Tíminn - 02.02.1967, Page 3
FIMMTtJDAGUR 2. febrúar 1967
3
TÍMINN
Greinargerö frá raforkumáfastjúrn
í tilefni af samþykkt fulltrúa-
fundar sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi 24. þ.m.,
þar sem skorað er á raforkumála-
ráðherra að bæta tveim fulltrúum
frá Austurlandi í nefnd þá, sem
hann hafi skipað til að rannsaka
raforkumál Austurlands oig Lax-
ársvæðisins, skal eftirfarandi tek
ið fram.
í samþykktum fulltrúafundar-
ins og í blaðafréttum um þennan
fund gætir nokkurs rrV'S'kilnings
urn tilhögun rafvæðingarrann-
sóknanna og tilefni skipunar um-
ræddrar nefndar. Rannsóknir á
raforkumálum Austurlands hafa
staðið yfir um nokkurra ára skeið
og verið framkvæmdar af raforku
málastjórninni. Fyrst í stað beind
ust þessar rannsóknir að því að
afla nauðsynlegra grundvallar-
upplýsinga á virkjunarstað með
mælingum á vatnsrennsli, land-
mælingum og rannsóknum á jarð
fræði, þar á meðal töluverðum
jarðborunuim við Lagarfoss til
þess að kanna jarðvegs- og berg-
grunnsaðstæður sem rækilegast.
Síðustu tvö árin hefur svo verið
unnið að endanlegum áætlunar-
gerðum um ýmsar hugsanlegar t'l
haganir bæði á virkjunum og
veitum.
Áætlanir hafa verið gerðar um
ýmsar mismunandi virkjunar-
stærðir í Lagarfossi, allt frá 4000
kw. upp í 20000 kw„ og eru í því
sambandi jafnframt eldri áætlanir
endurskoðaðar í Ijósi nýrra upp-
lýsinga- Fullvirkjun Lagarfoss er
í kringum 20.000 kw. að stærð,
en það er miklu stærri virkjun en
Austurland getur borið uppi nú
og um allanga framtíð. Hins veg-
ar eru minni virkjanir í Lagar-
fossi tiltölulega dýrari en full-
virkjun. Áætlanir eru gerðar um
mismunandi virkjunarstærðir til
þess að kanna hvaða stærð yrði
hagkvæmust, ef fossinn væri
virkjaður nú fyrir Austurland ein
göngu.
Jafnframt hefur svo verið gerð
áætlun um línu frá Laxárvirkjun
í Þingeyjarsýslu með þann hugsan
lega möguleika fyrir augum, að
orka verði í fyrstu fengin frá Lax
árvirkjuninni handa Austurlandi,
meðan Laxárvirkjunin getur ann-
að báðum orkuveitusvæðunum. En
áður en svo er komið, að Laxár-
virkjun er ekki lengur aflögufær
fyrir Austurland verði lokið virkj
un í Lagarfossi, sem þá má gera
miklu stærri en nú væri hægt fyr
ir Áusturland eitt. Hún er þá gerð
til að anna viðbótarorkuþörfum
bæði Austurlands og Norðurlands
og fullvirkjun Lagarfoss kemur
| þá fyllilega til greina. Meðan sú
virkjun svo endist báðum, er hægt
að fresta virkjun á Laxársvæðinu
um skeið, en gera hana stærri og
tiltölulega ódýrari en ella, þegar
að henni kemur.
Af því, sem að framan er
I greint, er sýnt að um allmarga
j kosti getur verið að velja í raf-
1 orkumálum Austurlands. En ofan
á þetta bætist, að óvissan í áætlun
um raforkuþörf i framtíðinni er
töluvert meiri í þessum landsfjórð
ungi en annars staðar í landinu.
Raforkunotkunin hefur þar eystra
meir en fimmfaldast á 10 árum en
víðast hvar annars staðar varla
tvöfaldast á sama tfma. Þessi
mikla aukning byggist fyrst og
fremst á síldveiðinni, og meira
en helmingur raforkunnar er fram
leiddur hennar vegna, beint og
óbeint. Nú er síldveiðin í eðli
sinu, eins og íslendingum er vel
kunnugt, all ótryggur atvinnuveg-
ur og skapar þetta æði mikla ó-
vissu um það, hve mikilli raforku-
sölu eða raforkunotkun megi
reikna með á Austurlandi næstu
10—12 árin. Hefur því þótt óhjá-
kvæmilegt, að abhuga fleiri en
einn möguleika í þessum efnum,
bæði áframhaldandi öra aukningu
í raforkuþörf, ef síldveiði heldur
enn lengi áfram að aukast, og
svo til muna hægari vöxt, ef veiði
eykst lítið úr þessu og jafnvel
dregst saman að nokkrum tíma
liðnum.
Austurlandsathugunin hefur af
þessum sökum reynzt umfangs-
mikil og orðið nauðsynlegt að
rannsaka áhrif mjög margra at-
riða á niðurstöðurnar og þar með
á kostnað raforkunnar. Til þess
að gera slíkt mögulegt hefur raf-
orkumálastjórnin þróag sérstakar
i rannsóknaraðferðir og tekið í
| notkun nýja reiknitækni, sem
1 beitt er i fyrsta skipti hér á landi
við svona verkefni. Að þessu hef-
ur unnið sérstakur vinnuhópur
starfsmanna hjá raforkumála-
stjóirninni, er skipaður var til að
ganga frá endanlegri álitsgerð um
hagkvæmustu leið til öflunar raf-
onku fyrir Austurland. Hefur hóp-
urinn notað við þetta rafreikni
Háskóla íslands. Leyfa þessar að-
ferðir mun nákvæmari og ítar-
legri athuganir og fyllri hag-
kvæmnisútreikninga en unnt hef
ur verið að viðhafa áður en þess-
ar nýju hraðvirku aðferðir verða
tiltækar.
Á fyrstu fjórum mánuðum árs-
ins 1966 átti raforkumálastjóri og
samstarfsmenn hans, er að þessum
rannsóknum unnu marga fundi
með þingmönnum Austurlands-
kjördæmis. í ágústmánuði s.l. sat
raforkumálastjóri fund á Egils-
stöðum með þingmönnum kjör-
dæmisins og framámönnum sýslu
og sveitarfélaga austanlands. Hvort
tveggja að heimamenn og fulltrú
ar þeirra gætu fylgzt með þessari
rannsókn.
Að því sem að framan er sagt
má og sjá, að raforkumál Austur-
lands 'hafa verið rannsökuð mjög
ítarlega og rækilega og má full-
yrða að eigi hafi raforkumál ann
arra landshluta hlotið ítarlegri at
hugun en Austurlands nú hafa
hlotið.
Hinn 18. apríl 1966 sneri stjórn
Laxáryirkjunar sér til ríkisstjórn
arinnar með beiðni um fyrir-
greiðslu um lánsútvegun til nýrr-
ar virkjunar í Laxá. En með því
að Austurlandsathugunin hafði
þegar sýnt að tenging Austur-
lands og Laxársvæðisins og sam-
eiginleg virkjun gat verið báðum
til hagsbóta og V°t var, að teng-
ing Austurlands við Laxá, ef af
yrði, hlaut að hafa nokkur áhrif
á tUhögun nývirkjunar i Laxá,
þótti ekki fært að afgreiða mála-
leitun Laxárvirkjunar án þess að
taka þennan möguleika með í
reikninginn. Var því skipuð sér-
stök nefnd af þessu tdefni til að
taka málaleitan Laxárvirkjunar-
stjórnar til athugunar í ljósi þess
ara nýju viðhorfa; rannsaka tækni
legar og fjárhagslegar áæflanir
um nývirkjun í Laxá, og þá sér-
staklega hvaða áhrif það hefði á
slíka virkjun ef henni væri ætlað
að sjá Norðurlandi vestra og Aust
urlandi fyrir raforku, auk Laxár-
tvæðííins. Samtímis tók Seðia-
bankinn að sér að athuga sérstak-
lega, hverjir fjáröflunarmögu-
leikar væru fyrir hendi til virkj-
unarframkvæmda af því tagi, sem
Laxárvirkjunin er. í nefnd þessa
voru skipaðir raforkumálastjóri,
rafmagnsveitustjóri ríkisins, tveir
sérfræðingar frá Efnahagsstofn-
uninni og Seðlabankanum, og
tveir fulltrúar Laxárvirkjunarinn-
ar (þess fyrirtækis) er hafði lagt
fram þá málaleitan er varð tilefni
nefndarskipunarinnar. Þar eð
vstarfssvið netfndarinnar varðaði
fynst og fremst tæknUega og fjár
hagslega athugun á ætlunum um
viðbótarvirkjun í Laxá og áhrif
af stækkun orkuveitusvæðisins á
virkjunina var sjálfsagt mál að
fulltrúar frá Laxárvirkjun ættu
sæti í nefndinni, en á hinn bóg-
inn ekki tilefni til að fulltrúar
héraða eða 1a>-\-hluta ættu þar
sæti. Þetta er ástæðan ti] að
hvorki fulltrúar Austfirðinga né
fulltrúar frá Norðurlandj vestra,
sem svipað er ástatt um og Aust-
urland í þessu sambandi voru
skipaðir í nefndina. Hér hefur
engin mismunun milli landshluta
átt sér stað.
Sem fyrr segir hafa rannsóknirn
ar á raforkumálum Austurlands
verið í höndum raforkumála-
stjórnarinnar, en fulltrúar Aust-
firðinga, bæði á Alþingi og heima
fyrir verið gefinn kostur á að
fylgjast með þeim, svo sem að
framan er rakið. Þegar jafnframt
er athugað, hversu rækilegar og
nákvæmar þessar rannsóknir eru,
er fjarstæða • að halda því fram,
að hagsmunir Austurlands hafi
í þessum efnum verið fyrir borð
bornir.
Sjötugur:
Ingólfur Guðmundsson
Höfn í Hornafirði
Ingólfur er fædur á Skálafelli
í Suðursveit 15. október 1896.
Foreldrar hans voru Sigríður Ara
dóttir og Guðmundur Sigurðsson,
bæði komin af góðum og traustum
ættum. Fimm vikna gamall var
Ingólfur tekinn í fóstur að Hólmi
á Mýrurn af þeim hjónunum
Gisla Jónssyni og Vilborgu Ein-
arsdóttur frá Skaftafelli i Öræf-
um.
í Hólmi var mesta myndar- og
regluheimili. Fékk Ingólfur því
gott uppeldi sem hann minnist enn
í dag. Þar var hann að heyskap,
gegningum, fór í ferðalög, sótti
sjó að Skinneyjarhöfn útróðrar-
stað Mýramanna. Stundaði veiði-
skap { ám og vötnum, og var
smali um sinn. Allt var þetta
þroskandi fyrir ungan mann.
Um tvítugsaldur fór Ingólfur
frá Hólmi, var fóstra hans þá
dáin. en fóstri hans að láta búið
í hendur tengdasonar síns. Fyrsta
sumarið eftir að Ingólfur fór frá
Hóimi réðist hann sjómaður á
Berufjarðarströnd. Um haustið
kom hann í gömlu fæðingarsveit
sína, og gerðist þar vinnumaður
á ýmsum bæum.
Ingólfur var hvívetna eftirsótt-1
ur til verks. Hann hafði góða
lund. var sérstaklega vel verki
farinn, eins og hann átti ætt til,
ósérhlífinn i öllu verki, og ham-'
hleypa duglegur. Það var gaman
að vinna með Ingólfi, verkið lék
í höndum hans og ósérhlífnin vari
sérstök.
Lengi eftir að Ingólfur var far-
inn af því heimili sem hann vann
á, mátti sjá glöggt merki um hag-
leik hans á ýmsum hlutum sem
hann hafði gert eða dútlað að.
Slíkir menn sem Ingólfur eru ekki
á hverju strái sem hæfni snertir.
Árið 1922 réðist Ingólfur vist-
maður til prestshjónanna á Kálfa
fellsstað, séra Péturs Jónssonar og
frú Helgu Skúladót.tur. Auk hans
voru visfráðnir á því heimili þetta
ár, þeir bræðurnir Stefán og Ólaf-
ur Gíslasynir. Á þessum árum
var enn sóttur sjór j Suðursveit,
eins og gert hafði verið um alda-
raðir, þó brim hinnar hafnlausu
strandar hafi ógnað.
4. maí þetta vor voru þrjú skip
róðrabúin í Bjarnahraunslandi.
Sjór var sæmilegur, en loft þótti
ekki tryggilegt. Eitt af þessum
skipum reri fljótlega, en af þvi
hin vantaði eitthvað af mönnum
sínum dróst róður þeirra. Áðuri
langt leið hafði þó annað heimt |
sina menn, og ýtti frá landi, mun.|
sjór þá heldur hafa verið farinn1
að kvika. Þegar hér var komið
sýndist þeim sem voru á fyrra
skipinu að sjór sé að stækka. Var
því afráðið að halda til lands. Á
innleiðinni mætti það skipinu
sem seinna réri. og spurði hvern-
ig sjór hefði verið í landi. Var
þeim svarað af sMpverjum á því
skipi sem á útleið var. að enn
væri hann sæmilegur, og hélt það
skip áfram út á mið. Nú var ráða
gerð á því skipinu sem við sneri,
hvort ætti að halda áfram til
lands eða halda aftur á mið. Sitt
sýndist hverjum, og var það úr :
að haldið var aftur á mið, og set-
ið um stund í lötum fiskidrætti.
Var þá sýnt að sjór var ört að
stækka, og þá haldið með kappi
til lands, og hitt skipið í humátt
á eftir.
Af þriðja skipinu er það að
segja, að eftir að hafa fengið alla
sjómennina var sjór orðinn það
stór, að ekki var hægt að fá lag
úr landi sem notandi þótti. Var
því skipið sett upp í naust, en
beðið eftir að hin skipin kæmu
til lands, því sýnilegt þótti að
þau mundu á hjálp þurfa að halda
við lendinguna, sem og varð. Þeg
ar skipin komu að landi með
stuttu millibiji, töldu þeir sem
í landi voru að sjór væri lítt
lendandi. En um annað var ekki
að ræða en leita lands upp á líf
og dauða. og þá hleypa upp á
lí'klegustu lægingunni. Það skip,
sem fyrr hélt af miðum fil lands.
varð fyrr á leguna. Stutt þurfti
að bíða eftir lægingu þar til lagið
var kallað, eftir betra var ekki
að bíða en sjáanlega var það stutt.
Fyrsti sjórinn í ólaginu greip
skipið þegar það átti að renna
í fjöruna, hann bar það í faldi
sínum með miklum hraða upp
í fjöruna þar sem því hvolfdi. —
Gert var það sem hægt var af
Á VÍÐAVANGI
Efling bolfiskveiða
Útvegsbændafélag Vestmanna
eyja hefur sent frá sér merka
og ýtarlega ályktun, einkuru
um eflingu bolfiskveiiía og
ófremd stjórnarvaldanna í út-
gerSarmálum. Er tekið á þess
um málum af miklu raunsæi í
ályktun þessari og fullkoniin
ástæða til að vekja athygij á
gagnrýnj hönnar og ábending
um.
í fyrri hluta ályktunarinnar
segir:
„Útvegsbændafélag Vest-
mannaeyja lýsir megnri ó-
ánægju á þeim drætti, er varð
um nýgerða verðákvörðun á
bolfiski, og telur að ef reglur
hefðu verið haldnar, átti verð
ákvörðunin að liggja fyrir 10.
dcsember síðastliðinn. Lítur
félagið svo á, að ef verðákvörð
unin hefði legið fyrir á þeim
tíma, væri naumast nokkur bát
ur hreyfður til fiskveiða, út á
það fiskverð, er nú liggur fyrir.
En með hliðsjón af því að
fjöldi báta var byrjaður róðra
og flestir útvegsmenn búnir að
leggja í margvíslega fjárfest-
ingu, vegna vertíðarinnar, þegar
fiskverðið kom, þá telur félagið
ekki stætt á öðru en samþykkja
þetta allt of lága fiskverð. í
þessu sambandi vill félagið
minna á að það telur ekki leng
ur hægt að una þeim aðferðum
er notaðar eru við verðákvarð
anir á fiski, og harmar að Fiski
félag fslands skuli notað til
þess að minnka möguleika út-
vegsmanna og sjómanna á því
að fá sanngjarnt fiskverð.“
„Rangindi við útgerð-
ina"
Þá er það harðlega gagnrýnt,
að hömlur skuli nú settar á
innflutning veiðarfæra, meðan
flest annað miklu óþarfara er
flutt inn hömlulaust og segir:
,,Þá mótmælir félagið inn-
flutningshöftum á veiðarfærum,
og telur slíkt bein rangindi við
útgerðina, meðan hvers konar
varningur, þarfur og óþarfur,
er meira og minna frjáls til
innflutnings.
Félagið skorar á stjórnarvöld
landsins að vinda bráðan bug
að því að skapa viðhlítandi
rekstrargrundvöll til handa út-
gerðinni og þá um leið rétta
hlut þeirra sjómanna cr stunda
bolfiskveiðar. Vill félagið í
þessu sambandi benda á að með
viðhlítandi rekstrargrundvelli,
myndi aflamagn á land komið.
að óbreyttri fiskigengd, auka«'
að miklum mun því sannan-
lega lamar hinn erfiði fjárhaes
grundvöllur allan rcksturinn,
svo sem frjm kemur i minni
aflabrögðum.
Heitir félagið á öll samtök i
landinu, er lúta að sjávarútvegi
að hefja harða baráttu fyrir
bættum hag, þess þáttar útgerð
arinnar, er snýr að bolfiskveið
um. Að öðrum kosti er fyrir
sjáanlegt, að þessi þýðingar-
mikla atvinnugrein íslenzku
þjóðarinnar mun að verulegu
leyti leggjast niður.“
Þörf ádrepa
Ályktun Útvegsbændafélags i
Vestmannaeyja er hin þarfasta i
hugvekja, sem kemur úr rétt j
um stað, þar sem gr mesta bol- |
fiskverstöð lant’sins. Félags- |
menn skilja og vita öðrum bet
Framhaid á bls. 15
Framhald á bls. 12.