Pressan - 27.01.1994, Síða 9
HARALDUR BLÖNDAL
„Þetta er kolrangur dómur, en það er mjög sjaldan
sem ég viðhef slík orð.“
Skaðabótakröfur vegna morðmáls:
740 ÞÚSIIND KRÓNUR
FYRIR MÓÐURMISSI
Aunnar dánarslysabætur fórnarlambsins koma til lækkunar
bóta sem morðinginn þarf að greiða. Bótum vegna jarðarfarar-
kostnaðar hafnað af því sjö ára barn borgaði ekki sjálft jarðar-
för myrtrar móður sinnar. „Kolrangur dómur,“ segir Haraldur
Blöndal hrl.
„Það sem okkur þykir verst er að
réttindi, sem dóttir okkar hafði
áunnið sér með vinnu sinni, skuli
nú eiga að koma morðingja hennar
til góða. Svo virðist sem réttindi
fórnarlamba morðingja séu engin,
meðan kerfið passar upp á öll rétt-
indi afbrotamannsins,“ sagði Kar-
en Gestsdóttir í samtali við
PRESSUNA. Karen er móðir Öldu
Rafnsdóttur, sem myrt var á heim-
ili sínu í september 1988 af Guð-
mundi Sveinbjömssyni. Þann 17.
desember sl. féU dómur undirréttar
í skaðabótamáfi sem Rafn Vigfus-
son, faðir Öldu, höfðaði gegn Guð-
mundi Sveinbjömssyni, fyrir hönd
ófjárráða sonar Öldu. Hann var sjö
ára þegar morðið var framið. Var
gerð krafa um bætur fyrir röskun á
stöðu og högum sonar Öldu að
upphæð 1.805.900 kr., auk bóta
fyrir missi ffamfæranda, 905.800
kr., og endurkröfu vegna kostnaðar
af útför, 136.944 kr. Dómari í mál-
inu, Sigríður Ólafsdóttir héraðs-
dómari, komst að þeirri niður-
stöðu að fallist skyldi á þá kröfu
lögmanns Guðmundar Svein-
bjömssonar að dánarslysabætur,
sem sonur Öldu hafði fengið
greiddar, kæmu að fullu til frá-
dráttar bótum sem Guðmundi er
gert að greiða. Dánarslysabætur
þessar, alls 966.400 kr., em til-
komnar vegna þess að Alda var rík-
isstarfsmaður og skv. kjarasamn-
ingi eru ríkisstarfsmenn tryggðir
með þessum hætti og borga viðeig-
andi iðgjöld.
Siðlaus og kolrangur dómur
Telja foreldrar öldu það í hæsta
máta ósiðlegt og óréttlátt að bætur,
sem dóttir þeirra hafði áunnið sér
rétt til með greiðslum af launum
sínum í Lífeyrissjóð starfsmanna
ríkisins, skuli gagnast banamanni
hennar, — að fórnarlambið skuli
með þessum hætti fjármagna þær
bætur sjálf, sem morðinginn hefði
annars þurft að greiða. Hefur mál-
inu verið áfrýjað til Hæstaréttar og
er sótt um gjafsókn í málinu. f bréfi
sem lögmaður Rafhs Vigfussonar,
Svala Thorladus hrl., hefur ritað
dómsmálaráðuneytinu, þar sem
beðið er um gjafsókn, kemur m.a.
ffam að engin fordæmi finnist í
dómum um að bætur samkvæmt
kjarasamningi ríkisstarfsmanna
komi til frádráttar í skaðabótamál-
um vegna slysa. Heldur Svala því
ffam að sá dómur Hæstaréttar,
sem vitnað er til í dómi undirrétt-
ar, sé á engan hátt sambærilegur og
væntanlega fylgir sú ályktun að
dómari hafi komist að rangri nið-
urstöðu.
Fordæmi það sem Sigríður Ól-
afsdóttir héraðsdómari vitnar til er
að finna í dómi Hæstaréttar frá
1978, þar sem ekkju voru dæmdar
bætur eftir mann sinn, sem lést í
vinnuslysi. Voru þá dregnar frá
bótum hennar bætur sem hún
hafði fengið greiddar samkvæmt
atvinnuslysatryggingu sem vinnu-
veitandi manns hennar hafði tekið.
PRESSAN leitaði álits hjá Haraldi
Blöndal lögffæðingi, en hann hef-
ur langa reynslu af bótamálum sem
lögffæðingur Sjóvár-Almennra.
„Það er almenna reglan varðandi
líffryggingar, slysa- og sjúkratrygg-
ingar að þessar tryggingar renna til
hins tryggða og dragast ekki ffá
öðrum bótum. I kjarasamningum
er fólk slysa- og sjúkratryggt. Ef
það slasast dragast þessar bætur því
aðeins ffá að atvinnurekandi beri
bótaábyrgð á slysinu. Þess vegna
skil ég ekki þá niðurstöðu dómar-
ans að dánarslysabætur Öldu skv.
kjarasamningi komi til frádráttar
þeim skaðabótum sem banamaður
hennar hafði verið dæmdur til að
greiða," sagði Haraldur. Vísaði
Haraldur á ákveðinn dóm Hæsta-
réttar ffá 1971 sem hliðstæðu við
mál öldu. Þar komu slysatrygging-
ar ekki til ffádráttar kröfum stefn-
anda, þótt þar sé tekið ffam að
„rétt sé að hafa þessa fjárhæð í
huga, þegar bætumar eru ákveðn-
ar“. Er þar stór munur á. „Ég hef
skoðað þennan dóm og tel að það
sé algjörlega út í hött að draga
þennan lið frá bótagreiðslum. Ég er
sannfærður um að þetta er kol-
rangur dómur, en það er mjög
Karen Gestsdóttir
Tryggja þarf rétt
fórnarlamba
Stofnun samtaka æðsti draumurinn
„Það er minn æðsti draumur að
stofna samtök þeirra sem hafa
misst börn sín á ófyrirgefanlegan
hátt,“ segir Karen Gestsdóttir,
móðir öldu Rafnsdóttur sem var
myrt fyrir rúmum fjórum árum.
Segir Karen að hún vilji reyna að
koma í veg fyrir að fólk sem lendir í
slíkri óhamingju þurfi að bæta því
við raunir sínar að standa eitt gagn-
vart kerfinu. „Það vantar aðstoð.
Hvar er allt þetta sérmenntaða fólk
þegar svona gerist? Það er enginn
sem er ábyrgur fyrir að veita fólki
upplýsingar um réttindi sín, enginn
sem aðstoðar fólk sálarlega né pass-
ar upp á að það sé ekki eitt með
erfiðleika sína og sorg. Það er svo
margt sem kemur upp á og það er
óþarfi að málum sé þannig fyrir-
komið að fólk missi trúna á samfé-
lagið. Það þarf að tryggja rétt fóm-
arlamba og aðstandenda þeirra,
ekki á síðri hátt en réttur brota-
manna er tryggður. Ég ræddi þessa
hugmynd einu sinni við Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráðherra,
eftir að hafa kynnst því í Noregi
hvernig hægt er að standa að svona
málum. Hún sagði að ég yrði að
Foreldrar Öldu, Karen Gestsdóttir og Rafn Vigfússon, segja erfið-
ast að þurfa að eiga ein við kerfið í kjölfar morðsins á dóttur
þeirra. „Ég á mér þann draum að stofna samtök þeirra sem missa
börn sín á ófyrirgefanlegan hátt. Þau samtök eiga að vera til að
styrkja rétt fórnarlambanna," segir Erla.
koma þessu í kring sjálf. Það er hópi sem hefur áhuga á að gera
draumur rninn að gera það, en þetta, en ég vona að hann stækki og
spumingin er hvort það er hægt. verði að veruleika," segir Karen
Eg er komin með smákjarna að Gestsdóttir.
sjaldan sem ég viðhef slík orð,“
sagði Haraldur. Hann bætti við að
hann væri persónulega þeirrar
skoðunar að bótagreiðslur til bama
væm alltof lágar, einkanlega
miskakröfur.
Valgeir Pálsson, lögfræðingur
Tryggingar hf., sem PRESSAN leit-
aði einnig álits hjá, var efnislega
sammála Haraldi, þótt hann tæki
ekki jafnsterkt til orða. Ef um hefði
verið að ræða atvinnuslysatrygg-
ingu sem atvinnurekandi hefði tek-
ið og málið verið sótt gegn at-
vinnurekandanum, þá hefði átt að
draga þær atvinnuslysatrygginga-
bætur ffá dæmdum skaðabótum.
Það væri hins vegar ekki upp á ten-
ingnum þegar farið væri í skaða-
bótamál gegn öðmm en atvinnu-
rekanda, eins og ætti við í þessu til-
felli. Þá ætti ekki að draga þær frá
dæmdum skaðabótum. Benti Val-
geir á sama dóm frá 1971 og Har-
aldur, máli sínu til stuðnings.
Þriðji liðurinn sem krafist var
bóta fyrir var útlagður útfarar-
kostnaður. Mun það venja í morð-
málum að útfararkostnaður falli á
hinn seka og getur sá sem bar þann
kostnað krafið hann um bætur.
Dómarinn komst hins vegar að
þeirri niðurstöðu að stefndandi
sjálfur, þ.e. sonur öldu, sem var sjö
ára þegar morðið var ffarnið, hefði
ekki greitt útfararkostnað sjálfur
heldur ættingjar hans og því væri
ekki hægt að verða við kröfu um
bætur vegna útfararkostnaðar.
„Það er ekki fallist á þessa kröfu
vegna þess að sjö ára drengurinn
átti ekki 200 þúsund krónur til að
koma móður sinni í gröfina,“ sagði
Karen í samtali við PRESSUNA.
Morð
Syni Öldu vom því dæmdar
bætur fyrir missi ffamfæranda
905.800 kr. og 800.000 kr. fyrir
röskun á högum og stöðu, samtals
1.705.800 kr. En síðan telur dómari
rétt að draga ffá þeirri upphæð að
fullu „atvinnuslysabætur, sem
stefnandi hefur fengið greiddar,
samtals kr. 966.400“. Heildarbætur
drengsins verða því alls aðeins
739.400 kr. fyrir móðurmissinn,
með vöxtum auðvitað. Dómari
taldi laun lögmanna stefiianda og
stefnda hins vegar réttilega metin
160.000 kr. fyrir hvorn, samtals 320
þúsund krónur, greiddar af ríkis-
sjóði.
Páll H. Hannesson
Það var aðfaranótt laugardagsins 3. september sem fundum öldu
Rafnsdóttur og Guðmundar Sveinbjömssonar bar saman. Bæði höfðu
verið úti að skemmta sér og hittust fyrir tilviljun fyrir utan skemmti-
staðinn Hollywood og urðu samferða í leigubíl, ásamt vinkonu öldu.
Fóru þau saman heim til öldu, sem bjó í innréttuðum bílskúr við
heimili foreldra sinna. Hvarf vinkonan á braut skömmu síðar og virtist
þá allt í góðu lagi. Um það sem síðan gerðist er enginn til ffásagnar
nema Guðmundur, en þegar hann gaf sig ffam við lögreglu morgun-
inn effir játaði hann á sig morðið á Oldu. Þegar lögreglan kom á stað-
inn var fyrir í íbúðinni sonur Öldu solándi, en hann átti sjö ára afmæli
þann sama dag. Hafði Guðmundur stungið öldu til bana með eldhús-
hníf, eftir að hafa slegið hana í andlitið. Var Guðmundur talinn sak-
hæfur, en hafði engar skýringar á framferði sínu. Hann var dæmdur til
íjórtán ára fangelsisvistar. Hann situr nú á Litla-Hrauni, en hefur á
tímanum lokið stúdentsprófi og hefur leyfi til að stundu vinnu utan
fangelsisins. Hann vinnur hjá Pósti og síma á Selfossi.
Telur dómari óvefengj-
anlegt að drengurinn hafi
verið undir forsjá og
ffamfæri móður sinnar
og notið umönnunar
hennar. Megi því fallast á
að veruleg röskun hafi
orðið á högum stefhanda
við það að missa eina for-
sjármann sinn og flytjast
til móðurforeldra. Hins
vegar teljist ósannað að
þau „verulegu félagslegu
og hegðunarvandamál“
sem bamið hafi átt við að
stríða stafi einvörðungu
af því áfalli sem það varð
fyrir við að missa móður
sína á þennan hörmulega
hátt. Þó telur dómarinn
að ekki hafi verið hrakið
„að ýmislegt í fari
drengsins bendi til þess
að hann hafi a.m.k. að
einhverju leyti orðið vitni
að atburðinum eða af-
leiðingum hans, og að
það hafi veruleg áhrif á
hagi hans og hegðun".
Segir síðan í niðurstöðu
dómsins að með „hlið-
sjón af ffamansögðu
þykja bætur til handa
stefnanda vegna röskun-
ar á stöðu og högum
hæfilega ákveðnar kr.
800.000“. Það er sem sagt
rúmlega milljón krónum
minni upphæð en farið
var fram á.
Verðlaunatölva frá Eltech
á óviðjafnanlegu tilboðsverði
í samvinnu við Eltech Research í Bandaríkjunum
býður Hugver nú á ótrúlegu verði tölvuna sem fékk
Best Buy umsögn í tímaritinu PC-World nú í
Desember 1993. Þessi vél er hraðvirkari í
Windows en 66 megariða tölvur sem kosta
tugþúsundum meira. Lýsing:
66 MHz 486 örgjörvi, 128k cache, 4Mb RAM,
reiknihraðall, Local Bus 1 Mb skjákort með
Cirrus hraðli, Local Bus diskstýring, 250 Mb
13ms harður diskur, turnkassi, MS samhœfð mús,
102 lykla lyklaborð, 14" lággeisla( MPR II) skjár
Geisladiskar og
geisladrif !
frá TVM :
149.860,-
Hugver
Laugavegi 168
s. 91-620707
f. 91-620706
Uppfœrsla á eldri vélum.
Við erum með móðurborð á
frábæru verði, m.a. úr 486/66
verðlaunavélinni á kr 38 þús. !
Allir íhlutir og ísetning.
Föst tilboð.
Kannaðu málið I
Kuldaleg lögfræði
Eins og fyrr segir var kröfúgerð
Rafns fyrir hönd dóttursonar síns
þríþætt. Féllst dómari á kröfur um
bætur fyrir missi ffamfæranda, kr.
905.800 kr. Var sú tala, sem er höf-
uðstólsverðmæti bamalífeyris á
ákveðnu tímabili, reiknuð út af
tryggingastærðffæðingi. Krafa var
gerð um bætur vegna „verulegrar
röskunar á stöðu og högum“ sjö
ára sonar Öldu við ffáfall hennar
og nam sú krafa 1.805.900 kr. Vetj-
andi Guðmundar Sveinbjömsson-
ar, Þórunn Guðmundsdóttir hrl.,
taldi þessa kröfu „lítt sem ekkert
rökstudda11 og mótmælti henni.
FIMMTUDAGURINN 27. JANÚAR 1994 PRESSAN 9