Alþýðublaðið - 27.08.1988, Page 4
4
Laugardagur 27. ágúst 1988
MDUBLMD
Útgefandi: Blaó hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Umsjónarmaóur
helgarblaös: Þorlákur Helgason
Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttirog Ómar
Friðriksson.
Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir
Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf., Síöumúla 12.
Áskriftarsíminn er 681866.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuöi. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 8Ö
kr. um helgar.
FORDÆMI JOHONNU
Fram hefur komið í fréttum að ríkið greiðir allt að 750
milljónum króna árlega í ferðakostnað. í útreikningum
Morgunblaðsins sem blaóið birti í gær er því haldið fram,
að kostnaður ríkissjóðs í ár vegna ferða opinberra starfs-
manna innanlands sem utan sé varlega áætlaður 600
milljónir króna. Fjármálaráðuneytið vinnur nú að úttekt á
þessum kostnaði. Slík úttekt er fyllilega tímabær; ferða-
kostnaður ríkisins erfarinn að nálgast einn milljarð króna
á ári og engar nákvæmar tölur um kostnað ríkisins af
ferðalögum opinberra starfsmanna er að finna á ársreikn-
ingi síðustu ára. Fara þarf aftur í ríkisreikning fyrir árið
1985 til að fá nýjustu tölur um ferðakostnað ríkisins. Al-
þýðublaðið vakti athygli á því á sínum tíma, eða haustið
1983, að á tímabilinu maí 1982 til ágúst 1983 hefðu að jafn-
aði 20 manns verið í utanferðum á vegum stofnana ríkis-
ins hvern dag. Þáverandi fjármálaráðherra, Albert Guð-
mundsson, skipaði í framhaldi af frétt Alþýðublaðsins
svonefnda utanfararnefnd, sem hafa átti hemil á útgjöld-
um ríkisins til ferða opinberra starfsmanna. Sú nefnd
klofnaði síðar og dagaði uppi. Það er því ánægjulegt að
fjármálaráðuneytið hefur tekið upp þráðinn að nýju og
hyggst gera úttekt á ferðakostnaði ríkisins. Það er enn-
fremur ánægjulegt að Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur sýnt gott fordæmi með því að skera
mjög niðurferðakostnað ráðuneytisins og þeirrastofnana
sem heyra undir það, eða alls um fjórðung. Hefur félags-
málaráðherralýst því yfirað þeirri stefnu verði haldið með-
an hún er 1 embætti. Samkvæmt útreikningum Morgun-
blaðsins nemur niðurskurður Jóhönnu minnst 4.5 milljón-
um króna á ári. Þetta fordæmi ættu aðrir ráðherrar og yfir-
menn ríkisstofnana að taka sér til fyrirmyndar. Ekki síst
nú, þegar mikilvægt er að ríkið og sveitarfélög vísi veginn
í sparnaöi og hagkvæmni í rekstri.
ERU RÖRNIN ÞARFARI
FORELDRUM?
Velflestir skólar landsins taka til starfa í næstu viku. Þá
stígayngstu börnin fyrstu skref á langri braut, sem í aug-
um allt of margra tengist of miklum leiða. Reyndar er
„skólaleiði" á stundum hálfgert tískuorð, en vitað er að
mörgum er skólaganga þyrnir í augum. Yfirgnæfandi líkur
eru á því að börn, sem ekki spjara sig í skóla á allra fyrstu
árum, eigi sérekki viðreisnar von í skólakerfinu. Fjölgun
sálfræðinga, námsráðgjafa og hvers kyns yfirmanna í
skólum hefurekki fært okkurhænufeti næreinhverju rétt-
læti gagnvart þessum hópi skólabarna. Vandinn er heldur
ekki nemaað hlutaí kerfinu sjálfu. Fjölskyldan erallt önn-
uren fyrrum, t.d. fjölgareinstæðum foreldrum! Um daginn
sagði strákhnokki við konuna: Hvað segirðu, býr þessi
maður hjá þér?
Ríkisskipuð nefnd, sem var falið „að gera úttekt á og til-
lögur um skólamál, dagvistarmál, lífeyrismál, skattamál
og sveigjanlegan vinnutíma", hefurskilað áliti. Leggur hún
m.a. til að skólatími verði lengdur hjá yngstu börnunum,
þar sem stuttur skólatími hafi „víða leitt til erfiðleika fyrir
útivinnandi foreldra". Álitsgerðir eru góðra gjalda verðar,
en viðfangsefnið er þess eðlis að inn í umræðuna um
skólamál, vinnutíma o.fl. er rétt að spyrja sig spurninga
eins og þeirrar: Eru börnin foreldrum byrði í dag og er
lausnin sú að aðlaga starfstíma barna í skólum að foreldr-
um eða ber að gera foreldrum kleift að eignast og ala upp
börn? Hér er ekki verið að kasta rýrð á nefndarstörf fjöl-
skyldunefndarinnar, aðeins minnt á að það er ekki sjálf-
gefið að börnin séu þarfari foreldrum en foreldrar börnun-
um.
FRÉTTIR
Hannes Hlífar Stefánsson er í þriðja sætí á Skákþingi íslands eftir ti-
undu umferð. Hann náði lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitii eftir
sigur sinn á fimmtudaginn.
yngst til aö ná þessu. Þröstur
Þórhallsson var t.d. átján ára
þegar hann náði þessum titli.
Eg held því aö ég sé yngsti
íslenski skákmaðurinn til að
ná þessu.“
— Hvad tekur viö hjá þér
nú þegar þessum titli er náð,
stefnir þú næst að stórmeist-
aratitli?
„Jaaa. En það er nú svo-
lítið langt bil á milli alþjóð-
lega meistarans og stór-
meistarans, þannig að það er
kannski að of miklu að
stefna. Maður gerir það þá
bara í nánustu framtíö, þaö er
svo rosalegt bil þar á milli.“
— Nú er síðasta umferö
Skákþingsins í dag. Hvernig
leggst hún í þig?
„Hún leggst bara vel í mig.
Ég ætla að reyna að vinna
hana. En ég vil þó ekki slá
neinu föstu.“
Alþýðublaðið óskar þess-
um unga skákmanni til ham-
ingju með þennan glæsilega
árangur og góðs gengis í dag
og í framtíðinni.
Hannes Hlífar náði
síðasta áfanga að
alþjóðlegum
meistaratitli
„Ég held
að ég sé
yngstur"
Tíunda umferð á Skákþingi
íslands var tefld sl. fimmtu-
dag. Heidur dró til tíðinda i
þessari næstsíöustu umferð
mótsins, þar sem Jón Loftur
Árnason skaust upp fyrir
Margeir Pétursson og er
hann því með forystu á mót-
inu. Margeir er í öðru sæti og
i þriöja sæti er Hannes Hlífar
Stefánsson, sem sigraði í
skák sinni á fimmtudaginn
og hefur þar með náð síðasta
áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli. Hannes verður
væntanlega útnefndur alþjóð-
legur meistari á næsta þingi
FIDE.
Alþýðublaðið hafði sam-
band við Hannes Hlifar og
var hann fyrst spurður hvern-
ig honum liði eftir að þess-
um mikla áfanga væri náð?
„Ágæflega. Annars var ég
með sex vinninga eftir sjö
umferðir svo að ég vissi að
þetta myndi takast. Þetta lá í
loftinu, þannig að þetta kom
mér ekki mjög á óvart.“
— Hvaða þýðingu hefur al-
þjóðlegur meistaratitill fyrir
Þig?
„Titillinn hefur aðallega í
för með sér meiri hlunnindi
þegar maður fer á skákmót
erlendis. Þeir vilja frekar fá
alþjóðlega meistara á mót
hjá sér, og þá þarf maður til
dæmis ekki að borga gist-
ingu eða uppihald. Það
kemur sér því aðallega vel á
þennan hátt, en hetur ekki í
för með sér nein frekari rétt-
indi til að taka þátt í mótum.“
— Ert þú ekki meðal
þeirrayngstu sem hafa náð
þessum titli hérlendis?
„Ég er sextán ára, og ég
held að áður hafi átján veriö
Med sölu hlutabréfanna í Útvegsbankanum er ætlað aö stuðla aö sam-
einingu bankastofnana.
Nefn skipuð
vegna sölu
Útvegsbankans
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra hefur skipað starfs-
hóp til að kanna möguleika á
að hefja undirbúning á sölu
hlutabréfa ríkisins í Útvegs-
banka íslands hf.
í starfshópnum eru Björn
Friðfinnsson, aðstoðarmaður
ráðherra, Jónas A. Aðal-
steinsson hrl. og Árni Tómas-
son, löggiltur endurskoðandi.
Starfshópnum er ætlað að
stuðla að eftirtöldum mark-
miðum: 1) Að ríkissjóður fái
rétt verð fyrir hlutabréfin.
2) Með sölu bréfanna verði
stuðlað að sameiningu
bankastofnana. 3) Eignar-
haldi á bankanum verði
dreift.