Morgunblaðið - 03.09.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í holtinu fyrir ofan Laxness er
steinn: Hús skáldsins er nú safn.
Haustbækurnar komnar: Sagt
frá helstu bókum og birt brot úr
nokkrum þeirra.
Snjöllin trúa ekki á huldufólk:
Kenningar bandaríska
heimspekingsins Danniels C. Dennetts.
Mamma, mamma, mamma:
Viðtal við Steingrím Eyfjörð myndlistarmann.
Sagan sem aldrei var sögð:
Grein um Tíma í lífi þjóðar eftir Indriða G. Þorsteinsson.
Bernskubrek byltingarleiðtogans:
Kvikmyndin Motorcycle Diaries byggir á dagbókum Che.
Smile: Loksins kemur Smile eftir Brian Wilson út eftir 37
ára bið aðdáenda Beach Boys.
Þegar tölvurnar
taka völdin
Tölvufíkn ágerist og fylgikvillarnir
eru áþekkir og hjá
vímuefnaneytendum.
Draumur í Danaveldi
Vísnasöngkonan Gullý Hanna Ragnarsdóttir.
Skutlur í skreytistíl
Skraut og íburður einkennir vetrartískuna.
Sykur, sælgæti og gos
Fitandi og fjandsamleg fæða eða saklaus sælugjafi.
E
rlendur Guðmundsson, vinur Halldórs
Laxness og velgjörðarmaður, fékk mörg
bréf um sína daga einsog kom í ljós
þegar opnaður var kassi úr fórum hans
í Landsbókasafninu fyrir nokkrum ár-
um. En hann virðist ekki hafa skrifað
mörg bréf sjálfur. Þó er til skemmtilegt
bréf sem hann sendi Halldóri til Kaup-
mannahafnar 15. desember 1934 til að segja honum frá því að
nú hafi öll Reykjavík verið undir hans merki. Dómar um út-
gáfu á Sölku Völku í Danmörku hafa leitt til þess að ólíkleg-
ustu menn hafa uppgötvað hann hér heima. Mest gaman hafði
Erlendur af því þegar Eggert Stefánsson söngvari kom til
hans í sjöunda himni yfir væntanlegri heimsfrægð Halldórs:
„Hann sagðist hafa farið kvöldið áður í bíl
upp að Laxnesi, þér til dýrðar. Hann sá í
anda veglegt hlið heim að bænum og glæsi-
lega marmaraplötu þar sem á var letrað:
Hér fæddist skáldið H.K.L. o.s.frv. Ég
sagðist verða að gleðja hann með því að þú værir Reykvík-
ingur eins og við, fæddur í fyrsta borgarastræti Íslands.“
Nú, sjötíu árum síðar, er Eggerti samt að verða að ósk
sinni, í ögn breyttri mynd. Heimili Halldórs örskammt frá
Laxnesi er að verða safn með veglegu hliði og áletruðum plöt-
um. Þar verður því að vísu ekki haldið fram að skáldið hafi
fæðst í sveitinni, því hann fæddist í húsi við Laugaveg í
Reykjavík, en hann fluttist með foreldrum sínum að Laxnesi
árið 1905 og er þar næsta áratuginn eða svo. Í Laxnesi var þá
allgott hús úr timbri og bárujárni en allir aðrir bæir í Mos-
fellsdal voru torfbæir. Jónas Magnússon, bóndi í Stardal, seg-
ir frá því að Guðjón faðir Halldórs hafi látið gera fyrsta möl-
borna heimreiðarveginn í byggðarlaginu Mosfellssveit bar
„Í holtinu
fyrir ofan
Laxnes
er steinn“
Um Gljúfra-
stein og Hall-
dór Laxness
Í dag verður Safn Halldórs Laxness opnað að Gljúfrasteini en
á undanförnum misserum hefur verið unnið að endurbótum á
húsi skáldsins. Í þessari grein er rifjað upp hvernig það kom
til að Halldór byggði sér hús á Gljúfrasteini en í einni af elstu
smásögum sínum segir hann frá því að Kristur vitraðist hon-
um sjö ára við stein í holtinu fyrir ofan Laxnes.
Eftir Halldór
Guðmundsson
halldor.gudmunds-
son@heima.is
Meðal efnis í Lesbók
Morgunblaðsins á morgun:
Meðal efnis í Tímariti
Morgunblaðsins á sunnudaginn:
Sunnudagur 05.09.04
Litríkir steinar, pallíettur, útsaumur, fjaðurskraut, pífur, glit, glimmer og allskonar dúllerí spegla skreytistíl vetrartískunnar.
Í KOMPANÍI
VIÐ ALNETIÐ
ÁTJÁN sækja um stöðu Þjóðleik-
hússtjóra, en umsóknarfrestur rann
út 1. september. Nítján sendu inn
umsókn um embættið til mennta-
málaráðuneytisins en einn þeirra
dró umsókn sína til baka í gærmorg-
un, samkvæmt upplýsingum frá
ráðuneytinu. Ekki er útilokað að
fleiri umsóknir eigi eftir að berast
ráðuneytinu í pósti.
Menntamálaráðherra skipar í
stöðuna til fimm ára frá 1. janúar
2005 að fenginni tillögu þjóðleikhús-
ráðs. Núverandi Þjóðleikhússtjóri,
Stefán Baldursson, hefur gegnt
embættinu frá árinu 1991.
Umsækjendurnir eru:
Árni Ibsen leikskáld og
formaður Leikskáldafélags
Íslands.
Benóný Ægisson leikskáld.
Bjarni Daníelsson óperustjóri.
Hafliði Arngrímsson
leikhúsfræðingur.
Halldór E. Laxness leikstjóri.
Hallur Helgason
framkvæmdastjóri.
Helga Hjörvar forstjóri
Norræna hússins í Færeyjum.
Hlín Agnarsdóttir rithöfundur
og leikstjóri.
Jóhann Sigurðarson leikari.
Kolbrún Halldórsdóttir
leikstjóri og alþingismaður.
Kjartan Ragnarsson leikskáld
og leikstjóri.
Kristín Jóhannesdóttir
kvikmyndaleikstjóri.
Ragnheiður Skúladóttir
deildarforseti
leiklistardeildar Listaháskóla
Íslands.
Sigrún Valbergsdóttir
leikstjóri og kynningarstjóri.
Tinna Gunnlaugsdóttir, leikari
og formaður Bandalags
íslenskra listamanna.
Trausti Ólafsson
leikhúsfræðingur.
Viðar Eggertsson leikstjóri.
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri.
Átján sækja
um stöðu
Þjóðleik-
hússtjóra
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest tvo
dóma Héraðsdóms Reykjavíkur frá
því í júlí sl. sem báðir tengjast
þrotabúi kjúklingabúsins Móa. Ann-
ars vegar var staðfestur sá dómur að
tvær kröfur KB banka upp á um 128
milljónir króna í þrotabú Móa nytu
stöðu veðkröfu í almennum kröfum.
Hins vegar var staðfest sú afstaða
skiptastjóra þrotabús Móa að nærri
30 milljóna króna krafa Matfugls
ehf. komist ekki að við gjaldþrota-
skiptin.
Þrotabú Móa áfrýjaði héraðsdómi
til Hæstaréttar og krafðist þess að
kröfur Kaupþings Búnaðarbanka
nytu ekki stöðu veðkrafna við skipti í
þrotabúinu. Þá var krafist máls-
kostnaðar í héraði og kærumáls-
kostnaðar. Hæstiréttur staðfesti
sem fyrr segir niðurstöðu héraðs-
dóms og dæmdi að málskostnaður og
kærumálskostnaður félli niður.
Kröfur bankans voru annars veg-
ar tryggingarbréf upp á 52,8 millj-
ónir, upphaflega útgefið af Ferskum
kjúklingum ehf. í maí árið 2001 að
fjárhæð 30 milljónir. Hins vegar er
tryggingarbréf upp á 74,8 milljónir
króna, upphaflega útgefið af Móum
ehf. í janúar 2000 að fjárhæð 40 millj-
ónir króna.
Hæstaréttardómarar í máli Mat-
fugls gegn þrotabúi Móa voru Gunn-
laugur Claessen, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir og Ólafur Börkur
Þorvaldsson en hitt málið dæmdu
Hrafn Bragason, Garðar Gíslason og
Ingibjörg Benediktsdóttir.
Kröfur KB
banka í
þrotabú Móa
viðurkenndar
♦♦♦
EKKI hefur verið tekin pólitísk ákvörðun um að
gera mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar og hefur ekki verið fjallað
um málið í nefndum og ráðum borgarinnar, segir
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar. Mis-
tök ollu því að fundur með íbúum var auglýstur á
þessu stigi. Fram kom í fréttatilkynningu sem
verkfræðistofan Línuhönnun sendi frá sér á mið-
vikudag og í frétt Morgunblaðsins af málinu í gær
að mat á umhverfisáhrifum vegna mislægra
gatnamóta væri að hefjast en Árni ber það til baka
og segir menn hafa hlaupið aðeins fram úr sér.
Aðspurður hvenær ákvörðunar er að vænta seg-
ir Árni að forgangsraða þurfi stórum vegafram-
kvæmdum í borginni og núverandi meirihluti hafi
lagt áherslu á lagningu Sundabrautar. Hann segir
að gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar gætu þá komist á dagskrá í kjölfar fyrsta
áfanga Sundabrautarinnar. „Frá mínum bæjar-
dyrum séð er ennþá talsvert í það að menn fari í
einhverjar aðgerðir á þessum gatnamótum nema
þær væru þá eitthvað minniháttar til að auka um-
ferðaröryggi,“ segir Árni.
Þess vegna segir Árni vel hugsanlegt að svoköll-
uð fjögurra fasa lausn verði fyrir valinu fyrst um
sinn en þar er miðað við ljósastýrð gatnamót með
tveimur beygjuakreinum í hverja átt og ljósum
fyrir allar beyjuakgreinar. Árni segir þó of
snemmt að segja til um það, fyrst þurfi samgöngu-
nefnd að marka áherslur í starfs- og fjárhagsáætl-
unum næsta árs, sem gerist á haustmánuðum.
Fundur með íbúum afboðaður
„Við hefðum aldrei sent út einhverja tilkynn-
ingu ef við hefðum ekki verið beðin um það,“ segir
Ríkharður Kristjánsson, framkvæmdastjóri Línu-
hönnunar. Hann segir að fundur sem boðaður var
nk. mánudag hafi nú verið afboðaður en þar átti að
kynna þá þætti sem meta á í fyrirhuguðu umhverf-
ismati.
Björn Ingi Sveinsson borgarverkfræðingur
staðfestir að fundurinn hafi verið afboðaður.
„Ástæða þess að þessum fundi var frestað er að
það var algerlega ótímabært að boða til hans. Það
er ekki búið að taka ákvarðanir um að fara í þessa
framkvæmd og því er ekki ástæða til að vera að
kynna eitthvað sem hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um.“ Björn segir það mistök af hálfu embættis
borgarverkfræðings sem ollu því að málið fór af
stað löngu áður en það var tímabært. Björn segir
fundi með íbúum almennt ekki haldna á þessu
stigi, venjan sé að Skipulagsstofnun samþykki
drög að matsáætlun framkvæmdaaðila áður en
það sé gert.
Engin pólitísk ákvörðun tekin um gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar
Mistök að auglýsa íbúa-
fund á þessu stigi málsins
SUMARIÐ var hlýtt á landinu, með-
alhitinn í Reykjavík var 11,5 stig og
hafa þessir mánuðir (júní, júlí og
ágúst) aðeins þrisvar orðið hlýrri
en nú, það var í fyrra (2003), 1939
og 1880. Á Akureyri var meðalhiti
þessara þriggja mánaða einnig 11,5
stig, en nokkur sumur hafa orðið
hlýrri þar, síðast í fyrra og síðan
1984 og 1976.
Trausti Jónsson segir heildar-
úrkomu mánaðanna þriggja hafa
verið nærri meðallagi í Reykjavík
en þurrt hafi verið framan af sumri
fyrir norðan en úrkoma í öðrum
landshlutum hafi ekki verið gerð
upp.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 650 og hafa sólskinsstund-
irnar ekki orðið fleiri á þessum
tíma árs síðan 1960 en það sumar
og sumarið 1971 voru sólskins-
stundirnar ámóta margar. Fyrr á
öldinni komu nokkur sumur með
enn meira sólskini en nú.
Á Akureyri mældust sólskins-
stundirnar 610 og er það með
mesta móti. Þó urðu sólskinsstundir
á Akureyri ívið fleiri en nú í júní til
ágúst árið 2000.
Sólarsumar að baki
ÁGÚSTMÁNUÐUR var mjög hlýr
um land allt og í annarri viku mán-
aðarins gerði mjög óvenjulega hita-
bylgju. Hennar gætti einkum um
sunnan- og vestanvert landið og
inn til landsins í öðrum lands-
hlutum. Meðalhiti mánaðarins í
Reykjavík var 12,6 stig, 2,3 stigum
ofan við meðallag. Ágúst í fyrra
var 0,2 stigum hlýrri en þessir
tveir mánuðir eru þeir hlýjustu síð-
an samfelldar mælingar hófust í
Reykjavík um 1870.
Ágúst varð nú meira en einu
stigi hlýrri en júlí en að sögn
Trausta Jónssonar, veðurfræðings
á Veðurstofu Íslands, er óvenjulegt
að svo miklu muni á mánuðunum
tveimur á þennan veginn, ágúst sé
yfirleitt ívið kaldari en júlí. Þá hafi
mánaðarhiti nú verið yfir meðallagi
í Reykjavík í 29 mánuði samfellt.
103 ára hitamet í
Reykjavík féll
Hitamet féllu víða, m.a. 103 ára
gamalt hitamet í Reykjavík en hiti
komst þar í 24,8 stig hinn 11.
ágúst.
Að sögn Trausta var hitabylgjan
ekki síst óvenjuleg fyrir það
hversu marga daga hún stóð og fór
hiti yfir 20 stig í Reykjavík fjóra
daga í röð en ekki er vitað til þess
að slíkt hafi gerst áður. Á Egils-
staðaflugvelli mældist hámarkshiti
29,2 stig 11. ágúst og er ekki vitað
um jafnháan hita hér á landi í
ágústmánuði. Meðalhitinn á Ak-
ureyri mældist 12,1 stig og er það
2,1 stigi yfir meðallagi. Svo hlýtt
verður í ágúst á Akureyri að jafn-
aði á 10 til 15 ára fresti.
Úrkoma var nálægt meðallagi
bæði í Reykjavík og á Akureyri. Á
Akureyri mældust sólskinsstund-
irnar 209 eða 73 umfram meðallag
og hefur þar aldrei mælst jafn-
mikið sólskin í ágúst.
Í Reykjavík mældust sólskins-
stundirnar 248 og segir Trausti svo
mikið sólskin ekki hafa mælst þar í
ágúst síðan 1960 en þá mældust
sólskinsstundirnar 278. Sólskins-
stundafjöldinn nú hafi verið 93 um-
fram meðallag.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hitabylgjan sem gekk yfir landið í byrjun ágúst hefur mikil áhrif á meðalhitann og var ágúst heitari en júlí sem er
mjög óvenjulegt. Börn á Þingvöllum voru meðal þeirra sem nutu veðurblíðunnar.
Ágústmánuður var heitari en júlí
Aldrei hafa mælst
fleiri sólskins-
stundir á Akureyri