Tíminn - 02.02.1967, Side 14
14
BLÓÐBÍLL
Framhals af bls. 1.
SlökkvLstöð Reykjavíkur og ekið
af slökkviliðsmönnum.
Eins og áður rak Rauði kross-
inn barnaheimili á sl. ári.
Haldin voru námskeið í Hjálp
í viðlögum og blástursaðferðinni,
en RKÍ vinnur nú að því að sam-
ræma kennsluaðferðir í sambandi
við þessi máS.
Ritstjóraskipti hafa orðið við
Heilbrigt líf. Sigvaldi Hjálmars-
son ritstjóri hefur tekið við rit-
stjórninni af læknunum Arinbirni
Kolbeinssyni og Bjarna Konráðs-
syni. Er áætlað að gefa eftirleiðis
út fjögur hefti af ritinu á ári.
Úr Hjálparsjóðnum voru veittar
tæpl. 312 þús. til Tyrklandssöfn-
unar og fyrir tilmæli Austfirð-
ingafélagsins safnaði Rauði kross
inn peningum til fólksins að
Hauksstöðum á Jökuldal, er það
missti aleiguna í bruna. Alls söfn-
uðust 92 þús. kr.
Fjárskortur háir starfsemi
Rauða krossins nokkuð, en góð-
ar vonir eru á að hægt verði að
endurnýja sjúkragögn, sem lán-
uð eru í heimahús, á þessu ári.
Dr. Jón Sigurðsson drap fyrst
á Hjálparsjóðinn og nauðsyn
þess að efla hann, þá minntist
hann á hina nýstofnuðu Kvenna-
deild í Reykjavík, sem hann sagði
að mikils væri vænzt af.
Þá ræddi dr. Jón um Blóöbíl
RKÍ, sem hann sagði að væri
'keyptur fyrir fé er bankarnir og
'Sparisjóður Reykjavíkur hefðu
gefið í des. ‘63, og hefði ekki
verið erfitt að ákveða hvað gera
skyldi við féð, þar sem hér á
landi væri banki er byggi jafnan
við bág kjör og litlar innistæður,
en þó ætti margur jionum líf að
launa — Blóðbanki íslands. í stað
blóðs getur ekkert komið ’ nema
blóð, sagði dr. Jón og því vildi
Rauði krossinn beita sér fyrir
auknum blóðgjöfum og kaupa blóð
söfnunarbíll og byggja upp blóð-
söfnunarstarf innan deilda Rauða
kross íslands.
Valtýr Bjarnason yfirlæknir
Blóðbankans ræddi þessu næst við
fréttamenn um Blóðbankann og
þá möguleika sem sköpuðust með
tilkomu Blóðbíls RKÍ.
Sagði hann að starfræksla bank
ans hefði mafizt seint á árinu
1953 og hlutverkið væri að sjá
sjúkrahúsum og læknum í Reykja
vík fyrir því blóði, sem þeir
þyrftu, og auk þess læknum og
sjúkrahúsum um land allt. Með
tilkomu Blóðbílsins sagði hann að
sköpuðust möguleikar til að hafa
Skrifstofustúlkur
Óskum að ráða nú þegar stúlkur til skrif-
stofustarfa. — Umsækjendur þurfa að
hafa Verzlunarskólamenntun og góða vél-
ritunarkunnáttu.
Væntanlegir umsækjendur þurfa að hafa
strax samband við Skrifstofuumsjón, og
liggja umsóknareyðublöð þar frammi.
ÁRMÚLI 3 IHlal
SIMI 38500
Síldveiðisjómenn
Framhaldsstofnfundur félags síldveiðisjómanna
verður haldinn í Slysavarnafélagshúsinu, Granda-
garði sunnudaginn 5. febrúar kl. 14.
DAGSKRÁ:
Lög félagsins. — Önnur mál.
Undirbúningsnefndin.
|j Faðir minn,
Markús Þórðarson,
Grímsfjósum, Stokkseyri,
andaðist í Sjúkrahúsinu á Selfossi 31. janúar.
Andrés Markússon.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
Ingibjargar Pétursdóttur
IEinnig þökkum við starfsfólki á Sjúkrahúsinu Sólvangi, fyrir
hjúkrun og umönnun á liðnum árum.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Í____________ _____________________
Elginkona mín,
Hildur Magnúsdóttir
andaðist að heimili sínu 31. janúar 1967.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Guðbjartur Guðbjartsson,
Láganúpl.
TÍMIWW
meira magn blóðs fyrirliggjandi,
auk vinnslu blóðvatns úr blóðinu
sem hægt er að geyma um árabil
og hafa tilbúið vegna fjöldaslysa
af einhverjum orsökum, en eins
og er erum við ekki reiðubúin
að mæta slíku, sagði yfirlæknir-
inn. Hann sagðj iað allir sem eru
hraustir á aldrinum 18—59 ára,
bæði karlar og konur gætu gefið
blóð, og væru tekin 400 gr. við
hverja blóðgjöf sem nálgast að
vera 1/12 af blóðmagni hvers ein-
staklings. Með þessum litla skerf
hvers og eins væri kannski oft
hægt að bjarga lífi sjúks eða slas-
aðs einstaklings, og það gæti e.t.v.
verið þér sjálfur, barn yðar eða
einhver yður nákominn. Að lok-
um þakkaði hann framtak Rauða
krossins.
Borgarráðsmenn, borgarstjóri,
borgarlögmaður og fleiri sýndu
gott fordæmi í dag og gáfu blóð
— fyrsta blóðið sem flutt er í
Blóðbílnum. Fóru blóðgjafirnar
fram í húsakynnum borgarráðs við
Pósthússtræti, og var ekki að sjá
að neinum yrði meint af blóð-
gjöfinni — heldur þvert, á móti
stóðu þeir upp hressir og endur-
nærðir af blóðgjafarbekkjunum.
Síðan voru blóðglösin sett í
Blóðbílinn, en hann er sérstak-
lega útbúinn með kæli og hita-
tækjum og útbúnaði til að taka
blóð og flytja það langar leiðir,
án þess að það skemmist hið
minnsta.
Blóðbíllinn er innréttaður að
öllu leyti hérlendis. Bílasmiðjan
sá um innréttingar en Sveinn
Jónsson um smíði og útbúnað á
kæli og hitakerfinu í bílnum.
Með tilkomu bílsins verður nægt
að fara um land allt til blóðsöfn-
unar, og mun sérmenntað starfs-
fólk Blóðbankans vera með bíin-
um en RKÍ að öðru leyti sjá um
rekstur hans.
Að lokum í dag voru frétta-
menn boðnir að skoða starfsemina
í Blóðbankanum við Barónsstíg,
og þá sérstaklega nýtt tæki þar,
skilvindu, er gerir það að verk-
um að hægt er að skilja og lcæla
nýtt blóð strax, en áður befur
þurft að bíða eftir að blóðvatnið
settist til í flöskunum. Er nú
mögulegt að skilja nýtt blóð
strax og geyma síðan blóðvatnið
frosið í frystikistu um árabil.
Það fer ekki mikið fyrir blóð-
birgðunum í Blóðbankanum, þær
eru geymdar í sérstökum sklp,
svo hitastig blóðsins haldist alltaf
jafnt eða fjögurra gráðu heitt.
Þessi skápur var um það bil hálf-
ur í dag, en það ætti að vera
metnaðarmál allra heilbrigðra og
hraustra íslendinga að skápurinn
sé ávallt fullur og sömuleiðis séu
jafnan til nægjanlegar birgðir
blóðvatns, því hver veit nema það
komi að því í dag eða á morgun
að lífi þínu, lesandi góður, verði
bjargað með einni lítilli blóð-
flösku.
SOVÉZKIR BORGARAR
Framhals af bls. 1
námi í Lundúnum og París til að
taka þátt í menningarbyltingunni
heima fyrir. f þeim hópi munu j
vera níu stúdentar, sem lentu íj
átökum við sovézka lögreglumenn!
á Rauða torginu í Moskvu á mið-l
vikudag. Stöðugt koma hópar kín-
verskra stúdenta frá ýmsum !önd-
um til Moskvu á leið sinni til
Peking.
Aðalmálgagn sovézkra kommún
istaflokksins, Pravda, segir í dag,
að hópur Rauðra varðliða hafi
kyrrsett lokkra sovézka sendifull-
trúa á hóteli í Peking með beirri
röksemd, að sendifulltrúarnir
hefðu ekki lagalegan rétt til dval-
ar þar.
„SKÖMM . . . . "
Framhald af bls. 16
og koma við ' Blóðbankan-
um.
— Og hvað ertu svo búinn
að gefa mikið blóð?
— Ja, ég held, að það séu
FTMMTUDAGUR 2. febrúar 1967
eitthvað í kringnm 15 lítrarJARÐEIGNASJÓÐUR
sem ég hef geflð, og alltaf
eins og nýr maður effir blóð
gjafirnar.
Björgvin Magnússon, skóla
stjóri, hefur gefið í kringum
14 lítra og fréttamaður blaðs
ins spyr hann;
— Hvað kom til, að þú
fórst að gefa blóð?
— Það var þannig, að vin
ur minn, sem lá á spjtala,
þarfnaðist blóðs, og ég fór
þá í Blóðbankann og gaf
minn skammt af blóði. Síð
an hef ég haft fyrir reglu
að gefa blóð öðru hvoru og
er nú búinn að gefa eitthvað
í kringum 30 sinnum. Eg er
í 0+ blóðflokknum, sem
mun vera algengastur hér.
Fultrúi kvenþjóðarinnar
í hópi þess fólks, er oftast
hefur gefið blóð, er Birna
Oddsdóttir, er starfar á
rannsóknarstofu Atv.deildar
Háskólans. Hún eins og þeir
Jón og Björgvin gaf blóð
í dag, og að blóðgjöfinni
lokinni spurði fréttamaður:
— Þetta hefur ekki verið
neitt öðruvísi en venjulega?
— Nei, nei, nema ég hef
nú aldrei gefið blóð i fund
arherb. borgarráðs fyrr og
mér líður ágætlega eins og
alltaf eftir blóðgjaf\r?
— Ertu oft búin að gefa
blóð?
— Já, ég er oft búin að
gefa blóð. Eg vinn í næsta
húsi við Blóðbankann og
það er kannski þess vegna,
að ég hef svona off komið
þar við og gefið, en ég hef
nú bara ekki tölu á því, hve
oft .ég.hef gefið.
ENN EIN MISTÖK
Framhals af bls. i.
Pierre Mendes-France, fyrr-
verandi forsætisráðherra
Frakklands lagði til í dag, að
Frakkar tækju að sér forystu
í tilraunum cil lausnar deil-
unni í Vietnam. Sagði hann,
að aðstaða Frakka væri miklu
betri en Breta, sem væru of
háðir Bandaríkjamönnum. að
þvi er virtist, og einnig stæðu
þeir betur að vigi en Sovét-
ríkin til þess að gegna þessu
hlutverki, vegna deilunnar við
Kína. Mendes lagði til, að öll
Suð-austur-Asía yrði lýst hlut-
laus og sagði hann möguleik-
á friðarlausn byggðri á
þessum grundvelli, stöðugt
fara batnandi. Lét hann þess
getið, að í Hanoi væru þess
aukin merki, að stjórnin þar
vildi ekki láta ósvarað heiðar
legum og sanngjörnum friðar-
tillögum.
DEILA UM VIÐTÖL
Framhals af bls. 1.
kommúnista um, að viðtal-
ið hefði aldrei átt sér stað.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá í fréttum birti
brezka blaðið The New
Statesman viðtal blaðakon-
unnar við „utanríkisrað-
herra“ vietnömsku þjóð-
frelsishreyfingarinnar, þar
sem hann m.a. gaf áður-
nefnda yfirlýsingu, sem
vakið hefur heimsathygli.
Þar kom fram, að þjóðfrels
ishreyfingin vildi þessar um
ræður án þátttöku stjórn-
ar Norður-Vietnam. Blaða-
konan segir, að „utanríkis-
ráðherrann" hefði einnig
skýrt frá ýmsum ágreinings
efnum þjóðfrelsishreyfingar
innar og stjórnarinnar
Hanoi, en Hanoi-stjórnin
hefur neitað, að slíkur
ágreiningur sé fyrir hendi
Blaðakonan endurtók, að
viðtalið hefði átt sér stað
1. desember s.l. jg staðið
í 4 klukkustimdir.
Framhald af bls. 16
að kaupa jarðir í þeim tilgangi
að fella þær úr ábúð, enda leiði
ath. í ljós, að það sé hagkvæmt og
tekur heimildin til jarða sem svo
er ástatt um, er hér greinir: 1.
Jörð, sem ekki selst með eðlilegum
hætti, en eigandi hennar verður
að hætta búskap vegna aldurs eða
vanheilsu. 2. Jörð, sem hefur óhag
stæð búskaparskilyrði. 3. Jörð,
sem ekki nýtur framlags og lóna.
sem veitt eru til umbóta á lögbýl
um og 4. Jörð, sem er afskekkt og
liggur illa við samgöngum.
í dag lagði ríkisstjórnin einnig
fram frumvarp um breytingu og
viðauka við lög um varnir gegn
sauðfjársjúkdómum, sem samið er
af sauðfjársjúkdómanefnd.
Gísli Guðmundsson og Ágúst
Þorvaldsson lögðu fram frumvarp
til laga um verkfræðiráðunauta
ríkisins á Norður- Austur- 'og Vest
urlandi. Frumvaxp þetta er samlð
af Staðsetningarnefnd ríkisstofn-
ana, sem skipuð var fyrir nokkr
um árum. Þessa máls verður getið
nánar síðar.
Ólæti -
Framhald af bls. 16
uðust mjög. Þegar tekizt hafði að
ryðja bíóið söfnuðust unglingarn-
ir saman og héldu í hóp niður
Laugaveg. Var ferðinni heitið nið
ur að lögreglustöð. Þegar þangað
var komið byrjuðu mikil háreysti
og læti og skökkuðu lögregluþjón
ar þá leikinn. Þeir unglingar, sem
ekki vildu hlýðnast beiðni lög-
reglunnar um að hverfa heim til
sín, voru teknir úr umferð. Skýrði
lögreglan Tímanum frá því, að
tveir lögreglubílar hefðu farið
með „fullfermi“ í Siðumúla. Voru
foreldrar þessara unglinga síðar
látnir vita um þá.
Samkvæmt frásögn lögreglunn-
ar voru unglingarnir ekki undir
áhrifum áfengis og því auðveld-
ara að ráða við þá en ella.
ÖKUMENN!
Látið stilla í tíma
áður en skoðun hefst.
HJÓLASTILLINGAR
MÓTORSTILLINGAR
LJÓSASTILLINGAR
Fljót og örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN &
STILLING
SKÚLAGÖTU 32,
SÍMI 13-100.
Trúlofunarhringar
afgreiddir
samdægurs.
Sendum um allt land.
HALLDÓR,
SkólavörSustjg 2.