Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 17

Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRUAR 1993 17 Sigurður Reynis- son dæmdur til að borga Fjarðarstáli JEkki er langt síðan sagt var frá I viðskiptum Sigurðar Reynis- sonar, byggingaverktaka í Ár- taki. Þá sögðum við meðal annars frá fjölda dómsmála í kringum hann. Nú er kominn dómur fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur í máli þar sem Fjarðarstál sf. steíndi SBS Sigurði vegna verk- efna við Fjölbrauta- Wi skólann í Breiðholti B stöðina á Seltjarn- arnesi. Dómari var :kÉf'&sk Arngríniur ís- B.'v’ ^fcjberg. Er skemmst frá því að segja að waWBg dómarinn féllst á allar W B- kröfur Fjarðarstálsmanna w °g dæmdi Sigurð til að greiða þeim um 225 þúsund krónur auk dráttarvaxta. Einnig var Sigurður dæmd- ur til að greiða 85 þúsund krónur í máls- kostnað... Friðrik Sophusson og Eiður Guðnason. Ferðakostnaður ráðuneyta þeirra hækkaði um 106 prósent milli ára. Ferðahostnaðurinn uppúr ðllu valdi >Ferðakostnaður stofiiana og íyr- (irtækja ríkisins erlendis árið 1991 reyndist 812 milljónir króna að núvirði en árið 1989 var hann 603 milljónir. Þegar litið er til æðstu stjórnar og aðalskrifstofa ráðuneyta kem- ur í ljós að milli áranna 1990 og 1991 hækkaði erlendur ferðakostnaður hlut- fallslega mest hjá tveimur ráðuneytum. Á aðalskrifstofu fjármálaráðuneytisins hækkaði kostnaðurinn á milli ára úr 6 milljónum í 12,3 milljónir eða um 106 prósent að raungildi. í hinu unga um- hverfisráðuneyti hækkaði kostnaðurinn úr 9,7 í 20 milljónir, sömuleiðis um 106 prósent að raungildi. Ráðherrar þessara ráðuneyta voru fyrstu fjóra mánuði ársins Ólafur Ragnar Grímsson og Júlíus Sólnes, en síðustu átta mánuðina þeir Friðrik Sophusson og Eiður Guðna- son. Hvað hið síðamefhda varðar er um- hverfisráðstefnan í Ríó líklegasta skýring- Nú bjóðum við upp á notalega aðstöðu á neðri hæð Hornsins (í Djúpinu) fyrir 10-25 manna hópa í fjölbreyttan mat, pizzu-partý, pastaveislur og fleira í þeim dúr. Allar upplýsingar í síma 13340 Hornið veitingahús Hafnarstræti 15 s: 13340 KEA hreinsar lil j, Þeir Magnús Gauti Gautason og félagar í forystu (KEA em að hreinsa til innan stórveldis síns. KEA hef- ur átt mörg dótturfélög, en þessa dagana eru þau óð- um að hverfa inn í móðurfyrirtækið með sameiningu. Hér er um að ræða hlutafélögin Álaska, Bifföst, Búvélaverkstæðið, Byggingarvöruverslun Tómasar Björnssonar, Óseyri 3 hf., Njörð og Útgerðarfélag KEA í Hrísey. Sem sé sjö dótturhlutafé- lög að hverfa af opinberum skrám... BÍLALEIGUBÍLL í EINN SÓLARHRING INNIFALDIR 100 KM OG VSK | HLAÐBREKKU 2, SÍMI: 91-43300, FAX: 91-42037, V/BSf, SfMI: 01-17570 Viðar Frammari orðinn útibússtióri Viðar Þorkelsson, fyrrum leik- maður með knattspyrnuliði Fram og bakvörður íslenska landsliðsins, hefur verið lítt áberandi á knattspyrnuleikvanginum undanfarið. Ástæðan er sú að hann hefur verið í ffam- haldsnámi í viðskiptaffæðum í Bandaríkj- unum og styrkti Landsbanki Islands hann að hluta til við námið. Nú er hann kom- inn aftur heim en hyggst þó ekki snúa sér aftur að knattspymunni, að minnsta kosti ekki með gömlu félögunum úr Fram, enda búinn að fá útibússtjórastöðu við Landsbanka íslands á Neskaupstað... ■ Þjónustufulltrúi Landsbankans leiðir þig í allan sannleikann um Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar. Þjónustan er þér að kostnaðarlausu. B Bankinn lætur þér í té viðskiptayfirlit síðasta árs gegn vægu gjaldi. i\aou imdirtökunum ídímunni viðflármál fjölskyldunnar Meö því að gera fjárhagsáætlanir og halda þannig utan um fjármálin er hægt aö draga úr óþarfa útgjöldum. Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar er krókur á móti bragöi eyslunnar. Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar er mappa meö töflu, sem einfalt er að fylla út og sýnir svo ekki verður um villst í hvaö peningarnir fara. Notaðu Fjárhagsáætlun fjölskyldunnar og þú berö hærri hlut í glímunni viö fjármálin. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.