Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1974, Side 15
Halldór Péturssoir teiknaði
FORFEDIIR VORIR
Einskonar
kosninga-
barátta
Þa8 er kominn gestur — já, meira a8 segja sjálfur
allsherjargoSinn. Mikill heíSur er þa8, sem hann sýnir
kotunginum, landseta sinum. En fer3in er ekki einvörS-
ingu farin I þeim fróma tilgangi a8 vera alþýSlegur. Þa8
hefur ævinlega veriS eitthvaS sérstakt á bak viS
alþýSlegheit stjórnmálamanna og allsherjargoSinn var
einskonar stjórnmálaforingi. En IFtillega hafa stjórn-
málin breytzt. ÞaS er svo sem ekki neitt veriS a8 flaSra
upp um atkvæ3i8 e8a smjaSra fyrir þvi. Og ekki er
örgrannt um, aS atkvæSiS sé látiS sjá i eggina á öxinni.
AuSséð er á undirgefninni í svip atkvæ3isins, a8 þa8
ætlar or8alaust aS fylgja allsherjargoSanum til Alþingis
og veita honum þingstyrk. AnnaShvort væri nú.
Kannski á atkvæSiS meira aS segja eftir aS láta lif sitt
fyrir foringjann. Þetta var einskonar kosningabarátta.
Og vegna þess a8 enn eru kosningar i nánd, er ekki úr
vegi aS bera saman fund þingmannsins viS atkvæSiS.
Nú mundi þingmaSurinn áreiSanlega fara af baki,
klappa atkvæSinu á baki3 og gefa þvi i nefiS. Hann
mundi biSja kærlega a8 heilsa konunni og taka loforS
um aS heimsækja sig einhverntima. Nú er þaS stjórn-
málamaSurinn, sem fyrir kosningar er I hlutverki hins
auSmjúka. ÞaS var þá einhver munur hér áSur fyrr, i tiS
forfeSra vorra, þegar þaS eitt dugSi aS sýna exina.
Klúbbur matreiðslumeistara
r
sér um þáttinn. I þetta sinn:
Hilmar Jónsson
mm-
DAGS-
MATll-
m
Forréttur:
Tómatar með rækjusalati.
Blandið saman rækjum,
grænum baunum, soðn-
um, köldum hrísgrjónum
og vinagrettesósu og setjið
í holaða tómata.
Fylling í 4 tómata: 50 g
rækjur, 1 dl soðin hrís-
grjón, V2 dl grænar baunir.
Vinagrettesósa: 4 mat-
skeiðar matarolia, 2 mat-
skeiðar vinedik. Bragðist
til með salti og ef til vill
papriku.
Djúpsteiktur fiskur i raspi:
Vinsældir djúpsteikts fisks
á íslandi hafa farið vaxandi
jafnt og þétt undanfarin ár.
Hér er ein góð uppskrift.
sem má nota við bæði ýsu,
þorsk, karfa og lúðu:
Uppskrift fyrir 6 manns.
1080g af roðflettum, bein-
lausum flökum
2 egg
paprika
salt
hvítlauksduft (aðeins fram-
an á hnífsodd)
hveiti
brauðmylsna
Fiskurinn er skorinn i 10
cm langa bita og 3 cm
breiða. Eggin eru krydduð
með saltinu, piparnum,
paprikunni, og hvítlauks-
duftinu, síðan piskuð. Þá
er fiskstykkjunum velt upp
úr hveitinu, siðan eggjun-
um og þá brauðmylsnunni.
Matarolia er hituð í potti í
ca. 170 C og fiskurinn
steiktur i henni i ca. 3—4
mínútur.
Framreiddur með soðnum
kartöflum, sítrónubátum
og einnig má gefa með því
mayonnaisesósu, t.d.
remoulaði.
Grísakótilettur með epl-
um.
6 grísakótilettur
2 stór epli
salt
pipar
Afhýðið eplin og skerið
þau i 3 jafnþykkar sneiðar.
Kryddið kótiletturnar með
saltinu og piparnum og
snöggsteikið þær á vel
heitri pönnu. Raðið siðan
kótilettunum i ofnskúffu
og raðið eplunum ofan á.
Fullsteikist við vægap hita
í ofninum.
Framreiðist með pönnu-
steiktum kartöflum, sperg-
ilkáli og hrásalati.
Hvað ætlar
þú að gera...?
Framhald af bls. 4'
sem komnir eru á efri ár, lítt fær
til starfa. Margir eru sjúkir og
þurfa mikillar aóhlynningar og
alúöar viö. Enn aðrir liafa fengið
nóg af sinu lifsstarfi og kjósa að
eyða þessum árum til annars en
vinnu, þó að heilsufar sé þar ekki
til hiifdrunar. Félagslif og tóm-
stundastörf eru þá þeirra við-
fangsefni.
Það vekur athygli i fregnum af
uppbyggingu hins nýja félágs-
starfs fyrir aldraða, að þar virðist
ekki vera miðað við, að hið ald-
raða fólk sjálft sé þátttakendur í
starfseminni. Þess hefur að
minnsta kosti ekki verið getið.
Þar, sem annarstaðar, er gert ráð
fyrir, að hinir öldruðu séu þiggj-
endur, ekki veitendur. Til þess að
geta notiö þess, sem félagsstarf-
semin hefur að bjóða, verður
fólk að vera fært um að komast á
staðinn. Sýnist þá ekki ólíklegt,
að einhverjir þeir, sem þar koma,
séu einnig færir um að leggja sitt
af mörkum til starfseminnar.
Jafnt yngri sem eldri ljá því eyra,
sem flutt er f fjölmiðlum, sagt eða
skráð af öldruðu fólki. Mikil er
þeirra lífsreynsla, sem komnir
eru á efri ár. Slikt hlýtur að vera
mikið og gott dagskrárefni ef til
þess er efnt. Reynsla í starfi er
mörgum töm orðin og gæti orðið
til leiðsagnar öðrum. Meðal
aldraðs fólks eru fulltrúar allra
stétta og starfsgreina. Vel mætti
nýta starfskrafta þeirra ásamt að-
fengnu skemmti- og fræðsluefni í
þeirra eigin félagsstarfi.
Sá, sem hefur öf rnikinn tíma,
er oft vansælli en hinn, sem of
lítinn tima hefur. Hið síðarnefnda
er sígilt vandamál starfandi
nútímafólks, en hið fyrra verður
óhjákvæmilega hlutskipti hinna
öldruðu i flestum tilvikum. Til-
koma hins fjölbreytta félagsstarfs
fyrir eldri borgarbúa verður vafa-
laust til að bæta úr þvi vandamáli
þeirra. Þúríður Arnadóttir.
Hingað geislar
lífi...
Framhald af bls. 13
muni eignast aukið fylgi á næst-
unni — „Það eru að gerast í sögu
þessa hnattar og mannkyns ákaf-
lega þýðingarmiklir atburðir. Ég
vil aðeins nefna, að fram á sjónar-
sviðið hefur komið ungur Gyöing-
ur, Uri Geller að nafni, með eftir-
tektarverða hæfileika. Hann fer
um allar sjónvarpsstöðvar í
EvrópU og Ameríku og getur
beygt og hreyft hluti viðsfjarri
honum. Það er ástæöa til að
minna á að þarna koma stilliáhrif
einnig töluverl til greina, þ.e. að
andlegt vald Gyóinga er tiltölu-
lega mjög mikið meðal vestrænna
þjóða og rnenn hafa ósjálfrátt til-
hneigingu til aó meta niikils það
sem þaðan kemur. Enda tel ég
víst, aó Uri Geller eigi slikt full-
koiblega skilió, hann er ákaflega
geðslegur ungur maður og hefur
ótvírætt þennan hæfileika til að
bera. En hið merkilega er, að þar
sem aðrir hæfileikamenn segjast
hafa þegið þennan kraft úr dul-
rænum heimi segir Geller nú full-
um fetum: „Ég fæ þennan kraft
utan úr geimnum." Ég held að við
Nýalssinnar megum vera dálítið
ánægðir með okkar hlut. Hér höf-
um við þrákelknislega haldið
fram þessum krafti frá stjörnun-
um í áratugi, en nú er svo kontið,
að áhrifamestu fjölmiðlar eru
farnir að útvarpa þvf, að þarna
komi kraftur frá stjörnunum til
greina."
Þorsteinn segir þó að fleira
komi til. „Við getum t.d. nefnt
þennan almenna áhuga bæði
meðal vísindamanna og - al-
mennings um líf á öðrum stjörn-
unt, og svo mætti kannski nefna
hreyfingu, sem hefur verið uppi i
25 ár og kennir sig við fljúgandi
diska. Þe.tta er dálítið skrítið orð
og þaö verður að játast, að ekki
hefur verið um mikla heimspeki
að ræða á vegum þessarar
hreyfingar, sem þó er ákaflega
útbreidd víða um veröld. En
þarna gerast fyrirbæri og við telj-
um þau nákvæmlega sama eðlis
og líkamningafyrirbrigöin, sem
gerðust innan spíritismans um
tíma. Eg tel þannig, að fyrirbrigð-
ið sem sást vfir Austfjörðum og
áður er vikið að, hafi verið í raun
líkamningafyrirbrigði frá öðrum
hnetti. Það er fullkomlega
sannað, að þetta fyrirbæri eða
annað. sams konar náðist á filmu,
sem Raunvisindastofnun Há-
skólans lét ganga sjálfkrafa í
Vestmannaeyjum í sambandi við
gosið þar þennan sama dag. Þetta
tel ég vera eitt af merkjunum um
það, að íbúum annarra stjarna er
að takast að koma fram fyrir-
itrigðum til að re.vna að láta menn
átta sig og þá sérstaklega
Islendinga, því aö væru nokkurn
veginn greið viðtökuskilyrói hér
og menn rengdu þétta ekki að
óreyndu, þá rnyndi verða miklu
auðveldara að koma hér ’fram
áhrifum til góðs frá öðrum stjörn-
um."
Framhald á næstu sfSu