Tíminn - 05.06.1968, Síða 1
KYNNIÐ YKKUR
UMFERÐATRYGGINGU
TÍMANS
ALLIR ASKRIFENDUR
FÁ ÓKEYPIS TRYGGINGU I
KAUPBÆTI
112. tbl. — Miövikudagur 5. júní 1968. — 52. árg.
RáSherrar og bankastjórar skoSa Hin miklu jarSgöng gegnum SámstaS'amúla. Göngin eru 10 metra há. Vegalengd-
ln frá stíflunni í Þjórsá aS stöSvarhúsinu er um 5 kilómetrar. Um þessi göng munu tveir þriSju hlutar meSal-
rennslis Þjórsár renna, þegar þau verSa tekin í notkun.
(Tímamyndir Gunnar.
Hornsteinn lagður
að Búrfellsvirkjun
Forseti íslands leggur hornstein aS
mesta mannvirki sem íslendingar
hafa ráSizt í.
OÓ-Reykiavík, þriðjudga.
Forseti íslancls, lierra Asgeir
Ásgeirsson, lagífi í gær hornstein
að stöðvarhúsi orkuversins, sem
verið er að bygg'ja við Búrfell.
Forseti lagði hornsteininn, skinn,
sem á er skráð saga orkuversins
og rakinn aðdragandi framkvæmd
anna og getið þeirra aðila sem
hafa átt þátt f undirbúningi og
gerð þess. Viðstaddir athöfnina
voru ráðherrar, meðlimir borgar-
ráðs Keykjavíkur bankastjórar og
stjórn Landsvirkjunar.
Athöfnin hófst með því að dr.
Jóhannes Nordal, formaður stjórn
ar Landsvirkjunar flutti ræðu og
rakti að nokkru sögu verksins og
gat þeirra verkefna sein enn er
ólokið. Er forsetinn hafði lagt
hornsteininn, flutti hann ávarp.
Síðan skoðuðu gestir mannvirkin
undir leiðsögn verkfræðinga
Landsvirkjunar.
í ávarpi sínu sagði forsetinn m.
a-
Rafvirkjun hófst hér á landi
fyrst til lýsingar í velrarmyrkrum,
.og síðar (i) „up I itunar í vctrar
kulda. Það er hin mesta og
bezta búningsbót í þessu landi, að
ljós og hiti komi í stað myrkurs
og kulda. Það búa óþrjótandi
möguleikar í falivötnum og hvera
svæðum þessa lands mótsagnanna
sem geta gengið upp í æðri eining.
íslenzkur iðnaður hefir vaxandi
þörf fyrir afl, ljós og hita. Og
það þarf fleiri og stærri verkefni
en áður fyrir stórvirkjanir, sem
eru sniðnar við vöxt framtíðarinn
ar.
Nafns Einars Benediktssonar
mun lengi minnzt í sambandi við
Þjórsárvirkjanir, en verkefnið
vantaðj á hans tíð, þó fossaflið
væri hið sama. Skáldin hafa löng
um kveðið um fossana. „Tign býr
í tindum, traust í björgum, feg
urð í fjalldölum, en í fossmn afl“,
segir Jónas þegar hann er að
Framhald á bls. 14
Tala umferðarslysa 1. viku H-umferðar
Svipuð og
Y-umferð
OÓ-Reykjavík, þri'ðjudag.
Upplýsingar hafa nú borizt til
Framkvæmdanefndar hægri um-
ferðar úr öllum lögsagnarumdæm
um landsins uin umferðarslys, er
urðu fyrstu vikuna, sem hægri um
ferð var í gildi á íslandi. Slysatöl
ur eru þessar: Á vegujn í þéttbýli
(>7 umferðarslys, þar af 49 í Hvík.
Á vegum í dreifbýli 6 umferðar
slys.
Hér er átt við umferðarsiys sem
lögregluskýrslur eru gerðar um.
Umferðarslys er óhapp, sem á
sér stað á vegi þar sem um meiðsli
á manni eða eignatjón er að ræða
og að minnsta kosti eitt ökutæki
á hreyfingu á hlut að.
Til þess að fá mælikvarða á
tíðni umferðarslysa hefur Fram
kvæmdanefnd hægri umferðar
safnað saman upplýsingum um
þau umferðarslys á landinu síðast
liðin tvö ár, sem lögreglan gerði
skýrslur um. Tala þeirra slysa var
5128 árið 1966 en 5058 árið 1967.
Síðan hefur verið gert yfirlit yf
ir tölu umferðarslysa á viku
hverri þessi tvö ár og slysin flokk
uð með ýmsu móti eftir aðstæðum
og tildrögum. Yfirlitið er tvískipt:
Annars vegar eru umferðarslys á
vegum í þéttbýli, hins vegar slys
á vegum í dreifbýli. Sú skipting er
tekin upp vegna mikils munar á
ytri aðstæðum í umferðinni og
á tildrögum umferðarslysa.
Að jafnaði er tala umferðar
slysa á dag mjög breytileg. Tala
umferðarslysa á viku er einnig
breytileg, en þó (iltölulega minna
breytileg. Því lengri sem tímabil
in eru, sem tekin eru til athugun
ar, því minni er breytileiki þeirra
að tiltölu. Séu ár borin saman er
siysatala þeirra að jafnaði svip
uð. Með aðferðum tölfræðinnar
má leiða í ljós, með hverjum
hætti þessi breytileiki er reglu
bundinn.
Af slysayfirlitinu má nú sjá, að
E'ramhaid a bls. 14.
Tillögur um bætta þjónustu við síldveiðiflotann komnar
LOFTSKEYTAMANN OG
LÆKNE Á SlLDARMIÐIN
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
ir Á föstudaginn skilaði nefnd
bú, sem gera átti tillögur um hag-
nýtingu síldar og um bætta þjón-
ustu við síidveiðiflotann á fjar-
lægum miðum nú í sumar, áliti
sínu til sjávarútvegsmálaráðuneyt
isins.
ir í álitinu kemur frani, a'ð
nefndin telur nauðsynlegt að varð
skip verði á miðunum til aðstoð-
ar, og sérstakur loftskeytamaður
þar um borð til þjónustu fyrir
flotann. Einnig, að læknir verði
um borð í varðskipinu, og kejmnr
fram, að fjárhagsgrundvöllur iækn
isþjónustu þeirrar hefur verið
tryggður.
Nefndin skipti þjónustu við síld
veiði'flotann á fjarlægum miðum
niður í 10 atriði. og verður hér á
eftir gerð grein fyrir tiill'ögum
nefndarinnar varðandi hvert at
riði fyrir sig.
1. Læknisþjónusta. — Stóru
varðskipin eru nú útbúin þannig,
að aðstaða er í þeim lil að veita
fyrstu læknishjálp. Ennfremur tel
ur nefndin líklegt, að læknir
verði fáanlcgur til þessa starfs, fái
hann jil þess aðstöðu og þau kjör,
sem ■hann krefst og uunt verður
að semja um. Dómsmálaráðuneyt-
ið miin beita sér fyrir því, að
væntanlegum lækni á fjarlægum
miðum verðj greidd ein og hálf
héraðsiæknislaun, sem eru 27|anlegs læknis Verði fullnægt. Hef
þúsu.nd krónur á mánuði, en þá ur Fiskimálasjóður ákveðið að
vantair töluverða rjárhæð ti’ að
brúa það hi! að ;au<nak:öfu vænt-
ábyrgjast greiðslu á þeim mismun,
Framnaid a oLs. 14
Stúdentaráð Háskóians:
ENGAR
MÓTMÆLA-
AÐGERÐIR
E.T-Reykjavík, þriðjudag.
Stúdentaráð Háskóla íslands
— scm er æðsti aðili stúdenta
í hagsmuna- og menntamálum
— hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu, þar sem gagnrýnd er harð
lega notkun Háskólans undir
hvers konar ráðstefnur. Aftur á
móti segir í yfirlýsingunni, að
Stúdentaráð hafi „ekki í hyggju
að beita sér fyrir mótmælaað-
gerðum í sambandi við f.vrirhug
aðar ráðstefnur, enda telur
Stúdentaráð nú sem áður, að
framvindu í mennta- og hags-
munamálum stúdenta sé bezt
borgið með málefnalegri bar-
áttu“.
Yfinlýsing Stúdentaráðsins
fer hér á eftir í heild.
„Stúdentaráð Híáskóla íslands
gagnrýnir harðlega notkun húsa
kynna Háskólans undir hvers
konar ráðstefnur, sumar hverj-
ar á engan hátt tengdar starf-
semi hans. Undanfarin ár hef
ur háskólinn í auknum mæli
verið notaður undir ráðstefn-
ur og nú í ár mun ráðgert að
þær verði fleiri og umfangs-
meiri en nokkru sinni fyrr.
Bendir stúdentaráð á, að tals-
verðu-r hluti stúdenta stundar
nám sitt við skótann jafnt sutn
ar sem vetur við lestur eða
samningu ritgerða. Valda ráð-
stefnur þessar mikilli og óæski
legri rbskun á námi áður-
nefndra stúdenta.
Stúdentaráð skilur erfiða af-
stöðu háskólaráðs gagnvart
beiðni frá yfirvöldum um af-'
not af húsakynnum skólans.
Þvi beinir stúdentaráð þeim
tilmæium til yfirvalda, að þau
Framhald á bls. 15.
ELDFLA USAÁRÁS Á SAIGON
NTB-Sajgon, þriðjudag.
Fregnir frá Saigon herma, að í
dag liafi borgin orðið fyrir mestu
eldflauga- og spreiigjuárás í Viet-
namstyrjöldinni til þessa. Þegar
spréngjuregnið léll vfir áttu stjórn
arhermenn í ofsalegum bardögum
við smáhópa Víetcong itianna víðs
vegar i rústum kínverska hverfis-
ins Cholon og í Gie Dinh borgar
liliitanum. Eldflaugnaárásirnar í
dag lciddti m. a. til gífurlegs tjóns
á stóru sjúkrahúsi, raforkuveri og
hafnarmannvirkjum, auk mikilia
eldsvoða víða um borgina. Tvö
bandarísk skip nrðu fyrir minni-
háttar skemmdum af völdum loft-
árásanna. Tala þeirra, sem misst
hafa heimili sín í Saigon frá því
að önnnr stórsókn Víetcongmanna
hófst þann 5. maí, er komin upp
í 115 þúsund og munu þó ekki öll
kurl vera kornin til grafar.
Framtoald a bls. 14