Vísir - 23.10.1970, Page 1
60. árg. — Föstudagur 23. október 1970. — 242. tbl.
Verkalýðsfélögin stofna banka
— 40 milljón króna hlutafé safnab i Alþýðubank-
ann, sem tekur við af Sparisjóði Albýðu
Öll verkalýðsfélögin innan Al-
þýðusambands íslands hafa nú tek-
ið höndum saman um stofnun nýs
banka, sem mun taka við af Spari-
sjóði Alþýðu, sem verður lagður
niður. Þessa dagana er verið að
safna hlutafél. og hlutafjárloforð-
um upp á 40 milljónir króna, sem
skiptast á verkalýðsfélögin eftir
fjölda i hverju félagl.
Heildarhlutaféð er við það miðað,
að eitt þúsund krónur 'komi á
hvern félaga innan Alþýðus'am-
bands íslands, en þeir eru hátt í
íslenzkur skipstjórí á skip-
inu sem rísahvelið hvolfdi
— lenti i miklum hrakningum, en er nú
kominn til Kanarieyja með áhöfnina
Skipstjórinn á sænska hvalur hefði hvolft ná-
skipinu, sem sagt var lægt Kanaríeyjum, var
frá í fyrradag, að risa- íslendingur, Benóný Sig
urjónsson að nafni. Blað
ið hafði í morgun sam-
band við móður Benó-
nýs, Sigríði Friðriksdótt
ur, sem starfar hjá Bæj-
arútgerð Reykjavíkur,
og sagði hún, að sonur
sinn væri við góða líðan.
„Sænska sendiráðið
hringdi til mín í gær,“
sagði frú Sigríður. „Son-
ur minn er á Kanaríeyj-
um, og verða honum
sendir peningar frá Sví-
þjóð fyrir farinu heim.“
Frú Sigríður sagði, að Benóný
hefði flutzt til Noregs fyrir
fimmtán árum og unnið sem
sölumaður í Noregi og Sviþjóð
síðan. Honum hefði verið falið
að sigla sænste skipinu meö
farm til Afríku, en skipið flutti
m. a. tvær bifreiöar og dráttar-
vél. Benóný lærði við Stýri-
mannaskólann hér og var á ís
ienzkum bátum áður en hann
fór utan.
Benóný Sigurjónsson er 39
ára, kvæntiur norsikri konu og
eiga þau hjónin þrjá syni.
Eins og skýrt var frá í fyrra
dag, hvolfdi risahveilið 200
tonna skipinu og hröktust skip-
verjar í 36 klukkustundir um
hafið þar til sænskur togari
bjargaði þeim. Þeir sáu 20 skip
sigla fram hjá, án þess að eiftir
þeim væri tekið en nógan mat
og vatn höfðu þeir.
Margir þekkja söguna um
hvíta hvalinn Moby Dick, sem
dögum saman elti hvalveiðiskip
unz hann sökkti því, og aðeins
einn ungur piltur var ti'l frá-
sagnar. —JfH
'40.000. Fær hvert félag úthlutað
kvóta í samræmi við félagatölu
sína, en sett er þaö skilyrði, að
viðkomtandi verkalýðsfélag kaupi
sjálft a. m. k. 60% af þeim kvóta,
sem því er úthlutað. 40% kvótans
má bjóða til sölu meðal félags-
manna, sem geta óskað eftir 1—
5000 kr. hlutafé.
Ætlunin er aö hialda stofnfund
bankans öðru hvoru megin við ára-
mótin, að því er Jóhann Hallsson,
sparisjóðsstjóri sagöi í viðtali við
Vísi í morgun, en þá verður ákveð-
ið, hvernig hlutafé verður boðið út,
ef öll hlutafjárupphæðin fæst ekki
með því útboði sem nú fer fram.
JóWann sagði að lög bankans yrðu
þannig, að meirihluti hlutafjárins
yrði alltaf í höndum verkalýðs-
félaganna sjálfra og komið yrði í
veg fyrir að „peningamenn" eign-
uðust hlutafé i stórum stfl.
Ætlunin er að greið'a arð af hluta
fénu og sagðist Jóhann álíta, að
hlutafjárkaup í bankanum gætu
orðið góö fjárfesting, a. m. k. ef
litið væri á reynslu svipaðra banka,
svo sem Verzlun'arbankans óg Iðn-
aðarbankans. Þannig mætti búast
við að unnt yrði að greiöa 7%
arð og að hlutabréfin myndu
hækka í verði með tím'anum.
Bankinn hefur þegar tekið hálfa
aðra hæð til leigu að Laugavegi
31. — VJ
Dýrt að þurfa
utan til lækninga
Ungur drengur úr Reykjavík
meiddist illa við sveitastörf
s.l. sumar. Þarf hann að fara
utan til London á næstunni.
Þetta er dýrt fyrirtæki, og
hefði sennilega verið útilok-
að ef ekki hefði komið til
hjálp góðs fólks. — Sjá bls. 9.
Var maðurinn stunginn hnífi?
Fannst illa á sig kominn við ÁTVR-búð
Maður fannst í gaerkvöldi illa | verka af. En þegar nánar var hug
skorinn á kviði og með áverka á ' að að sárum mannsins virtist sem
andliti, eins og hann hefði lent
í átökum, og leikur grunur á
því, að hann hafi verið stung-
inn hnífi.
hann hefði verið skorinn og stung
inn með hnífi.
Um líðan mannsins var ekki vit
að í morgun en hann var þó ekki
talinn hættutega særður. -—GP
Benóný Sigurjónsson, sem var skipstjóri á skipinu Vesturvindi,
er borinn og bamfæddur Islendingur og systursonur hins þekkta
aflakóngs í Eyjum, „Binna í Gröf“.
VILDU NÁ SÉR
I REIÐHESTA
— aðrir i ódýrt hrossakj'ót
„Hann kom sikjögrandi héma upp
pontið og hneig niður við búðar-
dyrnar“, sögðu afgreiðsilumenn vín
búðar ÁTVR við Lindangötu, sem
gerðu lögreglu og sjúkraliði við-
vant, en maðurinn var fluttur að-
framkominn og rænulii'til-l á siysa
varðstofuna. Þetta gerðist nétt fyrir
lokun vínbúðarinnar i gænkvöldi.
Hinn slasaði var of illa á sig kom
inn f gærkvöldi, til þess að geta
gent sér grein fyrir því, sem hann
hafði borið. I fyrstu vintist mönn
um, sem hann hefði hlotið ávenka
sína í faíli — og ðf ti'l viM haft
flösku, sem hann hefði hlotið á-
ÍSLAND ENN í,
ÞRIÐJA SÆTI
Gífurlegur fjöldi tilboöa barst
Innkaupastofnun ríkisins i þau 73
hross, sem stofnunin annaðist sölu
á fyrir vinnuhæliö á Litla-Hrauni,
sem nú hefur lagt alla hrossarækt
niður.
Voru hrossin sýnd á Litla-
Hrauni s.l. laugardag og mikill
fjöldi manna streymdi að. Óskað
var eftir tilboöum í einstök hross,
en þó bárust Innkaupastofnuninni
um 4 til 5 tilboð frá aðilum, sem
kaupa vildu alian hópinn. Hæsta
tilboðið hljóöaði upp á 690 búsund
krónur. Samanlagt hljóðuðu hæstu
tilboðin í einstaka hesta upp á 780
þúsund krónur og er nú unnið við
að hafa samband við hæstbjóðend-
ur og gangh frá kaupunum við þá.
Nú þegar hefur 40 til 50 hrossum
verið ráðstafað.
Að sögn Björns Stefánssonar,
skrifstofustjóra Innkaupastofnun-
arinnar voru flest tilboðin í reið-
hestaefnin í stóðinu, en einnig vom
innan um tilboð frá fólki, sem
vildi ná sér I ódýrt hrossakjöt í
rriatinn. — ÞJM
V/ð erum
ekki að
byggja
Castró og Rússar neita harö-
lega þeim áburði aö verið sé
aö byggja eldflaugastöðvar á
Kúbu. Sagt er frá þessum
málum í þættinum Aö utan í
blaðinu í dag. — Sjá bls. 8.
íslendingar unnu Tyrki i sjö-
undu umferð — 15:5 og halda
áfram sínu þriðja sæti í Evr-
ópumótinu f Portúgal. Leikinn
spiluöu Ásmundur og Hjalti og
Jón og Karl.
Eftir sjöttu umferöina höfðu
Frakkarnir skotizt fram úr og
voru 1 forustu meö 99 stig, sjö
stigum á undan Sviss, en Pól-
verjar sigruöu Frakka i 7. um-
ferð og Sviss tók þá forustuna.
í sjöttu umf. unnu íslending-
ar Grikki, 18—2, en staðan í
hálfleik var 22—26 fyrir Grikki.
Spilin vora tilþrifalítil, en mestu
munaði í seinni hálfleik 7 grönd,
sem Þorgeir spilaði og vann,
meðan Grikkirnir spiluðu á
sama spil við hitt borðið 5 spaða
og unnu 6. Hjalti og Ásmundur
spiluðu á hinu borðinu. Leikur-
inn endaði 85—46.
Úrslit f sjöttu umferð féllu •
þannig: Frakkl.—Svíþjóð, 20—0,
Portúgal—Belgfa 16—4, Ungv.l.
—Noregur 0—20, Danmörk—
Þýzkal. 19—1, Sviss—Austurr.
8—12, Bretland—Finnland 11—
9, Tyrkl.—Líbanon 18—2, ítalia
—Spánn 20 r4, Holland—ír-
land 17—3, ísrael—Póll. 6—14.
í sjöundu umferð hafa úrslit
jafnazt, en fram til þessa hefur
borið mikið á stórsigrum, eins
og 20—0 eða jafnvel mínus.
Svíþjóð—Portúgal 17—3, Ung
verjal.—Belgía 16—4, Danmörk
—Noregur 14—6, Sviss—Þýzka-
land 16—4, Bretland—Austurr.
18—2, Finnl.—Grikkl. 15—5,
Líbanon—Spánn 16—4, Ítalía—
Holland 14—6, írland—ísrael
18—2, Pólland—Frakkl. 12—8.
Staðan eftir 7. mnferð er
þessi: Sviss 108, Frakkl. 107, ís-
land 103, Bretland 96, ítalia 88,
Danmörk 84, Pólland 80, Hol-
land 78, Svíþjóð 76, Austurrfki
68.
í dag spilar íisland við Spán
sem hefur minus 2 samtals út
úr 7 umferðum, og við Líbanon,
sem hefur fengið 51 stig. — GP
Sjá t'óflur'óðina á bls. 6