Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978. Ezer Weizman varnarmálaráðherra Ísraels snýr aftur heim frá Kaíró i dag eftir viðræður við Sadat Egyptalands- forseta og aðra egypzka leiðtoga. För Weizmans mun litinn árangur hafa borið og honum mistekizt markmið sitt, að koma friðarviðræðum þjóðanna aftur af stað. Begin forsætisráðherra ísraels sendi Weizman til Kaíró með „nýjar hugmyndir” til þess að reyna að koma friðar- og hernaðarviðræðum af stað á nýjan leik, en viðræðurnar hafa legið niðri síðan i janúar. Talið er að aukinn þrýstingur bæði I tsrael og erlendis. hafi knúið stjórn Begins til að lina stefnu sína sem hefur verið einstrengingsleg í tveimur helztu deilumálunum, þ.e. neitun ísraelsmanna um að fara frá vestur- bakka Jórdanár og hætta búsetu á her- teknum arabískum landsvæðum. REUTER Skoðanakönnun, sem birt var í ísrael I gær, sýndi að vinsældir Begins forsætisráðherra hafa minnkað um 20% á þremur siðustu mánuðum. Þá sýndi skoðanakönnunin einnig að flestir israelsmenn telja að frekari búseta þeirra á herteknu svæðunum muni hindra friðarviðræður. Útvarpið i Ísrael sagði að Weizman varnarmálaráðherra hefði strax að loknum fundi með Sadat hringt í Begin forsætisráðherra og gert honum grein fyrir viðræðunum. Að sögn Weizmans voru viðræðurnar vinsam- legar. En samkvæmt fregnum frá Kaíró náðu Weizman og gestgjafar Enginn árangur af Kafróför Weizmans — Vonbrigði í Kaíró vegna tillagna ísraelsstjórnar. — Begin stöðugt óvinsælli innanlands samkvæmt skoðanakönnunum Ezer Weizman útskýrir innrás Israelsmanna i ísrael á dögunum. Litill árangur varð af fundi hans með Sadat i gær, en hann hefur þó heitið Egyptalandsforseta því að Israelsstjórn dragi allt herlið sitt frá Suður-Líbanon. \ hans engum árangri í þvi að koma friðarviðræðum aftur af stað, en þær hófust sem kunnugt er eftir sögulega ferð Sadats Egyptalandsforseta til Jerúsalem I nóvember síðastliðnum. Opinberlega hefur verið lýst yfir vonbrigðum i Kaíró með tillögur þær sem Weizman flutti með sér á fund- inn. Weizman hafði áætlað að fara heim aftur í gær, en óvænt ákvað hann að dvelja i Kairó I nótt. Tals- maður yfirvalda í Kaíró lýsti því yfir að viðræður gætu ekki hafizt á ný fyrr en tsraelsmenn breyttu afstöðu sinni Egyptar höfðu vænzt þess að tsraels- menn hefðu tekið upp mildari stefnu. Weizman mun hins vegar hafa heitið Sadat því að ísraelskt herlið færi fá Suður-Líbanon strax og gæzlusveitir Sameinuðu þjóðanna hefðu komið sér fyrir að fullu þar. Erlendar fréttir Frakkland: Barre segir afsérídag — hugsanlega falið að mynda nýja ríkisstjórn Raymond Barre forsætisráðherra Frakklands mun að öllum líkindum leggja fram lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt i dag. Frakklandsforseti mun síðan útnefna nýjan forsætis- ráðherra og kemur Barre sterklega til greina sem nýr forsætisráðherra. Einnig hefur Simone Veil fráfarandi heilbrigðisráðherra verið nefnd sem nýr forsætisráðherra og yrði hún þá fyrsta konan til þess að gegna því embætti. Liklegt er þó að stjórn verði ekki mynduð fyrr en hið nýkjörna þing hefur komið saman, en það kcmur saman I fvrsta sinn á mánudag. Sleppti fimmtán gfslum Vopnaður maður I Melbourne i Ástralíu, sem hélt 15 gíslum i klúbbi nokkrum i miðborg Melbourne, gafst upp í gær. Hann leyfði öllum gíslunum að sleppa og gaf sig lögreglunni á vald. Enginn meiddist vegna þessa atburðar. Sennilegt að tfk Chaplins finnist ekki Sennilegt er að lík Charlie Chaplin Charlie Chaplin, sem fæddur var árið finnist aldrei að sögn lögreglunnar i 1889,lézt á jóladag áttatíu og átta ára Vevey í Sviss i gær. Líki leikarans heims- gamall. Líki hans var síðan rænt 1. eða fræga var rænt fyrir nær mánuði úr 2. marz sl. að nóttu til. Gröf Chaplins grafreit í þessu svissneska þorpi, þar sem Chaplin og fjölskylda hans bjuggu síðustu árin. Stöðugt samband er haft við lögreglu annarra ríkja en enn hafa engar upp- lýsingar um líkránið borizt þaðan. „Við vonum það bezta,” sagði Jean- Daniel rannsóknardómari I Vevey, „en mögulegt er að likið finnist aldrei.” Að sögn dómarans hafa engar alvarlegar kröfur komið fram um lausnargjald frá líkræningjunum. Fjöldi fólks hefur þó hringt til lögreglunnar og sagzt hafa líkið, en þaö hefur allt reynzt gabb þeg- ar til hefur komið. Ekkja Chaplin, Oona, fór frá Sviss, skömmu eftir likránið og talið er að hún dvelji i Bandarikjunum. Þar sem engar kröfur hafa komið fram um lausnargjald fyrir jarðneskar leifar Chaplins, er talið líklegt að likræningjarnir hafi grafið likið einhvers staðar annars staðar, þar sem þeir hafa talið að Chaplin ætti fremur að hvíla. Fjöldi fólks heimsækir enn grafreit þann sem Chaplin var grafinn í til þess að leggja blóm við hina opnu gröf. LAKER GRÆÐIR —gróðinn í hálft ár380 milljónir Fluglest Freddie Laker hélt upp á sex mánaða starfsafmæli nú á dögunum. I tilefni þess gaf Laker út yfirlýsingu þar sem sagði að gróði flug- félagsins fyrsta hálfa árið næmi einni og hálfri millj. Bandaríkjadollara eða 380 milljónum íslenzkra króna. Þá var einnig tilkynnt að frá og með morgun- deginum 1. april yrðu flognar tvær ferðir á dag á milli London og New York. Síðan flug Lakers á milli London og New York hófst, hinn 26. september sl„ hafa DC 10 breiðþotur félagsins flutt 97.763 farþega yfir Atlantshafið og nýting flugvélanna hefur verið 78.26% á þessu tímabili. Við erum mjög ánægð með árangurinn sagði talsmaður Laker fyrirtækisins. „Þetta hálfa ár sem við höfum starfað hafa nær allir, sem hafa beðið um farmiða, fengið hann. Fólk virðist kunna að meta það að geta komið og keypt farmiða og farið rétt eins og með lest eða strætó. Þetta hef- ur gengið eins og við spáðum.” H Laker hefur skapað mikla upplausn meðal annarra flugfélaga sem fljúga yfir Atlantshafið með hinum ódýru far- gjöldum sinum. Farþegar kaupa miða eins og i lest eða strætisvagn og fara síðan yfir hafið með Laker. Að sögn Lakers hefur sjaldan komið fyrir að neita þyrfti farþegum um far.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.