Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands
námu í gær 3,3 milljörðum króna.
Mest voru viðskipti með hlutabréf,
fyrir um 2.247 milljónir króna en
með íbúðabréf fyrir um 746 milljónir
króna. Mestu hlutabréfaviðskipti
urðu með bréf Kaupþings Bún-
aðarbanka hf. eða fyrir um 569 millj-
ónir króna. Af félögum í úrvalsvísitölu
Aðallista varð mest hækkun á bréf-
um Actavis Group að 2,8% en mest
lækkun á bréfum Össurar, 1,2%. Úr-
valsvísitalan hækkaði í gær um 0,3%
og er nú 3.857 stig.
Hækkun í Kauphöll
● VEXTIR af almennum útlánum
Íbúðalánasjóðs verða óbreyttir,
4,15%. Stjórn sjóðsins ákvað þetta
með hliðsjón
af niður-
stöðum úr út-
boði á íbúða-
bréfum sem
lauk síðastliðinn föstudag.
Ávöxtunarkrafa tekinna tilboða í
útboði Íbúðalánasjóðs á íbúðabréf-
um var á bilinu 3,45% – 3,55%. Vegin
heildarávöxtunarkrafa án þóknunar
var 3,51% en 3,53% með þóknun.
Við ákvörðun á vöxtum af almenn-
um útlánum Íbúðalánasjóðs hefur
sjóðurinn lagt á 0,6 prósentustiga
vaxtaálag vegna rekstrar, varasjóðs
og uppgreiðsluáhættu, sem gefur
vextina 4,13% að þessu sinni.
Vextir af útlánum Íbúðalánasjóðs
voru lækkaðir úr 4,3% í 4,15% í nóv-
ember á síðasta ári í kjölfar útboðs á
íbúðabréfum. Vegin ávöxtunarkrafa
tekinna tilboða með þóknun var þá
3,55%.
Óbreyttir útlánsvextir
hjá Íbúðalánasjóði
● HAGVÖXTUR á síðasta ári var 5,2%
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Hagstofu Íslands, samanborið við
4,2% árið áður. Þetta er mesti hag-
vöxtur frá árinu 2000, en er þó undir
spá Seðlabankans, sem gerði ráð fyr-
ir 5,4% hagvexti, og spá fjármálaráðu-
neytisins, sem hljóðaði upp á 5,8%.
Fram kemur í tilkynningu frá Hag-
stofunni að hagvöxturinn á síðasta ári
hafi einkennst af miklum vexti einka-
neyslu, sem óx um 7,5%, og fjárfest-
ingum, 12,8%. Þjóðartekjur á síðasta
ári uxu minna en landsframleiðslan á
árinu, eða um 4,6%. Segir Hagstofan
að það stafi af lakari viðskiptakjörum
og auknum vaxta- og arðgreiðslum til
útlanda.
„Þjóðaútgjöldin uxu því langt um-
fram landsframleiðsluna eða um
7,7% og leiddi það til verulegs halla á
vöru- og þjónustuviðskiptum við út-
lönd.“
Hagvöxturinn á fjórða ársfjórðungi
síðasta árs var minni en verið hefur á
undanförnum ársfjórðungum. Sam-
kvæmt tilkynningu Hagstofunnar er
áætlað að landsframleiðslan hafi vax-
ið um 3,8% að raungildi á fjórða árs-
fjórðungi 2004.
Einkaneysla óx um 9,2% á fjórða
ársfjórðungi og er það mesta aukning
sem verið hefur á einum ársfjórðungi
undanfarin fimm ár. Hagstofan segir
að sem fyrr megi rekja þennan vöxt að
stærstum hluta til kaupa á bílum og
til útgjalda erlendis. Heldur hafi dreg-
ið úr vexti fjárfestinga, sem uxu um
7,8% frá sama fjórðungi ársins 2003.
Samneyslan óx um 1,3% á fjórða árs-
fjórðungi 2004 og er það nokkru
minni vöxtur en verið hefur undanfarin
ár.
Mesti hagvöxtur
frá árinu 2000
TALSVERÐAR hræringar hafa
verið í eignarhaldi á Sterling síð-
ustu ár, að því er segir í norska
blaðinu Aftenposten. Sterling var
selt út úr dönsku Tjæreborg-sam-
stæðunni árið 1986 og varð gjald-
þrota 1993. Í kjölfarið keyptu
stjórnendur félagsins það og loks
keyptu dótturfélög Fred. Olsen
90% hlutafjár í Sterling árið 1996.
Þau áttu orðið allt hlutafé í félag-
inu þegar það var selt íslenska
eignarhaldsfélaginu Fons.
Aftenposten segir Harald
Andresen, forstjóra Sterling,
löngum hafa haldið því fram að
þörf væri á meiri samþjöppun í
flugrekstri. Flugfélögin séu of
mörg og of auðvelt að stofna ný
lágfargjaldaflugfélög en það leiði
til of mikils framboðs og mjög lágs
verðs. Andresen er sagður munu
snúa aftur til sinna fyrri starfa
sem aðstoðarforstjóri Fred. Olsen
& co. í Osló þegar gengið hefur
verið frá sölunni á Sterling, en
þess er vænst að það verði fyrir 1.
maí nk. Hann verður nýjum eig-
endum til ráðgjafar í allt að fjóra
mánuði. Kaupverðið er rúmar 400
milljónir danskra króna en þar af
greiðast 300 milljónir danskra
króna við kaupsamning en afgang-
urinn eftir 3 ár.
„Það er ekki mikið meira en
mánuður síðan annar Íslendingur,
milljarðamæringurinn Björgólfur
Thor Björgólfsson, eignaðist 6,2%
hlutafjár í Finnair. Kaupin voru
gerð í gegnum fjárfestingarfélag
hans, Burðarás, og hann mun hafa
greitt 302 milljónir danskra króna
fyrir hlutinn. Hann er næststærsti
hluthafinn í i Finnair,“ segir í frétt
iMarkedet í gær sem jafnframt
rifjar upp að nýir eigendur Sterl-
ing hafi áður verið stórir hluthafar
í Flugleiðum. Sterling er nýjasta
fyrirtækið í röð fyrirtækja sem Ís-
lendingar hafa keypt í útlöndum á
síðustu misserum, segir í sænska
blaðinu Dagens Industri. Haft er
eftir markaðsstjóra Sterling, Stef-
an Vilner, að hinir nýju eigendur
Sterling, í eignarhaldsfélaginu
Fons, hafi áhuga á að víkka starf-
semina frekar út í Evrópu og
kaupin á Sterling sé eðlilegt skref
í þá áttina. „Tengsl Íslands við
Danmörku eru sterk og Sterling
er leiðandi lágfargjaldaflugfélag á
Norðurlöndum,“ segir Vilner og
fagnar því mjög að fá eigendur að
félaginu sem áhuga hafa á útrás.
Blaðið vitnar í tímaritið Veckans
Affärer þar sem segir að Íslend-
ingar hafi á sl. þremur árum keypt
erlend fyrirtæki að virði um 26
milljarða sænskra króna.
Samstarf Sterling og Norwegian
Air er einnig til umræðu í nor-
rænu blöðunum en það nær til um
þrettán flugleiða. Aftenposten seg-
ir kaupin á Sterling opna mögu-
leika á yfirtöku á Norwegian sem
sýni sig í því að hlutabréf í flug-
félaginu fari ört hækkandi á mark-
aði. Um hádegisbil hafði verð
hlutabréfa í félaginu hækkað um
11%.
Dragi úr fargjaldastríði
Þá kemur fram í Jyllands-Post-
en að danski bankinn Jyske Bank
telji að salan á Sterling til Íslend-
inga kunni að leiða til þess að
heldur dragi úr fargjaldastríði á
norrænum flugmarkaði þar sem
líklegt sé að nýir eigendur Sterl-
ing muni leggja áherslu á að fyr-
irtækið skili hagnaði.
Segir bankinn að offramboð hafi
verið á flugsætum á norrænum
markaði á síðustu árum og það
hafi haft í för með sér harðvítugt
verðstríð. Tap á rekstri Sterling
nam nærri 1,3 milljörðum króna á
síðasta ári og segir bankinn að
verði rekstrinum snúið við kunni
verðþrýstingurinn að minnka.
Þetta muni m.a. koma sér vel fyrir
flugfélagið SAS.
Fjallað er um söluna á Sterling í
danska blaðinu Børsen í dag og
m.a sagt að nýjir eigendur ætli sér
nú að snúa taprekstri Sterling í
hagnað, líkt og þeir gerðu hjá Ice-
land Express þar sem tapreskstri
hafi á hálfu ári verið snúið í 370
milljóna króna hagnað.
Hræringar í eignarhaldi
!"#
$"%&&
'
' (
)
%&##
*$"
%"!&&
%*###
%+,-
./
)
,%
%%"
&&
$*
%+%- ./
)
#./
%&&!##0
,&
1
###2
Scanpix
KYNNINGARERINDI um gerð
viðskiptaáætlana verða haldin
víða um land á næstunni, í
tengslum við þjóðarátak um ný-
sköpun. Þjóðarátakið er lands-
keppni um gerð viðskiptaáætlana,
sem haldin er nú í fimmta skipti
hér á landi.
G. Ágúst Pétursson,
verkefnisstjóri þjóðar-
átaksins, segir að
átakinu sé meðal ann-
ars ætlað að stuðla að
markvissari vinnu-
brögðum við sköpun
nýrra tækifæra í at-
vinnulífinu og laða
fram áhugaverðar
hugmyndir að nýsköp-
un. Veitt séu vegleg
peningaverðlaun fyrir
bestu viðskiptaáætl-
anirnar sem berist í
keppnina. „Aðstand-
endur átaksins telja
mikilvægt að haldið verði áfram á
þeirri braut sem mörkuð var með
fyrstu samkeppninni um gerð við-
skiptaáætlana á árinu 1999, til að
stuðla að aukinni fjölbreytni í at-
vinnulífinu og bæta stöðu þess í
ört vaxandi alþjóðlegri sam-
keppni,“ segir Ágúst.
Í síðustu samkeppni um gerð
viðskiptaáætlana, sem haldin var
á árinu 2003, skráðu alls um 1.300
manns sig til þátttöku. Um 400
manns sóttu námskeið sem haldin
hafa verið í tengslum við keppn-
ina og um 70 viðskiptaáætlanir
bárust inn í keppnina. Sam-
keppnin á þessu ári er frábrugðin
að því leyti að ekki þarf að skrá
sig til þátttöku sérstaklega. Frest-
ur til að skila inn viðskiptaáætlun
í samkeppnina er til 1. september
2005.
Fyrsta erindið á morgun
Fyrsta kynningarerindið um gerð
viðskiptaáætlana í tengslum við
þjóðarátakið verður á morgun,
miðvikudag, í félagsmiðstöðinni
Garðabergi við Garðatorg í
Garðabæ. Daginn eftir, fimmtu-
daginn 17. mars, verður erindi í
safnaðarheimilinu á Reyðarfiðri,
og mánudaginn 21. mars í hús-
næði Háskólans í Reykjavík.
Þeir sem standa að þjóðarátak-
inu eru Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins, Íslandsbanki og
Morgunblaðið, en einnig styðja
það Háskólinn í Reykjavík, Impra
nýsköpunarmiðstöð og Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins.
Upplýsingar um skráningu á
kynningarerindin og fleira í
tengslum við samkeppnin um
gerð viðskiptaáætlana má finna á
heimasíðu verkefnisins sem er
www.nyskopun.is.
Námskeið hefjast vegna
nýsköpunarsamkeppni
Morgunblaðið/Þorkell
Nýsköpun G. Ágúst Pétursson verkefnisstjóri.
GREININGARDEILD Lands-
banka Íslands spáir 0,2% hækkun
vísitölu neysluverðs (VNV) í apríl.
Gangi spáin eftir verður tólf mán-
aða verðbólga 4,3% og því enn yfir
efri mörkum verðbólgumarkmiðs
Seðlabankans.
Í Vegvísi greiningardeildarinn-
ar í gær kemur fram að húsnæð-
isliðurinn sé stór óvissuþáttur í
spánni, enda hefur hann haft um-
talsverð áhrif til hækkunar und-
anfarna mánuði. Síðustu tvo mán-
uði hafi húsnæðisverð hækkað um
6,1% og hafi því um 2% áhrif til
hækkunar húsnæðisliðarins í apr-
íl. Í spánni er gert ráð fyrir áfram-
haldandi hækkun fasteignaverðs í
apríl en þó er búist við minni
hækkunum en undanfarna tvo
mánuði. Þá hafa verðhækkanir
vegna útsöluloka auk þess áhrif til
hækkunar vísitölu neysluverðs og
í spánni er gert ráð fyrir að fata-
og skóliðurinn nái því gildi sem
hann var í fyrir útsölur. Eins veg-
ur sterkt gengi krónunnar á móti
hækkunum í spánni, það hefur
áhrif á verð innfluttra mat- og
drykkjarvara og er auk þess farið
að hafa áhrif á verð bifreiða.
Greiningardeildin telur einnig lík-
legt að eldsneytisverð verði
hækkað á næstunni.
Spá 4,3% verðbólgu
!"#"$
% "&' (&
)* &# +&(&
)#&
,&' (& % "&'
-$"
-$'
$ !"#
.# /
01$/
01 !/ $ &#(
2
! 1 % "&'
3 &'
31 /&
4(&
,56& /7 &&
89$/
0%!
0" :"# 0"&'
0"1 ;
<;##  &
= && " &
>17 11 ?06($#
!"
(
! $"' @;//
,&' 51 % "&' <6 6
!#$%&
AB@C
05
$
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
$; &#
; $
? ? ?
?
?
?
?
?
? ?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
D EF
D EF
D ? EF
D EF
D ?
EF
D EF
?
?
?
D EF
?
D EF
?
?
D ?EF
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
3$ "'
'# &
< "( 5 " '# G
) 0"
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
= 5 *+
<3 H #&" !/"'
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
<3? I 1 1"'&' " "/
8 'J
0KL E
E
!<0@
MN
E
E
BB .-N
E
E
)!N
8 $
E
E
AB@N MO 4&$
E
E