Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 31

Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 31
8. tbl 4. árgangur Menntskælingur sem gekk í Alþýðuflokkinn VAR SKIPAÐUR SENDIHERRA í PARÍS DAGINN EFTIR Svo virðist sem Alþýðuflokkurinn sé einfaldlega of fáliðaður til að geta skaffað fólk í allar þær stöður sem hann hefur til ráðstöf- unar, - segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur. Reykjavík, 25. febrúar. Stefán Kárason, átján ára menntskælingur, varð heldur en ekki undrandi í gærmorgim þegar hann fékk sent heim til Christian Kendall, íjár- málastjóri Metropolit- an-óperunnar VILFÁ KRISTJÁN AFTUR „Þótt Metropolitan sé stórt fyrirtæki þá munar okkur um að fá 500 ís- lenska áhorfendur,“ - segir ijármáiastjórinn. „Og ef Kristján fæst ekki vil ég fá einhvem annan íslending.11 sín skipunarbréf frá utanríkis- ráðuneytinu þar sem honum var tilkynnt að hann væri orð- inn sendiherra íslands í París. „Auðvitað varð ég hissa,“ segir Stefán. „Ég gekk í Alþýðuflokkinn á þriðjudaginn og þótt ég vissi að flokkurinn væri góður við sína þá hefði ég ekki trúað þessu.“ Ástæðan fyrir skipun Stefáns mun vera sú að vegna fólksfæðar í Alþýðuflokknum hafa lausar stöð- ur hlaðist upp hjá ráðherrum flokksins. Þeir hafa einfaldlega ekki fundið krata til að skipa í stöðumar. „Ég hef verið dálítið óheppinn með að ffönskutímarnir í MS eru alltaf fýrst á morgnana. Maður er því ekki alltaf vel upplagður og frönskuþekkingin þarafleiðandi svona og svona. En Jón Baldvin hefur sagt mér að það skipti ekki svo miklu máli,“ segir Kári. Aðspurður vildi Jón Baldvin lít- ið tjá sig um málið. „Vilduð þið að ég skipaði Áma eða hvað?“ var það eina sem hann sagði. M . .....í'. . fsptwf ’ - ’; m... 1 Stefán Kárason er á öðru ári íMennta- skólanum við Sund. Hann hyggstfresta námi á meðan hann gegnir störfum sendiherra í París. tarfsstúlkur í Ráðhúsi Reykjavíkur Ágæti hættir við auglýsinga- herferðina: „Upp, upp mín sál; þegar ég borða kál“ VILJUM EKKI STYGGJA HALLGRÍM - segir framkvæmdastjóri fyr- irtaekisins. Ágætí hafði lagt út í um 600 þúsund króna kostnað við herferðina. ILJA BERRÖSS- STYTTUNA ARGARÐ- UM BURT Ógeðslegt að tippið á styttunni skuli blasa við hérna út um gluggann, - segir Hlín Baldvinsdóttir. Reykjavík, 25. febrúar. „Það hlýtur að vera eðlileg krafa hjá okkur sem vinnum hérna í ráðhúsinu að við getum horft út um gluggann án þess að roðna,“ segir Hlín Baldvinsdóttir, talsmaður hóps starfskvenna í Ráð- húsi Reykjavíkur sem vill að stytta af Davxð konungi verði fjar- lægð úr Hallargarðin- um eða allavega færð í nær- buxur. Hlín segir að þegar starfsstúlkumar líti úr um suðurglugga hússins blasi tippið á styttunni við. Sem kunnugt er var mál- verk eftir Helga Þorgils Frið- jónsson fjarlægt úr ráðhúsinu að kröfu kvennanna fyrr í vet- ur þar sem guðinn Poseidon var nakinn að neðan. „Ég veit ekki hvemig guðs- trú þessara listamanna er,“ segir Hlín. „Ég get alveg trúað á minn guð án þess að ímynda mér hann berrassaðan." Hlín Baldvinsdóttir hefur lagt það til að Davíð verðifærður í nœrbux- ur svo starfskonur íRáðhúsi geti stundað vinnu sína óáreittar. Óheppinn þjófur ANDFÝLAN KOM UPP UM HANN Grétar Viðarsson var með lambhúshettu þegar hann braust inn í sjoppu á Rauð- arárstígnum og hélt að hann mundi ekki þekkjast. Afgreiðslu- konan þekkti hann hins vegar aftur af andremmunni. Reykjavik, 25. febrúar. „Ég hef ekkert meiri at- hyglisgáfu en annað fólk. Lyktin var bara svona vond,“ segir Unnur Lárusdóttir, af- greiðslustúlka í sölutumi við Rauðarárstíg, en hún bar aft- ur kennsl á ræningja sem réðst hettuklæddur inn i sjoppuna og hafði á brott með sér rúmar fimm þúsund krónur í skiptimynt og tvö karton af sígarcttum. Daginn eftir ránið var Unnur að versla í Hagkaup í Skeifunni. Þar sem hún beið við afgreiðslu- kassann fann hún nákvæmlega Grétar fær sér ábyggilega beiskan brjóstsykur næst þegar hann fremur afbrot. sömu lykt og hún hafði fundið út úr ræningjanum. „Ég hefði þekkt þessa lykt aftur hvar sem er,“ segir Unnur. Unnur hringdi beint í lögregl- una sem handtók ræningjann, Grétar Viðarsson. Hann játaði á sig ránið í yfirheyrslum hjá lög- reglunni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.