Fréttablaðið - 24.05.2003, Blaðsíða 7
10 24. maí 2003 LAUGARDAGUR
DUNCAN OG NOWITZKI
Tim Duncan (San Antonio Spurs) og Dirk
Nowitzki (Dallas Mavericks) berjast um
frákast í leik liðanna á miðvikudag.
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð
TilboðTilboðTilboðTilboðTilboð
Garðverkfærin frá Black&Decker eru einstaklega hljóðlát og umhverfisvæn.
Þau eru létt og meðfærileg í notkun og jafnframt þægileg að þrífa. Losaðu þig
við áhyggjur af bensíni og gangtruflunum - fáðu þér Black&Decker í garðinn!
Sumardagar
B&D sumardagar í Verkfæralagernum 22.-24. maí
Kan
t-
sker
i
fylg
ir!
20
me
tra
snú
ra
fylg
ir m
eð
20 metrasnúrafylgir með
Rafmagnssnúra að verðmæti 2.500 kr. fylgir með!
B&D GT260s
verð: 11.500 kr.
Tilboð aðeins: 8.900 kr.
Rafmagnssnúra að verðmæti 2.500 kr. fylgir með!
B&D GT350s
verð: 12.900 kr.
Tilboð aðeins: 9.800 kr.
Kantskeri að verðmæti 4.900 kr. fylgir með í kaupunum!
B&D GR385
verð: 33.600 kr.
Tilboð aðeins: 24.900 kr.
VERKFÆRALAGERINN
Skeifunni 8, Reykjavík, s. 588 6090. opið mán.-fim. frá kl. 9-18, fös. 9-19, lau. 10-16.
Skoska knattspyrnan:
Eitt mark skilur fjendurna að
FÓTBOLTI Skosku deildakeppninni
lýkur á morgun og eins og oftast
áður eru það erkifjendurnir Celtic
og Rangers sem berjast um titil-
inn.
Keppnin í vetur hefur verið
einstaklega jöfn. Eftir tæplega tíu
mánaða baráttu og 37 leiki skilur
aðeins eitt mark félögin að. Bæði
hafa 94 stig og markatala beggja
er hagstæð um 68 mörk. Rangers
hefur hins vegar skorað 95 mörk
en Celtic 94. Þar skilur á milli.
Verði liðin jöfn eftir leiki sunnu-
dagsins leika þau úrslitaleik um
titilinn. Skotar gera ekki upp á
milli liða með árangri í innbyrðis
viðureignum. Celtic hefði haft
hag af því.
Celtic heimsækir Kilmarnock á
morgun en Rangers á heimaleik
gegn Dunfermline. Rangers er í
sterkari stöðu því félagið sigraði í
öllum þremur deildarleikjunum
gegn Dunfermline í vetur og skor-
að 12 mörk gegn einu. Rangers sló
einnig Dunfermline út úr báðum
bikarkeppnunum. Celtic gerði hins
vegar 1:1 jafntefli í Kilmarnock
um miðjan desember. ■
CELTIC
Henrik Larsson fagnar seinna marki sínu gegn Porto á miðvikudag. Celtic á í harðri bar-
áttu við Rangers um skoska meistartitilinn en keppninni lýkur á morgun.
Landsbankadeildin:
Þrír leikir verða á dagskránni í dag
KNATTSPYRNA Önnur umferð Lands-
bankadeildarinnar í knattspyrnu
hefst í dag með þremur leikjum.
ÍA fær Þróttara uppá Skaga, KA
býður FH velkomna norður og
Valsmenn freista þess að sigra
ÍBV í fyrsta sinn í árafjöld.
ÍBV - Ragnar Sigurjónsson
„Við verðum illviðráðanlegir eft-
ir þetta tap um daginn gegn KA.
Þetta er bara spurningin um dags-
formið og leikgleðina. Ég held að
mínir menn komi miklu ákveðnari
til leiks núna. Þá var ég alls ekki
sáttur, rosalegt að missa mann útaf,
en þegar þetta fer að spilast saman
þá eigum við ágæta möguleika. Ég á
von á að sjá liðið um miðja deild að
móti loknu, það eru enn nokkrir
veikleikar sem þarf að laga og þeg0-
ar það kemur þá er allt hægt.“
Valur - Jón Grétar Jónsson
„Við vinnum leikinn! Alveg
kominn tími á það. Það er upp-
gangstímabil framundan hjá fé-
laginu og við ætlum okkur að
komast þangað sem við eigum að
vera, á toppinn. Það hefur aðeins
vantað á að framherjarnir setju
inn mörkin en nú kemur að því.
Það er langt síðan við unnum
eyjamenn síðast og við tökum
þennan, ekki stórt, en við höfum
þetta af. ■RAGNAR SIGURJÓNSSON JÓN GRÉTAR JÓNSSON
Golfvell-
irnir aldrei
verið betri
Starfsemi golfklúbba er nú komin í fulla sveiflu
og yfir eitt þúsund mót framundan í sumar.
Golfarar eru hamingjusamir með ástand valla.
GOLF Allt frá áramótum hafa
golfarar getað stundað íþrótt sína
þar sem veðurblíða og gott ástand
valla hefur verið með eindæmum
gott.
Yfir eitt þúsund mót eru áætluð
þetta sumarið á völlum landsins og
þau stærstu eru í Toyota-mótaröð-
inni sem hefst um helgina hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur. Þar leiða
saman kylfur sínar stærstu nöfnin
í íslenska golfheiminum, 90
kylfingar í hverju móti.
Golfáhugamenn eru almennt
ákaflega bjartsýnir á gott sumar
og virðist vera sama sagan hvar-
vetna í landinu.
„Það liggur vel á mönnum hér
í Keili,“ sagði Ágúst Húbertsson,
formaður golfklúbbsins Keilis í
Hafnarfirði. „Þetta fer allt vel af
stað hér fyrir utan stöku kulda-
köst og klárt að aðsóknin hefur
sjaldan verið meiri. Núna eru
skráðir meðlimir komnir í ellefu
hundruð og reyndar orðið ansi
þröngt um okkur en það er ekki
hægt annað en vera bjartsýnn.“
Í sama streng tók vallarstjóri
austasta golfvallar á landinu,
Grænanesvelli í Norðfirði, Jón
Grétar Guðgeirsson. „Völlurinn
hefur aldrei verið betri enda
varla komið snjókorn hér í allan
vetur. Það hafa verið spilarar á
vellinum nánast allan veturinn og
þeim fer fjölgandi sem stunda
íþróttina hér hjá okkur.“
Jaðarsvöllur á Akureyri hefur
komið misjafnlega undan vetri
síðastliðin ár en svo er ekki nú.
„Við reiknum svo sannarlega
með góðu sumri,“ sagði Halldór
Svanbergsson, framkvæmdastjóri
Jaðarsvallar. „Hér var varla snjór
né frost í allan vetur og völlurinn
er sérdeilis góður. Í sumar verður
tvennt sem stendur upp úr, annars
vegar Arctic Open sem allir þekk-
ja og einnig nýtt Mastercard mót
sem verður haldið helgina á undan
Arctic. Aðsóknin fer vaxandi að
klúbbnum og markaðsstarf okkar
erlendis er smátt og smátt að
vekja athygli.“
albert@frettabladid.is
FRÁ KORPÚLFSSTAÐAVELLI
Golfarar geta glaðst því grasið hefur aldrei verið grænna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T