Morgunblaðið - 03.09.2004, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
– kraftur til flín!
VI‹
GERUM
GOTT
BETRA
KB ÍBÚ‹ALÁN
LÆKKUM Í 4,2%
FASTA VEXTI
AFTURVIRKIR
BANDARÍSKA lögfræðifyrirtækið Lerach
Coughlin Stoia Geller Rudman & Robbins LLP
hefur hafið undirbúning málsóknar gegn líftækni-
fyrirtækinu deCODE genetics og stjórnendum
þess, og auglýsir í fréttatilkynningu eftir hluthöf-
um sem telja sig hafa tapað á verðlækkun á hluta-
bréfum í félaginu. Er þetta í annað sinn sem
bandarískt lögfræðifyrirtæki gerir tilraun til að
hefja lögsókn gegn deCODE með þessum hætti.
Síðast gerðist það í nóvember 2001.
Um er að ræða svokallaða „Class Action Suit“-
mál sem höfðað er í nafni fjölda aðila þar sem
mörgum kröfum af svipuðum toga er steypt sam-
an í eitt mál. Í fréttatilkynningu frá lögfræðistof-
unni kemur fram að aðilar sem keyptu bréf í fyr-
irtækinu á tímabilinu 29. október 2003 til 26. ágúst
2004 geti skráð sig sem þátttakendur í hópmáls-
ókninni og hafi til þess 60 daga frest. Ásakanir lög-
fræðistofunnar felast í því að stjórnendur félags-
ins hafi þrýst gengi félagsins upp, m.a. með því að
birta villandi tilkynningar og með því að leyna
vandamálum í innri stjórnun félagsins.
Sérfræðingar í hópmálsóknum
Í fréttatilkynningu Lerach Coughlin segir að
vegna hækkandi hlutabréfaverðs deCODE í kjöl-
far hinna meintu misvísandi og fölsku yfirlýsinga,
hafi deCODE getað aflað 144 milljóna Bandaríkja-
dala með skuldabréfaútboði í apríl sl. Þá er í til-
kynningunni vísað í uppsögn endurskoðenda fé-
lagsins nýverið, PricewaterhouseCoopers, og sagt
að við þær fréttir hafi verð á bréfum félagsins
hrapað niður í 5,7 dali hver hlutur, sem sé 58%
lægra verð en þegar verðið fór hæst á því tímabili
sem hugsanleg málsókn myndi ná yfir, eða 13,8
dollarar á hlut. Hyggst lögfræðifyrirtækið krefj-
ast bóta fyrir þá hluthafa sem vilja taka þátt í mál-
sókninni, og keyptu bréf í fyrirtækinu á tímabilinu
sem málsóknin nær yfir.
Lerach Coughlin segist í fréttatilkynningunni
vera sérfræðingur í málum sem þessum og búi yfir
mikilli reynslu í fjármálamisferlismálum. Fyrir-
tækið hafi 140 lög-
menn á sínum snær-
um og hafi allt í allt
náð á ferli sínum að
afla 20 milljarða
Bandaríkjadala í
skaðabætur í hinum
ýmsu málum, eða um
1.450 milljarða ís-
lenskra króna.
Líftækni-
fyrirtækjum
oft stefnt
Af öllum málsókn-
um í Bandaríkjunum
þar sem hluthafar
fara í mál við fyrir-
tæki var 17% beint gegn líftæknifyrirtækjum, að
því er fram kemur í bandaríska dagblaðinu San
Fransisco Chronicle, og hefur málum gegn líf-
tæknifyrirtækjum farið ört fjölgandi síðustu ár.
Þetta er hátt hlutfall þar sem líftæknifyrirtæki
skráð á markað í Bandaríkjunum eru einungis 2%
af um það bil 17.000 skráðum fyrirtækjum.
Í blaðinu er vitnað í formann samtaka líftækni-
fyrirtækjanna, The Biotechnology Industry Org-
anization, Carl Feldbaum, sem segir að málsókn-
irnar séu viðskiptalegs eðlis þar sem
lögfræðifyrirtæki leiti nýrra fórnarlamba, nú þeg-
ar þóknanir til þeirra vegna stóru hneykslismál-
anna í bandarísku viðskiptalífi fari minnkandi. Þá
segir Feldbaum að ástæðan fyrir því að líftæknin
sé svo „vinsæl“ í þessum efnum sé hin mikla at-
hygli sem mál Mörthu Stewart vakti, en þar var
líftæknifyrirtækið Im Clone í sviðsljósinu.
Lögfræðifyrirtækin fá að jafnaði 30% af þeirri
bótafjárhæð sem hluthöfum er dæmd. Í rannsókn
sem fyrirtækið NERA Economic Consulting gerði
í fyrra kom í ljós að 19% allra málsókna af þessu
tagi er vísað frá, en 1% málsókna endar fyrir dóm-
stólum. 80% málanna eru leyst með samkomulagi.
Bandarískir lögmenn undir-
búa málsókn gegn deCODE
!""#$
!
% !##$
"#$
"$$
%#$
%$$
#$
$
!"
& '
$ + ,* ' - .
, /
0 %112
"$$% "$$" "$$&
! "# $
"%
& '"% ("
) ("
*"% (" & '"%
+!'
+!%
! '#
,#
, " !
-./!
-. ! "#($
0
! "#
$
' ! "# 1'#2 . & '"%
'#'!
3. "
3'( 4 5"($
3 6 $ 74 / "
8("
)'%(
)#"
*9 :" 4 ""
;</!
-&
-9'% "" '" -' 1'# -'"%
-:' -'. / 6 /$
="#
=6## "#. "
> "" ' "
7.$ .. 2-:(!#
% "& '(
(
!'% ?6
*"% 9. & '"% =: :
>6## "# 1'# & '"%
-9
$!
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
!6 "#
6 $!
2 2
2
2
2
2
2
2 2 2
2 2
2 2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
@ AB
@ 2 AB
2
2
2
2
@ AB
2
2
@ 2AB
@ 2 AB
@ AB
2
@ 2 AB
@ AB
2
@ 2
AB
@ AB
2
@ AB
2
2
@ 2 AB
@
AB
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
3! '%
%# "
= '( 9 ' %# C
) -'
$
$
$ $
$ $ $ $
$
$ $
$
$
2
$ $ $
$ $ 2
$
$ 2
2
2
2
2
2
$ 2
$ 2
2
2
2
$ 2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
> 9 D5 $ $
=3$ E /#"' '%
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
KÁRI Stefánsson, forstjóri deCODE genetics,
segir að það sé ergilegt að fá á sig málsókn sem
þessa, en hún valdi honum engum áhyggjum.
Hann hafi ekki enn séð stefn-
una, og í raun hafi enginn far-
ið í mál, heldur sé lögfræðifyr-
irtækið að safna saman fólki
til að reyna að fara í mál.
„Þetta er það rúllugjald
sem þarf að greiða fyrir að
vera skráður á bandarískum
markaði. Bandaríkjamenn eru
með lagaumhverfi sem gerir
mönnum mjög auðvelt að
sækja rétt sinn fyrir dómstólum, sem þýðir líka
að það er mjög auðvelt að misnota þá aðstöðu,“
segir Kári Stefánsson.
Hann segir að deCODE fari eftir ýtrustu
reglum varðandi bókhald. „Ég er fullkomlega
viss um að við höfum staðið við allar þær reglur
sem við eigum að fylgja og lúta að bókhaldi. Við
höfum verið með bestu bókhaldsfyrirtæki
Bandaríkjanna í vinnu og við vitum ekki betur
en við höfum staðið okkur býsna vel þar.“
Kári segir að lögfræðifyrirtækið, Lerach
Coughlin sé með 66 ný svona mál á dagskrá, eins
og sjáist á vefsíðu fyrirtækisins. „Þetta eru menn
sem fara í mál við fólk, ekki af því að þeir vita að
það hefur framið einhvern glæp, ekki af því þeir
halda að það hafi framið glæp, heldur af því að
þeir vona það.“ Kári segir að markaðurinn í
Bandaríkjunum sé vanur svona málum enda
hækkaði hlutabréfaverð deCODE í gær um 2,8%.
Ergilegt, en
veldur engum
áhyggjum
Kári Stefánsson
BRÆÐURNIR Ormsson ehf. hefur
verið selt til hóps fjárfesta undir
forystu Gunnars Arnar Kristjáns-
sonar, en aðrir meðlimir eru Sig-
urður Sigfússon og Birgir Sævar
Jóhannsson. Fyrirtækið var stofnað
árið 1922 og hefur verið í eigu sömu
fjölskyldunnar frá þeim tíma. Er því
um mikilvæg þáttaskil í sögu fyr-
irtækisins að ræða.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Karl Eiríksson, fráfarandi forstjóri
fyrirtækisins, að í gegnum tíðina
hefðu fleiri aðilar viljað kaupa fyr-
irtækið, en tilboðin hafi alltaf verið
nafnlaus og í gegnum banka eða
fjármálastofnanir. „Það skipti mig
hins vegar máli að vita hver tæki við
fyrirtækinu, og því gat ég ekki
hugsað mér að taka þessum tilboð-
um,“ sagði Karl. „Þegar Gunnar og
félagar komu að máli við okkur
vann ég svolitla heimavinnu og fékk
að heyra hvað menn höfðu að segja
um Gunnar, og var það allt á sama
veg. Mér var sagt að Gunnar væri
harðduglegur og heiðarlegur maður
sem menn þekktu að góðu einu.“
Starfsmenn áfram í vinnu
Karl segir það líka hafa skipt
hann miklu máli að framtíð starfs-
manna hjá fyrirtækinu væri tryggð,
en hjá Bræðrunum Ormsson starfa
nú um 65 manns. „Þeir ætla að
halda nafni fyrirtækisins og hafa
tryggt því góða fólki áframhaldandi
vinnu, sem ég hef verið svo heppinn
að hafa haft í vinnu fyrir mig,“ sagði
Karl.
Framtíðin tryggð Karl Eiríksson
segir að miklu skipti að framtíð
starfsmanna sé tryggð.
Selja Bræðurna Ormsson
Gunnar Örn Kristjánsson fer fyrir kaupendunum
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
Hækkanir
í Bandaríkjunum
● HELSTU vísitölur í Bandaríkjunum
hækkuðu talsvert í gær, þar á meðal
hækkaði S&P-vísitalan um 1,1% og
hefur ekki verið hærri á þessu ári. Þá
hækkaði Dow Jones-vísitalan um
1,2% og endaði í 10.290,28 sem er
hæsta gildi vísitölunnar síðustu sjö
vikurnar. Þá hækkaði Nasdaq-
vísitalan um 1,2%.
Úrvalsvísitala Aðallista Kauphallar
Íslands hækkaði um 0,49% í gær.
Mesta hækkun varð á bréfum Op-
inna kerfa Group, 6,9%.
Yfirtaka Baugs
eina von BFG?
● SÉRFRÆÐINGAR hjá verð-
bréfamiðluninni Numis Securities
telja að breska matvörukeðjan Big
Food Group, undir forystu Bills
Grimsey forstjóra,
eigi litla mögu-
leika í harðri verð-
samkeppni og
spáir því að sala
fyrirtækisins hafi
minnkað enn
meira á öðrum
fjórðungi reikn-
ingsársins, eða
um 5%, en hún
gerði á fyrsta fjórðungi, en þá minnk-
aði salan um 1,7%. Numis hefur því
lækkað verðmat sitt á hlutabréfum í
Big Food Group í 65 pens á hlut og
ráðleggur hluthöfum að selja bréf sín.
Baugur á 22,1% eignarhlut í Big
Food Group og hefur breski mark-
aðurinn lengi beðið eftir að félagið
láti til skarar skríða og geri yfirtöku-
tilboð í keðjuna. Jafnvel er talið að
það sé eina von fyrirtækisins, að því
er segir í frétt This is London.
Að mati Numis mun þó ekki koma
til yfirtöku á næstunni enda líti allt út
fyrir að verð hlutabréfanna sé enn á
niðurleið og afkoman sé léleg. Hver
sá sem sé að íhuga yfirtöku muni að
öllum líkindum bíða þar til verðið
verður enn hagstæðara.
Verð hlutabréfa í BFG lækkaði úr
84 pensum í 82,25 pens í Kauphöll-
inni í London á miðvikudag eftir að
Numis birti greiningu sína. Lokaverð
bréfanna í gær var 84,25 pensog
hækkaði um 2,43%. Verðið hefur
lækkað nær stöðugt frá því í febrúar
sl. þegar það fór hæst í 182 pens.
Bill Grimsey
● ÚTLIT er fyrir að á þessu ári verði
í fyrsta sinn flutt út meira af lyfjum
en flutt er inn af þeim, þegar miðað
er við verðmæti.
Samkvæmt frétt á vef Samtaka
iðnaðarins voru fyrstu sjö mánuði
ársins flutt út lyf fyrir 5,4 milljarða
króna en inn fyrir 4,2 milljarða.
Munurinn er 1,2 milljarðar. „Það
hefði einhvern tíma þótt saga til
næsta bæjar að Íslendingar seldu
meira af lyfjum en þeir keyptu,“
segir á vef samtakanna.
Þar segir einnig að til sam-
anburðar hafi á sama tíma verið
fluttar út sjávarafurðir fyrir 70,6
milljarða.
Meira flutt út
en inn af lyfjum
FRÉTTIR
mbl.is
; %F
-GH A
A
=-?
IJ
A
A
KK
,+J
A
A
)J
; !
A
A
LK?J IM 8"!
A
A