Alþýðublaðið - 03.05.1962, Page 1
43. árg. — Fimmtudagur 3. maí 1962 — 99. tbl.
SJA BAKSlÐU
/WWWWWWWWWWWWWWWWVWWWMWWWWWWmWWWWWWWWWWWWHWWWWWWWMiWWW SÁTTASEMJARI RÍKISINS Torfl
Iijartarson lagði í gær fram miðl-
unartillögu í togaradeilunni. Ger-
ir tillagan ráð fyrir 13% hækkoa á
fastakaupi undirmanna á togurum,
lægri lilut skipverja af heildaraöia
verði fisks og hrogna, þegar afli
er seldur erlendis en hærri hlut e£
selt-er innan lands.
Samkvæmt miðlunartillögunni
skal mánaðarkaup vera sem hér
segir:
a) Hásetar, kyndarar, aðstoðar-
menn við dieselvél, 2. mat-
sveinar kr. 3.800
b) Netanienn kr. 4.300.
c) Bátsmenn og 1. matsveinn kr.
4.900.
Þetta er um það bil 13% hækk-
un frá því sem kaupið áður var,
t. d. var kaup háseta kr. 3400 á
mán. samkvæmt gömlu samning-
unum.
Um aflahlut á ísfiskveiðum til
sölu erlendis segir svo í miðlun-
ar tillögunni:
„Þegar veitt er í s til sölu á er
lendum markaði skal greiða greiða
skipverjum 17 % af heildarsölu-
verði fisks og hrogna að frádregn
um 27% af söluverðinu. Aflaverð-,
laun þessi skiptasí jafnt mllli allra .
skipverja þó aldrei í fleiri en 33
staði”.
í gömlu sanmingunum var út-
gerðarmönnum aðeins lieimilað-
ur 17% frádráttur þannig, að hér
er um atriði að ræða, er skerðir
kjör togarasjómanna.
Um aflaverðlaun, þegar landaS
er innan lands segir svo m. a. i
miðlunartillögunni:
„Þegar veitt er í ís til sölu á er-
seldur innan lands skal greiða skip
verjum 17% af heildarsöluveröl
fisks og hrogna eins og það er á-
kveðið af Verðlagsráði sjávarút-
vegsins að frádregnum kostnaði
við uppskipun kr. 0.15 á kg”.
Hér er sem sagt gert ráð fyrir að
sjómenn fái sinn hlut af sama
verði og útgerðarmenn fá fyrir
fiskinn en áður var sjómönnum
reiknað lægra verð fyrir fiskinn.
Unðanfarið hefur hlútur sjó-
manna t. d. verið reiknaður af
. l.GS pr. kg. af þorski en nú get-
verðið á þorski farið upp I 3.18
í fyrsta flokki.
Gert er ráð fyrir 4% kauphækk
un 1. júní n. k. Samningurinn skal
gilda til 1. júní 1963.
Miðlunartillagan gerir ráð fyr-
ir ýmsum fleiri breytingum á samn.
ingunum. Félög sjómanna, sem að-
ild eiga að deilunni við togaraeig-
endur eru þessi: Sjómannafélag
Rvíkur, Sjómannafélag Hafnar-
Framliald á 14. «i5u.
Ríkissfjórnin stöövar verkfræðinga með bráðabirgðalögum:
RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær út
bráðabirgðalög, sem bannar hina
nýju gjaldskrá Verkfræðingafélags
íslands, er gilda átti frá 1. maí.
Segir í bráðabirgðalögunum, að
hin nýja gjaldskrá mundi liafa
hækkað tímakaup verkfræðinga
um allt að 320%.
Fréttatilkynning atvinnumála-
ráðuneytisins um bráðabirgðalögin
. fer hér á eftir:
„Forseti íslands hefur í dag,
samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinn
ar, sett bráðabirgðalög um há-
marksþóknun fyrir verkfræðistörf,
á þessa leiö:
Fórseti íslands gjörir kunnugt:
Ríkisstjórnin hefur tjáð mér, að
greiðslur fyrir flest störf verk-
fræðinga £ T 'g'- ":'’.:isins hafi und-
anfarið verið ákveðnar með hlið-
sjón af tímakaupi samkvæmt gjald-
skrá Verkfræðingafélags íslands,
frá 19. apríl 1955, með síðari verð-
lagsuppbótum samkvæmt lögum.
Verkfæðingafélag íslands hafi nú
gefið út nýja gjaldskrá, sem gildi
frá 1. þ.m., þar sem tímakaupi er
ætlað að hækka allt að 320%, auk
þess sem þóknun fyrir ákvæðis-
vinnu er ætlað að hækka verulega.
Slík hækkun á kaupi verkfræð-
inga myndi óhjákvæmilega valda
stórkostlegri röskun á launamál-
um bæði hjá ríki og öðrum aðilum
og auk þess óeðlilegum kostnaðar-
auka við margvísleg rannsóknar-
störf og framkvæmdir.
Því telur ríkisstjórnin, að brýna
nauSayii beri til í.Z Luiuií . .
veg fyrir að nefnd gjaldskrá komi
til framkvæmda.
Fyrir því eru hér með sett bráða-
birgðalög, samkvæmt 28. gr. stjórn
arskrárinnar, á þessa leið:
1. gr.
Þóknun verkfræðinga:fyrir verk
fræðistörf, unnin í ákvæðisvinnu
eða tímavinnu, skal eigi vera hærri
en ákveðið er í gjaldskrá Verkfræð
ingafélags íslands, frá 19. apríl
1955, að viðbættum lögleyfðum
uppbótum.
Leggi verkkaupandi til vinnuað-
stöðu verkfræðings, skal sú vinnu-
Frambald á 14. síðu.
★ HÚSAVÍK, 2. níaf.
ER ÞORGRIMUR Maríusson,
sjóniaður var í nótt að draga fyr
ir loðnu fyrir botni Skjálfanda-
flóa, þar sem heitir Sandur,
fékk hann óvænta veiöi í nótina.
Það var minkur, sem flæktist
í nótinni og drukknaði á leið til
lands. Hefur þess aldrei áður
heyrzt getið, að minkur feng-
ist í dragnet, og fram að þessu
hefur Þorgrímur ekki fengið
neinar heimsóknir annarra ó-
væntra dýra en minksins. E.J.
o <e> a/ o u o u> w * tar * v w v w +> w o>- w í