Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 28
...—....Verðlagsfrumvarpið loksfcomið fram VERÐLAGNING FRJALS EF SAMKEPPNIER „NÆGILEG” „Þegar samkeppni er nægileg til aö tryggja æskilega verðmyndun og sann- gjarnt verðlag, skal verðlagningin vera frjáls.” Svo segir í stjórnarfrumvarpi um verðlagsmál, samkeppnihömlur og ólögmæta viðskiptahætti, sem lengi hefur verið búizt við en kom loks fram á Alþingi I gær. Ætlunin er að verðlagning verði gefin frjálsari í áföngum. Verðlagsyfir völd eiga aö meta hvort samkeppni sé nægileg á hinum ýmsu sviðum. 1 bráðabirgðaákvæði i frumvarpinu segir, að þær samþvkktir um hámarks- álagningu, hámarksvsrð og aðra fram- kvæmd verðlagseftirlits, sem i gildi eru, skuli halda gildi sinu áfram, þar til verðlagsráð hefur tekið afstöðu til þeirra. Framkvæmd laganna á að verða í höndum verðlagsráðs, samkeppnis- nefndar og verðlagsstofnunar. Verð- lagsstofnunin annast dagleg störf verð- lagsráðs og verður auk þess stofnuð við hana sérstök neytendadeild til að annast neytendavernd. Verðlagsstofnunin á að hafa eftirlit með fyrirtækjum sem eru ráðandi á markaðnum.’ Ef samkeppnisnefndin telur að samkeppnishömlur hafi skað- leg áhrif, á hún að fela verðlagsstofn- un að reyna með samningum að binda enda á þær, eða með öðrum leiðum, ef nauðsyn krefur. Þá eru sett nákvæmari ákvæði en fyrr um bann við að veita rangar, ófullnægjandi og villandi upplýsingar I auglýsingum eða með öðrum hætti. HH DB-mynd Höröur. OG SKOTIÐ REIÐ AF....... Aðvörun: ÁFENGISNEYZLA VELDUR SKÖDDUN Á ÓFÆDDU BARNI Og skotið reið af — ekki byssuskot heldur skot ljósmyndarans sem hitti þessa máva í Hafnar- fjarðarhöfn á dögunum. Það er engu líkara en að mávarnir séu að halda árshátíð sína — eða eru þeir hreinlega að setja mávaþing eftir páskafríið rétt eins og þingmennirnir okkar við Austurvöll. Veruleg hætta er á að drykkjusjúkar konur ali börn sem skaddazt hafa i móðurkviði, segir í frétt frá Áfengis- varnarráði. Bandarískir sérfræðingar telja likurnar til þessa 30—50%. Sköddunin er rakin til eitrunar frá alkóhólinu og hættulegasti tíminn fyrir fóstrið er fyrstu þrír mánuðir meðgöngutímans. Rannsóknir hafa farið fram viða um heim og niðurstaðan alls staðar sú sama. Aðaleinkenni barna sem átt hafa drykkjusjúkar mæður eru: Mjög einkennilegur andlitssvipur, mjög dregur úrvexti á fósturskeiðinu, bæði lengd og þyngd og möguleikar til að bæta það upp eftir fæðingu eru skertir. í mörgum tilfellum eru börnin höfuðlítil, vansköpuð, haldin geðrænum truflun- um, heilaskemmd eða hjartagölluð. Minkar drápu 40 hænur í Þormóðsdal Fyrir nokkru komust tveir minkar í tilraunahænsnabú Rannsóknar- stofnunar landbúnaðarins í Þormóðs- dal og drápu þar 40 hænur. Tuttugu hænsni í búinu „lifðu af’ áhlaup villiminkanna tveggja og verður tilraunum og ræktun haldið áfram með þann hóp svo og unga frá þessum stofni sem eru í uppeldi í kjallara byggingar landbúnaðarins að Keldnaholti. Dr. Stefán Aðalsteinsson sem stjórnaði tilraununum með hænsna- stofninn sagði að tjónið væri bagalegt en þó ekki óbætanlegt og við svona skakkaföllum mætti kannski alltaf búast. Þarna var verið með samansafn hænsnfugla af gömlum stofni I landinu. Hafði hænsnunum verið safnað saman úr öllum landshlutum sem fulltrúum úr upprunalegum hænsnastofni í landinu. Var og er í ráði að reyna að hressa upp á stofninn, auka frjósemi hans með því að blanda saman hænsnum úr mismunandi landshlutum og fjölga i stofninum til að tryggja varðveizlu hans. Stofn þessi hefur engin sérstök einkenni til rikulegrar eggja- framleiðslu eða til framleiðslu kjúkl- inga til ætis en hann er talinn geta búið yfir einhverjum gömlum eiginleikum, sem ekki eru algengir eða jafnvel ekki til annars staðar. Hænsna- stofn þessi er mjög fjölbreytilegur í litum með ýmsar gerðir af toppum og margfalda kamba. Gat Stefán þess að elztu samtimaheimildir um hænsnahald á tslandi væru frá 16. öld Trufluðu kynbófatilraunir áaldagömlum íslenzkum hænsnastofni og þar væri þess getið „að eitthvað væri af hænsnum hjá ríku fólki”. Villiminkarnir tveir sem komust I hænsnabúið I Þormóðsdal hafa nú truflað þessar tilraunir en ekki stöðvað þær. Minkarnir komust í fjárhús á staðnum og þaðan hafa þeir fundið leið i hænsnahúsið um músagöng sem þeir hafa breikkað og stækkað. Mink- arnir voru báðir felldir og síðan hafa hús fengið frið fyrir rándýrum. -ASt. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978. Framsóknarmenn á Dalvík: RAFVIRKJA- MEISTARI EFSTUR Helgi Jónsson rafvirkjameistari hlaut efsta sætið á lista framsóknarmanna í prófkjöri á Dalvík vegna bæjarstjórnar- kosninganna þar i vor. í öðru sæti varð Kristján Ólafsson útibússtjóri, i þriðja sæti Kristinn Guðlaugsson sláturhússtjóri og í fjórða sæti Kristín Gestsdóttir húsmóðir. í kösningunum 1974 bauð Fram- sóknarflokkurinn á Dalvík fram lista meö Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og fengu þá fjóra af sjö mönnum kjörna. -HP. Bílvelta í gær Mallorkaídag Tveir jeppaeigendur veltu bílum sin- um á götum Reykjavikur í gær. Varð önnur veltan á mótum Njarðargötu og Bergstaðastrætis en hin á Bústaðavegi. í síðara tilfellinu sinnti ökumaður ekki umferðarmerkinu er á myndinni sést og ók i veg fyrir annan bil. ökumaðurinn slapp með sár á höfði og skrámur. Var hann hinn hressasti er tekin var af honum lögregluskýrsla í gærkvöldi — enda ætlaði maðurinn til Mallorka i morgun. Líf manna er mismunandi viðburðarikt en þarna er það æði litrikt; bilvelta í gær, Mallorka i dag. A.StJDB-mynd Sveinn Þorm. irjálst, oháð dagblað „Iss, þetta er nú ekki mikill vandi!” Menn á ritstjón DB voru að býsnast yfir honum Moses, 16 ára pilti, sem er þeim óvenjulegu „hæfileikum” búinn að geta snúið tánum I gagnstæða átt við það sem almennt gerist. Frá honum sagði í blaðinu í gær. Vindur sér þá inn einn af ljósmyndur- um blaðsins, Ragnar Th. Sigurðsson. „Iss, þetta er nú ekki mikill vandi,” hnussaði í hortum. Og sjá, — Ragnar virðist ekki þurfa mikla æfingu til að ná honum Moses i kúnstinni. DB-mynd Hörður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.