Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 6

Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRUAR 1993 BÆTIFLÁKAR „Mér finnsí gæta nohhurrar van- lehhingarímáli fíhverja." segir flrni Björnsson þjóöháliafræðing- urerhannberf bæfifláha fgrir ohhuríslendinga. STOLNAR HEFÐIR „Ósköp finnst skrifara livim- leið sú auglýsingamennska sem fylgir þessum og mörgum öðr- um dögum ársins... Ekki bara að „hefðir“ séufluttar innfrá útlöndum heldur er líka oft um það að rœða, að höfuðborgar- búar flytji í þéttbýlið siði og venjur sem þróast hafa á lands- byggðinni og láta síðan eins og það hafi alltaf verið venja í henni Reykjavík að syngjajyrir kaupmanninn eða berja ketti úr tunnum. Það er með þetta eins og með jólasveinafárið í desember. Ýmist eru þeir þjóð- legir í sauðalitunum eða amer- ískari en allt sem amerískt er og fjölda þeirra veit vart nokkur rnaður lengur. “ Víkverji Morgunblaðsins. Árni Björnsson, þjóðháttafræðing- ur á Þjóðminja- safni íslands: „Mér finnst gæta nokkurr- ar vanþekkingar í máli Víkverja. Venj- ur hafa aldrei staðið algerlega í stað til lengdar og þær hafa flust milli landa og héraða frá alda öðli. Siðurinn að slá kött- inn úr tunnunni byrjaði t.d. í Reykja- vík laust eftir miðja 19. öld og þá á bollu- daginn. Þar datt hann síðan niður um 1890 en hélst við á Akureyri og færðist um 1915 yfir á ösku- daginn, eftir að hann var gerður að frídegi í barnaskólum. Um fjölda jóla- sveina er það að segja að það er ekki fyrr en Þjóðsögur Jóns Árnasonar koma út árið 1862 sem almennt er farið að festa þá við tölurnar 13 eða 9. Áður voru til margir og misstórir hópar jólasveina í ýmsum héruðum og þá vissu menn enn síður en nú um heildarfjölda þeirra." BÖRN í HÆTTU „Éghef, eins ogvonandiflest- ir foreldrar, brýnt fyrir börnum mínum að fara varlega hvar sem er og hvencer sem er. Því er eitt atriði sem veldur mér hug- arangri ett það er sú einkenni- lega staðreynd að farþegum strœtisvagna skuli ekki boðið upp á þann möguleika að geta sett á sig öryggisbelti þegarferð- ast er með vögnunum. Aldrei nokkurn tíma mundi ég leyfa mínum börnum að sitja í bíl hjá mér án þess að spenna á sig belti. Því þykir mér meira en hart að börnin tnín skuli ekki geta spennt á sig belti þegar þau ferðast ttteð bláókunnugum mönnum í strœtisvögnum. Þótt þeim aki eingöngu atvinnubíl- stjórar og eflaust flestir þokka- legir hika ég ekki við að segja að margir eru þeir harkalegir t um- ferðittni ogfrekir jafnveló Magnús E. Hansen i DV. Hörður Gíslason, skrif- stofustjóri Strætisvagna Reykjavíkur: „í íslenskum reglum unt gerð og búnað öku- tækja, sem nýlega voru endur- skoðaðar, eru ekki gerðar kröfur um öryggisbelti í strætisvögn- um. Við hjá SVR höfum ekki séð ástæðu til að koma slíkum ör- yggisbúnaði fyrir í vögnunum, enda vitum við ekki til þess að það tíðkist í öðrum löndum. Það er afar sjaldgæft að farþegar detti úr sætum sínum vegna harka- legs ökulags bílstjóra og því er ffáleitt litið á það sem eitthvert vandamál. Rétt er að benda á að í öllum nýrri gerðum strætis- vagna eru armar á fremstu sæt- unum, sem hægt er að fella nið- ur, og eru þau einkum hugsuð fyrir hreyfihamlaða, aldraða og börn. Auk þess eru í vögnunum handföng sem ætlað er að byg0a öryggi farþega." VONLAUST VEÐUR „Nú eru utnhleypingarttir orðnir nœsta fast prógratntn í veðramynstrinu. Þessi vetur, sem nú stendursem hœst, er t.d. búintt að vera eintt santfelldur utnhleypingahantur frá því í desetnber, a.tn.k. hér við suð- vesturhorn landsins. Það er ekki nokkur vafl á því aðfólk er tttik- ið búið að bölsótast yflr þessum utnhleypittgum sent aldrei œtla að taka enda. Eftir svona um- hleypingasattiati vetur og einnig þann síðasta býstfólk ekki leng- ur við sœmilegu, hvað þá góðu sumarveðri." Magnús Sigurðsson í DV. Páll Bergþórsson veður- fræðingur: „Veðrið sem herjað hefur á okkur í vetur segir ekkert til um það hvemig viðrar næsta sumar. Ég hef ekki minnstu hug- mynd um hvemig sumarið á eft- ir að verða og best er að lofa engu í þeim efnum. Þó er að mínu viti með öllu ástæðulaust að gefa upp alla von um að sum- arið verði þurrt og sólríkt. Það eru ekkert minni líkur á góðu sumri en köldu og vætusömu, enda þótt þessi vetur hafi reynst kaldur og snjóþungur.“ F Y R S T F R E M S T Dánarbú í Reykjavík krefur Skandía um andvirði stolinna hlutabréfa Hreiðar í Smiðju- kaffi búinn að missa fasteignina Um nokkurt skeið hefur Hreiðar Svavarsson f Smiðjukaffi barist hatramm- lega fyrir því að halda fasteign sinni við Smiðjuveg 14, í góðri samvinnu við lögffæðing sinn, Grétar Haraldsson. Á fast- eign þessari, sent er í tveimur hlutum, hvíla kröfur upp á um 40 milljónir króna og í gær, miðvikudag, fór þriðja nauð- ungamppboðið fram. Fyrsti eigandi var Hreiðar, en börnin björguðu málum og keyptu fasteignina á uppboði. Það dugði ekki til og í janúar 1992 misstu þau hana aftur á uppboði. Kaupandinn var hlutafélag Grétars Haraldsson- ar, Hátorg, sem bauð alls 31 milljón, en Fjárfestingarfélagið 29,5 milljónir. Félagþetta hefur ekki getað staðið við tUboð sitt og í gær fór frani vanefndar- uppboð. Þar var gerð krafa um að Skandía, arftaki Fjárfesting- arfélagsins, stæði við fyrra til- boð, en þar sem of langur tími var liðinn hvíldi sú skylda ekki lengur á félaginu. Skandía komst því upp með að bjóða aðeins 11 milljónir alls í báða hlutana, en alís er um nálægt 550 fermetra að ræða. Þar með er ekki öll sagan sögð. Fjárfestingarfélagið seldi Hreiðari á sínum tíma Bjór- hallarhúsið við Gerðuberg, sem Guðjón Pálsson átti áð- ur. Þeir eru þar í tugmiUjóna króna skuld, nú við Skandía, og hafa ekki staðið í skilum. Nauðungaruppboð á þeirri eign er boðað 9. mars næst- komandi. Ógildingarmál hefur verið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur vegna 26 hlutabréfa í Eim- skipafélagi íslands hf. Bréfin eru að nafnvirði 79.633 krónur eða upp á tæplega 360 þúsund krónur ef miðað er við gengið 4,5. Bréfin voru í eigu dánarbús í Reykjavík en hafði verið stolið. Þjófnaðurinn var tilkynntur lög- reglunni 29. desember síðastlið- inn, en bréfin höfðu verið tekin úr mannlausri íbúð. Erfingjamir, þrjár systur, höfðu strax samband við hlutabréfadeild Eimskipafélagsins og létu vita af þjófnaðinum. Rannsókn málsins leiddi fljótlega í ljós að Fjárfesting- arfélagið Skandt'a hafði keypt hlutabréfm. Þá strax, 31. desem- ber, var Skandía tiUcynnt um mál- ið. 5. janúar síðasUiðinn hafði lög- maður erfingjanna, Sigmundur Hanttesson hæstaréttarlögmaður, samband við Skandía og tilkynnti að um nafhbreytingu á bréftinum væri ekki að ræða nema með sam- þykki eigenda. Þá upplýsti Skand- ía að það hefði selt þriðja aðila bréfin en vildi ekki upplýsa hver það væri. Erfingjarnir og lögmaður þeirra telja að Skandía haft verið rétt og skylt að staðreyna umboð það er framvísað var þegar félagið keypti bréftn. Hefur komið í ljós að þá var lagt fram falsað umboð dag- sett 21. nóvember 1992. Gerðu erfingjarnir þá kröfu að ef Skandía gæti ekki afhent bréfm yrði félaginu skylt að greiða þeim andvirði þeirra með vöxtum. Verktakafyrirtækið Brúnás á Egilsstöðum: NÝn FÉLAG STOFNAÐ VEGNA 20 MILLJÓNA SÖLUSKATTSSKULDAR Aðstandendur verktakafyrir- tækisins Brúnáss á Egilsstöðum hafa stofnað nýtt hlutafélag um reksturinn og er það gagngert gert í Ijósi deilna þeirra við skatt- yfirvöld um gamla söluskatts- skuld, sem -í dag hljóðar upp á nálægt 20 milljónum króna með álagi og öllu. Hart hefur verið deilt um skuld þessa, sem er til- komin vegna áætlunar vegna ár- anna 1983 til 1985. Guðmundur Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Brúnáss, stað- festi stofnun hins nýja hlutafélags í samtali við PRESSUNA en undirstrikaði að ekki væri verið að flýja skuldir og koma eignum undan. „Brúnás hefur verið að deila við skattyfirvöld um skatt- skyldu, þar sem við teljum for- sendur vægast sagt hæpnar. Það eru að koma nýir hluthafar inn í fyrirtækið, starfsmenn og fleiri, og við vildum ekki að óvissan um söluskattsmálið flæktist fyrir. Nýja félagið kaupir reksturinn samkvæmt mati hlutlauss aðila, sérffæðings ffá Iðntæknistofhun, en fasteign fyrirtækisins er áffam í eigu gamla félagsins." Fyrir nokkrum árum neitaði embætti ríkisskattstjóra að taka bókhald Brúnáss gilt og áætlaði söluskatt fyrir ofangreind ár. Niðurstaðan varð viðbótarálagn- ing upp á 6 milljónir króna, sem í desember 1989 var með vöxtum og álagi komin upp í 17 til 18 milljónir. Álagningin var kærð, en embættið féll ekki ffá úrskurði sínum og fór málið til yfirskatta- nefndar, sem aftur fór fram á endurskoðun hjá ríkisskattstjóra. Þar er málið enn. Brúnás veltir árlega um 100 milljónum króna og starfsmenn eru liðlega tutt- ugu.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.