Morgunblaðið - 03.09.2004, Page 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 39
og þingmaður fyrir Alþýðubanda-
lagið í Norðurlandskjördæmi
eystra. Fremur en að gera ekki
neitt bað hann mig að efna til nám-
skeiða á vegum Einingar og verka-
lýðsfélaganna við Eyjafjörð um
skipulag og starfshætti stéttar-
félaga og vinnumarkaðsmál. Þessi
fræði hafði ég numið í Svíþjóð og
grundvallarbreytingar á skipulagi
stéttarfélaga og starfsháttum voru
þá á dagskrá Alþýðusambandsins.
Nemendur mínir reyndust flestir
miklu eldri og reyndari en kenn-
arinn, enda fullyrði ég að ég lærði
meira af þeim en þeir af mér. En
þarna ég kynntist ég mörgum eft-
irminnilegum persónuleikum sem
margt mátti læra af. Einn sá eft-
irminnilegasti var Ingólfur Árna-
son, þá þegar umdæmisstjóri Raf-
magnsveitna ríkisins í
Norðausturlandsumdæmi. Þau
kynni sem tókust með okkur voru
slík að entust til ævilangrar vináttu,
þótt lengst af hafi verið vík milli
vina.
Ingólfur var borinn og barnfædd-
ur Akureyringur. Hann var stoltur
af höfuðstað Norðurlands, þessari
perlu Eyjafjarðar, og hafði til að
bera mikinn metnað fyrir hönd Ak-
ureyrar og umdæmisins. Að loknu
stúdentsprófi hélt Ingólfur til náms
við tækniháskóla í Ósló þaðan sem
hann brautskráðist sem rafmagns-
tæknifræðingur árið 1953. Á náms-
árunum hafði hann unnið á vegum
Rarik allt frá árinu 1949. Að námi
loknu var honum fljótlega trúað fyr-
ir starfi umdæmisstjóra Rarik og
gegndi því annasama starfi í tæp-
lega 40 ár eða til ársloka 1993.
Lengst af þessa tíma stóð hann fyr-
ir miklum umsvifum, mannaforráð-
um og framkvæmdum. Hann upp-
lifði mikla framfaratíma og lét ekki
sinn hlut eftir liggja. Stórvirki, sem
hann stóð fyrir í sínu víðáttumikla
umdæmi, munu lengi halda nafni
hans á loft. Auk þess fylgdi hann
eftir þörfum framfararmálum með
setu í bæjarstjórn Akureyrar í tvo
áratugi.
Og það var einmitt pólitíkin sem
tengdi okkur Ingólf vináttuböndum,
sem aldrei rofnuðu. Þrátt fyrir að
Ingólfur gegndi kröfuhörðu ábyrgð-
arstarfi, lét hann það ekki aftra sér
frá þátttöku í stjórnmálum, enda
hafði hann brennandi áhuga á þjóð-
málum. Ingólfur var róttækur í
hugsun en um leið raunsær rök-
hyggjumaður, sem þoldi lítt ónytju-
hjal og draumórarugl. Hann fann að
víða var breytinga þörf í okkar sam-
félagi, en gerði þá kröfu að breyt-
ingarnar væru vel grundaðar og
framkvæmanlegar. Þannig var hann
vanur að vinna sjálfur. Maður sem
þannig hugsar er jafnaðarmaður.
Það var Ingólfur vinur minn af lífi
og sál. Og hann var í lífi sínu og
starfi einn þeirra manna sem gera
meiri kröfu til sjálfs sín en annarra.
Þess vegna var hann öðrum fyrir-
mynd. Það var ævinlega uppörvun
að hitta hann að máli þótt við ættum
stopular stundir saman á seinni ár-
um. Hann hafði fram að færa heila
hugsun, haga hönd og hjartað sanna
og góða.
Ég vil að leiðarlokum þakka fyrir
ómetanleg kynni um leið og ég
sendi eftirlifandi konu Ingólfs,
Önnu Hallgrímsdóttur, börnum
þeirra, tengdabörnum og fjölskyld-
um þeirra hlýjar samúðarkveðjur.
Jón Baldvin Hannibalsson.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast fyrrverandi yfirmanns
míns, Ingólfs Árnasonar.
Fyrstu kynni mín af Ingólfi voru
árið 1973, þegar ég var rafverktaki
á Þórshöfn og var farinn að aðstoða
þáverandi starfsmann Rafmagns-
veitnanna á staðnum við ýmiss
störf.
Árið 1976 bauð Ingólfur mér
vinnu hjá Rafmagnsveitunum, sem
ég þáði og það haust var ég ráðinn
rafveitustjóri í Norður Þingeyjar-
sýslu.
Á þessum árum voru bilanir tíðar.
Þá var gott að hafa traustan og góð-
an yfirmann sem fylgdist vel með
gangi mála, án þess að drepa niður
frumkvæði okkar starfsmannanna.
Hann vildi að ég hringdi í sig og léti
sig vita um bilanir hvort sem var að
degi eða nóttu, gott var að vita að
fylgst var með manni, þegar að-
stæður voru erfiðar.
Árið 1990 flyst ég til Akureyrar
og gerist fjármálastjóri hjá Raf-
magnsveitunum á Norðurlandi
eystra undir stjórn Ingólfs. Nú unn-
um við undir sama þaki og ég fann
enn betur hvernig stjórnunarhættir
Ingólfs voru. Hann var fljótur að
taka ákvarðanir, var stífur á mein-
ingu sinni en gat skipt um skoðun ef
svo bar undir en þá þurftu að liggja
fyrir því örugg rök. Maður fann í
samræðum við hann hvernig hann
bar umhyggju fyrir lítilmagnanum
og blés oft á skoðanir þeirra sem
meira þóttust mega sín.
Eitt var það í fari Ingólfs, sem ég
dáðist að, en það var klæðaburð-
urinn. Hann var alltaf einstaklega
smekklega klæddur, hvort sem var í
leik eða starfi.
Á síðari árum fór Ingólfur að
leika golf og spilaði hann alltaf eld-
snemma morguns. Eitt sinn spurði
ég hann hvers vegna hann færi
svona snemma á völlinn, þá svaraði
hann að það væri stórkostlegt þegar
bærinn væri að vakna til lífsins og
fuglasöngurinn að taka við af næt-
urkyrrðinni.
Núna þegar ég lít um öxl og læt
hugann reika aftur í tímann, sé ég
hvað Ingólfur hefur verið mikill ör-
lagavaldur í lífi mínu. Mér finnst ég
hafa verið gæfumaður í lífinu og tel
að Ingólfur eigi talsverðan þátt í
því.
Við hjónin þökkum Ingólfi fyrir
samfylgdina og sendu Önnu og af-
komendum þeirra innilegar samúð-
arkveðjur.
Tryggvi Aðalsteinsson.
Í dag verður jarðsettur vinur
minn, Ingólfur Árnason. Þótt við
þekktumst sem drengir og ungling-
ar varð vinátta okkar ekki náin fyrr
en 1954 er við hófum að byggja
íbúðarhúsin okkar, hann Byggðaveg
132 og ég 134A. Uppfrá því voru
samskipti okkar heimila mikil, hann
og Anna Hallgrímsdóttir, eiginkona
hans, með sín 5 börn, en ég og Mar-
grét með 2. Við stunduðum saman
Baddann í 40 ár og fórum í margar
veiðiferðirnar, ræddum mál líðandi
stundar, en ekki vorum við alltaf
sammála, en hvað um það, okkur
var mjög hlýtt hvorum til annars.
Hann unni mjög Akureyri og var
í tugi ára í stjórnum og nefndum
fyrir bæjarfélagið. Mestalla starfs-
ævina vann hann hjá Rarik, lengi
sem forstöðumaður fyrirtækisins á
NA-landi. Síðustu ár hafa verið Ing-
ólfi mjög erfið vegna heilsuleysis.
Nú hefur Alveldið leyst hann frá
þessu, tekið hann til sín og ég bið
það að varðveita hann og hans nán-
ustu. Ég þakka honum og fólkinu
hans áralanga vináttu við mig og
mitt fólk. Guð blessi ykkur öll.
Jón E. Aspar.
Fallinn er í valinn heiðursmað-
urinn Ingólfur Árnason, fv. um-
dæmisstjóri Rafmagnsveitna ríkis-
ins á Norðurlandi eystra. Með
honum er genginn maður sem tók
drjúgan þátt í uppbyggingu þjóð-
félagsins bæði á sviði orkumála svo
og samfélagslegum verkefnum með
virkri þátttöku í bæjarmálefnum
Akureyrar um tveggja áratuga
skeið.
Á þessu ári er aldarafmæli raf-
væðingar hér á landi. Sagnfræðing-
ar skipta þessu tímabili upp í
þrennt. Í fyrsta lagi upphafsárin
sem stóðu í rúma þrjá áratugi þar
sem einstaklingar og bæjarfélög
virkjuðu læki og ár til framleiðslu á
raforku til eigin nota. Samveituárin
hefjast síðan með tilkomu Sogs-
virkjana 1937 þar sem virkjað er
stærra og Rafmagnsveiturnar koma
af hálfu ríkisins að því verkefni að
flytja og dreifa raforku um byggðir
landsins. Þriðja og síðasta tímabilið
er síðan iðnaðaruppbyggingin sem
hófst á 7. áratug síðustu aldar og
stendur reyndar enn.
Ingólfur Árnason starfaði í meira
en fjóra áratugi hjá Rafmagnsveit-
unum og tók drjúgan þátt í því hlut-
verki þeirra að koma raforkunni til
hinna strjálli byggða og að rafvæða
sveitir landsins. Það var ekki heigl-
um hent að standa í þeirri baráttu
jafnt í hörðustu hríðarbyljum vetr-
arins sem á sólríkum sumardögum.
Ingólfur var harður af sér og stjórn-
aði sínum mönnum af einurð en
sanngirni. Ég starfaði með honum í
nær tvo áratugi og hann kom mér
ávallt fyrir sjónir sem heilsteyptur
og traustur maður sem hafði
ákveðnar skoðanir sem hann lá ekki
á hvort sem þær voru öðrum að
skapi eður ei. Gat hann þá verið
hvass ef honum fannst þess þurfa
með. Ég leiddi tæknisvið fyrirtæk-
isins á þessum árum og var gott að
starfa með Ingólfi, hann var fagleg-
ur í starfi sínu og vann Rafmagns-
veitunum ávallt heilt. Ingólfur hafði
einnig lag á því að ráða til sín úrvals
starfsmenn sem stóðu dyggilega við
bak hans sama á hverju gekk og
sem voru líkt og hann ávallt tilbúnir
að fórna sér fyrir fyrirtækið og við-
skiptavinina.
Önnu, eiginkonu hans, og fjöl-
skyldu sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Steinar Friðgeirsson.
Ég kynntist Ingólfi þegar ég tók
við starfi rafveitustjóra hjá Rafveitu
Siglufjarðar árið 1966. Ingólfur var
þá rafveitustóri Rafmagnsveita rík-
isins á Norðurlandi Eystra með að-
setur á Akureyri. Hann stóð þá fyr-
ir miklum framkvæmdum í
rafvæðingu á rekstrarsvæði raf-
magnsveitnanna og hélt úti vinnu-
flokkum vítt um svæðið.
Á þessum tíma var lagt verðjöfn-
unargjald á raforku í smásölu, og
oft tekist á um það á aðalfundum
Sambands ísl. rafveitna, þar sem
fundum okkar bar saman. Ingólfur
var á þeim fundum einn skeleggasti
fulltrúi Rafmagnsveina ríkisins og
bar hag þeirra mjög fyrir brjósti.
Auðvitað þótti kappsömum stjórn-
anda ríkið láta of lítið af hendi
rakna til rafvæðingar sveitanna og
rekstrar en okkur fannst sem stóð-
um hina vaktina ekki rétt að sækja
það fé til sjálfstæðra rafveitna sveit-
arfélaga og um það var tekist á.
Ingólfur kom mér þá fyrir sjónir
sem harður málafylgjumaður rök-
fastur og fylginn sér.
Hann skipaði sér í raðir stjórn-
mála á vinstri væng og var trúr
þeirri stefnu alla tíð.
Á Ingólf hlóðust ótal trúnaðar-
störf fyrir Akureyrarbæ, hann sat í
bæjarstjórn í tvo áratugi og var
m.a. í stjórn Laxárvirkjunar þegar
deilur um hana risu hæst og for-
maður stjórnar Hitaveitu Akureyr-
ar þegar ákvörðun um hana var tek-
in og hún var í uppbyggingu. Það
voru erfiðir tímar, óðaverðbólga og
miklar olíuverðshækkanir sem köll-
uðu á framkvæmdir í hitaveitumál-
um víða um land.
Hann hefur því oft átt langan
vinnudag í þessum störfum auk
þess að sinna starfi umdæmisstjóra
á stóru rekstrarsvæði Rarik á
Norðurlandi eystra.
Ég átti þess kost að starfa með
Ingólfi þegar við sátum saman í
Orkuráði þrjú kjörtímabil og var
hann formaður eitt af þeim. Fann
ég þá vel hvað sanngjarn hann var
og samvinnugóður en á borð Orku-
ráðs rak ýmis erindi jarðhitamála
sem leitast var við að afgreiða án
ágreinings í ráðinu og lagði hann sig
fram um það ásamt öðrum.
Við verðum samstarfsmenn hjá
Rarik þegar að Siglufjarðarbær sel-
ur orkufyrirtæki sín árið 1991, Ing-
ólfur var framsýnn , hann beitti sér
fyrir spennuhækkun milli Ólafs-
fjarðar og Skeiðsfossvirkjunar og
nýrri háspennulínu milli Akureyrar
og Dalvíkur og aðveitustöð í Ólafs-
firði sem auka mun öryggi raforku-
flutnings út með Eyjafirði að aust-
an.
Ingólfur lét af störfum um ára-
mótin 1993–94 og ætlaði þá að
skrifa sögu rafvæðingar á Norður-
landi eystra, mér ekki kunnugt um
hvort hann lauk því verki, en sú
saga er samofin þeim verkum sem
hann lagði grunn að.
Ég þakka fyrir ánægjulegt sam-
starf og við Auður sendum Önnu og
fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur við andlát og útför Ingólfs
Árnasonar.
Sverrir Sveinsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR,
Vesturgötu 25,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala laugar-
daginn 28. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Starfsfólki líknardeildar eru færðar sérstakar þakkir.
Baldur Eiríkur Jensson,
Eyjólfur Baldursson, Þórdís Sigurgeirsdóttir,
Hólmfríður Eyjólfsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson,
Erla Eir Eyjólfsdóttir,
Baldur Kári Eyjólfsson,
Hrafn Ágúst og Eyjólfur Andri.
Hjartkær bróðir okkar og mágur,
NJÁLL GUÐMUNDSSON
byggingatæknifræðingur
frá Böðmóðsstöðum,
Vesturhúsum 2,
Reykjavík,
er látinn.
Systkini hins látna
og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ERLENDUR EINARSSON
múrarameistari,
Tjarnarstíg 9,
Seltjarnarnesi,
sem lést þriðjudaginn 31. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
6. september kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir.
Einar Erlendsson, Turid Erlendsson,
Erla Erlendsdóttir, Bragi Guðmundsson,
Árni Erlendsson, Inga Hrönn Pétursdóttir,
Snorri Erlendsson, Hanna Erlendsóttir,
Sigrún Erlendsson, Jón Ingi Haraldsson,
Helgi Erlendsson, Lilja Brynjarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín og móðursystir,
UNNUR STEFÁNSDÓTTIR
bókbindari,
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður til heimilis í Grjótagötu 4,
lést mánudaginn 30. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Olga Stefánsdóttir,
Páll Þórhallsson.
Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
KARL VALUR KARLSSON
Vallholti 22,
Ólafsvík
lést á Sjúkrahúsinu Akranesi miðvikudaginn
1. september.
Anna E. Oliversdóttir,
Júlíana Karlsdóttir,
Oliver Karlsson, Anna Guðný Egilsdóttir,
Vífill Karlsson, Jónína Erna Arnardóttir,
Helga Karlsdóttir, Jon Kaarup Bek,
barnabörn og barnabarnabarn.