Morgunblaðið - 29.12.2002, Side 31
Mörgum fannst besta „verkið“ á
sýningunni í ár korktafla nokkur
þar sem fólk gat látið í ljósi skoðun
sína á verkunum. Sjálfur menning-
armálaráðherra Breta tranaði sér
þar fram með því að gefa skít í sýn-
inguna og var það heldur blaut
tuska framan í alla aðstandendur,
sem þó eru öllu vanir.
Snillingar framtíðarinnar
Þetta var fyrsta Turner-sýningin
sem ég sá og hef því ekki forsendur
til að bera saman sýningar. Ég held
að Tyson hafi verið vel að þessu
kominn í ár, en hinir gætu átt
möguleika seinna. Menn geta
nefnilega fengið tilnefningu oftar
en einu sinni, eins og t.d. var raun-
in með þá Richard Long, Tony
Cragg, Damien Hirst og Gilbert og
George sem unnu ekki fyrr en í
annarri tilraun.
Víst er að oft hefur samtíma-
mönnum skjátlast í vali sínu á snill-
ingum og gaman verður að sjá
hvernig nútímaupplýsingatækni
meltir verk listamanna dagsins í
dag og hvort rúm verður í framtíð-
inni fyrir óuppgötvaða snillinga
sem í dag híma uppi á hanabjálka
með ódauðlegri myndlist sinni.
Það hefur sýnt sig að þrátt fyrir
alla peningalyktina af Turner-verð-
laununum og gagnrýnina sem verð-
launin fá á hverju ári vekja þau
umræðu og athygli á samtíma-
myndlist og það á hún allt skilið.
Myndlistin hefur oft yfir sér ein-
hvern dularfullan mátt. Hún er af-
sprengi vakandi hugar og langs
sköpunarferils, en listamenn eyða
tíma í hluti sem engum öðrum dett-
ur í hug að velta fyrir sér. Þess
vegna getur listin orðið svo sérstök
sem raun ber vitni.
Turner-sýningin og sýning
Douglas Gordons standa til 5. jan-
úar nk. Sýningu Chapman-bræðra
er lokið.
Bubble Chambers: 2 discrete Molecules of Simultaneity eftir Keith Tyson.
tobj@mbl.is
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 2002 31
Símon Z. Bahraoui, 30 ára,
sölufulltrúi
Ég hef farið á þrjú námskeið og er
alltaf jafn ánægður. Andrúmsloftið í
hópunum hefur verið létt og
hvetjandi. Það er gott að vera hluti
af samstilltum hóp með svipuð
markmið.
Oddur Ólafsson, 45 ára,
lögreglumaður
Námskeiðin eru frábær leið til
að koma sér af stað í líkams-
þjálfunina. Síðan ég byrjaði í
Hreyfingu er ég búinn að léttast
um 27 kíló og hef gert þjálfunina
af föstum lið í mínu lífi.
Egill Örn Einarsson, 32 ára,
deildarstjóri
Frábær félagsskapur, kraftmikil og
markviss þjálfun og góður árangur
er það sem mér finnst lýsa
námskeiðunum í Hreyfingu best.
Góð leið til að koma sér
aftur af stað eftir nokkurt hlé.
Rauðarárstíg 14-16,
sími 551 0400,
Kringlunni,
sími 568 0400,
www.myndlist.is
Úrval góðra brúðkaupsgjafa
SÍÐUSTU tónleikar ársins hér á Ís-
landi verða í Hallgrímskirkju á
gamlársdag kl. 17. Það verður í tí-
unda sinn sem þeir félagar, tromp-
etleikararnir Ásgeir H. Stein-
grímsson og Eiríkur Örn Pálsson
og orgelleikarinn Hörður Áskels-
son, kveðja gamla árið og fagna því
nýja með viðeigandi lúðraþyt og
orgelleik.
Rétt fyrir jólin kom út geisla-
diskurinn Trometeria þar sem þeir
félagar gefa sýnishorn af því sem
þeir hafa á borð borið fyrir tón-
leikagesti sína við undanfarin ára-
mót. Þar er að finna konsert eftir
Vivaldi, sónötur eftir Pezel, Adagio
Giazottos og Albinonis, kansónur
eftir Frescobaldi og trompetflug í
Te Deum Carpentiers. Þá er á disk-
inum hin fræga Tokkata og fúga í
d-moll eftir Johann Sebastian Bach.
Á tónleikunum að þessu sinni
munu tónleikagestir fá að heyra
sýnishorn af þeim verkum sem eru
á geisladiskinum en fyrsta verk
tónleikanna er þó nýtt á efnisskrá
þeirra félaga. Það er Galliard Batt-
aglia eftir Samuel Scheidt. Þá
heyrist Sónatína nr. 61 eftir Johann
Pezel og hið fræga Adagio eftir
Giazotto og Albinoni. Þar næst
leikur Hörður hina þekktu Tokkötu
og fúgu í d-moll eftir J.S. Bach.
Tónleikunum lýkur svo með Kans-
ónu nr. 3 eftir Frescobaldi og For-
leiknum að Te deum eftir Charp-
endier.
Samstarf Ásgeirs, Eiríks Arnar
og Harðar hófst árið 1993, en auk
Hátíðarhljóma við áramót hafa þeir
tvisvar leikið á tónleikum Sum-
arkvölds við orgelið. Þá leika þeir
Ásgeir og Eiríkur oft með Herði
við ýmsar athafnir í kirkjunni. Þeir
leika yfirraddir við uppáhalds-
sálmana okkar, yfirraddir sem oft-
ar en ekki verða til með penna
Harðar vegna tilefnisins.
Forsala aðgöngumiða er í Hall-
grímskirkju og er hún opin kl. 9–
17. Þar gefst tónleikagestum einn-
ig kostur á að kaupa geisladiskinn
á sérstöku tilboðsverði.
Hátíðarhljómar við áramót
Morgunblaðið/Jim Smart
Eiríkur Örn Pálsson, Hörður Áskelsson og Ásgeir H. Steingrímsson.