Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1966, Qupperneq 2
iÉLHfiiiik
SVIP-
MVND
Jl rólegri götu í Vestur-Berlín,
ekki langt frá hinum yndislega Griin-
■wald, er hár múrsteinsveggur, varinn
tveim gaddavírsgirðingum. Merki með
nokkru millibili á girðinguni, segja:
„Aðvörun. Komið ekki nær! Verðir hafa
skipun um að skjóta! Sex varðturnar
gnæfa yíir vegginn, sérhver með vold-
ugu leitarljósi og vopnuðum hermönn-
um, munu ganga út sem frjálsir menn
xískir, stundum enskir eða rússneskir.
I>etta er kannski heimsins undarleg-
asta fangelsi — Spandau kastali.
Stundvíslega á miðnætti 30. sept., —
ekki mínútu fyrr eða síðar, mun hið
Jjunga járnhlið að Spandau fangelsi
opnast. Tveir menn, ekki beinlínis elli-
legir, en þó ellilegri en þeir eru að ár-
um, munu ganga út sem frjáslir menn
eftir 20 ára fangelsisvist.
Baldur von Shirach, sem einu sinni
var hið ljóshærða og laglega tákn naz-
ista, sem hinn ekta Aríi, var hinn fyrsti
leiðtogi æskulýðsfylkingar Hitlers og
seinna Gauleiter Vínarborgar. Albert
Speer, hinn kaldrifjaði efnishyggjumað-
ur, hafði haldið stríðsvél Hitlers í gangi,
sem ráð-herra fyrir Vopnum og Stríðs-
framleiðslu. Þessir menn voru dæmdir
af Núrnberg stríðsglæparéttinum í lok
síðustu heimsstyrjaldar. Þeir eru hinir
síðustu af meiriháttar stríðsglæpamönn-
um, sem enn er haldið af Bandamönn-
um — að einum manni undanskildum.
Rudolf Hess
egar járnhliðið lokast aftur,
mun einn fangi vera eftir í hinum ein-
mana klefa í Spandau fangelsi — Kud-
olf Hess, fyrrum fyrsti fulltrúi for-
ystumanns Þriðja Ríkisins, vinur og
samfélagi Adolfs Hitlers. Rudolf Hess,
sem gerði heiminum hverft við og
myndaði enn nýjan kafla í annað heims
stríðið með hinu örvæntingarfulla,
eins manns flugi og lofthlífarstökki í
Skotlandi 10. maí, 1941.
Nú er Hess 72 ára gamall, og var
dæmdur í æfilangt fangelsi af Nurn-
berg-dómurunum. Ef dómi hans verð-
Rudolf Hess og Göring
ur ekki breytt, mun hann enda líf sitt
í Spandau.
Fangelsið, sem var notað af nazistum
til að geyma pólitíska fanga á leið
þeirra til fangabúðanna, er rekið af
fjögurra velda nefnd hinna fyrri banda-
manna, — U.S., Bretlandi, Frakklandi
og Sovétríkjunum. Sérhvert þessara
stórvelda reka fangelsið í mánaðar-
tíma á víxl. Hinn fasti starfsmannahóp-
ur matsveina og annarra viðhalds-
manna, er aðailega ríkisfangslausar
persónur, og hafa flestir þeirra unnið
í fangelsinu síðan 1946. Það kostar rúm-
lega 100.000 dollara að halda Spandau,
og greiðir Vestur-Þýzkaland það sem
stríðsskaðabætur. Þetta innifelur þó
ekki kaupgreiðslur til herþjónustu
bandamanna.
Engir gestir fá að heimsækja fanga,
nema yfirmenn bandamanna, frændur
eða lögfræðingar hinna seku. Starfs-
mönnum er bannað að ræða nokkuð
sem fer fram innan fangelsisveggjanna.
En engu að síður lekur nægilegt, til
þess að gefa mönnum hugmynd um líf-
ið innan fangelsisveggjanna í Spandau
kastala.
Aðeins neðstu hæðir eru notaðar.
Efri hæðirnar eru lokaðar og hrörna
óðum. En með þrem klefum í notkun,
virðist jafnvel þessi hæð vera tóm.
Litið er eftir sérhverju smáatriði í
lífi fanganna og fylgst með því. Þeir
vakna kl. 6, þvo sér og borða morgun-
verð. Fæði þeirra er gott, „Betra en
okkar eigin hermanna", sagði einn yfir-
foringi bandamanna. Frá 9,30-11.00 eru
líkamsæfingar, sem fara fram í stóra
fangelsisgarðinum, sem hefur tré og
blóm, ræktuð af Speer. >á er hádegis-
verður, hvíldartími og önnur útivera.
Ljós eru slökkt kl. 10.
við Nurnberg -rettarhöldin.
F angar mega ekki taka í hönd-
ina á neinum. Það er til þess að þeir
geti ekki tekið við eitri, eins og Himml-
er, Göring og aðrir nazistar. Þeir mega
aðeins tala þýzku og þeir verða að sína
vörðum sínum fulla kurteisi. Brjóti
þeir settar reglur varðar það viður-
lögum — ljósin slökkt fyrr eða þeir
hlekkjaðir.
Klefi Hess er 10 sinnum 15 fet. Hann
hefur þykka tréhurð og lítinn glugga.
Eftir þýzkum mælikvarða er klefinn
vel útbúinn. Hann hefur rúm, lítið
borð, stól, skáp og salerni. Það eru
myndir á veggjunum og venjulega ein-
hverjar bækur, blöð, blýantar og pappír
á borðinu.
Hess situr mestan hluta dags á rúm-
inu með fæturna upp á stólnum. Stund-
um les hann blöðin sem varðmenn hans
færa honum, og einstaka sinnum bið-
ur hann um að fá einhverja bók frá
bókaláninu á staðnum. Hann skrifar
bréf til konu sinnar og sonar, en oft-
ast situr hann þegjandalegur og starir
út í bláinn. Hár hans er að grána en
er ennþá dökkt. Augun liggja djúpt
undir þykkum brúnum. Þótt hann
kvarti oft yfir heilsu sinni við varð—
mennina, er hann álitinn heilsugóður
eftir aldri.
Stundum heldur hann uppi samræð-
um, aðallega við son Schirach, en venju-
lega er hann eins og maður, sem hefur
gefizt upp og stendur orðið á sama.
í bréfum sínum segir hann ekki mikið
um lífið í Spandau. Hann segir að rúm-
fötin séu hrein og jörðin sendin í fang-
elsisgarðinum. Hann kvartar um að
hann geti ekki fengið stjórnmálarit,
sérstaklega um fyrstu heimsstyrjöld.
Hann talar um kvikmyndir sem hann
sjái og plötur sem hann heyri. En hann
virðist reyna að forðast að tala um að
sér sé haldið í fangelsi.
Upprunalega voru það sjö naz-
istaforingjar, sem voru lokaðir inni í
Spandau. í viðbót við þá Hess, von
Schirach og Speer, voru það aðmírál-
arnir Erich Raeder og Karl Dönitz,
Baron Constantie von Neurath, fyrsti
nazista utanríkisráðherrann, og Walter
Funk, fyrsti bankastjóri Ríkisbankans
og f j ármálaráðherra. Allir aðrir ákærðu
í Núrnberg, voru sýknaðir eða réttaðir.
Raeder, von Neurath og Funk voru
ekki sinn fulla tíma. Þeim var sleppt
snemma vegna aldurs og vanheilsu.
Doenitz kom út frá Spandau 1956 eftir
að hafa verið þar í 10 ár. Nú eru Speer
og von Schirach á förum og er þá að-
eins Hess eftir.
Þriðja ríkið framleiddi margar fár-
ánlegar manngerðir, en enga eins und-
arlega og Rudolf Hess. Eins og Hitler
var Hess fæddur utan Þýzkalands —
faðir hans var efnaður kaupmaður í
Alexandríu. Hann sá Þýzkaland fyrst
sem námsmaður 12 ára gamall.
Hess gekk í 10. Bæheims-fótgöngu-
liðsdeildina, hina sömu og Adolf Hitler
var í, en hann hitti hann aldrei meðan
á stríðinu stóð. Eftir að hafa fengið
kúlu í lungað og náð sér af því, gerð-
ist hann fiugmaður — starf sem hann
Framhald á bls. 14.
Framkv.st].: Slgfos Jónsson.
Hitstjórar: Sigurður Bjarna.son frá Vieur
Matthías Johannessen.
Kyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýslngar: Ami Garðar Kristinsson.
Ritstjóm: Aðalstrætl 6. Simi 22480.
Utgefandl: H.f. Arvakur. ReykjaviK.
2 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS'
11. september 1966