Morgunblaðið - 03.09.2004, Side 38
MINNINGAR
38 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ingólfur Árna-son, fyrrverandi
rafveitustjóri á
Norðurlandi eystra,
fæddist á Akureyri
5. ágúst 1924. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Seli á Ak-
ureyri 26. ágúst síð-
astliðinn. Ingólfur
var sonur hjónanna
Jónínu Gunnhildar
Friðfinnsdóttur hús-
móður, f. 8. septem-
ber 1885, d. 28. des-
ember 1969 og Árna
Stefánssonar smiðs,
f. 8. júní 1874, d. 16. júní 1946.
Árni og Jónína eignuðust 14 börn
og komust 12 þeirra á legg. Þau
voru auk Ingólfs, sem var næst
yngstur: 1) Anna Kristín, f. 7.4.
1908, látin; 2) Eðvarð Fritz, f. 12.7.
1909, látinn; 3) Guðrún, f. 17.8.
1910, látin; 4) Sigríður, f. 22.9.
1911, lést ung; 5) Guðmundur, f.
24.12. 1912, látinn; 6) Friðfinnur,
f. 5.9. 1915, látinn; 7) Kolbeinn, f.
21.9. 1916, látinn; 8) Aðalheiður, f.
20.2. 1919, látin; 9) Stefán, f. 14.4.
1920; 10) Þórunn Hekla, f. 7.9.
1922; 11) Sigurbjörn, f. 18.9. 1927.
Árni og Jónína bjuggu ásamt
börnum sínum á Gránufélagsgötu
11 á Akureyri.
Ingólfur kvæntist 6. ágúst 1954
Önnu Ingibjörgu Hallgrímsdóttur
frá Menntaskólanum í Reykjavík
vorið 1945. Eftir stúdentspróf hóf
hann nám í skipaverkfræði í Sví-
þjóð en sneri heim þegar faðir
hans lést. Síðar stundaði hann
nám í rafmagnstæknifræði við
Oslos tekniske skole og útskrifað-
ist þaðan árið 1952. Hann var
kennari við miðskólann í Stykk-
ishólmi 1948–49 en starfaði síðan
alla tíð hjá Rafmagnsveitum rík-
isins að námsárunum undanskild-
um. Árið 1954 varð hann rafveitu-
stjóri á Norðurlandi eystra með
aðsetur á Akureyri og gegndi því
starfi til ársins 1994 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Ásamt
störfum sínum hjá Rafmagnsveit-
unum stundaði hann kennslu um
hríð við Iðnskólann á Akureyri.
Ingólfur var lengi virkur á
vinstri væng stjórnmálanna. Hann
var í bæjarstjórn Akureyrar frá
1962–1982 og bæjarráðsmaður
meginhluta þess tíma. Einnig átti
hann sæti í ýmsum nefndum á veg-
um bæjarins. Ingólfur átti ríkan
þátt í stofnun Hitaveitu Akureyr-
ar og var formaður hitaveitu-
nefndar og fyrsti formaður stjórn-
ar hennar. Hann sat í stjórn
Laxárvirkjunar árin 1971–83 og í
stjórn veitustofnana á Akureyri á
árunum 1986–1990. Þá sat hann í
stjórn Slippstöðvarinnar hf. og í
stjórn Sparisjóðs Akureyrar.
Hann lék knattspyrnu á sínum
yngri árum og var alla tíð einlæg-
ur stuðningsmaður íþróttafélags-
ins Þórs.
Útför Ingólfs verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
kennara, frá Grafar-
gili í Önundarfirði, f.
7. ágúst 1925. Anna er
dóttir hjónanna Hall-
gríms Guðmundsson-
ar og Jónu Guðbjarg-
ar Reinharðsdóttur.
Ingólfur og Anna
eignuðust fimm börn.
Þau eru: 1) Jóna Guð-
björg, f. 22.11. 1954,
gift Bjarna Þ. Jónat-
anssyni. Börn þeirra
eru óskírð, f. 17.3.
1976, dáin 1.4. 1976,
Lilja, f. 30.9. 1985 og
Sigrún, f. 30.9. 1985;
2) Hallgrímur Stefán, f. 6.8. 1956,
kvæntur Maríu Jónu Jónsdóttur.
Börn þeirra eru Anna Ingibjörg, f.
21.1. 1979, Hulda, f. 14.3. 1984 og
Jón Ingi, f. 13.9. 1986; 3) Sigríður
Erna, f. 27.8. 1962, í sambúð með
Gunnari Kr. Jónassyni. Synir Sig-
ríðar og Gunnars V. Gíslasonar
eru Ingófur Bragi, f. 18.1. 1986 og
Alexander, f. 28.6. 1990. Sonur
Sigríðar og Gunnars Kr. er Bjart-
ur Geir, f. 5.4. 2000; 4) Árni Gunn-
ar, f. 17.9. 1965, kvæntur Sigrúnu
B. Guðjónsdóttur. Synir þeirra
eru Ingólfur, f. 9.11. 1993, Ingþór,
f. 19.10. 1995 og Kristján, f. 22.6.
2000; 5) Valborg Salóme, f. 17.9.
1965. Sonur Valborgar og Kjart-
ans Magnússonar er Magnús Ingi,
f. 25.8. 2001. Ingólfur varð stúdent
Tengdafaðir minn elskulegur,
hann Ingólfur, hefur fengið hvíld-
ina. Síðasta stundin með honum var
á sólríkum áttatíu ára afmælisdeg-
inum 5. ágúst síðastliðinn, þar sem
hann var umvafinn ættingjum, vin-
um, starfsfólki Sels og vistmönnum
og fallegum söng Óskars Pétursson-
ar.
Ingólfur var glæsimenni og góður
maður sem lét sér annt um fjöl-
skyldu sína. Hann var fróður, kím-
inn og glaðlyndur maður með
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum.
Ég sé hann fyrir mér við garð-
verkin. Stóísk ró hvílir yfir honum
þar sem hann hlúir að gulrótunum
og virðir síðan fyrir sér gullregnið
fallega sæll á svip. Börnin ærslast
um á flötinni og fá fallegt bros frá
afa sínum. Sundlaugin á Akureyri
naut tíðra heimsókna Ingólfs og
Önnu og tóku þau gjarnan allan
hópinn með á árum áður. Ekkert
var betra en sundferð með afa og
ömmu og lumaði afinn alltaf á ein-
hverju gómsætu þegar heim kom.
Hríseyjarferð með nesti og nýja
skó á einstaklega fallegum degi
kemur upp í hugann. Við vorum í
einni af okkar mörgu sumarheim-
sóknum frá Danmörku og var
ákveðið að fara út í Hrísey. Tengda-
pabbi var hafsjór af fróðleik og var
unun að heyra hann rifja upp sögu
Hríseyjar þar sem við sátum undir
klettavegg og nutum geisla sólar-
innar, á meðan við mauluðum nestið
sem Anna hafði útbúið. Minningarn-
ar eru margar og góðar um ein-
stakan mann sem ég þakka af al-
hug, allt það góða sem hann gerði
fyrir okkur.
Þín tengdadóttir,
María.
Afi minn vissi svo margt. Það var
svo margt spennandi sem hann
sagði mér, eins og að það væru
tengsl á milli sjávarfallanna og
gangi tunglsins og að þar væri á
ferðinni þyngdaraflið. Afi kenndi
mér að tefla. Hann hjálpaði mér líka
með stærðfræðina og var það oft
honum að þakka að ég fékk séð hluti
í samhengi og í skiljanlegu ljósi. Afi
deildi líka með sér af ást sinni á
náttúrunni. Það er að miklu leyti afa
að þakka að ég get nefnt helstu
fjöllin í kring um Eyjafjörð með
nafni, og gæti nefnt þau öll ef ég
hefði fylgst betur með stundum. Í
fyrrasumar fórum við pabbi til afa í
góðu veðri og sátum við úti fyrir ut-
an Sel. Afi benti yfir í Vaðlaheiðina
og sagði að hún væri fallegasta út-
sýni í heimi. Ég hugsa því oft um
afa þegar ég lít yfir í heiði.
Þegar ég var hjá þeim þegar ég
var yngri gerði afi handa mér hafra-
graut á morgnana, hann var líka lið-
tækur í eldhúsinu og það er ósjald-
an sem afi var svuntuklæddur að
elda. Flotta svuntan sem var eins og
kjólföt. Stundum laumaði afi að
okkur barnabörnum gotteríi. Oft
var það prins póló. Afi átti nefnilega
alltaf malt og prins póló niðri í búri.
Daglegar sundferðir með afa og
ömmu á sumrin eru dýrmæt minn-
ing, ég lærði að synda og að fara í
heitasta heita pottinn. Þar sat afi og
ræddi pólitík og gengi Þórs í fót-
boltanum. Afi að dunda sér í garð-
inum á Byggðavegi er önnur skýr
mynd í huganum. En garðurinn þar
var svo spennandi, stóra lóðin og
svo dularfullu skúmaskotin að húsa-
baki og alltaf svo notalegt að vita af
ömmu og afa nálægt. Ég man líka
vel eftir afa liggjandi í sófanum að
hlusta á fréttir eftir hádegismatinn.
Hann leit út fyrir að vera sofandi en
var það samt ekki.
Nú hefur afi hins vegar fengið
hvíldina. Takk fyrir allt.
Þitt elsta barnabarn,
Anna.
Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá,
að lokkar oss himins sólarbrá,
og húmið hlýtur að dvína,
er hrynjandi geislar skína.
Vor sál er svo rík af trausti og trú,
að trauðla mun bregðast huggun sú,
þó ævin sem elding þjóti,
guðs eilífð blasir oss móti.
Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást,
að hugir í gegnum dauðann sjást.
– Vér hverfum og höldum víðar,
en hittumst þó aftur – síðar.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Með þessum orðum viljum við
kveðja þig, elsku afi, og þakka þér
fyrir allt. Það var mikið tilhlökk-
unarefni og alltaf jafn gaman og að
koma norður til ykkar ömmu. Frá
þeim stundum eigum við systurnar
margar góðar og fallegar minningar
sem við ætlum að varðveita vel. Þú
varst gull af manni, takk fyrir sam-
fylgdina.
Afastelpurnar þínar
Sigrún og Lilja.
Afi er farinn á betri stað. Það eru
óteljandi góðar minningar sem við
eigum með honum. Einhvern tím-
ann komum við í heimsókn frá Dan-
mörku, við tvö og pabbi. Afi fór með
okkur fyrsta daginn í bíltúr og við
vorum í senn yfir okkur hrifinn og
gáttuð á rafdrifnu rúðunum sem
voru í bílnum hjá afa. Við fiktuðum í
þeim eins og við ættum lífið að leysa
og afi brosti bara. Það var alltaf svo
gaman að fara í bíltúra með afa,
stutta sem langa. Í lengri bíltúr-
unum var oft farið út fyrir bæinn og
fengum við þá að heyra ýmislegt um
náttúruna og hvað hinir og þessir
staðir hétu. Í styttri bíltúrunum var
eitthvað skoðað innanbæjar og oftar
en ekki kom afi við í Hrísalundi því
eitthvað vantaði. Afi var alltaf
tryggur sínu og sínum. Hann var
mikill stuðningsmaður Þórs og ekki
sérstaklega ánægður með okkur
þegar við fórum að halda með KA,
reyndi að fá okkur til að skipta.
Afi var alltaf til í að hjálpa með
heimanámið og best var að spyrja
afa ef maður var t.d. að fara í landa-
fræðipróf. Afi kunni m.a. nöfnin á
öllum fjörðunum og var ekki lengi
að kenna okkur þá alla.
Þegar við barnabörnin komum í
heimsókn á Byggðaveginn fór afi
alltaf niður í búr og birtist svo með
eitthvað gotterí handa okkur, oftast
prins póló og malt. Þeir eru líka
minnisstæðir allir þeir ísar (vanillu-
stangir) sem við innbyrtum.
Sundferðirnar með afa og ömmu
voru alltaf skemmtilegar. Þegar við
vorum lítil fóru þær í að reyna að
kenna okkur að synda en smátt og
smátt breyttust ferðirnar í leik- og
buslferðir þegar við höfðum náð
tökum á sundinu. Grjónagrauturinn
sem við fengum stundum eftir sund
var bestur og afi gerði líka bestu
kjötbollur í heimi, við fáum vatn í
munninn við tilhugsunina og best
var að fá þær með nýjum kartöflum
beint úr garðinum.
Það var alltaf gaman á Byggða-
veginum.
Takk afi fyrir allt.
Þín barnabörn
Hulda og Jón Ingi.
Í dag kveðjum við Ingólf Árna-
son, fv. rafveitustjóra hjá Raf-
magnsveitum ríkisins, RARIK. Ing-
ólfur hóf fyrst störf hjá RARIK
1948, en var 1954 fastráðinn sem
rafveitustjóri á Norðurlandi eystra
og starfaði sem slíkur allt til þess að
hann lét af störfum í ársbyrjun
1994. Ingólfur hafði sterkar skoð-
anir á öllum málum og lét þær í ljós.
Hann var skapmaður og fastur fyrir
svo það var aldrei nein lognmolla í
kringum hann og minnisstæðir eru
hressilegir fundir þar sem Ingólfur
kom við sögu. En þrátt fyrir að
mörgum þætti Ingólfur harður í
horn að taka, var hann mikill vinur
vina sinna og stóð fast við bak sam-
starfsmanna sinna. Framan af
starfstíma Ingólfs var rafvæðing
sveitanna eitt stærsta verkefnið. Þá
þurfti sterka stjórnendur, enda
verkefnið umfangsmikið, sam-
göngur erfiðar og verkfæri og
tækjabúnaður frumstæður miðað
við það sem nú gerist. Ingólfur var
glöggur og fljótur að greina það
sem skipti máli. Hann lét sér annt
um heimabyggð, var virkur í stjórn-
málastarfi og sat í bæjarstjórn Ak-
ureyrar til fjölda ára. Hann fór
fremstur í flokki við stofnun hita-
veitu Akureyrar, sat í ótal nefndum
á vegum bæjarins og fjölmörgum
nefndum á vegum RARIK.
Ég kynntist Ingólfi fyrst uppúr
1980. Ég sá Ingólf fyrir mér sem
hnarreistan, spengilegan stjórn-
anda sem hafði ákveðnar skoðanir á
öllum málum, atkvæðamikinn og
fylginn sér. Það var því ekki auð-
veld ákvörðun að taka, þegar hann
árið 1992 hvatti mig til að feta í fót-
spor sín sem umdæmisstjóri. En
hvatning hans og eftirfylgni varð til
þess að ég tók við starfinu. Það var
mér mikið happ að hafa hann starf-
andi við hlið mér í upphafi. Því verð-
ur ekki með orðum lýst hvernig
Ingólfur Árnason reyndist mér við
þetta nýja verkefni. Nú þegar við
kveðjum Ingólf hinstu kveðju verð
ég að þakka fyrir velvilja hans, hlý-
hug og vináttu í minn garð. Fyrir
hönd RARIK þakka ég Ingólfi fyrir
hans fórnfúsa og mikla starf fyrir
fyrirtækið.
Önnu og allri fjölskyldu Ingólfs
votta ég mína dýpstu samúð.
Tryggvi Þ. Haraldsson
rafmagnsveitustjóri.
Í dag er borinn til grafar Ingólfur
Árnason, fyrrverandi rafveitustjóri,
frábær samstarfsmaður minn til
áratuga. Ég man alltaf eftir því,
þegar ég fyrst hitti Ingólf Árnason
á Akureyrarflugvelli fyrir hartnær
30 árum. Ungur maður, lítt kunn-
andi, var kominn í heimsókn í Norð-
urlandsumdæmi eystra til að ræða
rafmagnsmálin. Ingólfur tók á móti
mér af einstakri velvild og á næstu
dögum fór hann með mér um svæð-
ið og fræddi mig, ekki eingöngu um
stöðu rafvæðingar, heldur einnig og
ekki síður um landslag, sögu og
menningu landshlutans, að pólitík
ekki undanskilinni.
Þetta var eins og að ganga í skóla
á ný. Ingólfur var einstakur lærifað-
ir, fróður um landsins hagi og nátt-
úru, að ógleymdum rafmagnsmál-
unum, sem hann þekkti og kunni
utanað.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að vera honum samferða á
miklum uppbyggingartímum raf-
orkukerfis landsmanna. Oft komu
upp erfið mál, sem glíma þurfti við,
og þá var gott að leita í smiðju til
Ingólfs til lausnar.
Aðrir munu fjalla um störf Ing-
ólfs að öðrum þáttum orkumála, svo
sem Hitaveitu Akureyrar og öðrum
landsmálum.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég minnast vinar míns Ingólfs
Árnasonar og færi Önnu, börnunum
og fjölskyldum mínar innilegustu
samúðarkveðju.
Kristján Jónsson.
Það eru aðeins nokkrar vikur síð-
an ég heimsótti þig vinur, þá kom í
hug stef frá þjóðskáldinu Jóhannesi,
í „Eigi skal höggva“.
Gáfunnar ársal Æsir bjartir lýsa,
einherjar djúpt í sálu falla og rísa.
Já Ingólfur, ég er stoltur af að
hafa átt þig að vini.
Það hafa mörg vötn óbeisluð til
sjávar runnið á okkar samstarfs-
tíma, og margt á dagana drifið.
Sumt má geymast annað gleym-
ast eins og gengur. Margt hefur
verið svo stórskemmtilegt að efni
væri í heilar bækur t.d. rafvæðing
Íslands – fámennra fiskvinnslu-
þorpa – til stoltra kaupstaða, en
ekki síst rafvæðing sveitanna.
Allt var þetta í upphafi gert við
frumstæð skilyrði og lítið fjármagn,
við getum sagt með handaflinu einu
saman.
Díseltíkur út um allt land, sífellt
að bila, og oft voru línurnar í jörð-
inni vegna ísinga og veðratjóns –
rafmagnsskömmtun og hörmungar.
Já það voru lukkunnar pamfílar
sem fengu að stríða við þetta. En
hvers vegna varðst þú svona póli-
tískur? Gæti skýringin verið að þeg-
ar maður starfar við félagslega
þjónustu verði maður pólitískur eða
einhverskonar skógarmaður í sinni
grein og fari að eins og Jóhannes
segir,
Við sinn skugga eltir ólar
útigangsins þreytta tröll.
Mér telst svo til að enginn
sveitarstjórnarmaður á Íslandi hafi
þá tröllslegu stöðu sem Ingólfur að
hafa setið í einni merkustu bæjar-
stjórn okkar ylhýra Fróns samfellt í
tuttugu ár og það fyrir fjóra flokka.
Þetta kallast galdrar í öðrum sveit-
um.
Ingólfur var tryggur öllu sem
hann tók sér fyrir hendur – ekki
sauðtryggur fjarri því, heldur sann-
ur og samkvæmur sjálfum sér –
hollusta var hans aðalsmerki.
Ég held því fram að Ingólfur væri
samur í ósk sinni og dáð, og um leið
hetja af sannleikans náð.
En fyrst og síðast kemur mér æv-
inlega í hug glæsilegt heimili Ing-
ólfs og Önnu frænku og ávextir
þeirra, myndarleg og vel gefin börn.
Hugheilar samúðarkveðjur, Guð
blessi minningu góðs drengs og
ykkur öll.
Erling Garðar Jónasson.
Í nútíma samfélagi virðist okkur
á stundum lítið varða um fortíðina,
forverana og þá sem börðust fyrir
betri tíð. Okkur hættir til að líta á
hlutina sem sjálfsagða og ekkert sé
eðlilegar en við búum við þau skil-
yrði sem skapa nútíma samfélag.
Okkur hættir til að horfa framhjá
þeirri staðreynd að fjöldi Íslendinga
sem nú eru á efri árum þekkir af
eigin reynslu erfiða tíma og þá bar-
áttu sem í því fólgst að byggja upp
nútíma þjóðfélag.
Ingólfur Árnason, var einn þeirra
manna, sem sættu sig ekki við
óbreytt ástand, taldi breytinga þörf
og var reiðubúinn til að berjast fyrir
þeim hugsjónum sínum.
Hann var róttækur í skoðunum,
framsækinn baráttumaður, skap-
mikill og fastur fyrir. Gekk til liðs
við vinstrisinnaða stjórmálamenn,
kastaði sér út í iðu stjórnmálanna
og bauð sig til forustu í bæjarmál-
um á Akureyri fyrir þeirra hönd.
Störf hans að bæjarmálum endur-
spegluðu þann vilja að efla Akureyri
með öllum ráðum og hann var órag-
ur við að styðja atvinnuuppbygg-
ingu með þátttöku hins opinbera.
Hann var í forustusveit fyrir leit
að heitu vatni í Eyjafirði, í upphafi
áttunda áratugar síðustu aldar og
tók að sér viðamikil ábyrgðarhlut-
verk við stofnun hitaveitu á Akur-
eyri.
Auk setu sinnar í bæjarstjórn og
bæjarráði tók hann virkan þátt í
fjölmörgum stjórnum og nefndum á
vegum bæjarins.
Þó oft væru teknar snarpar senur
í umræðum í bæjarstjórn Akureyr-
ar, á þeim árum sem hann átti þar
sæti, þá var hann jafnan fús til sátta
og ráðagóður til lausnar deilumál-
um. Á gleðistundum var hann
manna kátastur.
Þetta eru þær minningar sem
koma upp á þessari stundu við frá-
fall hans.
Að heilsast og kveðjast er lífsins
saga. Nú er Ingólfur kvaddur með
virðingu og þökk. Það var gott að
eiga hann að samferðamanni.
Önnu og fjölskyldu sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Sigurður J. Sigurðsson.
Þegar undirritaður sneri heim frá
námi í Skotlandi og Svíþjóð fyrir
miðjan sjötta áratuginn virtust flest
sund lokuð til að finna starf heima
þar sem námið gæti komið að ein-
hverjum notum. Ég kom víðast hvar
að luktum dyrum. Undantekningin
var Björn Jónsson, formaður verka-
lýðsfélagsins Einingar á Akureyri
INGÓLFUR
ÁRNASON