Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003
Fókus DV
Jenna Baldwin var fimmtán ára þegar hún hvarf. Grunur féll á stjúpföður hennar. Hann neitaði sök og
sagði stúlkuna uppreisnargjarna og líklegast væri að hún hefði stungið af.
Stafsetningin knm
upp um monðingiann
„Mamma, ég elska þig og sakna
þín mikiö." Þannig hljóðuðu sms-
skilaboðin. En voru þau sönn? Voru
þau frá Jennu Baldwin, 15 ára, sem
var horfin?
Sérstæð sakamál
Jenna Baldwin bjó í Abersychan í
Gwent í Englandi. Ekkert hafði
spurst til hennar síðan 10. septem-
ber 2002. Eftir því sem dagar og vik-
ur liðu bárust móður hennar öðru
hverju sms-skilaboð frá hinni týndu
dóttur. Þegar fjölmiðlar greindu svo
frá því að hvarf Jennu hefði verið
falið morðdeild lögreglunnar fékk
móðir hennar enn ein skilaboðin.
„Lögreglan hegðar sér ekki vel. Ekki
hafa áhyggjur, það er allt í lagi með
mig. Ég sá í sjónvarpi að lögreglan
leitar mín. Segðu þeim að láta mig í
f'riði," sagði í skilaboðum merktum
Jennu til móður sinnar.
Rannsóknarlögreglumenn voru
tortryggnir vegna skilaboðanna. Þau
voru uppfull af stafsetningarvillum
sem lögreglumenn áttu bágt með að
trúa að fyrirmyndarnemandinn
Jenna myndi gera.
Stjúpfaðir Jennu, Michael Bald-
win, taldi víst að Jenna hefði stungið
af. Michael var nauðrakaður júdó-
Michael lét ekki sitt
eftir liggja í leitinni að
stúlkunni. Hannvar
duglegur að hengja
upp plaköt með mynd
og lýsingu á Jennu.
kappi sem hafði gegnt hermennsku
á yngri árum. Þegar Jenna hvarf
starfaði Michael á kjúklingabúi.
Michael lét ekki sitt eftir liggja í leit-
inni að stúlkunni. Hann var dugleg-
ur að hengja upp plaköt með mynd
og lýsingu á Jennu. Hann kom
einnig fram í sjónvarpi ásamt eigin-
konu sinni og saman báðu þau fólk
að aðstoða við leitina.
Farsíminn kom lögreglu á
sporið
Michael Baldwin lá undir grun
hjá lögreglunni og var fylgst grannt
með ferðum hans. í eitt skiptið sáu
lögreglumenn hvar hann festi kaup
á farsíma. Þeir komust að því að
hann hafði skráð símann á upplogið
nafn og seinna voru lagðar sönnur á
að Michael hafði sent konu sinni
sms-skilaboð í nafni Jennu.
Lögreglumenn létu til skarar
skríða og handtóku Michael. Hann
var með farsímann á sér en gerði sér
lítið fyrir og át símakortið en á því
var að finna upplýsingar um notkun
símans. Michael var ákærður fyrir
morð en hann lýsti yfir sakleysi sínu.
Ellefu vikum eftir að morðrann-
sóknin hófst viðurkenndi Michael
loks fyrir konu sinni að hafa banað
Jennu. Hann sagði atvikið hafa verið
slys í kjölfar deilna þeirra í milli.
Þann 19. nóvember 2002 fannst
lík Jennu Baldwin. Hún var grafin á
fáförnum stað í um 15 kílómetra
fjarlægð frá heimili sínu. Rotnun var
of mikil til að réttarlæknum tækist
að greina dánarorsök.
Lygar og blekkingar
Réttarhöld yfir Michael Baldwin
hófust í júní á þessu ári. Hann neit-
aði sök í málinu. Fyrir réttinum kom
hins vegar fram að Michael haffði
lagt mikla fæð á stjúpdóttur sína og
oft átt í illdeilum við hana. Blaða-
maður bar fyrir réttinum að Michael
hefði lýst stjúpdóttur sinni með
þessum orðum: „Þessi andsk. ung-
lingur. Hún er alltaf að lenda í vand-
ræðum. Eftir að hún fór er allt rólegt
og gott."
Jenna hafði átt í ástarsambandi
við karlmann á þrítugsaldri og varð
það að miklu deiluefni milli hennar
og stjúðföðurins. Henni var lýst sem
uppreisnargjörnum unglingi sem
naut þess að stríða stjúpföður sín-
um. Michael átti við hármissi að
stríða og kallaði Jenna hann gjama
Skalla.
Saksóknari fór hörðum orðurn
um hegðun Michaels Baldwins fyrir
réttinum. Hann sagði Michael hafa
sýnt af sér mikla grimmd og blekk-
ingarleikur hans hefði verið til þess
fallinn að auka enn á sorg móður
Jennu. Auk þess að senda fölsk sms-
skeyti kom í ljós að Michael hafði
reynt að stæla rithönd Jennu. Hann
hafði hug á að skrifa bréf í nafni
Jennu.
„Michael sýndi af sér samvisku-
leysi og grimmilega framkomu með
því að dvelja á heimilinu og láta eins
Lögreglumenn létu til
skararskríða og
handtóku Michael.
Hann var með farsím-
ann á sér en gerði sér
lítið fyrir og át síma-
kortið en á því var að
finna upplýsingar um
notkun símans.
og hann tæki þátt í harmi konu sinn-
ar,“ sagði saksóknari. Michael hafði
auk þess logið því að konu sinni að
Jenna hefði hringt. Rannsókn á
heimilissíma fjölskyldunnar leiddi í
ljós að slfkt samtal hafði aldrei átt
sér stað.
Ótrúverðug frásögn
Michael lýsti dauðdaga Jennu
með eftirfarandi hætti. Hann sagði
stúpdóttur sína hafa ráðist á sig með
miklum orðaflaumi. Hann hafi hald-
ið upp stigann og hún á eftir. Hann
hafi síðan slegið til hennar og hún
fallið niður stigann. Því næst segist
Baldwin hafa vafið Jennu inn í teppi
og komið henni fyrir í bíl sínum.
Förinni hafi verið heitið á sjúkrahús
en á leiðinni þangað hafi hann áttað
sig á að hún var látin. í örvilnan hafi
hann brugðið á það ráð að grafa
hana á fáfömum stað.
Saksóknari tók þessa frásögn ekki
mjög trúanlega. Ef stúlkan hefði lát-
ist af sfysfömm hefðu allir eðlilegir
menn haft samband við lögreglu og
sjúkralið. Michael hafi kosið að gera
það ekki. Saksóknari spurði ákærða
því næst hvort hann hefði átt í kyn-
ferðislegu sambandi við stjúpdóttur
sína. „Ertu að grínast? Við þoldum
ekki hvort annað," svaraði Michael.
Michael Baldwin var fundinn
sekur um morð. Hann hlaut lífstíð-
arfangelsi. Dómarinn, John Griffith
Williams, sagði ákærða vera lyginn
og hrokafullan. „Það eru miklar lfkur
á að þú hafir misst stjórn á skapi
þínu og kyrkt Jennu," sagði dómar-
inn meðaJ annars í lokaávarpi sínu.
Móðir Jennu hefur sagt skilið við
Michael Baldwin. „Ekkert getur ver-
ið skelfilegra en að missa barn. Ljós-
ið í myrkrinu er hins vegar að þessi
maður mun ekki oftar hafa áhrif á líf
okkar," sagði móðir Jennu að lokn-
um réttarhöldunum.
arndis@dv.is
Kaldrifjaður og grimmur Michael Baldwin missti stjórn á skapi sinu. Afleiðingarnar voru
skelfilegar. Hann gfplánar nú tifstiðardóm.