Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 24
28 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31.MARZ 1978. Ameríkubréf: r r r Ein PRÓSENTIBUANNA OHLYÐN- AST OG ALLT FER ÚR SKORÐUM Hvers vegna kunna stórborgarbúar ekki að haga sérístérhríð og kolófærð? viðurkenna jafnframt að það var kann- ski svolítið erfitt. Það eru ekki einungis Evrópubúar sem hugsa svona. lbúar í Buffaló, New York eða Duluth Minnesota, sem sjá sex metra háa skafla á lóðum sínum, hlæja að þessum vesalingum í heimsborginni sem láta hálfsannars metra skafla koma sér úr jafnvægi. Uppi í Berkshire í Nýja Englandi þýðir snjókoma ýmislegt skemmtilegt. Fólkið stekkur fram úr ból- unum, tekur fjallabilinn sinn úr bíl- skúrnum og drífur sig á skíði. Fréttir úr borgum eins og Boston og New York fullvissa aðra um að „stórborgirnar séu einungis fyrir þá sem eru svo vitlausir að vilja búa þar.” daglega íbúatala allt að 11,5 milljónir manna, þótt ekki sé gott að geta sér til nákvæmlega um rétta tölu. Kostir og lestir stórborgarinnar Þegar veðrið er gott könnumst við flest við bæði kosti og lesti stórborgar- innar. Þar er hægt að kaupa allt sem hugurinn girnist, komast á milli staða í yfirfullum neðanjarðarlestum, velja á milli átján þúsund véitingastaða til að fá sér í svanginn þar sem á boðstólum er gífurlegt úrval bæði af réttum og á mis- munandi verði, — og umferðarvanda- málin virðast vera endalaus. Lítil vandamál Hundahald er ekki bannað i Bandarikjunum og þrátt fýrir ófsrð verður að fara út með dýrin.Það getur stundum verið erfitt þegar mikið snjóar. DB-myndir Jay X. Vicens. Póstmenn lenda einnig oft i vandræðum þegar snjóþungt er. Það er lika staðreynd að allt póstkerfið i Bandarikjunum fór úr skorðum i snjókomunni miklu á dögunum. á litlum stöðum Hvað gerist þegar snjóar? Stamford (í Connecticut) sem hefur 100 þúsund íbúa sem búa á 50 fermílna svæði á við ann- ars konar „snjó-vandamál” að búa en heimasveit mín, Litchfield (einnig í Connecticut), en þar eru 9 þúsund íbúar á 200 fermílna svæði. íbúi í Litchfield bendir á að hann búi í Berkshire fjalla- héraði sem standi 500 metrum hærra yfir sjávarmáli en New Yorkborgarbú- inn. Á „mildum” vetri er snjódýptin yfir- leitt einn og hálfur metri að meðaltali. Þar að auki og þrátt fyrir viðáttuna eru ýmsir vegir sem hægt er að velja um að aka eftir og þó nokkrar ár sem geta tekið við leysingavatninu þegar fer að vora. Viðáttan gerir það einnig að verk- um að hægt er að halda öllu gangandi með lítilsháttar snjómokstri og sand- austri. Allir þekkja alla og ef þú lendir í vandræðum með bílinn þinn eða de;ttur á hálkunni eru ótal hendur á lofti til þess að hjáfpa þér. Þegar einhver af íbúunum leggur í hann án þess að hafa útbúið bíl- inn sinn nægilega vel til vetraraksturs og það eru alltaf til fáeinir sem eru fyrir- hyggjulausir, skapast engin teljandi vandræði, því þeir eru fáir og auðvelt að koma þeim til aðstoðar. En þrátt fyrir þetta, detta alltaf einhverjir og meiða sig, þrátt fyrir milda vetur og einhver situr fastur á bilnum sínum I ófærð. Stór vandamál á stórum stöðum En hvað gerist í New Yorkborg. Þar er það fjöldinn sem er mest áberandi. Ef við gerum ráð fyrir að 99% íbúanna lendi ekki í neinum vandræðum vegna snjókomunnar, detti og slasi sig á hálk- unni eða þurfi á sjúkrahjálp að halda vegna hjartaáfalls o.s.frv. Island og New York og það reynist oft geysilega mikið starf. Fjórir bílar stoppa alla umferð á hraðbrautinni Hvað þarf marga bila til þess að stoppa alla umferð á hraðbrautinni? Á fjögurra akreina vegi þarf nákvæmlega fjóra bíla. Mjög einfalt. Ef við tökum enn dæmi frá vinum okkar úr eina pró- sentinu og nokkrir bílar þeirra lenda saman á Van Wyck hraðbrautinni sem liggur út til Queens og Kennedy flugvall- ar. Björgunarfólk á í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar vegna þess að aðrir bílar sem einnig tilheyra eina prósentinu komast ekki leiðar sinnar og enginn skilur af hverju það gengur svo seint að komast heim. Allir eru að flýta sér heim til þess að horfa á sjónvarpið. Einhver bílsljórinn verður ofsareiður og rýkur út úr bíl sínum til þess að formæla um- ferðartöfinni. Honum skrikar fótur og hann brýtur á sér hausinn. Nú er enn meiri vandi á höndum, því nú þurfum við líka á sjúkrabíl að halda. Hann er svo sem ekki langt undan, ekki nema svona tvær mílur. En það getur tekið marga klukkutíma að komast að hinum slasaða á hraðbrautinni þar sem fjöldi bíla þeirra sem tilheyra eina prósentinu sitja fastir. Hvað gerist svo á flugvellinum? Stjórn Kennedyflugvallar horfir með skelfingu á vandann þegar þúsundir manna hrúgast upp á vellinum. Alla þarf að fæða, hýsa og róa. Hundruð flugvéla koma og fara daglega og erfið- leikamir hrúgast upp. Flugvallarstjórnin "tekur þá ákvörðun að loka hreinlega vellinum. Að visu veldur það miklum óþægindum en sparar þó önnur óþæg- indi. Þetta getur eina prósentið alls ekki skilið. Litlu f lugvellirnir opnir Ef þú værir í Litchfield gætirðu flogið til og frá Johnny Kay flugvelli án nokk- urra teljandi erfiðleika. Eina vandamálið er að sá flugvöllur er svo lítill að hann getur ekki tekið á móti stóru þotunum. Það geta heldur ekki flugvellirnir í West- chester, Ansonia, Simsbury, Bridgeport o.s.frv. En þeir eru allir opnir og hægt að fljúga þangað og þaðan á litlum flugvél- um. Með sígarettur og Lindusúkkulaði Við þekkjum öll persónulega einhvern sem tilheyrir þessu eina prósenti. Þegar borgaryfirvöld gefa út tilkynningu um að allir séu beðnir að halda sig innan- dyra litur vinur okkur út um gluggann á snjóinn. Þá man hann eftir því að hafa einhverntima gengið frá Akureyri til Reykjavíkur í stórhrið með pakka af sígarettum og Lindusúkkulaði í vasan- um. „Bannsettar skræfur, hvað eru mennirnir að tala um,” hugsar hann með sér. Svona bregzt þessi vinur okkar við í hvert skipti sem stórhríð skellur á. En einhverntíma kemur að þvi að einmitt hann eða hún dettur á hálkunni fyrir framan Rockefeller Center og meiðir sig á fæti. Hann er fullur vandlætingar yfir því hve lengi lögregla og sjúkrabíll er á leiðinni til þess að bjarga honum. Hann getur ekki skilið að björgunarmenn þurfa að smokra sér eftir snjóugum göt- unum fram hjá fjölda bíla sem þar sitja fastir. Siðan þarf að smokra sér á nýjan leik í gegnum skaflana að slysadeildinni með þann slasaða. Þar er fjöldinn allur af hinum sem fylla eina prósentið og allir verða að bíða rólegir eftir því að að honum komi. Þar er fólkið afgreitt eftir því hve alvarlega það er slasað en ekki eftir þeirri röð sem það kemur inn — og þarna er engin stéttaskipting. Þannig fer ekki hjá þvi að einhver móðgast gróf- lega. Vinur okkar t.d. var forstjóri hjá stóru fyrirtæki og hann gat ómögulega skilið hvers vegna hann þurfti að biða endalaust eftir að fá gert að snúnum ökkla. Þannig er þetta. Næst þegar yfirvöld- in biðja fólk um að halda sig innandyra einn dag á meðan verið er að hreinsa snjóinn af götunum, skaltu fyrir alla muni verða við þeim tilmælum. Það skapar miklu minni vandræði fyrir alla aðila. Það borgar sig að fara að öllu með gát og nota skynsemina. Bless á meðan. Jay X. Vicens. Svei mér þá, stundum heyrist sagt: Þetta fólk er alveg eins og börn — nokk- ur snjókorn og öll heimsborgin lamast gjörsamlega. Veit þetta fólk ekki að það snjóar vanalega á veturna? Er það ekki búið undir snjókomuna. Hvað gerðist ef eitthvað ægilegt kæmi fyrir raunveru- lega? Viðkomandi gæti haldið áfram í þess- um dúr: ....einu sinni leit ég út um gluggann og snjórinn náði upp að hús- þakinu. Ekki stoppaði það mig í að fara í vinnuna þótt ég þyrfti að ferðast yfir hundrað og fimmtíu km leið! Auðvitað ekki.” Við höfum öll heyrt þetta og ekki að ástæðulausu. Það veldur einhvers konar yfirburðatilfinningu yfir ibúum þeirra svæða sem um ræðir. New Yorkbúar eru varla svo óskaplega veraldarvanir fyrst smávegis snjókoma kemur öllu þeirra lífi úr jafnvægi! Okkur finnst aðeins ævintýralegt að komast þangað sem við ætluðum okkar, en verðum að Mannfjöldi og skilningsleysi Hver er svo sannleikurinn í öllu þessu? Athugull áhorfandi ætti að at- huga allar þessar staðhæfmgar vel og vandlega og leita eftir staðreyndum. Þegar allt kemur til alls er oftast um að ræða mannfjölda og skilningsleysi. Það sem við köllum vanalega New York er borg sem er samansett úr fimm borgarhverfum með um það bil 9.5 millj- ónir íbúa. 1 augum flestra er New York ekki annað en Manhattan eyja með öll- um sínum háhýsum og veitingastöðum, leikhúsum og neðanjarðarbrautum, stór- verzlunum og sérverzlunum. Á eyjunni búa um 8,2 milljónir manna á iandsvæði sem er ekki stærra en tvær mílur á breidd og fimm á lengd. Daglega eykst tala þeirra sem hafa daglegt viðurværi sitt á eyjunni með fólki sem býr á Long Island, Connecticut, Philadelphiu og uppi i New York riki. Þannig verður Hið erfiða eina prósent Þetta eina prósent er hvorki meira né minna en 95 þúsund manns, sem búa í borginni um helgar eða 115 þúsund manns sem er eitt prósent af þeim sem þangað sækja daglega vinnu sína. Hvað er það sem nú gerist? Á meðan þetta eina prósent á í hinum mestu vand- ræðum búa snjóruðningsflokkar sig undir að ryðja snjó af götum sem eru 2600 mílur á lengd, þaktar bilum og farartækjum vina okkar úr eina prósent- inu. Einnig er nauðsynlegt að ryðja snjó af járnbrautarteinum lestanna sem koma til borgarinnar frá nágrannarikj- unum New Jersey, Connecticut, LonR Þetta er hornið á Lexington Ave. og 60. stræti. Snjókoman er að byrja og aliir að flýta sérheim. Jay X. Vicens. Sem sagt bæði kostir og gallar stór- borgarinnar byggjast mikið á skilnings- leysi. Við sem kærum okkur ekki um að búa sjálf í stórborgunum getum hins vegar vel hugsað okkur að notfæra okkur þá þjónustu sem þar er að fá og halda þar með okkar eigin heimabæjum lausum við þjónustugreinarnar. Við vilj- um hafa skemmtigarða og opin svæði þar sem börnin okkar geta leikið sér frjáls og óþvinguð.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.