Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978. Bæjarstjórinn fyrrverandi: Veitir birtu og yl um bæinn Rafmagn hefur aldrei verið betra á staðarins. Segir hún engan mann eins Eskifirði en einmitt núna í vetur. færan í því starfi og Jóhann.Þetta Þetta er því að þakka, segir Regina hefur orðið til þess að loðnubræðsl- Thorarensen, sú dugmikla fréttakona urnar hafa getað unnið án afláts — og á Eskifirði, að Jóhann Clausen, fyrr- á heimilunum hefur aldrei skort afl- um bæjarstjóri, sér um dísilvélar gjafann að sögn Regínu. Gömul ferðaskrifstofa — en síung: SAMVINNUFERÐIR GERAST UMBOÐSMENN FYRIR COOK Ferðaskrifstofa Thomas Cook í London er eitt af þvi sem enn minnir á hið gamla og volduga nýlenduveldi Bretanna. Nú hefur Thomas Cook gert Samvinnuferðir að umboðsaðil- um sínum hér á landi. Hyggst Cook auka ferðamannastraum hingað frá Bretlandi. Cook stofnaði ferðaskrif- stofu sína 1841 og er skrifstofan ein sú elzta í heiminum og er mjög virt fyrir vandaða vinnu, enda síung og býður upp á þjónustu i 870 útibúum sínum víða um jarðkúluna. I aðalskrifstof- unni í London starfa nú 1500manns. Arangursrík herferð Krabbameinsfélagsins Atlaga Krabbameinsfélags Reykja- víkur gegn nikótíninu hefur borið góðan árangur. Greinilega er það ekki lengur í tízku meðal ungmenna að reykja og á siðasta ári seldi ÁTVR 7% minna af tóbaki en árið á undan. Þetta segir sina sögu. Á aðalfundi Krabba- meinsfélagsins nýlega kom fram að í vetur hefur verið unnið að reykinga- vörnum á sama hátt og áður og starfið eflt. Fræðslustarf og fjáröflun eru aðalverkefnin en félagið leggur helming nettótekna af rekstri happ- drættis og af félagsgjöldum til Krabba- meinsfélags Islands. Greiðslan á síðasta ári nam 7.3 milljónum króna. í stjórn Krabbameinsfélags Reykja- víkur eru: dr. Gunnlaugur Snædal yfirlæknir, formaður, Alda Halldórs- dóttir hjúkrunarfræðingur, Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri, Guð- mundur S. Jónsson dósent, Jón Oddgeir Jónsson fv. framkvæmda- stjóri, Páll Gíslason yfirlæknir og Tómas Á. Jónasson læknir. Fram- kvæmdastjóri félagsins er Þorvarður örnólfsson lögfræðingur. KVENSKASS? Lögreglan er kölluð til að sinna eitt í Reykjavík henti út um glugga á óvenjulegustu málum — á myndinni fjölbýlishúsi. Munir þessir voru vist er lögregluþjónn með fangið fullt af eigur sambýlismannsins en þeim hafði innanstokksmunum sem kvenskass (?) sinnazt eitthvað. Þriðja hafréttarráðstefnan: „LANDSLIÐIД FARIÐ UTAN Enn á ný þingar hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna nú í þriðja sinn og fundir eru haldnir í Genf: „Lands- lið" okkar Islendinga er mætt til fund- anna en í því eru þeir Hans G. Andersen sendih., oddviti nefndarinn- ar, Jón L. Arnalds ráðuneytisstjóri, Már Elísson fiskimálastjóri, Jón Jóns- son forstöðumaður Hafrannsóknar- stofnunar, Guðmundur Eiríksson aðstoðarþjóðréttarfræðingur utan rikisráðuneytis, dr. Gunnar G. Schram prófessor, Eggert G. Þor- steinsson alþingismaður, Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður, Gils Guðmundsson alþingismaður og Þórarinn Þórarinsson alþingismaður. Borgarnes: Aþýðubandalagið með forval Síðari umferð forvals Alþýðubanda- Úrslit þess ættu því að liggja fyrir það lagsins í Borgarnesi stendur nú yfir. kvöld. Lýkur því sunnudagskvöldið 2. apríl. Óhemju fjármagni varið í bílasýninguna AUTO 78 LÍTT ÞEKKTIR BÍLAR - HREINUSTU FORNGRIPIR OG SUNDURSKORNIR BÍLAR — verða meðal sýningargripa á hinni miklu bílasýningu á Ártúnshöfða þátt í sýningunni að tveimur undan- skildum. Aðalsýningarsvæðið er ný sýningarhöll Jóns Hjartarsonar en handan við Bíldshöfða er annað hús sýningarinnar. Það er hús Árna Gísla- sonar. Aðgangseyrir verður aðeins tekinn í fyrrnefnda húsinu svo ekki kemur til erfiðleika með samgang milli húsa. Bílaumboðin hafa á aðalsýningar- svæðinu sýningarrými fyrir einn til 12 bila. Algengustu sýningarsvæðin rúma sex til átta bíla. 1 húsi Árna Gíslasonar verður vörubílasýning og þar verða ýmsir sýningarbásar fyrir ýmislegt er bilum tilheyrir, s.s. sýning á hjólbörðum, ryðvörn, húsvögnum o.fl. Margt verður gert til að auka á til- breytnina. Sýndir verða nokkrir gaml- ir bílar, eins konar forngripir. Meðal þeirra er slökkviliðsbíll. Honum verður ekið um Reykjavík á sumar- daginn fyrsta og verða þá slökkviliðs- menn með í ferð i búningum og hljóm- sveitin verður ekki langt undan. ASt. Óhemju fjármagni verður varið til alþjóðlegu bílasýningarinnar sem opnuð verður í tveimur stórhýsum á Ártúnshöfða 14. apríl kl. 7 síðdegis og stendur til 23. apríl. Sýningin hefur nú fengið alþjóðlega viðurkenningu og stefnt er að því að gera hana að glæsi- legustu sýningu sem hér hefur verið haldin og sýningarsvæðið er stærra en nokkru sinni hefur verið notað til sýninga hér eða 9000 fermetrar. Á sýningunni verða i fyrsta sinn sýndar hér ýmsar bílagerðir sem ekki eru seldar hér. Þarna verða hálfir bílar og sundurskornir til að „innmaturinn” sjáist sem bezt. Þarna verða gírkassar sem snúast svo áhorfendum gefst kostur á að sjá hvernig þeir vinna svo og sérstaklega byggðar sýningarbila- vélar. Dixieland-hljómsveit leikur á sýningunni meðan hún er opin en úti fyrir blakta þjóðfánar þeirra 20 landa sem á sýningunni eiga framleiðslu- hluti. öll íslenzku bílaumboðin taka Þarna sést Islenzki hópurinn 1 Bofors verksmiðjunni i Trollhátten 1 Noregi. Vélin sem fyrir aftan hann er á aö fara i loðnu- skipið Sigurð. Vélskóla- nemar kynna sér útlenda vélmenn- ingu Á milli 50 og 60 manns frá Vélskóla íslands voru snemma í marz í náms- og kynnisferð um ýmsar verksmiðjur á Norðurlöndum. Skoðaði hópurinn 3 verksmiðjur í Svíþjóð, 1 í Danmörku og aðra í Noregi ásamt safni i Þýzkalandi og olíurannsóknarstöð i Bretlandi. Nemamir sem fóru voru allir á fjórða stigi í vélstjóranámi eða á síðasta náms- ári og fylgdu þeim nokkrir kennarar. Nokkrir tslendinganna ásamt norskum starfsmönnum Bofors. Talið frá vinstri: Hreinn Haraldsson, Stig Alebro, Einar Ágústsson, Franz Gislason leiðsögumaður islenzka hópsins, Beril Eirikson, Bjöm S. Björnsson og Siguröur Knudsen.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.