Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 14

Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT STJÓRNVÖLD á Taívan fordæmdu í gær sam- þykkt kínverska þingsins frá því fyrr um daginn sem heimilar kínverskum ráðamönnum að beita hervaldi geri Taívanar sig líklega til að lýsa yfir sjálfstæði. Samþykkt þingsins þykir fallin til að auka spennu í þessum heimshluta. Talsmaður George W. Bush Bandaríkjaforseta, Scott McClellan, sagði samþykkt Kínaþings vera slæma þróun. Lagði hann áherslu á að leysa bæri deilurnar um stöðu Taívans með friðsamlegum hætti. Evrópusambandið gaf út yfirlýsingu í gær- kvöldi og hvatti deiluaðila til að forðast „einhliða aðgerðir“. Sambandið hefur um hríð rætt hug- myndir um að aflétta vopnasölubanni sem sett var á Kína eftir blóðbaðið í Peking 1989. Banda- ríkjamenn eru mjög andvígir því að banninu verði aflétt og segja m.a. að slíkar aðgerðir gefi röng skilaboð um að Pekingstjórnin geti átölulaust komist upp með að hóta Taívönum hervaldi. „Þessi alvarlega ögrun er ekki aðeins slæm fyr- ir samskipti ríkjanna heldur veldur hún tilfinn- ingalegum skaða hjá taívönsku þjóðinni, hindrar frelsi og lýðræði í Taívan og hefur alvarleg áhrif á stöðu öryggismála í Austur-Asíu,“ sagði Joseph Wu, formaður ráðs á vegum taívönsku ríkis- stjórnarinnar sem fjallar um samskipti við Kína. Cho Jung-tai, talsmaður taívönsku ríkisstjórn- arinnar, sagði nýju lögin jafngilda því að heimild til hernaðar hefði verið veitt. Kínverskir ráðamenn lögðu hins vegar áherslu á að nýju lögunum væri ætlað að „styrkja sam- skipti“ Kína og Taívans. Hugsunin væri sú að vinna að „friðsamlegri sameiningu“ og því bæri ekki að túlka samþykktina sem „stríðslög“. Hugs- unin væri sú að „hefta aðskilnaðarsinna“ í Taívan og tryggja frið og stöðugleika á Taívan-sundi. Stjórnvöld í Kína líta á Taívan sem kínverskt landsvæði og í samþykkt þingsins er sérstaklega kveðið á um að valdbeiting teljist réttlætanleg takist ekki að sameina ríkin á ný með friðsam- legum hætti. Kínverskir þjóðernissinnar flúðu til Taívan árið 1949 er borgarastríði á meginlandinu lauk með valdatöku kommúnista. Enginn greiddi atkvæði gegn nýju lögunum í Peking. Viðstaddir risu úr sætum og fögnuðu með lófaklappi. Lögin öðlast þegar gildi. Þingheimur samþykkti jafnframt áform stjórn- valda um að auka framlög til hermála um tæp 13% í ár. Verða þau hér eftir 244,65 milljarðar júana sem svara til tæpra 1800 milljarða króna. Samráð á vettvangi ANZUS Hótun Kínverja um að beita hervaldi hefur vakið viðbrögð japanskra stjórnvalda sem hvetja þjóðirnar til að hefja friðsamlegar viðræður þeg- ar í stað. „Ég vil að báðir aðilar vinni af öllum mætti að því að ná friðsamlegri lausn þannig að áhrifin verði ekki neikvæð,“ sagði Junichiro Koiz- umi forsætisráðherra í gær. Ef til árásar kæmi þykir líklegt að Bandaríkja- menn kæmu Taívan til varnar en um 50.000 bandarískir hermenn eru í Japan og 35.000 í Suð- ur-Kóreu. Japanar og Ástralar, sem eru í hernaðarbanda- lagi með Bandaríkjunum, myndu ef til vill einnig dragast inn í deiluna. Alexander Downer, utan- ríkisráðherra Ástralíu, sagði að ríkisstjórnin þar í landi myndi ráðgast við Bandaríkjamenn ef líkur væru á átökum en kveðið er á um samvinnu á milli ríkjanna í ANZUS-samkomulaginu sem gert var fyrir 54 árum. Hann sagði hins vegar annað mál hvort Ástralía myndi taka þátt í átökum. „Við myndum verða að ráðgast við Bandaríkja- mennina eins og gert er ráð fyrir í ANZUS- samkomulaginu en það er allt annað en að segja að við myndum ákveða að fara í stríð,“ sagði Downer í útvarpsviðtali. Ekki voru allar Asíuþjóðir þó ósáttar við ákvörðun Kínverja, Pakistanar sem löngum hafa átt góð samskipti við Kína, lýstu því yfir að þeir styddu nýju lögin. Lögin eru í tíu liðum. Í þeim er m.a. kveðið á um réttinn til að verja „fullveldi og landfræðilega einingu Kína“ með „öðrum hætti en friðsamleg- um“. Ekki er fjallað nánar um hver viðbrögðin verði ákveði Taívanar að stíga skrefið til fulls en sérfróðir segja að í því tilviki kynnu Kínverjar að setja á hafnbann, ráðast að Taívan með eldflaug- um eða jafnvel fyrirskipa allsherjar innrás. Stjórnvöld á Taívan for- dæma hótanir Kínverja Þing Kína heimilar valdbeitingu hyggist Taívanar lýsa yfir sjálfstæði Peking. AFP, AP. UM 150 manna í frumstæðum og fá- mennum ættflokki er enn saknað á Nicobar-eyjum, rúmum tveimur mánuðum eftir náttúruhamfarirnar við Indlandshaf. Á Andaman- og Nicobar-eyjum búa sex frumstæðir ættflokkar og fimm þeirra eru orðnir svo fámenn- ir að óttast er að þeir deyi út. Í einum þeirra, Shompen, voru aðeins um 380 manns fyrir flóð- bylgjurnar miklu og um 150 þeirra er saknað, að sögn talsmanns ætt- flokkaráðs á eyjunum og manna sem leita að frumbyggjunum. Andaman- og Nicobar-eyjar til- heyra Indlandi og indverskir emb- ættismenn á eyjunum fullyrtu ný- lega að allir í fámennu ættflokk- unum fimm væru heilir á húfi. Þeir viðurkenndu þó að þeir hefðu ekki enn fundið alla frumbyggjana og reynt yrði að hafa uppi á þeim áður en monsún-regntímabilið hefst um miðjan næsta mánuð. Hafa búið á eyjunum í 60.000 ár Sérfræðingar gagnrýndu um- mæli embættismannanna og sögðu að ekki væri hægt að fullyrða nokk- uð um afdrif frumbyggjanna fyrr en haft yrði uppi á þeim. Auk Shompen hefur lítið sam- band verið haft við tvo ættflokka, Sentinela og Jarawa, og hugsanlegt þykir að náttúruhamfarirnar hafi valdið einhverju manntjóni meðal þeirra. Ættflokkarnir eru sagðir á stein- aldarstigi og hafa búið á eyjunum í minnst 60.000 ár.  !"#$"% &''($) '  ( (   $   )**$((&  (+ + *, - .,(/%  & %* 0 10<"'   "  1 &  23 %* 0 10@ &   " (# && * $1 * *$  $; "#  1&,* *,(/% 4  5                 1            %* 0 ? 10  $  6" && "  "5"$# "7(;"#/& 1 "  1( ( %* 0 10,   1$ *5  "9/  &' && 6( - .,(/%  ( +  &  / %* 0  103$ 1"#  1 5(+1 $;/&& 1$  $&  &  6"&  # '$   1 "" (;## $;/& I  $  1#  5 6"&1    - . %* 0 10-# $ & $& $ 1;&& 6" & $11'  "5  1$#(      1     !       "    *  1 - . 1 %  %   #$ $ %     Um 150 frum- byggja saknað Campbell-flóa. AFP. KOSOVO-MAÐURINN Ramush Haradinaj lýsti sig saklausan af öllum ákærum er hann kom fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í fyrsta skipti í gær. Haradinaj, sem sagði af sér embætti forsætisráðherra í Kosovo í síð- ustu viku, er sakaður um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni í átökum Serba og Kosovo-Albana 1998-1999. Ákæruliðirnir eru alls 37 og m.a. er Haradinaj ákærður fyrir morð, nauðganir og ofsóknir á hendur óbreyttum Serbum í Kosovo, í því augnamiði að „hreinsa“ héraðið af Serbum. Haradinaj var á sínum tíma einn forystumanna Frels- ishers Kosovo (UCK) sem barðist fyrir sjálf- stæði Kosovo frá Serbíu. Á myndinni sést Haradinaj heilsa einum verjenda sinna í réttarsalnum í gær. Aðal- verjandi hans, Rodney Dixon, sagði í gær að farið yrði fram á að Haradinaj fengi að fara frjáls ferða sinna þar til réttarhöldin hæfust. Reuters Lýsti sig sak- lausan af öll- um ákærum ALESSANDRA Mussolini, sonar- dóttir Benitos heitins Mussolinis, einræðisherra á Ítalíu, hóf í gær hungurverkfall til að mótmæla því, að flokki hennar var bannað að taka þátt í sveitarstjórnarkosn- ingum í næsta mánuði. Líkti hún ákvörðuninni við „valdarán“ en dómarinn, sem kvað hana upp, seg- ir, að á meðmælalista með flokki Alessöndru, „Öðrum kosti“, hafi verið 900 falsaðar undirskriftir, þar á meðal leikara, dómara og eins hershöfðingja.Reuters Fastað í mótmæla- skyni ÞRÝSTINGUR á Sinn Féin, stjórnmálaarm Írska lýðveldis- hersins (IRA), jókst enn í gær en þá var tilkynnt að bandaríski öld- ungadeildarþingmaðurinn Ed- ward Kennedy hefði ákveðið að ekkert yrði af árlegum fundi hans og Gerry Adams, leiðtoga Sinn Féin, á Degi heilags Patreks nk. fimmtudag. Ástæða ákvörðunar- innar væri „áframhaldandi glæpa- starfsemi“ IRA. Morðið á kaþólikkanum Robert McCartney 30. janúar sl. á krá í Belfast og bankarán sem framið var í borginni fyrir jól hafa valdið því að Sinn Féin sætir nú alls staðar vaxandi gagnrýni en IRA er sakað um að bera ábyrgð á hvoru tveggja. Forráðamenn Sinn Féin sverja raunar af sér alla ábyrgð á IRA en engum blandast hugur um að samtökin tengjast tryggðabönd- um. Fær ekki að stunda fjáröflun Allt frá því að Bill Clinton Bandaríkjaforseti ákvað fyrst fyr- seti hefur á hinn bóginn boðið systrum McCartneys, sem og unnustu hans, í veisluna en bar- átta þeirra fyrir því að fá mennina sem myrtu bróður þeirra leidda fyrir dómara hefur vakið mikla at- hygli á Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum. Tími kominn á IRA Adams sagðist í gær harma þá ákvörðun Teds Kennedy að neita að eiga með honum fund. Kennedy er hins vegar ekki eini stuðningsmaður lýðveldissinna á Norður-Írlandi sem snýr bak við þeim, fulltrúadeildarþingmaður- inn Peter King sagði í samtali við írska ríkisútvarpið (RTÉ) að tími væri til kominn að IRA hætti starfsemi. King hefur um árabil verið einn öflugasti stuðnings- maður norður-írskra lýðveldis- sinna í Bandaríkjunum og jafnvel kallað liðsmenn IRA „frelsis- hetjur“ en hann segir nú að Bandaríkjamenn eigi „erfitt með að sjá hvað réttlæti áframhald- andi tilvist IRA“. ir rúmlega tíu árum að veita Gerry Adams vegabréfsáritun til Bandaríkjanna hefur Adams farið þangað í fjáröflunarferð um þetta leyti árs, þ.e. í tengslum við há- tíðahöld vestra vegna Dags heilags Pat- reks 17. mars – en það voru einmitt írskir innflytjendur í Bandaríkjun- um sem fyrst tóku upp þann sið að halda veglega upp á dag verndardýrlings Írlands. Nú ber hins vegar svo við, ef eitthvað er að marka frétt The Times í gær, að bandarískir emb- ættismenn hafa tjáð Sinn Féin að ekki sé hægt að una því að Adams noti ferð sína að þessu sinni til að safna fé til handa samtökum lýð- veldissinna á Norður-Írlandi. Adams er aukinheldur ekki boðið til hátíðahalda í Hvíta húsinu, George W. Bush Bandaríkjafor- Kennedy neitar að hitta Adams Boston, Belfast. AFP, AP. Gerry Adams Leiðtogi Sinn Féin ekki við veisluhöld í Hvíta húsinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.