Tíminn - 02.02.1967, Síða 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Útbreiðsluvika Rauða krossins hafin:
BLÓÐBÍLLINN NÚ
TBKINN í NOTKUN
Borgarráðsmenn gáfu blóð í gær
Borgarstjórinn í Reykjavík, Geir Hallgrimsson (t. h.) gefur blóS og (t. v.) gefur Kristján Benediktsson borgarráSs-
maður blóS, en yfir þeim hangir stór og mikil loftmynd af Reykjavík. (Tímamyndir K.J.
Framboðslisti Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi vestra
IQÞ-Reykjavík, miðvikudag.
Ákveðinn helur verið framboðs
listi Framsóknarr..anna í Norður-
landskjördæmi vestra við næstu
Alþingiskosningar. Ákvörðun um
listann var tekin á framhaldsaðal-
fundi kjördæmisþings, sem hald-
inn var í Húnaveri sunnudaginn
29. janúar. Samþykkt var sam-
hljóða að framboðslisti flokksins
skyldi vera skipaður sömu mönn-
um og við síðustu kosningar tili
Alþingis. Listinn er þanuig skip-|
aður:
1. Skúli Guðmundsson, alþingis-
maður.
2. Ólafur Jóhannesson, alþingis-
maður.
3. Björn Pálsson, alþingismaður
4. Jón Kjartansson, forstjóri í
Reykjavík
5- Magnús H. Gíslason, bóndi,
Frostastöðum
6. Guðmundur Jónasson, bóndi,
Ási
7. Jóhann Salberg Guðmunds-
son, sýslumaður, Sauðárkróki
8. Sigurður J. Líndal, bóndi
Lækjarmóti
9. Gunnar Oddsson, bóndi Flata
tungu
10. Bjarni M. Þorsteinsson, verk
stjóri, Siglufirði.
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Útbreiðsluvika Rauða kross ís-
lands hófst í dag, og af því til-
efni ræddu þeir dr. Jón Sigurðs-
son borgarlæknir formaður RKÍ
og Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri samtakanna við
fréttamenn. Blóðbíll RKÍ var tek-
inn í notkun í dag, með því að
ihorgarstjóri og borgarráðsmenn
,gáfu blóð, sem bíllinn flutti í Blóð
bankann, en með blóðbílnum er
miklu takmarki náð í starfsemi
RKÍ. Áherzla verður nú lögð á
að efla Hjálparsjóð RKÍ og verð-
ur leitað til einstaklinga og fyrir-
tækja í því sambandi.
Ólafur Stephensen ræddi nokk-
uð um útbreiðsluvikuna og starf-
ið á árinu 1966. Lögð verður
áherzla á að kynna starf RKÍ í
útbreiðsluvikunni og einkunnar-
orðin eru: Bjargið lífi — gefið
blóð. Útbreiðsluvikunni lýkur á
Öskudaginn, sem er árlegur fjár-
söfnunardagur Rauða krossins, og
verða þá merki seld um land allt,
og Öskudagsfagnaður verður á
Hótel Sögu.
Ólafur sagði, að í des. sl. hefði
Forseti íslands undirritað viðbót
við Genfarsáttmálann um bann
við notkun eitur og sýklaefna í
hernaði, en Rauði kross fslands
hafði mælt með því við utanrík-
isráðuneytið að samningurinn
yrði undirritaður fyrir íslands
hönd.
Þá samþykkti Forseti íslands
hinn 10. des. á stofndegi Rauða
kross íslands, tillögu nefndar heið
j ursmerkis Rauða kross íslands um
] að sæma þá Gísla Jónasson fyrrv.
skólastjóra, sr. Jón Auðuns dóm-
prófast og Óla J. Ólason stórkaup
mann heiðursmerki RKÍ, annars
stigs fyrir störf í þágu Rauða
kross mála. Alls bera nú 21 heið-
ursmerki RKÍ.
Sjúkrabifreiðir Reykjavíkur-
deildar RKÍ fóru í 8.243 sjúkra-
flutninga á árinu 1966, en deild-
in hefur nú rekið sjúkrabifreiðir
i 40 ár í Reykjavík. Sjúkrabif-
reiðarnar eru starfræktar frá
Framhald r bls. 14
Sovézkir borgarar fluttir
í stórhópum frá Peking
NTB-Peking, miðvikudag.
Fjölskyldur sovézkra sendifull-
trúa og fréttamanna í Peking
verða fluttar brott, segir i áreið-
anlegum heimildum í Peking í
dag. Hefjast brottflutningarnir á
laugardagskvöld, er fjölskyldur
blaðamannanna flytjast lieim úl
Moskvu.
Sovézki skólinn, sem hefur að-
setur í sendiráðsbyggingunni í
Peking verður lagður niður seinni
hluta þessarar viku, en börn frá
öðrum Austur-Evrópurikjum
ganga í þennan skóla. Brottílútn-
ingurinn nær til mörg hundruð
kvenna og barna. Ástæðan til
þessara aðgerða eru mótmælaað-
gerðir þær, sem Rauðir varðlið-
ar hafa staðið fyrir undanfarið
við sovézku sendiráðsbygginguna.
í dag fengu Frakkar að finna
fyrir útlendingahatri Rauðu varð-
Enn ein mistök USA í Vietnam:
Gerðu loftárás á
eigin hermenn
NTB-Saigon, miðvikudag.
i dagrenningu í morgun vörp
uðu bandarískar herþotur
tveim sprcngjuin á bandaríska
sjóliða, af misgáningi. Voru
þoturnar í árásarferð í Suður-
Vietnam. Tveir hermenn fór- '
ust og 11 særðusí. Málsvari
Bandaríkjamanna í Saigon
sagði j dag, að árásin hefði
beinzt að stöðvum Vietcong í
bænum Quang Ngai, en sam-
tímis hefðu sjóliðarnir gert
árás á bæinn.
Vietcong hefur lýst yfir
vopnahléi í fjóra daga frá og
með 8. febrúar í tilefni ný-
'árshátjðarinnar í landinu og
jafnframt látið þess getið, að
vopnahléið verði framlengt um
þrjá daga, ef andstæðingarnir
fallist á það.
Þær fréttir bárust frá suður-
vietnömskum hersveitum í dag
að 51 skæruliði hefði verið
felldur í ofsalegum bardögum
í Mekong-óshólmunum. Hafi
stjórnarherinn fundið mikið
magn af hergögnum á þessum
slóðum. Vegna þéttrar þoku
voru ekki farnar neinar ferðir
til loftárása á Norður-Vietnam
í dag, en sjóorrusta var háð
fyrir utan strönd Norður-Viet-
nam.
Frambaid a bls. 14-
liðanna. Veitzt var að frönskum
sendifulltrúa og konu hans, sem
lentu í bifreiðaárekstri í Peking.
Sendifulltrúinn var dreginn út
úr bifreið sinni og hindraður í að
ganga til sendiráðsins. Lögregla
'bannaði Rauðu varðliðunum að
meiða sendifulltrúann, en samt
tók það hann sjö klukkustundir
að komast til sendiráðsins. Kona
hans sat eftir í bílnum, sem Rauð
ir varðliðar börðu að utan og
útötuðu í áróðursmiðum.
Enn eru viðsjár í Sinkian. Hong
kongblaðið Star segir í dag, að
leiðtogi Mao-andstæðinga í Sinki-
and, Wang En-mao hafi hótað að
tsk-a á sitt vald kjarnorkuvopna-
búr Kínverja, sem er í Singkiang,
ef Mao-menn réðust inn í héruðið.
Kínverskar hersveitir hafa nú
ráðist inn í borgina Shihotzu í
Sinkiang og hrakið Mao-andstæð-
inga upp til fjalla. Segir á vegg-
spjöldum í Peking, að Mao-and-
stæðingar hafi ekið brott úr borg
inni á 46 bílum hlöðnum þjóf-
stolnu góssi. Segir og, að fjórar
bifreiðanna hafi verið hlaðnar lík-
um Rauðra varðliða.
• Seint j kvöld héldu um 80 kín-
verskir stúdentar frá Moskvu til
Peking, en þeir hafa horfið frá
Framhald a bls. 14-
Valtýr Bjarnason yfirlæknir BlóS-
bankans við skápinn sem geymir all-
ar birgðir bankans — skápinn sem
ávallt á að vera fullur af blóðflösk
um, en ekki hálfur eins og í gær.
DEILT
VIÐTAL VIÐ
NLF-
NTB-Lundúnum, miðvikud.
Brezka blaðakonan Gloria
Stewart staðfesti í dag að
gefnu tilefni þau ummæli,
sem hún hafði eftir háttsett
um embættismanni þjóð-
frelsislireyfingarinnar í
Vietnam, að frelsishreyfing
in væri fús til samninga við
Bandarfkjamenn um frið .
Vietnam, án bess aö sér-
stökum skilyrðum yæri full-
nægt.
Hrakti nún fullyrðingar
Framhald a bls. 14