- inu en kafar ekki í hyldýpið. Eins og fyrr segir birtast hér stórir sigrar þegar viðskipti eru annars vegar. Hér er aftur á móti spum- ing um viðhorf ef góður árangur skal nást. Það ætti ekki að kosta þig meiri háttar andlegt átak að taka upp rétt viðhorf. Þegar ljónið er að byggja upp fyrirtæki eða takast á við verkefni, sem er enn lít- ið og ákvarðanimar áhættusamar en ekki mjög flóknar þarf ekki nema nokkrar snjallar ákvarðanir til að það fari að trúa því að eðl- isávísunin sé „gulls ígildi“ - að hún sé í raun óskeikul. Þú ættir að tileinka þér að vanda valið þegar þú ætlar að reiða þig á innsæi. Ákvörðun, sem byggir á eðlisávísun, er sú sem þú horfist í augu við þegar þú ert búin/n að kynna þér allar staðreyndir málsins, hafðu það hugfast. Þú ert ein/n af þeim sem er fær inn að byggja upp sálarró með því að draga lærdóm af kringumstæðum og nýta þér það þegar svipaðar kringumstæður koma upp aftm-. Nýttu þér reynslu þína og taktu eftir öllum myndhverfingunum sem bndast þér en án efa er oft sannleikur falinn í því sem lítur út fyrir að vera merkingarlaust. Öryggi einkennir umhverfi þitt og fjárhag þegar haustar. Bakgrunnur þinn eflir sjálfstraust þitt. Undirmeðvitund þín er eflaust í sjálfskoðun og þú á þessum tímapunkti (áramót 2003) meðvituð/meðvitaður um líðan þína, drauma og þrár. Haltu áfram að bjóða kraftaverkunum heim og sýndu örlæti þitt í verki. Meyjan (23. ágúst - 22. sept.) Finndu takt þinn ef upp kemur verkefni sem krefst vitsmuna þinna og aðhalds af þinni hálfu. Þér er ráðlagt að finna jaihvægið innra með þér og ekki hika við að hugleiða ef það ýtir undir þína jákvæðu eig- inleika. Þú ert fær um að takast á við erfiðar aðstæður með at- ferli þínu og aga. Hér er verið að minna þig á kosti þína ef erf- ið staða kemur upp í lífi þínu, jafnvel starfí. Hér birtast breyting- ar af hinu góða þegar stjama meyju er tekin fyrir árið 2003. Um þessar mund- ir stendur þú í sporum þar sem þú ættir að huga mjög vel að jafn- vægi þínu. Þú ert fædd/ur til veraldlegrar ábyrgðar og ert svo sannarlega þyndar þinnar virði í gulli. Hér kemur fram að þú stendur frammi fyrir ákvörðun sem þú ættir ekki að draga á lang- inn. Leystu sjálfan þig úr ánauð hins þekkta og gakktu inn i hið óþekkta. Hér birtast vegamót sem þú ert um það bil að ganga í gegnum og ættir að ákveða hvora leiðina þú kýst að velja. Valið er eflaust erfitt fyrir þig þessa shmdina. Eftir að þú hefúr ákveðið þig er ekki aftur snúið því líf þitt mun taka miklum stakkaskiptum. Þú hefur skarpar gáfúr og ættir að tr’eysta á þær. Þú ert að sama skapi eldfljót/ur að átta þig á öllu falsi og lætur ekki svindla á þér. Þér er ráðlagt að treysta því að hlutimir verði eins og þú ein/n vilt og að þér sé ætlað stærra hlutverk en þú sinnir í dag. Endir er á bið sem hefur einkennt umhverfi þitt og líðan þína til lengri tíma. Útkoman uppfyllir óskir þínar og þrár. Málin taka stökk- breytingum á skömmum tíma. Hlustaðu gaumgæfilega á hjarta þitt og hugaðu vel að framtíð þinni með réttu hugarfari. Skilaboð- in hér era að þekking þín og reynsla era marktæk og munu án efa koma sér vel fyrir þig. Samviskusamlega gefur þú þig alfarið þeg- ar nám þitt eða starf er annars vegar. Þú uppfyllir þar með kröf- ur annarra og á sama tima eigin líðan. Þú beitir þínum einstæðu hæfileikum rétt og notar þá án efa í þjónustu mannkynsins en þar skapar þú nægtir góðra hluta fyrir þig og ekki síður aðra. Viður- kenning fyrir vel unnið starf birtist með vorinu þar sem eitt leið- ir af öðra í jákvæðum skilningi. í lok árs 2003 ríkir mikil gleði hjá stjömu þinni. Þú átt þér stóra drauma og ert jákvæð manneskja með metnað á hæsta stigi sem er af hinu góða. Orkustöðvar þínar era öflugar og óskir þínar era saimarlega raunhæfar. Stjama þín segir ekki aðeins til um velgengni þína heldur lætur drauma þína verða að veruleika fyrr en þig granar. Hamingja og velferð ein- kenna þig og verkefiii þín sem virðast gefa þér mikið. Þú munt öðl- ast það vald sem þú sækist eftir. Notaðu þínar sérstöku gáfúr í þjónustu annarra. Vogin (23. sept. - 23. okt.) Stöðugt loft einkennir þig þar sem þú tilheyrir sjöunda merki dýrahrings- ins. Samstundis ert þú minnt/m héma á að horfa aðeins á hið góða í veröldinni. Þú átt aðgang að hinu fullkomna jafhvægi hugar og hjarta og ert fær um að skapa hvaðeina sem hugur þinn stendur til. Áhyggjur tengdar fjárhag þín- um kunna að vera efst á baugi hjá þér og jafnvel atvinnuleysi að angra þig. En fátækt þarf ekki að tengjast pening- um heldur oft á tíðum andlegri líðan. Hjálpin er nær en þig grunar og vandamálin leysast skjótt með jákvæðu viðhorfi og óbilandi bjart- sýni. Friður, hvíld og vellíðan einkenna þig. Vandamál heyra sög- unni tiL Þú verður leidd/ur í gegnum jákvæða reynslu sem ýtir und- ir vellíðan þína og ekki síst velgengni árið 2003. Hreysti, inmi frið- ur og jákvætt viðhorf eru áherslur stjömu þinnar. Þú ættir að taka opnum örmum á móti því sem stjama þin færir þér en hér er á ferð- inni jákvæð reynsla sem ýtir undir velgengni þína og ekki síst við- urkenningu fyrir sumarbyrjun 2003. Þú þarfnast ástar, umhyggju og ekki síður athygli um þessar mundir en ættir reyndar að leita betur innra með þér. Með því að gera það fmnur þú ný tækifæri sem tengj- ast framtíð þinni og öðlast þannig skilning á tilgangi lífsins. Vinnu- semi, skipulag, dugnaður og metnaður einkennir þig árið 2003. Þú ert miklu betur sett/ur ef þú átt ávallt von á því besta, hafðu það hugfast í marsmánuði því stórkostlegir hlutir birtast í lífi fólks sem fætt er undir stjömu vogar. Stjama þín þrífst best þegar mikið er um að vera. Hún stefnir hátt og nær ásættanlegum árangri. Igrundaðu val þitt gaumgæfilega haustið 2003. Miklar andstæður era irmra með þér i nóvember þegar tilftnningaflæði þitt er skoðað. Þú ert minnt/ur á að þú ert svo sannarlega fær um að kljást við verkefni sem er nýhafið eða um það bil að verða að veruleika. Sjálfsagi er mikilvægur en þú ættir ekki að hika við að staldra við og horfa með innri augum á afleiðingar verka þinna. Virtu hugboð þín og biddu hjartað um leiðsögn. Skilaboð hjartans era skýr og vísa þér á rétta braut. Samhliða því er þér ráðlagt að velta fyrir þér gaumgæfilega hvers konar manngerð þú ert. Skapaðu umhverfi sem laðar að gæfu og finndu að sama skapi tækifærin sem henta þér og gera þér kleift að fagna innilega öllum stundum. Hugaðu að uppruna þínum á sama tíma og fom vinur eða ástvinur verður jafnvel á vegi þínum í lok árs 2003 þar sem þú launar honum með gleði í hjarta. Þér er ráðlagt að setja þér það markmið að gefa náunganum af þér en því meira sem þú gefur því meira verður sjálfsöryggi þitt í eigin garð og annarra. Þú getur hrint af stað hringrás gleðinnar með jákvæðum huga og góðverkum þínum, hafðu það hugfast framvegis. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Breytilegur eldur einkennir stjömu þína og segir til um íhaldssamt eðli þitt. Áhrifastjama þín Júpíter veitir þér ómældan kraft og kröfulaust trygglyndi. Glampi skín úr aug- um þínum sökum vellíðunar því hér birtist þú ástfangin/n. Undir- meðvitund þin lætur þig vita hvert stefnir. Áttaðu þig á því hvenær þú heldur aftur af þér og hvenær þú ættir að hlusta betur á hjarta þitt í upphafi árs 2003. Kynlíf og ást era mjög mikilvægir þættir í lifi þínu án efa en þeir fullnægja ekki þörf þinni fyrir veraldlega viðurkenningu. Þú veist hvað þú vilt upp- lifa og ert sigurvegari á því sviði sem þú velur þér og á það einnig við um val þitt á maka eða elskhuga. Þú býrð yfir hemaðaranda sem þú heldur í skefium og gefur ekki lausan tauminn nema við vissar aðstæður. Tilfinningar þínar upplifa erfiða tima sumarið 2003. Þú ættir að gefa taugakerfi þínu skýrari fyrirskipanir til þess að njóta og upplifa það sem eflir þig og sfyskir. Geysileg hugarstarfsemi á við •*; héma þar sem þú kýst að bæta aðstæður á einhvem hátt. Tjáðu innstu hvekkingar þínar og upplifðu áhyggjuleysi og unað framveg- is. Þú reynir án efa að vera sveigjanleg/ur og bregst ekki við eftir skynjun þinni heldur aðstæðum í júlímánuði. Þú stuðlar héma að stöðuleika sem er jákvætt vissulega en undrið er vöxtur og birting hins guðlega neista sem býr greinilega irmra með þér. Hér er um að ræða varanlegt ástand sem þú getur eflt með sjálfinu. Sjálfsöryggi og agi einkennir bogmann árið 2003. Þú munt vafalaust virkja drauma þína samhliða gjörðum þínum. Vitsmunir, vilji og þinn ómældi hæfi- leiki í mannlegum samskiptum mun koma þér á áfangastað og mátt- ur þinn til að skapa á sér engin takmörk. Þér er hér ráðlagt að nota kosti þína til að koma hugsunum þínum í verk sem fyrst. Þú sækir andlegan og líkamlegan mátt ómeðvitað til æðri máttarvalda og á sama tíma úr umhverfi þínu. Tæra vitund þín er þinn andlegi grand- völlur og orkuflæðið hjá þér er mjög mikið þegar litið er til ársins 2003. Þú leitar án efa að spennu einhvers konar sem ýtir undir færni þína við að takast á við daglegt amstur. Hugaðu betur að því hvem-' - ig þú getur breytt þessari umtöluðu reynslu í ávinning. Þú virðist vera reiðubúin/n að leggja þig fram af alhug þegar kemur að verk- efni sem þú stendur frammi fyrir í lok apríl. Þú þráir að klára kafl- ann og telur jafnframt að framhaldið verði betra að öllu leyti með persónulegar þarfir þínar og náungans í huga. Framtíðin sýnir stöðuhækkun og batnandi aðstæður. Þér er ráð- lagt að efast hvorki um framhaldið né frama þinn sem er um það bil að breytast til batnaðar. Sporðdreki (24. okt. — 21. nóv.) Þú stjómast af Plútó sem sýnir þig hungra eftir snertingu og umhyggju fyrstu þrjá mánuði nýs árs. Þú gimist að sama skapi vald en felur af óskiljanlegum ástæðum markmið þín. Það eitt tefur þig í átt að draumum þínum, hafðu það hugfast i byrjun apríl. Náðu valdi á líðan þinni og notaðu mun betur skynfæri þín sem eru háþróuð því þú ert fær um að skynja með þeim öllum samtímis. Hugur þinn er sispyrjandi og þú virðist knúin/n af ein- hverju innra afli til að tefla djarft þótt þú viljir helst leika af öryggi. Áráttugimi þín og öryggisleit fylgjast hér að. Bráðlyndi, eldmóður, reiði og jafnvel hvatvísi gæti átt við töluna tíu sem birtist samhliða stjömu sporðdreka árið 2003. Efldu innra jafnvægi þitt með því að lifa til fulls og láttu hjarta þitt ráða því ef egóið fær að stjóma þá verður rómantíkin sem birtist hér án efa hlýjulaus. Einhver virðist hafa gert á hlut þinn þegar litið er til fortiðar. Ekki snúa tilfinninga- hita þínum upp í hefnigimi og hafðu hemil á neikvæðni þinni fyrir alla muni. Með vorkomu birtist jafnoki þinn á öllum sviðum. Vertu reiðubúin/n að veita tilfinningum ykkar sama frelsi og sjálfstæði og þú sjálf/ur þráir. Þú veitir hér í einlægni og býst við að aðrir geri slíkt hið sama og sú er raunin þegar horft er til framtíðar. Þú finn- ur hjartslátt og tónlistin flæðir um æðar þínar. Alheimurinn skrepp- ur hér saman í manneskjuna sem þú annt og viðkomandi verður vissulega fær um að uppfylla óskir þínar en aðeins ef þú horfir hreinskilnislega í augu við þig sjálfa/n. Það er frelsi í heiðarleikan- um og þar af leiðandi kemst meira traust á samskipti sem tengjast þér. Þú býrð yfir óbilandi krafti, hugsjónum og góðmennsku. Þú ert fær um að setja mark þitt á heiminn. Sfiama þín sýnir gæfu þar sem styrkur þinn á sér að nokkra upptök i meðfæddri bjartsýni þinni. Hvemig sem þú ferð að því þá er þér á óskiljanlegan hátt eðlilegt að draga að þér jákvæða athygli því útgeislun þín er áberandi öflug. Með sífeUdri ögrun heldur þú vissulega áfram að þroskast. Aðdrátt- arafl þitt með innri orku og ósigrandi lífskrafti veitir þér hugrekki til að yfirstíga og horfast í augu við eigin tilfmningar þegar nýr kafli hefst sem sýnir þig hér á ferð og flugi. Hér birtist einnig voldug efna- blanda sem einkennir þig, greind og mikill viljastyrkur en þú lítur björtum augum á tilveruna og álitur hana jafnvel einhvers konar leiksvið þar sem þú ert án efa fær um að sanna þig í ótal hlutverk- um. Hér setur þú reglumar sjálf/ur, minntu þig reglulega á það í nóvember og desember 2003. Steingeit (22. des. - 19. jan.) Ef þú ákveður að halda ótrauð/ur^. áfram á vit nýrra ævintýra munt þú/ ekki vera vera fær um að snúa við., Þú birtist hér fótviss en varkár/ þegar árið 2003 er tekið fyrir. Þúl gengur héma varlega og tekur eitty skref í einu. Ekki hika við að styðja' hugboð þitt með áþreifanlegum sönn- unum og halda praktísku samhengi i öllu sem þú tekur þér fyrir hendur. Mikill erill einkennir líf þitt fyrri hluta árs 2003. Hér virðist þú hafa tekið að þér of mörg verkefni. Talan tíu sýnir hér einum of mikið af ein- hveiju en þú gætir átt það á hættu að leysa verkefnin sem bíða þín ekki vel úr hendi sama hversu mikið þú leggur þig fram við verkefn- in. Ekki reyna að gera meira en þú telur þig hafa burði til að takast á við. Þér er ráðlagt að gleyma ekki að njóta smáatriðanna. Ef þú ert ekki fær um að njóta þess smáa munt þú ómeðvitað sækja í meira og stærra. Ekki falla í gryfju óánægju og græðgi. Innblástur, sköpunargáfa, spenna, metnaður og vilji til að fram- kvæma hugmyndir þinar sem þú hefur eflt innra með þér lengi vel einkennir árið 2003. Hér er aðeins eitt sem kemur til greina og það er upphaf á einhveiju stórkostlegu sem þú leggur metnað þinn í og ekki síst sköpunarkraft sem fyllir þig lífi og vilja til að skara fram úr. Þú ert fær um að koma hugmyndum þínum frá þér og metnaður þinn flýtir fyrir ferlinu yfir í kafla sem færir þér fiárhagslegt öryggi. Þú skynjar lífsþægindi samhliða hamingjutilfinningu héma. Til- hugalíf þitt er jafnvel spillt með gjöfum og elskhugi þinn dekrar við þig. Umhverfíð og samskiptin efla þig og elskhuga þinn með sanni. Vellíðan einkennir þig á sama tíma og þú ert fær í þeirri list Vertu rík/ur með þínum hætti og þá finnst þér þú vellauðaug/ur. Þér tekst að leysa vandamálin sem fylgja lífsmáta þínum og þú virðist nota starf þitt til að fá útrás fyrir vandamál þín i ástinni. Þér tekst að fá næga tilbreytingu til að halda sambandi gangandi eða takast á við það sem er um það bil að hefiast. í upphafi ástarævintýris getur þú heillað næstum hvaða manneskju sem er. Hlustaðu betur og vertu , þolinmóðari og hættu að taka á þig hálfa ábyrgðina á mistökum sem ' þú hefur jafnvel upplifað í samböndum fortíðar. Þegar hjarta þitt opnast og er ekki bundið neinu framkvæmir þú án erfiða og leyfir þér að stjóma tilfinningagáttum þinum algerlega meðvitað. Þú virð- ist vera fær um að njóta frelsisihs og líkar vel að vera sjálfstæð/ur og á það vel við framhaldið þegar sfiama steingeitar birtist. Lærðu að ráða við upptök streitunnar, óttann. Taktu ráðleggingum annarra og leyfðu hlutunum að hafa sinn gang. Losirðu þig við neikvæðar til- finningar, aðallega óttann verður árið 2003 þér til mikillar gleði. fGítarinn ehf. H Stórhöfða S7 sími 532-2125 og 895-9376 ^ fresísatssaasetfe m/öBu^fisfcar 53.900. £)1 www.gitarinn.is ☆ _ gitarinn@gitarinn.is r <
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.