Tíminn - 02.02.1967, Side 12
12
TÉMINN
FIMMTUDAGUR 2. febrúar 1967
RAFCEYMAR
r
CORTINU
FÍAT 1100
RENAULT R8
FYRIRLIGGJANDI
PÓLAR H.F.
EINHOLT 6
LAUSAR STÚDUR
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við Frí-
höfnina á Keflavíkurflugvelli:
1. Staða skrifstofustjóra. Góð bókhaldsþekking og
málakunnátta nauðsynleg.
2. Staða yfirvarðstjóra og birgðavarðar. Góð mála-
kunnátta nauðsynleg. Reynsla við innflutning
og verðútreikninga mjög æskileg.
Umsóknum skal skilað til Fríhafnarstjórans á
Keflavíkurflugvelli fyrir 16. þ.m.
Nokkrir múrarar við steypuvinnu að Hólum í Hjaltadal 1910.
Múrarafélagið 50 ára
Framhald af bls. 9.
hlaðnir. Áður hafði þó verið steypt
lítið jámbent loft yfir hitaklefa
í húsinu Gimli við Lækjargötu,
þar var einnig steypt þakið yfir
turninn. í því húsi, sem hlað'ið
var úr steyptum steini, var lagt
Terrassó á útitröppur og undir
eldavél, slípað með sandsteini.
Þetta var áður óþekkt í íslenzkri
húsagerð og boðaði þá þróun,
sem síðar varð.
Bygging Vífilstaðahælis árið
1910 var merkur áfangi,. þvf það
er fyrsta stórhýsið, sem lands-
menn unnu einir við og eftir upp-
dráttum gerðum af fyrsta íslenzka
húsameistaranum, Rögnvaldi Ólafs-
syni. Sama má segja um húsið
Hverfisgötu 29, nú eign danska
sendiráðsins, byggt 1913. Þar voru
öll loft, stigar og þak úr járn-
bentri steinsteypu. Og enn má
nefna hið fjórlyfta hús Nathans
og Ólsen, nú Reykjavíkurapótek,
byggt 1916—16, sem í rauninni
var fyrsta stórhýsið á fslandi.
Lengi var steypan hrærð með
skóflum á palli og færð í mótin
í fötum. Það er ekki fyrr en árið
1914 við húsið Bankastræti 11, að
notuð var vélknúin Krærivél. Al-
mennt voru þær þó ekki notaðar
fyrr en eftir 1930, en eru nú
að verða úreltar og steypan ekki
lengur blönduð á vinnustað, heid-
ur í steypustöðvum og hrærð og
flutt á byggingarstaðinn í sér-
stökum bílum, og jafnvel nú síð-
ustu árin dælt í mótin með ioft-
þrýstum slöngum.
Meðlimir félagsins eru nú 279.
Núverandi stjóm skipa þeir:
Hiirnar Guðlaugsson formaður,
Einar Jónsson varaformaður,
Brynjólfur Ámundason ritari,
Kristján Haraldsson, gjaldkeri
félagssjóðs og Heigi Steinar Karls
son gjaldkeri styrktarsjóðs.
Félagið minnist afmælisins með
hófi í Súlnasal Hótel Sögu á af-
mælisdaginn 2. febrúar.
Keflavíkurflugvelli 1. febrúar 1967,
Fríhafnarstjórinn á Keflavíkurflugvelli.
ATHUGIÐ:
Erum að flytja starfsemi okkar frá Laugavegi 178
að Síðumúla 13. Nánar auglýst síðar, hvenær við
opnum þar.
Bifreiðastillinsin
BRAGI STEFÁNSSON
HÚSBYGGJENDUR
Smíðum svefnherbergis-
og eldhúsinnréttingar
S í M I 32 2 52
HÖGNI JÓNSSON
Lögfræði- og fasteignastofa
Skólavörðustíg 16,
sími 13036
heima 17739.
HEIÐRUÐUM
VIÐSKIPTA-
VINUM
er hér með tilkynnt, að
þær deildir, er áður
höfðu síma 20500 munu
hér eftir svara í síma
17080.
SAMBAND
ÍSLENZKRA
SAMVINNUFÉLAGA
SJÖTUGUR
Framh. af bls. 3
þeirn sem í landi voru að bjarga
skipsihöfninni. Þarna drukknuðu
tveir menn, Magnús Sigurðsson
bóndi í Borgarhöfn og Stefán
Gíalason frá Kálfafellssfað.
Magnús rak fljótt upp en Stefán
aldrei. Þriðji maðurinn, Ingólfur
Guðmundsson, lærbrotnaði, en
aðrir sluppu ómeiddir. Hitt skip-
ið fékk sæmilega lendingu, enda
var það léttara undir árum og
gangbetra, en það sem fyrr lenti.
Læknir var sóttur til að binda
um brot Ingólfs. Einhverjar mis-
fellur urðu víst á því, og brotið
vildi ekki gróa. Þegar séð var
hvað verða vildi með brotið, fór
Ingólfur til Reykjavíkur, lenti á
Landakotsspítalann undir hendi
Matthíasar Einarssonar, sem hóf
aðgerð á brotinu. Brotið hófst enn
illa við og af spítalanum fór Ing-
ólfur lítið betri en hann kom,
heim að Káifafellsstað.
Á áliðnu sumri varð sú tilvilj-
un að Steingrímur Matthíasson
læknir á Akureyri var á ferð og
kom að Kálfafellsstað. Ingólfur
sýndi honum brotna lærið, og
tjáði honum hvað að hefði verið
igert. Lækni sýndist að enn mætti
við þetta gera, og ráðlagði Ing-
ólfi að fara aftur á fund Matthías
ar, en ef hann vildi ekkert við
hann gera, skyldi hann koma til
sín.
Ingólfur brá við, fór til Reykja
víkur, hitti Matthías. Hafði hann
sig undan að hefja oftar aðgerð
á Ingólfi, því óvíst væri að hann
gæti nokkuð bætt honum. Tók
Ingólfur sér þá far til AkureyTar
á fund Steingríms Matthíassonar
læknis. Tók Steingrímur honum
vinsamlega, hóf aðgerg á honum
með þeim afleiðingum, að með
voxámi gat Ingólfur unmið öll
verk, jafnvel farið í fjallgöngur,
Þegar stundir liðu sagði hann að
Steingxímur hefði verig sér eins
og bezti faðir gat verið. Hefur
Ingólfur mjög rómag hann, ekki
aðeins fyrir það að hann gat
gefið honum fótinn nokkurnveg-
inn jafn góðan, heldur lika fyrir
drengskap hans og mannkosti. ■
Þegar Ingólfui- var orðinn vel
vinnufær hélt hann enn áfram
vinnumennsku, og sótti sjó ýmist
á Hornafirði, var þá lengst af
háseti hins ágæta formanns Sig-
urðar Ólafssonar, og vann sér
traust 'hjá honum fyrir dugnað
og hagvirkni.
Árið 1939 giftist Ingólfur Lús-
íu Jónsdóttur frá Borgarhöfn;
dugnaðarkonu. Eignuðust þau eina
dóttur barna. Bjuggu þau um
tíma í Suðursveit, ýmist í félagi
við aðra eða sjálfstætt. 1948
fluttust þau að Höfn, keyptu þar
íbúðarhús, og hafa efnast þar vel.
Jæja Ingólfur minn. Eg mátti
til í tilefni sjötíu ára afmælis
þíns, að hripa fáar línur, og þá
gat ég ekki gengið fram hjá sjó
ferðinni örlagaríku.
Eg vona að Ingólfur geti teklð
lífinu með ró, það sem eftir er
ævinnar, enda á hann það skilið,
hann er svo mikið búinn að vinna
bæði fyrir sjálfan sig og aðra,
alltaf með sömu trúmennskunni.
Þessi grein hefur lagst til hlið-
ar hjá mér í önn dagsins. Þó liðið
sé nokkuð frá afmælinu, sem
hún fjallar um, læt ég hana fara,
og bið Ingólf vel að virða.
10. janúar 1967.
Steinþór Þórðarson.