Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 11

Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 11
11 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRÚAR 1993 Steinar Berg stofnaði nýtt fyrirtæki í kringum starfsemi Steina EFTIR HANDA RUKKURUM RÍKISSJÓUS Skömmu fyrir áramót stofnaði Steinar Berg ísleifsson hljómplötuútgefandi nýtt félag um rekstur sinn. Skömmu síðar kom ný sölu- skattsáætlun frá tollstjóra og í kjölfarið var gerð tilraun til að innsigla fyrirtæki Steinars í Kópavogi. Vegna nafnbreytinganna reynd- ist innheimtumönnunum ókleift að inn- heimta söluskattsskuld upp á 23 milljónir króna. Þegar innheimtumenn ríkis- sjóðs komu í fyrirtæki Steina hf. á Nýbýlavegi 4 í Kópavogi nú skömmu eftir áramót til að inn- heimta skattskuldir eða innsigla fýrirtækið ella gripu þeir í tómt. Nýtt félag hafði tekið við rekstrin- um og fengið gamla nafnið eftir ákveðnar tilfæringar. Gamla félag- ið hafði hins vegar tekið við skuldunum við ríkissjóð en reyndar fengið til þess nýtt nafh, Vínil hf. Nú skömmu eftir áramót streymdu tilkynningar inn til Hlutafélagaskrár um breytingar á fyrirtækjasamsteypu Steinars Bergs Isleifssonar hljómplötuút- gefanda. Hluti þessara tilkynninga sagði frá hluthafafundum hjá Steinum hf. sem stofnað var árið 1975 og hefur verið flaggskipið í Steinarssamsteypunni. Þetta félag virðist ekki eiga langa lífdaga fyrir höndum, því á hluthafafundi 31. desember fékk það nafnið Vínill hf. og ber það nafn frá áramótum að telja. Steinar hf. er hins vegar til enn í dag en ber nýja kennitölu og virð- isaukaskattsnúmer. Þetta nýja fé- lag var stofnað 11. desember síð- astliðinn undir nafninu Steinar dreifing hf. en var nafhbreytt tutt- ugu dögum síðar, 31. desember, í Steina hf. GAMLA FÉLAGIÐ MEÐ SKULDIRNAR Steinarssamsteypan hefur í raun verið þrískipt fyrirtæki; Steinar hf., Steinar músík og myndir hf. og Hljómplötuútgáfan Steinar hf. Það síðasttalda hefur verið nokkurs konar eignarhalds- félag en í gegnum það fer útgáfa Steina. Allir útgáfusamningar og réttindi eru í eigu Hljómplötuút- gáfunnar Steina hf., en þar má meðal annars telja útgáfuréttinn að um 70 prósentum af öllu tón- listarefni sem komið hefur út á fs- landi! Það sem í dag heitir Steinar hf. er einmitt í eigu Steina músík- ur og mynda hf. og Hljómplötuút- gáfunnar Steina hf. Steinar músík og myndir er Málaferli vegna notkunar á myndum Hugrúnar af Bubba Steinar hf. dæmt til að borga fyrir myndirnar Dómur var kveðinn upp í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í máli Premier Photographic á hendur Steinum hfi nú 10. febrúar. Málið er tilkomið vegna notkunar fyrir- tækisins á myndum Hugrúnar Ragnarsdóttur ljósmyndara af Bubba Morthens. F.r skemmst frá því að segja að Steinar hf. tap- aði málinu og var dæmt til að greiða umboðsfyrirtæki Hugrúu- ar 600 pund í bætur auk dráttar- vaxta. Einnig.vái'ð fyrirtækið að. greiða allan málskostnað. Eftir því sem komist verður næst verð- ur kostnaður fyrirtækisins vegna þessa máls um hálf ntilljón króna. Dömari var Sigríður Ing- varsdóttir héraðsdómari. Málavextir eru þeir að Hug- rún, sem starfar.erlendis, sneri sér til Bubba og fékk leyfi til að mynda hann fyrir éinkasýningu. i. þakkiætisskyní gaf hún honum eintök af myndunum. Bubbi taldi hins vegar að hann mætti nota myndirnar og voru þær notaðar á rekstraraðili smásöludeiidar en í þeirra nafni eru verslanirnar. Hugmyndin er sú að hið nýja fé- lag, Steinar hf., yfirtaki rekstur gamla fyrirtækisins, sem nú heitir Vínill hf. Það blasir við að Vínill hf. á að leysa þau „skuldavanda- mál“ sem eilífur söluskattságrein- ingur við ríkissjóð hefur kaliað ffarn. Steinar Berg segir sjálfur að með þessum breytingum hafi ver- ið ætlað að leysa önnur vandamál en dregur ekki fjöður yfir að nú muni þessar söiuskattsskuldir falla á Vínil. Hann neitaði þvf hins vegar að Vínill væri eignalaust fé- lag — í nafhi þess væri skráð fast- eign í Glæsibæ og nokkrir bíiar auk lausafjármuna. Á hendur þessu fyrirtæki eru einnig í gangi innheimtuaðgerðir á vegum sýslumannsins í Hafnarfirði og Kópavogi vegna aðstöðugjalda. „REYNSLAN FRÁ 1989 STUÐLAR AÐ ÞESSU“ Sem kunnugt er var innsiglað hjá Steinum hf. 19. júní 1989 vegna ógreidds söluskatts ffá ár- unum 1985 og 1986 upp á tæplega Bubbi Morthens: Notkun á myndum Hugrúnar á plötu hans kostar Steina hf líklega utn hálfa millj- ón króna þegar upp er staðið. bakhiið geisladisks, á plötuum- slag og textablað á plötunni „Sög- ur af landi". Dómarinn féllst á að það hefði verið gert í leyfisleysi en lækkaði um leið verulega miska- bótakröfur Hugrúnar, enda taldi hann ekki sannað að um „miska“ hefði verið að ræða. fjórar milljónir króna. í sama áhlaupi var lokað hjá öllum myndbandaútgefendum. f kjölfar þess máls urðu töluverð blaða- skrif þar sem skeytin gengu á milli Steinars Bergs og fulltrúa fjár- málaráðuneytisins. Lokunarað- gerðirnar kærði Steinar til um- boðsmanns Alþingis, Gauks Jör- undssonar, sem komst að þeirri niðurstöðu að lokunaraðgerðin sjálf hefði ekki verið fyliilega rétt- mæt. Hann tók hins vegar enga afstöðu til söluskattsálagningar- innar. Lyktir málsins urðu þær að Steinar borgaði skuldina og fyrir- tækið var aftur opnað. Síðan hóf- ust dómsmál sem ekki sér enn fyrir endann á. Steinar segist hafa dregið þann lærdóm af þessu að hafa „ekki öli eggin í sömu körfunni" og var fyr- irtækinu skipt upp 30. ágúst sama ár. Söluskattsmálið snerist um það að fjármálaráðuneytið taldi að fyr- irtækið hefði átt að innheimta söluskatt af viðskiptum með myndbönd innan fyrirtækisins. Krafa skattstjóra þá (og nú) var byggð á því að fyrirtækin hefðu átt að borga söiuskatt af ffamleiðsiu- kostnaði við gerð myndbanda, íjölfóldun, prentun í kringum þau og svo framvegis. Vegna höfund- arréttarmála höfðu fyrirtækin þann hátt á að „leigja“ mynd- bandaleigunum spólurnar til 24 mánaða. Skattstjóri taldi að um leigu væri að ræða og söluaðilar fengu spólurnar aftur. Framleið- endur töldu hins vegar að um endanlega afhendingu hefði verið að ræða. Rétt fyrir jólin kom síðan önn- ur áætlun ffá tollstjöraembættinu, en PRESSAN hefur heimildir fýrir því að þrýstingur þar um hafi komið frá fjármálaráðuneytinu. Þar á bæ eru menn ekki hrifnir af þessum nýjustu tilfæringum og telja að um nýtt „Förnarlambs- mál“sé að næða.Þessi nýja áætlun Sigur.öur Márjópsson ■ V''’ Steinar músík og myndir hf. Stofnað 1989 I stjórn: Steinar Berg (sleifsson Ingibjörg Pálsdóttir Rósa Sigurbergsdóttir REYNDUM AÐ SEMJA VIÐ FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Steinar Berg sagðist vera orð- inn langþreyttur á viðskiptum við þetta innheimtukerfi: „Það var aldrei hugmyndin að leika ein- hvern leik og fara með Vínil í gjaldþrot þegar breytingarnar áttu sér stað. Hins vegar hefur sú staða komið upp síðan að það fýrirtæki er í mikilli hættu þar sem tollur- inn hefur ákveðið að fylgja þess- um áætlunum eftir með inn- heimtuaðgerðum. Vald hans til innheimtu er ofboðslega víðtækt, því ef við erurn ekki borgunar- menn fýrir þessum áætlunum — sem við erum ekki — geta þeir lokað. Þeir eru að innheimta núna með viðurlögum og vöxtum þrátt fyrir þá staðreynd að ríkisskatta- nefnd felldi niður viðurlög og vexti í fýrra skipti. Þeir geta inn- heimt þetta og síðan verðum við bara að sanna mál okkar, en við mundum bara deyja á þeim tíma. Almenn skynsemisrök virðast ekki virka í viðskiptum við ríkis- valdið,“ sagði Steinar. Hann sagði að í byrjun árs hefði mikið verið reynt til að fá (jármálaráðuneytið til að falla frá innheimtuaðgerðum og sem dæmi um að fyrirtækið hefði verið að vinna í sínurn málum nefndi hann að greitt hefði verið inn á aðrar skattaskuldir við ríkissjóð í desember. Það virðist ekki hafa borið árangur. Vínill hf. áöur Steinarhf. Stofnað 1975 I stjórn: Steinar Berg (sleifsson Pétur W. Kristjánsson Ingibjörg Pálsdóttir Hljómplötuútgáfan Steinar hf. Stof nað 1989 (stjórn: Steinar Berg ísleifsson Jónatan Garðarsson Ingibjörg Pálsdóttir Steinardreifing hf. nú Steinar hf. Stofnað 1992 (stjórn: SteinarBerg (sleifsson Ingibjörg Pálsdóttir Jónatan Garðarsson P.S. músík hf. Stofnað 1991 í stjórn: Steinar Berg (sleifsson Pétur W. Kristjánsson Jónatan Garðarsson á Steina hf. er upp á ríflega 23 milljónir króna, þar af er höfuð- stóll skuldar um 10 milljónir króna. Þessi áætlun er fyrir árin 1987, 1988 og 1989, eða til loka söluskattskerfisins. Eftir því sem komist verður næst fengu aðrir útgefendur svipaða áætlun, en Steinar telur að sitt fýrirtæki búi eitt við þessar harkalegu inn- heimtuaðgerðir. SKILDIRAMLA FYRIRTÆKIfl i

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.