Dagblaðið - 18.04.1980, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980.
7
Erlendar
fréttir
Afganistan:
Grannríkjunum
gefið undirfót
Stjórnin í Afganistan reynir nú að fá
viðurkenningu grannríkjanna írans og
Pakistans. Sovézka fréttastofan Tass
segir i fréttum frá Kabul að stjórnar-
flokkurinn í Afganistan hafi lýst yfir
vilja til að koma sambúðinni við
grannríkin í betra horf. íran og
Pakistan álíta stjórnina sem komið var
á laggir í kjölfar innrásar Sovét-
ríkjanna í Afganistan ólöglega.
Portisch-Spassky:
Jafntefli
Ungverski stórmeistarinn Lajos
Portisch og Boris Spassky fyrrum
heimsmeistari í skák gerðu jafntefli í 7.
einvígisskák sinni eftir 20 leiki. Þá er
staðan i einvígi þeirra sú að Portisch
hefur 4 vinninga, Spassky 3. Sá, sem
hlýtur 5.5 vinninga í einvíginu ber sigur
úr býtum. 8. skákin verður tefld í
kvöld.
Túnis:
13 hengdir
Þrettán dauðadæmir menn í Túnis
voru hengdir í borginni Gafsa. Þeim
var gefið að sök að hafa tekið þátt i
skæruliðaárás í janúar. Vinstri
leiðtogar í Frakklandi og víðar höfðu
beðið Habib Bourgiba forseta að
þyrma lífi mannanna.
Salisbury:
Götuballítil-
efni sjátfstæðis
íbúar í Salisbury, höfuðborg hins
nýja ríkis Zimbabwe — áður Ródesía,
dönsuðu á götum úti og glöddust ákaf-
lega í nótt þegar landið varð formlega
sjálfstætt. Charles Bretaprins afhenti
Robert Mubabe völd við flóðlýsta
athöfn á gríðarstórum íþrótta-
leikvangi. Síðan var brezki fáninn
dreginn niður í siðasta sinn og nýr fjór-
lita fáni Zimbabwe dreginn að húni við
mikinn fögnuð yfir 20.000 manna, sem
viðstaddir voru er 21 fallbyssuskoti var
hleypt af í tilefni atburðarins. Hann
táknar það að endi er bundinn á
margra ára blóðuga baráttu þeldökka
meirihlutans, fyrir þvi að ráða sjálfur
ráðum sínum í eigin landi.
Robert Mugabe: Fyrsti forsætis-
ráðherra Zimbabwe.
Starfsmenn Efnahagsbandalagsins sakaðir um fyllirí og siðleysi:
„DAUDADRUKKNIR
HQLU DAGANA”
og „hegða sér ósiðlega ef svo ber undir”
L’Union Syndicale, samtök launa-
fólks í Brussel, hafa mótmælt fram-
burði í skýrslu um agavandamál
starfsmanna framkvæmdanefndar
Efnahagsbandalagsins í höfuð-
stöðvum bandalagsins. Skýrslan er
skrifuð af Sir Roy Denman, brezkum
aðaldeildarforstjóra hjá Efnahags-
bandalaginu. Hann segir í tilskrifinu
að starfsmenn „geti leyft sér að vera
dauðadrukknir heilu dagana” og
„hegða sér óðsiðlega ef svo ber
undir.”
Reiði starfsmannanna var enn
meiri þegar fullvíst þótti að á-
sakanirnar ættu upphaf sitt að rekja
til eins framkvæmdanefndar-
mannsins. Sir Roy vann skýrsluna á
grundvelli athugana á því hvernig
bæta mætti vinnuafköst innan veggja
Aðalstöðvar Efnahagsbandalagins I Brussel: Þar „djúsa” menn rneira en goou
meðalhófi gegnir.
aðalstöðva EBE. Fimm manna
vinnuhópur undir forsæti
Hollendingsins Dirk Spierenburgs
fékk það verkefni að kanna vinnu-
aðstöðuna og afköstin hjá starfs-
mönnum.
L’Union Syndicale nefnir Sir Roy
hvergi á nafn í yfirlýsingu sinni Þar er
sagt að ásakanir hans séu „ófor-
skammaðar.” Samtökin hvetja Roy
Jenkins, formann nefndarinnar, til
að neita að taka innihaldið í
skýrslunni til greina.
Brezka blaðið The Guardian
fjallaði um málið fyrir skömmu og
segir að ekki sé ástæða til að ætla að
drykkjuskapur og siðleysi sé meira
meðal starfsmanna EBE en starfs-
manna í öðrum stórum fyrirtækjum
og stofnunum.
„Hræðist ekki efnahags- og
hernaðarógnanir Bandarikjanna.
Allt sem Carter gerir er í eigin
þágu. Hann vill endurkosningu
svo hann geti haldið áfram
glæpaverkum sínum næstu 4
árin,” sagði Khomeini trúar-
leiðtogi írans í sjónvarpsávarpi í
gær.
Carter tilkynnir enn nýjar refsiaðgerðir gegn íran:
Imfhibmgur og
ferðafóg bönnud
„Næstu skrefin gætu orðið upptæk af stjórninni í Washington, við 103 ríki sem aðild eiga að alþjóð-
hernaðaraðgerðir ef efnahagsþvinganir
og pólitískar refsiaðgerðir duga ekki til
að frelsa gíslana í Teheran,” sagði
Carter Bandaríkjaforseti á blaða-
mannafundi í Hvíta húsinu í gær.
Forsetinn tilkynnti enn frekari
aðgerðir af hálfu stjórnar sinnar gegn
íran. Allur vöruinnflutningur frá íran
til Bandarikjanna er stöðvaður. Sömu-
leiðis gengur þegar í gildi bann á ferða-
lögum til frans og bann við viðskipta-
samningum bandarískra aðila við
írani. Vopn sem íran átti i pöntun í
Bandaríkjunum, og sem voru áður gerð
verða afhent Bandaríkjaher eða seld
til annarra landa. Þá hefur forsetinn
farið þess á leit við þingið að leyfi fáist
til að taka af 8 biiljón dollara írönskum
inneignum í bandarískum bönkum til
að greiða kröfur sem fyrirtæki og
einstakiingar telja sig eiga heimtingu á
vegna byltingarinnar í íran og
afleiðinga hennar. Bandaríkjastjórn
hafði áður „fryst” innstæðurnar.
Carter beindi því til fréttastofnana og
blaðamanna i landinu að þeir takmörk-
uðu sem mest starfsemi sína í íran.
Hann sagðist ef til vill fara fram á það
legum sjónvarpssendingum um gervi-
hnetti (Intelsat) aðsjónvarpssamband
Irans við umheiminn yrði rofið.
Carter tilkynnti ekki bann á útflutn-
ingi á matvörum og lyfjum til írans eins
og búizt hafði verið við, en sagði að til
greina kæmi að gera slíkt ef það væri
talið nauðsynlegt.
Ronald Reagan, sem keppir að
útnefningu fyrir repúblikana til
forsetakjörs í Bandarjikjunum, sagðist
i gær styðja siðustu aðgerðir Carters,
en „þær hefði átt að framkvæma fyrir
fimm mánuðum’..
Ný sending KSS
SKÓRNIR
MJUKSKINN 0G
SKINNFÓÐRAÐIR |
MEÐ FÍNLEGUM
HRÁGÚMMÍSÓLUM
KVENSTÆRÐIR
TEG. 3663
NATUR0G
SVARTIR
TEG.3669
NATUR 0G BRICK
VERÐ KR. 19.840.
Póstsendum
samdœgurs
OÓMUS MEDICA
EGILSGÖTU 3,
SÍMI 18519.
BARÓNSSTlG 18.
FASTEIGNAVAL
Garðastrætí 45
Símar22911
- 19255
Vesturbær 5—6 herb.
Vönduð hæö við Meistaravelli. Tvöfaldur bilskúr með meiru. Nánari uppl.
aðeins á skrifstofunni.
Mosfel/ssvert — einbýli.
Vorum að fá til sölu nýtt einbýlishús um 127 ferm í Helgafellslandi. Allt á
ieinni hæð, bilskúr. Nánari uppl. aðeins á skrifstofunni.
SeHJarnarnes, Miðbraut,
Um 140 ferm., neðri hæð i tvibýlishúsi.
Hóiahverfi 3ja herb.,
Um 87 ferm., björt og skemmtileg ibúð i háhýsi, sérlega mikil sameign.
I.aus 1/7 nk.
Ath. Fjöidi glæsilegra eigna einungis í makaskiptum,
flestar hvergi annars staðar á söluskrá.
JÓNARASON LÖGMAÐUR
Málf/utningsskrrfstofa og fasteignasala
SÖLUSTJÓRI: MARGRÉT JÓNSDÓTTIR.
KVÖLDStMI 45809.
. Y
BOKSALAR
BARWBÓhAMhW
1Z-26.APRÍL 3&
BÓKSALAR