Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 4
4 /* DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978. ......... Orétt- lætið íbifreiða- trygging- unum: „Ég held að fullyrða megi að um það bil fjórði hver bíll sem lenti i árekstrum eða umferðaróhöppum í Reykjavik á sl. ári hafi verið skrásettur utan Reykjavíkur,” sagði Óskar Ólason yfirlögregluþjónn umferðar- mála i Reykjavík. „Það eru bílar sem auðkenndir eru með öllum stöfum stafrófsins, sem komið hafa við sögu árekstra í Reykja- vík ár eftir ár. Mestur er fjöldi bílanna sem skráðir eru i næsta nágrenni Reykjavíkur, G númerin, Y-númerin og X-númerin og síðast dreifist þetta á öll skrásetningarumdæmi landsins,” sagði Óskar. Tilefni upphringingar til Óskars er fréttin i DB úm mismun tryggingar- gjalda á bilum, eftir þvi hvar þeir eru skráðir. Tryggingafélögin skipta landinu i þrjú gjaldsvæði og þó bilar á utanbæjarnúmerum séu hér í Reykja- vik, sem atvinnutæki árið út og árið inn, komast menn upp með að greiða hluta þeirra gjalda, sem höfuðborgar- búar verða að punga út með. Var í fréttinni tekið dæmi um vöru- flutningabíla á sömu stöð. Annar var með P-númer hinn með R-númer. Á tryggingargjöldum bílanna munaði 68 þúsund krónum ári. Einn af deildar- stjórum stóru tryggingafélaganna Fjórði hver árekstursbíll í Reykjavík á sl. ári bar utanbæjarnúmer —samt aka margirþeirra með tryggingarskírteini sem kosta aðeins hluta af tryggingarskírteinum bfla á Reykjanessvæðinu staðfesti að dæmið í DB-fréttinni væri rétt. „Það er fullt af bílum hér í Reykja- vík allt áriö, sem bera skráningarmerki annarra umdæma,” sagði Óskar Ólason. „Sum þessara utanbæjar- númera hafa verið á bílum manna hér í borg frá því að ég hóf störf i lögreglunni.” Óskar sagði að i reglugerðum væru ákvæði sem heimiluðu mönnum akstur í 6 mánuði í öðru skrásetn- ingarumdæmi en bíllinn er skráður í. Hins vegar koma svo upp alls kyns tilfelli sem engin ákvæði ná yfir. Eigandi bíls „lánar” hann öðrum, eða um „sameign” er að ræða að þvi er haldið er fram o.s.frv. Verður þá oft erfitt við málið að eiga og allt er látið danka. En Ijóst er að gifurlegt óréttlæti viðgengst hér á landi i trygginga- málum bifreiða. Höfuðborgarbúum og nágrönnum er gert að greiða margföld gjöld á við aðra landsmenn. Á sama tima kemur i Ijós sú staðreynd, að í fjórða hverjum árekstri sem á sér stað í Reykjavík á utanbæjarbíll hlut aö máli og bílar sem skráöir eru á öllum „ódýru tryggingasvæðunum” koma við sögu árekstra í Reykjavík. -ASt. I marzmánuði 1977 varð sögulegur árekstur á Lækjartorgi. Árekstursslóðin varð 30-40 metrar. Bíll með X-númeri ók yfir aðalbraut án þess að stanza, bill með K-númeri lenti á honum með þeim afleiðingum að X-billinn valt. Fát kom á ökumann K- bilsins svo hann ók áfram og stöðvaðist langt frá á bil með R-númeri. Myndin er valin af handahófi úr miklu safni DB-mynda af umferðaróhöppum. DB-mynd Sveinn Þorm. Nútíma Gulliver - eða King-Kong? Það mætti ætla að á myndinni væri á ferii nútima Gulliver i Putalandi, — eða þá afkomandi risaapans King-Kongs. Svo er þó ekki. Ljósmyndarinn ungi, sem færði okkur þessa mynd, Ólafur Guðbjartsson heitir hann, hefur hér framkvæmt nokkrar sjónhverfingar með myndavél sinni, þannig að íbúar hússins á myndinni ættu að vera óhultir fyrir „risanum”. Mok-ýsa í Eyjum Bátarnir skipta um veiðarfæri að lokinni loðnuvertfð „Góður afli hefur verið hjá togbátunum bæði í gær og fyrradag og fengu sumir bátarnir allt upp í 40 tonn,” sagði Stefán Runólfsson hjá Vinnslu- stöðinni í Eyjum í samtali við DB í gær. „Aðaluppistaða aflans er ýsa sem fer öll i frystingu. Það eru einir 30-40 bátar sem eru á togveiðum og þeir voru með þetta frá 10,18,20, 25 og upp í 40 tonna afla,” sagði Stefán. Stcfán sagði að talið væri að loðnu- vertíðinni væri nú lokið, í það minnsta væru Eyjabátar að koma inn og skipta um veiðarfæri. Ekki sagðist Stefán vita hvers konar veiðar bátarnir færu á, en nokkrir færu á net, og heyrzt hefði að aðrir færu á spærlingsveiðar. A.Bj. Hundasmygl: ENGIN NÝLEG KÆRA — segir tollgæzlustjórinn „Það er eitt af verkefnum tollvarða að rannsaka sérstaklega hvort hundar hafi komið með skipum eða flugvélum, sem þeir tollafgreiða,” sagði Kristinn Ólafsson tollgæzlustjóri i Reykjavík er blaðið innti hann eftir afskiptum tollvarða af hundainnflutningi. „Ég man í fljótu bragði ekki eftir neinni kæru sem tollverðir hafa ofðið að afgreiða vegna smygltilraunar.á hund- um. Alla vega eru slíkar mjög sjald- gæfar,” sagði Kristinn. Kristinn sagði að i öllum und- antekningartilfellum varðandi inn- flutning á hundum væri Páll A. Pálsson yfirdýralæknir umsagnaraðili og i raun væri afgreiðsla dýrainnflutnings á hans valdi og lyti hans stjóm. Kristinn sagði að ef hundar væru um borð i erlendum skipum sem hingað leituðu til stuttrar dvalar væri eðlilegt að þeim yrði bannað að ganga hér á land, en í fljótu bragði kvaðst hann ekki muna að slíkt bann hefði þurft að framkvæma. ASt. Sakaður um sviksemi: ÞETTAVORU BARA MISTÖK segir málverkasalinn Fyrir allnokkru siðan var skýrt frá viðskiptum málverkasala og konu, sem keypti tvær myndir af manninum. Var sagt að málverkasalinn hefði tekið greiðslu fyrir tvær myndir, en aðeins skilið aðra þeirra eftir. „Þetta voru mistök,” sagði málverkasalinn i gær, þegar hann hafði samband við Dagblaðið. „Ég þekkti konuna vel og hefði aldrei dottið i hug að hlunnfara hana né nokkurn annan. Ég einfaldlega tók aðra myndina, sem hún hafði keypt, í hugsunarleysi og pakkaði niður með hinum myndunum.” Eftir að fréttin birtist í DB, leiðrétti málverkasalinn strax mistök sin og konan hefur báðar myndirnar undir höndum og unir glöð við sitt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.