Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2003, Side 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhríng-
inn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 kr.
Fullrarnafnleindarergætt. 550 5555
SKAFTAHÚÐ 24 10S REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMl SSO S080
■ S
72*
RabbiíAbbey
Road
Rafn Jónsson tónlistar-
maður er nýkom-
inn frá London þar
sem hann hljóðrit-
aði í hinu fræga
upptökuveri Bítl-
anna, Abbey Road.
„Þetta var frá-
bært," segir Egill
sonur hans sem lék þarna
með föður sínum en hann
er meðlimur í hljómsveit-
unum Sign og Ber. Rafn
faðir hans er betur þekktur
í poppheiminum sem
Rabbi trommuleikari í
Grafík og Sálinni. Plata
Rabba úr Abbey Road er
væntanleg á markað á
næsta ári.
Muldi hann niður
fangelsið?
Sjómannadagsráð Grundarfjarðar Kaupir
tveggja metra háan minnisvarða w járni og
grjóti eftir
Sjómannadagsráð Grundarfjarðar hefur fest kaup á
minnisvarða sem Arni Johnsen hefur gert og fullskapað
í fangelsinu á Kvíabryggju. Um er að ræða tveggja metra
hátt verk sem gert er ór járni, grjóti og í því er kýrauga
Minnisvarðinn verður vígður við hátíðfega athöfn á
Grundarfirði, sunnudaginn 16. nóvember en
þann dag losnar Árni einmitt lír fang-
elsinu.
„Það er hrein tilviljun að þetta beri
upp á sama dag," segir Runólfur
Guðmundsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs Grundarfjarðar, en
minnisvarðinn verður reistur í
minningu þess atburðar þegar
Eddan GK fórst í Grundarfirði
fyrir 50 árum. Varð þar mikill
mannskaði og fórust níu menn.
„Ég hef séð verkið hjá Árna og
ohnsen
það er mjög fallegt; sæbarinn hnullungur sem hann fann í fjörunni.
Hvílir hnullungurinn á þremur rústfríum járnstöngum og ofan á þeim
hella með kýrauga. Þegar litið er í gegnum kýraugað sést staðurinn í
fjörunni þar sem skipbrotsmönnum var bjargað á land,“
segir Runólfur en minnisvarða Árna hefur verið val-
inn staður á hafnarsvæðinu á Grundarfirði.
Runólfur Guðmundsson segist ekki viss um
að Árni Johnsen fái að vera viðstaddur athöfn-
ina þegar minnisvarðinn verður vígður,
Hann þurfi líklega að fara beint á Verndar-
heimilið í Reykjavík: „En auðvitað gerum
við allt sem í okkar valdi stendur til að
hann fái að staldra við hér í tíu mínútur.
Við eigum eftir að saknaÁrna. Öllbyggð-
arlög þurfa á svona atorkumönnum að
halda,“ segir Runólfur Guðmundsson.
hann losnar af Kvíabryggju.
Biskupinn í Kárahnjúka
Biskupinn yfir íslandi hyggst heimsækja virkj-
unarsvæðið við Kárahnjúka um helgina. Fer
hann þangað í fylgd presta af Austurlandi og
öðru fylgdarliði: „Sjálfsagt hefur biskupinn áhuga
á þessu svæði eins og aðrir," segir séra Vigfús
Ingvar Ingvarsson, sóknarprestur í Vallanes-
prestakalli, sem verður í för með biskupi upp á
hálendið. „Annars hafa kaþólskir prestar komið hingað og messað fyrir út-
lendinga sem þarna vinna og þá sérstaklega ítalina." Kaþólsku prestarnir
hafa meðal annars komið frá Akureyri og verið með helgihald eystra tvisvar
í mánuði. Hefur verið messað í Egilsstaðakirkju en í framtíðinni er ráðgert
að færa kaþólsku messurnar upp í Kárahnjúka því þangað eru flestir ítölsku
starfsmennirnir fluttir.
flN
KJ h Of^SCM
ppþvottavél
með íslensku stiórnborði og
íslenskri notendahandhók
ÖRKUHtíHi®1
Flugfreyjukórinn Stjómandinn þekkir vel til þeirra enda sjátfur kvæntur flugfreyju.
Kór á fljúgandi ferð:
Syngjandi flugfreyjur
.
iÞ
ÞURRKHftjHlLAi
„Þær eru lýriskar og góð í þeim
hljóðin," segir Magnús Kjartansson
tónlistarmaður sem ráðinn hefur
verið stjórnandi Flugfreyjukórsins. í
kórnum eru þegar 20 flugfreyjur og
vonast stjórnandinn eftir að þeim
fjölgi á næstunni: „Það er hins vegar
erfitt að ná þeim saman á æfingum
því þær eru alltaf á ferð og flugi."
Á efnisskrá Flugfreyjukórsins eru
mestan part lög sem fjalla um flug
og ferðir og nægir þar að nefna lög
eins og Fly me to the moon, Fljúgðu
hærra og How high is the sky.
„Ég kann þessu starfi vel enda hef
ég gert flest það sem hægt er að gera
með flugfreyju þar sem ég er kvænt-
ur einni," segir Magnús sem stefnir á
stórtónleika í tengslum við 50 ára af-
mæli Flugfreyjufélags íslands sem
haldið verður hátíðlegt á næstunni.
„Þetta eru bæði gamlar flugffeyj-
ur og nýjar og margar koma beint úr
fluginu á æfingar. Ég er ekki frá því
að þá séu tónarnir stundum hærri
en ella,“ segir Magnús Kjartansson
en þetta mun vera í fyrsta sinn sem
flugfreyjur stofna kór hér á landi.
.- STGR
AEG uppþvottavél: FAVORIT 65053U
• HVÍTkr. 79.900.-stgr. • STÁL: kr. 89.900.- stgr.
...allt um AEG á;
www.ormsson.is
SOKMSSON
Umboðsmenn
um land allt
i