Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 26

Dagblaðið - 31.03.1978, Blaðsíða 26
30 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978. ! GAMLA BIO i) Slmi 11476 Hetjur Kellys MGM Presents A Katzka-Loeb Production KELLY'S HEROES Clint Eastwood Tcrry Savalas Donald Sutherland Endursýnd kl. 5 og 9. Bönnuð hörnuni. Kvlkmyytdir Austurbœjarbió: Ungfrúin opnar sig kl. 5,7 og 9. Bœjarbió: Gula Emmanuelle kll. 9. Bönnuð innan 16 ára. Gamlabió: Hetjur Kellys kl. 5og9. Háskólabió: Slöngueggið. Sýnd kl. 5, 7 og 9.10. Bönnuð börnum. Hafnarbió: Lækni: i klipu kl. 3, 5, 7,9 og 11. Hafnarfjarðarbió: Gaukshreiðrið kl. 9. Laugarósbió: Flugstöðin '77 kl. S, 7.30 og 10. Bönnuöbörnum innan I4ára I Nýja bió: Grallarar á neyðarvakt kl. 5,7 og 9. Regnboginn: Salur A. Papillon kl. 3, 5,35, 8.10 og 11. Salur B. Dýralæknisraunir kl. 3.15, 5, 7, 9.05 og 11.05. Salur C. Næturvörðurinn kl. 3.10, 5.30, 8.30 og I0.50. Stjömubió: Bitc the Bullet kl. 5,7.30 og 10. Tónabió: Rocky kl. 5,7.30 og I0. HÁSKOLABIO M Simi 22140 Slöngueggið Nýjasta og ein frægasta mynd eftir Ingtnar Bergman. Fyrsta myndin sem Bergman gerir utan Sviþjóðar. Þetta er geysilega sterk mynd. Aðalhlutverk: Liv Ullman David Carradine Gert Fröbe. tslenzkur texti. Sýnd kl. 5,7 og 9.. Bönnuð börnum. HESTAMENN Með einu símtali er áskrift tryggó SÍMAR 85111 -28867 Tónabíó: Rocky Hinn ameríski draum- ur rifjaður upp á ný Illa leikinn I bardaganum við heimsmeistarann. Tónabió: Rocky, bandarisk mynd frá árinu 1977. Framleiðandur Robert Chartoff og Irwin Winkler. Leikstjórí John G. Avildsen. Aöalhkitvork Silvester Stallone og Talia Shire. Jæja, þá er Rocky kominn Mvndir sem vann til þriggja óskarsverðlar a í fyrra,sem bezta myndin, fyrir bczta leikstjórn og beztu klippingu. Og ekki er lofið sem borið hefur verið á myndina neitt smáræði. Mesta auglýsingu hefur þó aðalleikarinn og höfundur handrits, Sly Stallone fengið. Hann er persónugervingur ævintýrsins um kotstrákinn sem eignast hálft konungsríkið, en reyndar ekki prinsessuna. Hann er eins og Rocky, sjálfur gott dæmi um hinn ameríska draum um að allir, jafnvel strákurinn i næsta húsi, geti orðið miklir menn ef þeir bara vilja og nenna að gera eitthvað til þess. I tímaritinu Films and Filming er talað um það í ritdómi um Rocky að hún hafi hlotið gifurlegar vinsældir út á það eitt að Watergate-málið var mönnum enn svo í fersku minni, menn þurftu aftur á því að halda að trúa á hið góða, hinn ameríska draum. Rocky uppfyllir þessi skilyrði en hún gerir lítið meira. Að vísu er hnefa- leikakeppnin undir það síðasta ákaf- lega spennandi en slíka spennu er hægt að sjá i meöaliþróttaþætti hjá Bjarna Fel. Maður veit einungis í bíó hver er góði karlinn og hver hinn vondi og með hverjum á að halda, það veit maður ekki hjá Bjarna. Rocky, sem var þriðja flokks boxari, Kvik myndir fær óvænt tækifæri til þess að berjast við heimsmeistarann. Sá síðarnefndi telur það góða auglýsingu fyrir sig að veita óþekktum manni tækifæri i hringnum á móti sér en telur sig eiga íllan leik á móti Rocky. Auðvitað verður það ekki svoleiðis, það vita allir fyrirfram. Úrslitin verða eins og þau hlutu að verða, gátú ekki orðið öðruvísi. Stallone er mjög þokkalegur leikari og flestir aörir eru það líka, en lítið meira. Enginn skarar neitt fram úr öðrum. Tónlist er ágæt, en yfirleitt þannig að menn vita hvað kemur næsti myndinni. Rocky er bandarísk mynd, gerð með Bandaríkjamenn i huga, ekki lslend- inga. Með þaö fyrir augum verður að skoða hana. Og ætli hún teljist þá ekki góð? En meðal annarra orða, geta starfs- menn kvikmyndahúsanna ekki séð til þess að menn séu ekki að koma inn á sýningar allt að korteri eftir að þær eru hafnar? Það truflar hina mjög að þurfa sifellt að standa upp og skyggja þá á fyrir þeim sem vilja sjá. DS. • Utvarp Sjónvarp Útvarpíkvöld kl. 20,50: Gestagluggi MYNDUST, SÖNGUST 0G SIÐFRÆÐI Þátturinn um listir og menningarmál, Gestagluggi, er á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 20,50. Umsjónarmaður hans er Hulda Valtýsdóttir og sagði hún okkur að í þættinum yrði meðal annars fjallað um textilsýningu í Norræna húsinu sem textilfélagið gengst fyrir. Þetta félag er tiltölulega ungt og standa að því ýmsir textilgerðarmenn, en textil er m.a. tau- þrykk og vefnaður. Þorbjörg Þórðar dóttir er formaður félagsins og mun hún ásamt tveimur öðrum listamönnum gera grein fyrir sýningunni. Þjóðleikhúsið hefur nú tekið til sýn ingar Kátu ekkjuna eftir Franz Léhár. I tilefni þessarar sýningar ætlar Hulda aí breeða sér á sýningu og taka jafnframt tvo söngvara tali. Það eru þau Sigurðui. Björnsson og Ólöf Kolbrún Harðardótt ir. Þá mun Óskar Halldórsson lektoi fjalla um siðfræði Hávamála. Þátturinn er tæplega klukkustundai langur. RK Hulda Valtýsdóttir, umsjónarmaður Gestaglugga. Útvarpíkvöld kl. 19,35: Viðfangsefniþjóðfélagsfræða MÁLEFNIALDRAÐRA „Ég ætla aðeins að segja frá því hver staða aldraðra er i dag. Einnig nefni ég fjölda aldraöra og ræði um þá þjónustu sem þeir hafa fengið, er sú þjónusta aðallega stofnanaþjónusta. Þá fjalla ég einnig um heimilishjálp fyrir þetta fólk og löggjöf um dvalarheimili aldraðra.” Þetta sagði Ásdís Skúladóttir þjóð- félagsfræðingur okkur um þáttinn Við- fangsefni þjóðfélagsfræða en hann er á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 19.35. Ásdís sagði einnig að hún hefði tekið fyrir málefni aldraðra i BA-ritgerð sinni ásamt Ingibjörgu Guðmundsdóttur og sagðist hún sækja aðalefni erindisins i þá ritgerð. Mun Ásdis taka fyrir kannanir sem gerðar hafa verið á vilja og óskum aldraðra og eru niðurstöður þeirra kann- ana í samræmi við erlendar niðurstöður. í þeim kemur fram að eindregin ósk og vilji aldraðra er að mega dvelja sem lengst i heimahúsi, þ.e. á sinu eigin heimili, meðeinhverri heimilisaðstoð. Einnig mun Ásdís fjalla um atvinnu- mál aldraðra og greina frá könnunum sem gerðár voru I því sambandi. Þær kannanir leiða i ljós að aldraðir æskja þess að vinna sem lengst og þá vitanlega vinnu við þeirra hæfi og getu. Kvaðst Ásdís þó vera þeirrar skoð- unar, að ekki væri til nein ein ákveðin lausn á þessum vandamálum. Það væri t.d. engin lausn að byggja fjöldann allan af dvalarheimilum. Heimilishjálp og aukin önnur þjónusta við aldraða væri ekki síður bráðnauðsynleg. Þátturinn er tæplega hálfrar klukku- stundar langur. RK Ásdis Skúladóttir þjóófélagsfræóingur flytur erindið um málcfni aldraðra kl. 19.351 útvarpinu. Sjónvarpíkvöld kl. 20,35: Svipmiklirsvanir ALFTIRNAR KVAKA Þeir eru orðnir nokkuð margir þætt- irnir sem sjónvarpið hefur sýnt úr dýra- myndaflokknum Survival og alltaf eru þeir jafnskemmtilegir og fróðlegir. í kvöld verður sýndur þáttur úr þessum myndaflokki er nefnist Svipmikl- ir svanir. Þýðandi og þulur er Gylfi Pálsson og sagði hann okkur að að þessu sinni væri greint frá rannsóknum sem Peter Scott og aðstoðarmenn hans hefðu gert á svanategundinni Bewick eða dvergsvönum. Þessir svanir verpa í RAGNHEIOUR ! KRISTJÁNSDÓTTII Siberiu á sumrin en hafast síðan við i Englandi yfir veturinn. Hefur Peter skráningarmiðstöð ■ i Slimbridge og Hvað heitirðu, góði minn? fylgist þar með fuglunum, hegðun þeirra og útbreiðslu. Hann tekur mynd af hverjum fugli, númerar hann og gefur honum jafnvel nafn. Aðalsvipeinkenni svananna eru litbrigði á nefinu og nú þekkjast meira en þúsund einstaklingar með nafni. Þátturinn er í litum og er tæplega hálfrar klukkustundar langur. RK Föstudagur 31. marz 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdeglssagan: „Reynt aö gleyma” eftir Alene Corliss. Axel Thorsteinson les þýðingu sina (l 2). 15.00 Miðdegistónleikar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn- ir). 16.20 Popp. 17.30 (Jtvarpssaga barnanna: „Dóra” eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Sigrún Guöjónsdóttir les sögulok (22). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Viófangsefni þjóófélagsfræóa. Ásdis Skúladóttir þjóðfélagsfræðingur flytur erindi um rannsóknir á öldruðum i islenzku þjóð- félagi. 20.00 Sinfónía nr. 2 i e-moll op. 27 eftir Sergej Rakhmaninoff. 20.50 Gestagluggi. Hulda Valtýsdóttir stjórnar þætti um listir og menningarmál. 21.40 Gitarkonsert i a-moll op. 72 eftir Salvador Bacarisse. Narciso Yepes og Sinfóniuhljóm- sveit spænska útvarpsins leika; Odón Alonso stjórnar. 22.05 Kvöldsagan: „Dagur er upp kominn” eftir J6n Helgason. Sveinn Skorri Höskuldsson les (4). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Gleðistund. Umsjónarmenn: Guðni Einarsson og Sam Daniel Glad. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.