Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 19

Pressan - 25.02.1993, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. FEBRÚAR 1993 19 Skatturinn í Kolaportinu Það hefur verið fjörugl niðri í Kolaporti undanfarið. Ekki það að viðskiptavinunum hafi fjölg- að svo mjög heldur hitt að fulltrúar skatts- ins hafa verið þar eins og gráir úlfar und- anfarnar helgar. Eftirlitið hefúr verið gíf- urlegt upp á síðkastið, en lengi hefur því verið haldið fram að sjóðsvélar séu það eina sem ekki finnist í Kolaportinu. Það ætla menn Friðriks Sophussonar fjár- málaráðherra greinilega að laga... Völd bankaráða skert í nýju frumvarpi Margt kemur til með að breytast í bankaviðskiptum þegar boðuð lagabreyting verður samþykkt og tekur gildi. Hvað hluta- félagabanka varðar verður til dæmis ekki lengur skilyrði að fimmtíu manns hið minnsta séu stofn- endur, heldur aðeins tveir. Ákvæði um tuttugu prósenta hámarkshlut hjá einum hluthafa verður afhumið. Lágmarkshluta- fé verður hækkað úr hundrað í fjögur hundruð milljónir. Auglýsa skal opinber- lega eftir umsóknum um stöður banka- stjóra ríkisbankanna og ráðning aðstoð- arbankastjóra og útibússtjóra tekin úr höndum bankaráðs. Bankaráð ákveður ekki lengur vexti, þjónustugjöld og af- skriftir útlána. Þá má nefha að verðmæti fasteigna sem bankinn á, en notar ekki til rekstrar eða fullnustu kröfu, má hæst nema tuttugu prósentum af eigin fé, en í dag er þetta óheimilt. Síðast má nefna að með gildistöku hinna nýju laga verður bankastjórum og mökum þeirra ekki lengur bannað að taka lán í eigin banka... LESENDUR Guðni Ágústsson, for- maður bankaráðs Búnaðarbank- Anderlecht vill 4,5 milljónir fyrlr Amór Knattspyrnukappinn Arnór Guðjohnsen hefur sem kunn- ugt er átt í miklum átökum um eignarréttinn á sjálfúm sér, en Anderlecht í Belgíu hefur aldrei viljað gefa hann ffjálsan. Þá var Amór kominn í málaferli við Bordeaux og ætlaði að krefja ffanska félagið um 70 milljónir króna, en ólíklegt er að nokkuð komi út úr því. Nú er svo komið að Anderlecht hefúr lækkað verðið á Arnóri og samkvæmt heimildum PRESSUNNAR kostar hann nú 4,5 millj- ónir króna. Arnór á enga peninga til að kaupa samninginn sjálfúr en líklegt er tal- ið að Hácken í Svíþjóð geri það. Það vekur hins vegar athygli að upphæðin er orðin það lág að sum „ríkari“ félaganna hér heima hefðu vel efni á að kaupa hann... Einkanæturhlúbbur í Skipholtinu Iw J Nú þegar birta tekur af degi fer ' einnig að birta í hugum manna. Félagsskapurinn Flugfélagar íslands, sem ber undirtitilinn félag bjatsýnisfólks, er að sönnu félag bjartsýnna manna því félags- skapurinn rekur einskonar næturklúbb í Skipholti 29. Klúbburinn er þó ekki æd- aður hverjum sem er og þarf félagsskír- teini með mynd til að komast inn. Reynd- ar eru reglurnar svo strangar að brot á þeim varðar brottrekstri úr félaginu. Einnig áskilur stjórn félagsins sér rétt til að samþykkja eða hafna umsækjendum án frekari útskýringa. Aðalsprautan að baki þessum félagsskap er Holgeir Clau- sen, en þeir sem hafa verið orðaðir við vinnu á bak við tjöldin í þeim tilgangi að ■ afla efnilegra félaga eru Björgólfur Björgólfsson, f y r r u m skemmtana- driffjöður Tunglsins, og Valþór Óla- son bílasali. Meðal gesta þar um síðustu helgi voru KK og Kormákur Ingangurinn að trommari úr klúbbnum. Félag bfartsfnlsKlte Búið er að hanna merki fyrir nætur- klúbbinn eða Flugfélaga fslands. hans bandi, Óli Haralds, Ellý í Q4U, Sif Hilmarsdóttir, Elma Lísa og Jónsi, bróðir Ara Alexanders... TALAÐU VJÐOKKUfi UM BÍLASPRAUTUN ÉTTINGAR Auóbrekku 14, simi 642141 HÖGGDEYFAR Allt ígóðu í Fulltrúaráðinu í PRESSUNNl sem út var gefin fimmtudaginn 11. febrúar sl. er í lítilli klausu getið um val á varaformanni Full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík þar sem fram fór kosning á milli okkar undirritaðra. f klausunni er gefið í skyn að kosning þessi sé liður í einhverjum inn- byrðis átökum í Sjálfstæðisflokknum og lýsi því klofningi í félögum flokksins í Reykjavík. Þetta er mikill misskilningur. Stjórn Fulltrúaráðsins er samhent og okk- ur er ekki kunnugt um að þar sé ágrein- ingur með mönnum. Sjálfstæðismenn telja ekkert óeðlilegt við það þótt valið sé á milli manna í trún- aðarstöður og fráleitt er að draga ein- hverjar ályktanir af umræddum kosning- um. Við undirritaðir höfum átt samstarf í Fulltrúaráðinu í tæpan áratug og á milli okkar hefur enginn ágreiningur verið, hvorki í afstöðu til manna né málefna. Virðingarfyllst, Garðar Ingvarsson, Gunnlaugur S. Gunnlaugsson. PRESSAN ÞIÍLEST PRESSUNA MED MORGUN- Áskrifendur fá blaðið í bítið áfimmtudags- morgni, ná að lesa það áð- ur en þeirfara í vinnuna ogeru manna best inni í málnm í morgunkaffinu. m öggdeyfarnir frá KYB eru viðurkenndir fyrir tæknilega Jhönnun, gæði og endingu. Þessir eiginleikar KYB högg- deyfanna skapa þægilegri akstur, betri meðferð og stjórn á bílnum; en umfram allt: - ÖRYGGI í UMFERÐINNI - Meðal viðskiptavina KYB eru: Daihatsu Motor Co. Ltd. Fuji Heavy Industries Ltd. Hitachi Construction Co. Ltd. Isuzu Motors Ltd. Kawasaki Heavy Indistries Ltd. Komatsu Forklift Co. Ltd. Mazda Motor Co. Ltd. Mitsubishi Motors Corporation. Nissan Motor Co. Ltd. Sumitomo Heavy Industries Ltd. Suzuki Motor Co. Ltd. Toyota Motor Co. Ltd. Yamaha Motor Co. Ltd. Opið 8.00 - 19.00 virka daga. Opið laugar daga 10.00 - 13.00. 4 =l

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.