Morgunblaðið - 29.12.2002, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.12.2002, Qupperneq 19
Þann 20. desember sl. hófust viðskipti með hlutabréf Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi. Söguleg þáttaskil í rekstri félagsins eru orðin að veruleika og um leið markar skráningin tímamót í sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði. Kaupþing er eina íslenska félagið sem skráð er samhliða á íslenskum og erlendum verðbréfamarkaði og í samþykki sænska fjármálaeftirlitsins felst viðurkenning á íslenska verðbréfamarkaðnum og þeim fyrirtækjum sem þar eru skráð. Eftir mikið uppbyggingarstarf í tuttugu ár hefur Kaupþing fært út kvíarnar og gert Norðurlöndin að heimamarkaði sínum. Eftir kaupin á verðbréfafyrirtækinu Aragon og síðan sænska bankanum JP Nordiska starfar Kaupþing nú sem norrænn fjárfestingarbanki. Auk reksturs í Lúxemborg, Genf og New York er félagið með starfsemi í fimm borgum á Norðurlöndum: Reykjavík, Kaupmannahöfn, Helsinki, Þórshöfn og Stokkhólmi og stefnan er óhikað sett á frekari landvinninga á þeim vettvangi. Markaðsvirði félaga á sænska hlutabréfamarkaðnum er um 40% af heildarvirði félaga á norrænum markaði. Samanlögð verðmæti félaga á íslenska hlutabréfamarkaðnum eru um 1,4% af norrænamarkaðnum og Kaupþing tekur sér nú stöðu á meðal tæplega 300 fyrirtækja sem þar eru skráð. Eftir innkomu Kaupþings á sænskan markað er um fjórðungur félagsins í erlendu eignarhaldi, starfsfólki hefur fjölgað um ríflega tvö hundruð og gert er ráð fyrir að um 70% af tekjum Kaupþings komi frá starfseminni erlendis. Markaðsvirði félagsins þann 18. desember sl. var um 27,3 milljarðar íslenskra króna og samkvæmt níu mánaða uppgjöri er eigið fé tæplega 18 milljarðar og heildareignir 218 milljarðar íslenskra króna. Með kaupum á JP Nordiska fjölgar hluthöfum Kaupþings um rúmlega sex þúsund og eru þeir nú um sautján þúsund. Heildarfjöldi starfsmanna er um 560 og af þeim eru yfir 300 starfandi á erlendum vettvangi. Hin trausta undirstaða útrásar Kaupþings felst í samhentum hópi starfsfólks og einstöku samstarfi við stóran hóp íslenskra viðskiptamanna. Mikil þekking og reynsla hefur safnast upp á undanförnum árum og í krafti hennar verður haldið áfram á sömu braut með hagsmuni hluthafa og viðskiptavina að leiðarljósi. Skráning Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.