Morgunblaðið - 03.09.2004, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Sölufulltrúi
Heildverslun óskar eftir að ráða sölufulltrúa
til starfa við sölu á vönduðu sælgæti og skyld-
um vörum. Við leitum að samviskusömum ein-
staklingi með góða og vandaða framkomu,
er reglusamur og hefur metnað til að takast
á við krefjandi en jafnframt gefandi starf.
Starfssvið: Sölu- og lagerstarf. Reynsla æskileg.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Uppl. eru veittar í dag á milli kl. 15 og 19 á skrif-
stofu Íslenskrar dreifingar, Skútuvogi 1e.
Múrarar
Bygg ehf. óskar eftir múrurum í almenna
múraravinnu nú þegar. Mikil mælingavinna
framundan. Getum bætt við okkur heilum
múraraflokkum . Upplýsingar í síma 693 7300.
Dönskukennari
veikindaforföll
Vegna veikindaforfalla óskar Flensborgarskól-
inn í Hafnarfirði að ráða nú þegar framhalds-
skólakennara í 100% starf til að kenna dönsku
á haustönn 2004. Til greina kemur að skipta
kennslunni milli tveggja einstaklinga.
Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem
fyrst.
Gerð er krafa um góða fagþekkingu í dönsku
ásamt kennsluréttindum. Um starfið gilda skil-
yrði 12. gr. laga nr. 86/1998.
Laun eru samkvæmt ákvæðum kjarasamnings
fjármálaráðherra og Kennarasambands
Íslands.
Umsóknarfrestur er til 10. september
2004.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum, en í umsókn þarf að greina frá
menntun (og staðfesta með ljósriti af próf-
skírteinum), fyrri störfum og öðru því sem um-
sækjandi telur að skipti máli.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Frekari upplýsingar um starfið veitir skóla-
meistari eða aðstoðarskólameistari í síma
565 0400 eða í tölvupósti, netfang:
flensborg@flensborg.is.
Umsóknirnar skulu berast til skólameistara
Flensborgarskólans, pósthólf 240, 222 Hafnar-
firði í síðasta lagi 10. september nk.
Bent er á upplýsingar um Flensborgarskól-
ann í Hafnarfirði á vefsíðu skólans
www.flensborg.is .
Skólameistari.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Viltu læra táknmál?
Námskeið í táknmáli hefjast 6. september.
Skráning og nánari upplýsingar í síma
562 7702 eða anney@shh.is
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra www.shh.is
Stúlknakór og kórskóli
Fella- og Hólakirkju
hefja vetrarstarf sitt miðvikudaginn 8. septem-
ber. Innritun fer fram í safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju sunnudaginn 5. september kl. 12-13.
Æfingar kórskólans (7-9 ára) verða miðviku-
daga kl. 16.30-17.30 og föstudaga kl. 17-18.
Æfingar stúlknakórs (10 ára og eldri) verða
mánudaga kl. 15-16 og miðvikudaga
kl. 16-17.30.
Nánari upplýsingar veitir Lenka Mátéová í síma
564 5027 og 864 6627 og Þórdís Þórhallsdóttir
í síma 551 0226 og 869 4544.
Kórstjórar.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
1, Ísafirði þriðjudaginn 7. september 2004 kl. 14.00 á eftirfar-
andi eignum:
Auðbjörn ÍS-17, sk.skr.nr. 1888, ásamt öllum rekstrartækjum og búnaði,
þingl. eig. Andvaraútgerðin sf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Brekka, LNR. 140945, ehl. gþ., Ísafjarðarbæ, þingl. eig. Snævar Guð-
mundsson, Anna Guðný Gunnarsdóttir, Eygló Kristjánsdóttir, Jó-
hannes Kristjánsson og Oddbjörn Stefánsson, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki Íslands og Lánasjóður landbúnaðarins.
Brimnesvegur 6, fnr. 0212-6337, Flateyri, þingl. eig. Malgorzata
Wlodarczyk, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær.
Eyrargata 6, 0401, fnr. 211-9314, Ísafirði, þingl. eig. Margrét Þóra
Óladóttir og Magnús Haraldur Haraldsson, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður.
Fjarðargata 16, 0101, fnr. 212-5504, Þingeyri, þingl. eig. Kristín Auður
Elíasdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarstræti 1, 0101, fnr. 212-5561, Þingeyri, þingl. eig. Þórður Sig-
urðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarstræti 8, 0101 og 0102, Ísafirði, þingl. eig. Framsóknarfélag
Ísfirðinga, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær.
Hlíðargata 42, 0101, fnr. 212-5595, Þingeyri, þingl. eig. Jónína Kristín
Sigurðardóttir og Konráð Kristinn Konráðsson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Ísafjarðarbær og Tryggingamiðstöðin hf.
Hrönn ÍS-74, sk.skr.nr. 0241, ásamt öllum rekstrartækjum, þingl.
eig. Nökkvi, gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Jón Guðmundsson ÍS-74, sk.skr.nr. 1390, þingl. eig. Sæörn ehf.,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf.
Linda Björk ÍS-222, sk.skr.nr. 6783, þingl. eig. Haraldur Árni Haralds-
son, gerðarbeiðendur H. Hauksson ehf., Sparisjóður Vestfirðinga
og Tækniþjónusta Vestfjarða ehf.
Mjallargata 1, 0302, fnr. 212-0050, Ísafirði, þingl. eig. Jón Benóný
Hermannsson og Jenný Edda Jónasdóttir, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður.
Sandaland 140905, 0102, fnr. 212-5641, Ísafjarðarbæ, þingl. eig.
Kristín Auður Elíasdóttir, gerðarbeiðandi Ferðamálasjóður.
Stakkanes 16, 0101, fnr. 212-0402, Ísafirði, þingl. eig. Magnús Jóns-
son og Málfríður Hjaltadóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirð-
inga.
Suðurgata 870, 0101, Ísafirði, þingl. eig. Suðurgata 9, Ísafirði ehf.,
gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Túngata 21, 0301, fnr. 212-0787, Ísafirði, þingl. eig. Guðmundur
Matthías Guðmannsson og Marta Pálsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðal-
ána- sjóður.
Ólafur Hallgrímsson.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
1. september 2004.
ÞJÓNUSTA
Móðuhreinsun
Er komin móða eða raki milli glerja?
Móðuhreinsun,
símar 587 5232 og 897 9809.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Síðsumarhátíð
fjölskyldunnar
Fjölskyldudagur Astma- og ofnæmisfélagsins
verður haldinn í Endurhæfingarmiðstöð
Reykjalundar sunnudaginn 5. september nk.
og hefst kl. 12.00 á Reykjalundi í Mosfellsbæ.
Hátíðin fer fram í nýbyggingu fyrir sjúkraþjálf-
un og er aðkoman bakatil.
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í
ofnæmis- og ónæmisfræðum barna, verður
á staðnum til að veita ráðgjöf og svara spurn-
ingum varðandi astma, ofnæmi o.þ.h. Að venju
verður margt spennandi í boði fyrir fjölskyld-
una. Þar má t.d. nefna: Sund í glæsilegri sund-
laug, borðtennis, ratleiki og hoppikastala.
Einnig verður boðið upp á grillaðar pylsur, ham-
borgara og meðlæti, auk svalandi drykkja og
aðra hressingu. Kaffi og te verður á könnunni.
Munið að hafa með sundföt og létta lund upp
á Reykjalund.
Aðgangur er ókeypis. Allir félagsmenn
og fjölskyldur þeirra eru velkomnar.
Æskilegt er að skrá þáttöku með tölvupósti á
netfang félagsins ao@ao.is.
Nýir félagar geta skráð sig í félagið í tölvupósti
eða á vef www.ao.is.
Stjórnin.
TILKYNNINGAR
Breyting á deiliskipulagi á
svæði 5 í Dagverðarnesi,
Skorradalshreppi
Sveitarstjórn Skorradalshrepps samþykkti
þann 11. ágúst 2004 tillögu að breytingu á deil-
iskipulagi á svæði 5 í Dagverðarnesi.
Breytingin felst í því að lóð nr. 72 er skipt í tvær
lóðir, lóð nr. 74 er skipt í þrjár lóðir og lóð nr.
73 verður skilgreind sem opið svæði.
Breyting var auglýst samkvæmt 1. mgr. 26.
gr. Skipulags- og byggingarlaga frá 13. febrúar
til 12. mars 2004. Fram kom sameiginleg at-
hugasemd frá eigendum lóða nr. 70, 71, 76-84.
Í framhaldi af fyrrnefndum athugasemdum
var gert samkomulag landeigenda á svæði 5
í Dagverðarnesi, þann 15. júní sl. Áður auglýst-
ri tillögu var breytt í samræmi við samkomu-
lagið.
Breytingartillagan hefur verið send Skipulags-
stofnun til athugunar sem mun gera athuga-
semdir ef form- og/eða efnisgallar eru á því.
Breytingin hlýtur gildi við auglýsingu í B-deild
Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um deiliskipu-
lagið og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið
sér til skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps,
Ólafs Guðmundssonar, Hrossholti.
Grund, 31. ágúst 2004,
oddviti Skorradalshrepps.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Samkoma í umsjá unga fólksins
kl. 20.30. Predikari Thomas
Jonsson frá biblíuskólanum hjá
Livets Ord í Svíþjóð.
Á morgun, laugardag, er
kennsla með Thomasi frá kl.
10.00 til 16.30 og svo samkoma
kl. 20.00, þar sem hann predikar.
Kennt verður um bæn.
Allir velkomnir
www.vegurinn.is