Fréttablaðið - 24.05.2003, Side 18
24. maí 2003 LAUGARDAGUR
Árangur Íslands í Eurovision ermeð ýmsu móti. Oftast erum
við á sveimi um og við hið marg-
fræga 16. sæti en bestum árangri
náði Selma eða 2. sætinu með 146
stig árið 1999 - sællar minningar.
Lagið er eftir Þorvald B. Þorvalds-
son við texta Selmu, Þorvaldar og
Sveinbjörns I. Baldvinssonar.
Sveinbjörn hefur komið að
Eurovision með ýmsu móti en hann
er einmitt textahöfundur „Open
your heart“. Einnig var árangur
Siggu og Grétars glæsilegur með
laginu „Eitt lag enn“ eftir Hörð
Ólafsson og texta Aðalsteins Ás-
bergs – sem er enn einn Euro-
vision-boltinn. Þau náðu 4. sæti og
124 stigum. „Nei eða já“ – lag eftir
Friðrik Karlsson og Grétar Örvars-
son við texta Stefáns Hilmarssonar,
sem allir mega heita þrautreynd
Eurovision-brýni – má einnig vel
við una í 7. sæti með 80 stig.
Ekkert er ljós án skugga. Aðrar
þjóðir Evrópu sáu ekki snilldina
þegar Íslendingar sendu rólegt lag
eftir Valgeir Guðjónsson, „Það sem
enginn sér“ í flutningi Daníels
Ágústs sem botnaði keppnina með
ekkert stig. Valgeir hafði farið í
keppnina árið 1987 með „Hægt og
hljótt“ og náði þá 28 stigum. Þá olli
árangur Páls Óskars árið 1997
nokkrum vonbrigðum þótt þessi
helsti áhugamaður Íslands um
Eurovision hafi síður en svo látið
það slá sig út af laginu. Hann lenti
í 20. sæti með lagið „Minn hinsti
dans“ eftir Trausta Haraldsson
við texta Símonar Kuran. Það
leiddi til þess að við duttum úr
keppni og vorum ekki með árið
1998. Selma reif okkur upp eins
og áður sagði. Þá var komið að
þeim Skítamóralsdrengjum. Einar
Ágúst, ásamt Telmu, átti ágætan
dag árið 2000 og lentu þau í 12.
sæti með laginu „Tell me“. Sigurð-
ur Örn gerði texta við lag Örlygs
Smára og uppskeran var 45 stig.
(Sumir vilja enn halda því fram að
ef Einar hefði ekki verið í kjól
hefði árangurinn orðið betri.)
Næsta ár fór félagi Einars, Gunn-
ar Ólason og Kristján út sem
dúettinn Two Tricky með lag Ein-
ars Bárðarsonar „Angel“. Þeir
fengu aðeins 3 stig og enn duttu
vonglaðir Íslendingar úr keppni.
Hugsanlega má smíða þá kenn-
ingu úr þessum bollaleggingum
að það sem virkar vel á Íslandi,
virki ekkert endilega vel í
Eurovision. En þeirri kenningu
verður ekki haldið á loft hér – svo
hún verði ekki að áhrínisorðum.
jakob@frettabladid.is
Skjáborðsmyndir Myndasafn
Eurovision PC
margmiðunardiskurinn
inniheldur
Myndbandið Karaókí útgáfa
• Eurovision lagið á íslensku
• Eurovision lagið á ensku
• Karaókí útgáfa til að syngja eftir
• Myndasafn og skjáborðsmyndir
• Myndbandið ofl. ofl.
• Eurovision leikur,
Panasonic 42“ plasma
sjónvarp í vinning
799
Spilaðu
diskinn í venjulegum
geislaspilara eða
í PC tölvunni
þinni!
Ómissandi
í partíið!
26.999
20“ Thomson
er ómissandi í
barna- eða
svefnherbergið
og Birgittu
diskurinn fylgir
með í
kaupbæti!
DI
SK
UR
IN
N
FÆ
STA
ÐEINS Í BT
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
1000 kr. tilboð
Aukaálegg að eigin
vali kr. 150
kr. 1.000
Stór pizza með
2 áleggstegundum
sótt
ÁR SÆTI LAG FLYTJANDI
1986 16 Gleðibankinn Icy-flokkurinn
1987 16 Hægt og hljótt Halla Margrét Árnadóttir
1988 16 Þú og þeir Stefán Hilmarsson
1989 22 Það sem enginn sér Daníel Ágúst
1990 4 Eitt lag enn Sigga og Grétar
1991 15 Draumur um Nínu Eyvi og Stefán
1992 7 Nei eða já Heart 2 Heart
1993 13 Þá veistu svarið Ingibjörg Stefánsdóttir
1994 12 Nætur Sigrún Eva Ármannsdóttir
1995 15 Núna Björgvin Halldórsson
1996 13 Sjú-bí-dú Anna Mjöll Ólafsdóttir
1997 20 Minn hinsti dans Páll Óskar
1999 2 All out of luck Selma
2000 12 Tell me Einar Ágúst og Telma
2001 22-23 Birta To tricky
2003 ? Open your heart Birgitta
Framlag Íslands og árangur:
Íslensku lögin
Ár Lag Land
2002 I wanna Lettland
2001 Everybody Eistland
2000 Fly on the wings of love Danmörk
1999 Take me to your heaven Svíþjóð
1998 Diva Ísrael
1997 Love shine a light Bretland
1996 The voice Írland
1995 Nocturne Noregur
1994 Rock ‘n’ roll kids Írland
1993 In your eyes Írland
1992 Why me? Írland
1991 Fångat av en stormvind Svíþjóð
1990 Insieme Ítalía
1989 Rock me Júgóslavía
1988 Ne partez pas sans moi Sviss
1987 Hold me now Írland
1986 J’aime la vie Belgía
1985 La det swinge Noregur
1984 Diggi loo diggi ley Svíþjóð
1983 Si la vie est cadeau Lúxemborg
1982 Ein bisschen Frieden Þýskaland
1981 Making your mind up Bretland
1980 What’s another year Írland
1979 Hallelujah Ísrael
1978 A ba ni bi Ísrael
1977 L’oiseau et l’enfant Frakkland
1976 Save your kisses for me Bretland
1975 Ding dinge dong Holland
1974 Waterloo Svíþjóð
1973 Tu te reconnaitras Lúxemborg
1972 Apres toi Lúxemborg
1971 Un banc... Mónakó
1970 All kinds of everything Írland
1969 Vivo cantando Spánn
1968 La la la Spánn
1967 Puppet on a string Bretland
1966 Merci cherie Austurríki
1965 Poupee de cire Lúxemborg
1964 No ho l’eta Ítalía
1963 Dansevise Danmörk
1962 Un premier amour Frakkland
1961 Nous les amoureux Lúxemborg
1960 Tom Pillibi Frakkland
1959 Een beetje Holland
1958 Dors mon amour Frakkland
1957 Net als toen Holland
1956 Refrain Sviss
TATU DÚETTINN
Framlag Rússlands, Tatu dúettinn, hefur án efa vakið meiri athygli en framlag annarra
þjóða í Eurovision söngvakeppninni í ár. Hér eru þær á æfingu á sviðinu í Riga, Lena
Katina til vinstri og Yulia Volkova til hægri. Lagið þeirra heitir Don’t Belive. Don’t be
Scared. Don’t Ask.
Hin söngelska þjóð Íra hefurfagnað sigri oftast allra þjóða
og er skráð í
Heimsmetabók
Guinness sem
s i g u r s æ l a s t a
þjóðin í
E u r o v i s i o n
söngvakeppn-
inni með sjö
sigra. Munar
þar verulega
um sjálfan
E u r o v i s i o n -
kónginn Johnny
Logan, sem hef-
ur sigrað þessa
keppni þrisvar
sinnum. Þetta
met Íra mun
ekki falla í bráð því næstsigur-
sælastir eru Lúxemborgarar sem
eru með 5 sigra að baki. Lúxem-
borg hefur hins vegar ekki unnið
síðan 1983. Þá vekur athygli að
austantjaldsþjóðirnar settu veru-
legt mark sitt á þennan lista
skömmu eftir að þær hófu þátt-
töku – ólíkt því þegar við Íslend-
ingar komum inn með gleðilátum
árið 1986. ■
SIGURLÖGIN FRÁ UPPHAFI
Eurovision í 47 ár:
Írar hafa
oftast unnið
Mikið fjaðrafok hefur verið íRiga vegna rússneska lesb-
íudúettsins t.A.T.u. Umsjónar-
menn keppninnar óttast að stúlk-
urnar reyni að nýta tíma sinn á
sviðinu til þess að hneyksla
áhorfendur.
Markaðsmennirnir sem eru á
bakvið stelpurnar kunna sitt fag
því stelpurnar mættu í fangabún-
ingum á blaðamannafundinn í
Riga á fimmtudag. Það gerðu
þær til þess að vekja athygli á
því að verið væri að beita þær
pressu. Á fundinum gáfu þær í
skyn að þeim væri bannað að
hafa atriði sitt eins og þær vildu.
Þær fullyrtu þó að þær ætluðu að
virða reglur keppninnar og því
myndu þær ekki gera neitt
hneykslanlegt.
Af t.A.T.u. er það einnig að
frétta að stúlkurnar náðu þeim
árangri á dögunum að ná platínu-
sölu, bæði á ensku plötunni
þeirra og þeirri rússnesku. Stúlk-
urnar hafa þar með selt milljón
eintök af hvorri plötu. Miðað við
slíkar vinsældir hlýtur að teljast
borðleggjandi að stelpurnar nái
að minnsta kosti einu af þremur
efstu sætunum. ■
t.A.T.u.:
Mættu í fangabúning-
um á blaðamannafund
JOHNNY LOGAN
Ótvíræður
Eurovision-kóngur
allra tíma. Hann hef-
ur sigrað keppnina í
þrígang og verður að
heita ólíklegt að það
met verði slegið.