Tíminn - 05.06.1968, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 5. júní 1968
14
TIMINN
ÞYTUR
Framhald af bl's. 3.
nefndur RauSur Ráru Bj'örnsdótt-
mr.
Hlér fara á eftir úrs'litin í hlaup
uirnum:
250 m. skeið:
1. Hrollur Sigurðar Ólafss. 24,7
2. Móði Ingólfs Gúðmundss. 24,7
(sjónarmunur)
3. Vondís -Sigurj. Geirssonar 25,1
250 m. folahlaup.
1. Kommi Sæm. Ólafssonar 20,5
2. Lýsingur Ólafs Markúss. 20,5
(sjónarmunur)
3. Gustur Guðveigar Þorláks. 20,7
350 m. hlaup.
1. Faxi Magnúsar Magnúss. 28,0
2. Neisti Matthiasar Gunnl. 28,2
3. Gula Glett'a Brl. Sigurðss. 28,2
(sjónarmutnur)
800 m. hlaup.
1. Þytur Sveins K. Sveinss. 68,8
2. Reykur Jó'h. Kristjánsd. 70,0
3. Iirappur Ólafs Þórarinss. 71,6
í gær var einnig dregið í happ-
drætti, sem Fákur efndi til ný-
lega. Aðalvinningurinn kom á
miða nr. 412, og handhafi miðans
fær stríð'a'linn gæðing í sinn hlut.
Skipsferð til meginlands Evrópu
kom á miða nr. 1842, en flugferð
fram og til baka frá Reykjavík ti'l
Egilss'taða fyrir tvo kom á miða
nr. 2263.
SKÁK
Framhald af bls. 12.
lega um jafntefli í sinni skák,
og sú varð einnig raunin í skák
þeirra Addison og Uhlmanns.
Skákum úr þriðju umferðinni
var ekki lokið, þegar blaðið fór
í prentun, en þess má geta, að
töluröð keppenda á mótinu er
þessi. 1. Addison, 2. Uhlmann,
3. Freysteinn, 4. Byrne, 5. Andrés
6. Bragi 7. Szatoo, 8. Benóný, 9.
Friðrik, 10. Vasjúkov, 11. Ingi R.
12. Taimanov, 13. Jóhann Örn,
14. Guðmundur, 15. Osíijic og 16.
Jón Kristinsson.
LOFTSKEYTAMANN ....
Fra.m'hald af bls. 1.
Iþó eigi meina en 150 'þúsund. Þá
toefur dómsimálaráðuneytið leitað
samvinnu við sovézk yfirvöld og
Norðmenn um að sjómön'num á
ásl. fiskiskipum verði látin í té
læknisþjónusta frá skipum og
stofnunum þessara þjóða, þegar
aðstæður leyfa. Með þessum ráð
stöfunum og ,,öðrum, er eðlilega
fylgja á eftir, telur nefndin nægi-
lega tryggt, að nauðsynleg læk.nis
þjónusta vöi'ði á hinum fjarlægu
miðum á sumri kom'andi".
2. Löggæzla. — Nefndin telur
nauðsynlegt að varðskip verði á
miðunum ti'l að forða árekstrum
og tiTggja öryggi þeirra á annað
toundirað skipa og utn 2000 manna.
er á þessum miðum verð’a, ef sókn
in verður svipuð og s. 1. ár.
3. Björgunarþjónusta. — Gert
er ráð fyrir, að m.s. Goðinn láti
þessa þjónustu í té eins og á s. 1.
sumri.
4. Köfunarþjónusta. — Sú köfun
arþjónusta, er veitt hefur verið
frá Goðanum, hefur verið talin
viðunandi undaníarin ár, og er
þess að vænta að svo verði einnig
nú í sumar.
5. Viðgerðar- og varahlutaþjón-
usta á fiskileitar- og siglingar-
tækjuin. — Þar sem mörg dæmi
eru til þess, að skip hafi eytt mikl
um tíma í siglingar til lands til
þess að fá lagfærða bilun á fiski-
leitar- og siglingartækjum, sem
auðvelt væri að gera við úti á
miðunum, ef þar væri til s'taðar
viðgerðarmaður, telur nefndin
brýna nauðsyn bera til að slík
váðge-ð'ariþ.jónusta verði veitt á
hinuim fjarlægu miðum. Telur
nefndin nauðsynlegt, að um borð
í varðskipi á þessum miðum verði
veitt aðstaða fyrir viðgerðar- og
varahl’utaþjónustu á þessum tækj
um. LÍÚ mun sjá um ráðningu
viðgerðarmanna, sem h'afa með
sér tæki og varahluti til þjónustu
við síldveiðiflotann fyrir eigin
reikning.
6. Loftskeytaþjónusta. —, Reynsla
s. 1. sumars var sú, að alls ó'full-
nægja.ndi s'amband var milli síld-
veiðiflotans á fjanlægum miðum
og lands og telur nefndin brýna
ÞAKKARÁVÓRP
Hjartans þakkir færi ég öllum mínum kæru vin-
um og vandamönnum, sem glöddu mig með gjöfum
og vinarkveSjum á sjötugsafmæli sínu 20. maí s.I.
Guðmundur Agnarsson, Blönduósi.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig,
með gjöfum, heimsóknum og skeytum, á 75 ára af-
mælisdaginn, þann 24. maí s.l. — Guð blessi ykkur öll.
Benedikta G. Jónsdóttir, Eyri, Reyðarfirði.
Jarðarför
Guðnýjar Beinteinsdóttur
frá Draghálsi
fer fram að Saurbæ fimmtudaginn 6. júní kl. 2.
Vandamenn.
Móðlr okkar og tengdamóðir,
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir
frá Fossi í Mýrdal,
lózt að Borgarsjúkrahúsinu 2. júní 1968. Jarðarför hennar verður
gerð frá Fossvogskirkju, laugardaginn 8. júni kl. 10,30 árdegis.
Börn og tengdabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og Hluttekningu vlð andlát og jarðarför
Þorbjargar Einarsdóttur,
Efri Hól Vestur-Eyjafjöllum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Andrés Auðunsson.
nauðsyn bera til að lærður loft-
skeytamaður sé staðsettur á mið-
unum til aðstoðar við flotann.
Kæimi þá einnig til 1'a.ngbylgjuvið-
skipti, og gæti slikur loftskeyta-
maður í flestum tilfellum verið
í sambandi við íslenzka strand-
stöð. Telmr nefndin óihjákvæmi-
legt að þessi þjónusta verði um
borð í áðurnefndu varðskipi. Um
tilkynningarskyidu skipanna fjalla
■aðrir aðilar, og því engar tillög-
ur um það gerðar.
7. Veðurþjónusta. — Veðurstofa
íslands mun haga veðurspám fyr-
ir flotann á líkan hátt og s. 1.
sumar. Samkvæmt ósk nefndarinn
ar er nú í athugun möguleikinn á
að útvarpa veðurfregnum um út-
varpsstöðina á Eiðum að nætur-
lagi, og standa vonir til að úr því
geti orðið.
8. Dælu- og slökkviþjónusta. —
Nefndin telur rétt, áð fullkominn
dælu- og slökkvibúnaður sé til
staðar í þeim skipum, sem eru til
aðstoðar flotanum hverj.u sinni.
9. Olíuflutningar. — Nefndin
er sammála um, að nauðsynlegt
sé að heimild verði veitl til verð
jöfnunar á þeirri olíu, sem flutt
yrði á fjarlæg mið, þannig að
þessi olía yrði s'eld á sama verði
þar og olía í landi, og að flutn-
ingskostnaður úr landi til sikip-
anna verði greiddur úr verðjö’fnun
arsjóði. Nefndin telur állar likur
benda til að þau þrjú skip, sem
væntanlega munu flytja síld til
bræðslu af miðunum í sumar
muni að mestu geta annað flutn-
ingum á þeirri olíu á miðin, sem
nauðsyinlegt verður að flytja í
öðrum skipum en veiðiskipum.
10. Vista- og birg'ðaflutningar.
Þar sem útlit er fyrir, áð í sumar
verði a. m. k. helmingi fleiri sild-
arflutningarskip í flutningum frá
miðunum til lands en s. 1. sumar,
telur nef.ndin ekki sérstakra ráð-
stafana þörf umfram það, sem
hún hefur áður lagt til vegna
vista- og birgðaflutninga á miðin.
Telur nefndin, að hinn væntanlegi
fjöldi flutningaskipa muni geta
annað þessari þjónustu.
UMFERÐARSLYS
Framhald af bks. 1.
meiri líkur eru fyrir surnum slysa
tölum en öðrum. Að tilhlutan
Framkvæmdanefndar hægri um- |
ferðar hefur Otlo Bjömsson töl j
fræðingur reiknað út, hverjar j
slysatölur séu líklegar á hverjum !
árstíma, og er þá miðað við það !
umferðarástand, sem var árin j
166 og 1967.
Niðurstaða hans er sú, að 90% ,
líkur séu á því, að á vegum í j
þéttbýli sé slysatala á viku hverri :
á þessum árstíma milli 58 og 92 j
en í dreifbýli milli 10 og 32 að .;
óbreyttu ástandi umferðarmála ;
Þessi mörk eru köiluð vikmörk. i
Nú reyndist s'lysatalan í þéttbýii -
vera 67. Hún iiggur milli vikmark i
anna 58 og 92. Af þvi er dregin :
sú ályktun að slysatalan ss álí'ka j
há og búast hefði mátt við, ef j
engin umferðarbreyting hefði átt I
sér stað.
Slysatalan dreifbýli reyndist !
6, en vikmörkin voru i0 og 32. ;
Slysatalan er þvi neðan við lægri ;
mörkin og er því minní en búa=t j
hefði mátt við að óbreyttu um-
íerðarásatndi.
Þessa viku urðu í 6 tilvikum
meiðsli á mönnum. Meiddust 7
menn.
Með. hliðsjón af reynslu Svia
þykir vera tilefni til að fylgjast
betur en ella með tveimur tegund
um umferðarslysa en það eru
árekstrar Ökutækja á vegamótum
í þéttbýli og slys. cr verða í dreif
býli. þegar ökumenn ætla að mæt
ast á vegum (en þó okki á vega
mótum).
í vikunni urðu 19 slys ökutækja
á vegamótum í þéttbýli Vikmörk
haf'a verið reiknuð fyt'ir þess hátt
ar slys, og eru þau 11 og 33. Slysa
ta'lan er því milli vikmarkanna.
Á vegum í dreifbýli varð í vik
unni eitt slys við að bifreiðir ætl
uðu að mætast. Vikmörk fyrir þá
tegund slysa eru 0 og 9, og er
slysatalan á milli markanna. Hcfur
í því ekki komið í ljós aukning á
I þessum tveim tegundum umferðar
; slysa í fyrstu viku hægri umferð
ar.
ELDFLAUGAÁRÁS
Framhald af bls. 1.
Samkvæmt bandarískum heim-
íildum er tilgangur loftárásanna á
Sa.igon tvíþættar, með þeim hyggj
ast Norður-Víetnamar reyna að
fel'la stjórn Suður-Vietnam og
lama um leið baráttuþrek Band'a-
rikjahermanna jafnt sem stjórnar
hermanna og fylla þá stríðsleiða.
Það virðist sem Víetcong sendi
hermenn sína í smáhópum, fimm
og fimm í einu, inn í Saigoft og
gefi þeim það hlutverk að valda
sem mestri eyðiieggingu og ringul
rei'ð með sem minnstu magni skot
færa og mannafla. Þessir smáhóp
ar dreifast víðs vegar um borgina,
koma s'ér fyrir í rústum og yfir-
gefnum húsum og halda uppi
skæruhernaði. Stjórnarhermenn
og Bandarikjamenn hafa átt í
miklum erfiðleikum við að ráða
niðurlögum þessara hópa, end'a
erfitt við þá að eiga inni á miðju
yfirráðasvæði eigin bandamanna
U.S.A. Á mánudag urðu þau herfi
legu mistök, að ein af þremur eld
flaugum, sem skotið var úr band.a
rískri þyrlu og beint að bækistöð
Víetcongmanna, sprakk í suður-
víetnamiskri heirstöð í Choilon, kín
verska borgarhlutanum. Sprengj-
an varð sex háttsettum yfirforingj
um í her Suður-Víetnam að bana,
þar á meðal lögreglustjóranum í
Saigon, Nguyen van Luan og Van
Cua ofursta, borgarstjóra í Sai-
gon, en þeir tveir voru helztu
stuðningsmenn Ky, fyrrum for-
sætisráðherra.
Samúel Berger, sem nú gegnir
ambassadorsstörfum i Saigon, hef
ur lýst yfir harmi sínum við
Thieu forseta og Ky varaforseta
vegna þessa hörmulega atburðar,
sem ha.nn kvað hafa orðið sökum
bilunar í tækniúfcbúnaði banda-
rísku þyrlunnar.
þús. milljónir kwstunda á ári, þeg
ar fullum afköstum er náð. Til
samanburðar má geta þess, að
öll raforkuframleiðsla á Islandi
nemur nú um 700 millj. kv.st.
á ári og mun hún því meira en
þrefaldast, þegar Búrfellsvirkjun
er öll komin í notkun.
Með frekari virkjunum fyrir of-
an Búrfell, bæði í Þjórsá og
Tungná, og með byggingu vatns
miðlunar mannvirkja ofarlega í
ánum, mun rekstraröryggi og
hagkvæmni aukast. Þess vegna
skiptir miklu máli, að hægt verði
að halda virkjunum áfram sem
allra fyrst. Hafa Landsvirkjun og
Orkustofnunin unnið að könnun
hagkvæmustu framhaldsvirkjana
og ætti að vera hægt að ráðast í
næstu virkjun að þremur eða
fjórum árum liðnum, ef aukinn
markaður fyrir iðnaðarork.u verð
ur þá fyrir hendi. Benda þessar
rannsóknir til þess, að líklegast
sé, að næsta virkjun verði í
Tungná við Sigöldu og mundi orku
framleiðsla hennar verða svipuð
núverandi Sogsvirkjunum saman-
iögðum, eða um 500 millj. kw,-
stundir á ári, án sérstakrar miðl
unar. Ver'ði skilyrði til enn stærri
virkjunar, er til athugunar að
virkja við fossinn Dynk, ofarlega í
Þjórsá, en þar mundi rísa orku
ver á stærð við það, sem nú er
verið að reisa hér við Búrfell.
Mikilvægasta skilyrðið fyrir því
að unnt hafi verð að hefja þetta
nýja landnám til nýtingar á orku
lindum íslands er þó enn ótalið,
en það er vilji þjóðarinnar sjálfr
ar og skilningur hennar á því hlut
verki, sem iðnvæðing á grundvelli
orku getur haft fyrir lífskjör henn
ar og atvinnuöryggi. Stjórn Lands
virkjunar treystir því, að hún
njóti stuðnings beggja eignaraðila.
í'íkisins og Reykjavíkurborgar. oi
vinni að heill allra íslendnga, er
hún beitir sér fyrir sem örastri
þróun til aukinnar orkuframleðslu
á Þjórsársvæðnu á komandi ár-
um.
BÚRFELLSVIRKJUN
Framhal'd af bls. 1.
reyna að lokka Albert Thorvaldsen ;
á fund síns föðurlands. Einar sá i
meira en hina rómantísku hlið
vatnsaflsins Og fsiendingar þurfa
ekki að kvaría um virkjun neins
þess foss, sem veitt er inn á heim
ilin, vinnustöðvar og verksmiðj-
ur 1 mynd ijóss, hita og afls tíl
batnandí lífskjara fyrir þjóðina,
Dr. Jóhannes Nordal sagði í
ræðu sinni:
Þótt virkjunarframkvæmdir séu
nú vel á veg komnar og allt bendi
til þess, að þeim verði farsæl’.ega
lokið á næsta ári að áliðnu sumri
er bó enn “eysilega mikið verk
óunnið. Ends erum vJr ekki sam
an komin til þess í dag að fagna ;
verklokum. heldur tii að marka ;
með táknrænum hætti upphaf I
verks, lagningu fyrsta steins mik i
illar byggingar, þeirrar undir- |
stöðu, sem verk framtíðarinnar i
eiga að hvila á.
Og það verk, sein hér er hafið
er raunar rniklu meira en smíði
þessa aflstiiðvarhúss, sem vér er-
um stödd í. og nú er rétt hálfnað
að ytri gerð, og það er jafnvel enn
tneira en gérð allra þeirra mann-
virkja, stíflugarða, flóðgátta, veitu
skurða og jarðgartga, sem nær sjö
hundruð menn. húnir fullkomnum
laekjum, vinna að hér við Búrfell
Slau-ð þ(“isa vei'kefnis má marka
af því. að á þessn vatnasvæði mun
vera um helmingur allrar þeirrar
vatnsorku. sem líklegt er. að nokk
urn tíma reynist hagkvæmt að
virkja á íslandi, eða alls nær 10
SUNDLAUGAR
Framhald af bls. 16
Strax og laugin var opnuð al-
menningi, streyimdu þangað gesti.r
úr öllum áttum, og uppiselt var
á svipstundu. Látlaus straumur
fólks hefur verið þangað þessa
daga, og láta mun nærri að 7
þúsund manns hafi fengið sér
sundsprett í þessari glaasilegu
laug. Eins og sakir standa er
aðeins hægt að selja 400 manns
inn í einu, því að skápar eru ekki
fleiri. Á hinn bógi'nn er nú unnið
að útiskýli, með fatageymslu og
vörzlu og með tilkomu þess verð-
ur hægt að taka á móti rúmlega
helmingi fleiri gestum. Gert er
ráð fyrir að þetta rými verði
tilbúið i næstu vitou.
Sundlaugin er 50 metrar að
longd og 22 metrar að breidd, en
úc frá henni er útstoot, sem ætlað
er börnum. Þá eru fjórar Snorra
laugar fullgerðar, en þær verða
alls sex. Gufuklefar verða einnig
í mannvirkinu, en vinnu við þá
er ekki lokið. Sundlaugin er opin
frá kl. 7,30 til kL 21.
S. U. F.
Framhald af bls. 16.
ingarinnar. Að þessum erind-
um loknum verða almennar um
ræður og málahópar munu
fj'alla um einstaka þætti ráð-
stefnuefnisins.
Ráðstefnan ver'ður haldin á
Hótel KEA og hefst báða dag-
ana kl. 9,30 árdegis. Þátttaka í
ráðstefnunni er heimil öllu
áhugafólki um samvinnumál og
• tilkynnist hún til skrifstofu
Framsóknarflokksins í Reykja-
vík eða til Svavars Ottesen á
Akureyri.