Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 6

Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 6
6 5. mars 2005 LAUGARDAGUR Jórdanski hryðjuverkamaðurinn Abu Musab al-Zarqawi: Gefur út áróðursrit á netinu BAGDAD, AP Samtök jórdanska hryðjuverkamannsins Abu Musab al-Zarqawi hafa hafið útgáfu tímarits á netinu til að afla sér fleiri fylgismanna svo að hreinsa megi Írak af „trúleysingjum og fráfellingum.“ Tímaritið kom út tveimur dög- um eftir að samtök Zarqawis lýstu yfir ábyrgð á sprengjutilræðinu í Hillah þar sem 127 manns fórust. Mikið er mikið lagt í hönnun þess og útlit og gefur þar að líta ýmiss konar greinar og ávörp, meðal annars eftir Osama bin Laden, leiðtoga Al Kaída. Þar eru súnní- múslimar hvattir til að taka hönd- um saman og heyja heilagt stríð gegn „trúleysingjum og fráfell- ingum sem leggja lönd múslima undir sig.“ Bandarískur sérfræðingur í vörnum gegn hryðjuverkum segir að ritinu sé meðal annars ætlað að gefa þá ímynd að samtök al- Zarqawi séu enn þá öflug. Ekki er þó talið víst að nettímaritið sé ósvikið. Uppreisnarmenn í landinu halda uppteknum hætti og fórust sex lög- reglumenn í árásum þeirra í gær. ■ Sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga: Sveitarfélögin fái sjálf að ákveða útsvarið SVEITARSTJÓRNARMÁL Leyfa ætti sveitarfélögum að ákveða sjálf útsvar sitt, segir Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri hag- og upp- lýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Slíkt þekkist til dæmis í Danmörku og Svíþjóð. Kosningar marka þá stefnu sem íbúarnir vilji í þeim efnum. „Sé farið í háa fjárfestingu í Danmörku, eins og byggingu íþróttahúss, er útsvarið hækkað tímabundið til að afla tekna,“ segir Gunnlaugur. Á móti þurfi að takmarka heimildir til lántöku því þau séu ávísun á útgöld í framtíð- inni: „Ég er ekki að segja að þetta sé fullkomið kerfi en í því er bein tenging milli stórra ákvarðanna og skattbyrðar.“ Gunnlaugur segir stöðu sveit- arfélaga í járnum. Þrjátíu sveitar- félög leggi ekki hámarksálagn- ingu útsvars á íbúa sína. Ef þau myndu gera það, gætu tekjur þeirra aukist um rúmar 291 millj- ón króna. Það sé lítið því 240 milljónir myndu renna til þriggja sveitarfélaga. „Þegar tekjustofn- ar duga ekki verður annað hvort að gefa sveitarfélögunum meira olnbogarými varðandi tekjur eða aflétta verkefnum.“ - gag Tryggja þarf nægt bóluefni Hafin er vinna tveggja ráðuneytisstjóra til að verja Ísland gegn fuglaflensu- faraldri. Jafnframt hvað sé til ráða berist faraldurinn hingað til lands. Nægt bóluefni er grundvallaratriðið í baráttunni gegn vágestinum. HEILBRIGÐISMÁL Fulltrúar heil- brigðisráðuneytis og dómsmála- ráðuneytis hófu starf í vikunni um hvernig best sé hægt að verja al- menning gegn því að fuglaflensan illræmda berist hingað. Einnig er rætt hvernig bregðast skuli við, fari svo að þær ráðstafanir dugi ekki til. Nýverið fól ríkisstjórn Ís- lands starfs- mönnum heil- brigðisráðuneyt- is og dómsmála- ráðuneytis að fara yfir stöðu mála hvað varð- ar fuglaflensuna og athuga hvað s k y n s a m l e g t væri að gera til að verjast henni, verði hún að heimsfaraldri. A ð s p u r ð u r hvort til greina komi að loka landinu fari fuglaflensufaraldurinn af stað, sagði Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðu- neytisins, að starfið væri ekki komið á það stig, að farið sé að ræða slíkt í smáatriðum. „Í svona umræðu er nauðsyn- legt að kanna allar aðstæður,“ sagði hann. „Það verður að skoða alla möguleika og við erum rétt að byrja að fara yfir það sem við getum gert. Við munum sjálfsagt hittast dálítið ört og tala við fólk til þess að þetta fari vel af stað. Það þarf að ræða við mjög marga því þetta snertir svo mörg svið þjóðfélagsins, meðal annars heil- brigðiskerfið og almannavarna- kerfið.“ Davíð, sem jafnframt er for- maður framkvæmdastjórnar Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, sagði að ef svo óheppilega vildi til að flensan brytist út, yrði allt kapp lagt á að bólusetja menn hér áður en hún bærist til landsins. Það væri sjálfsagt einn af al- sterkustu leikjunum sem hægt væri að leika í stöðunni. „Nú þegar liggur fyrir allítar- legt skipulag á sóttvörnum, sem samið var þegar hætta var talin á að bráðalungnabólgan gæti borist hingað. Vinnan hvað varðar heil- brigðiskerfið mun sjálfsagt byggjast á þeirri reynslu sem við fengum þá. Eitt af því sem skoða þarf er með hvaða hætti við tryggjum að bóluefni komi hingað eins hratt og hugsast getur,“ sagði Davíð. „Það er eitt af því sem allur heimurinn er að skoða.“ jss@frettabladid.is Ken Livingstone: Sparar ekki stóru orðin BRETLAND Ken Livingstone, borg- arstjóri Lundúna, hefur enn einu sinni sinni vakið athygli fyrir orðaval sitt. Í blaðagrein í Guardi- an í gær kallaði hann Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, stríðsglæpamann sem ætti frem- ur að vera í fangelsi en í embætti. Livingstone gæti haft eitthvað til síns máls því aðild Sharons að fjöldamorðum í flóttamannabúð- um í Líbanon árið 1982 er flestum kunn. Tímasetning ummælanna er hins vegar óheppileg því á dög- unum líkti hann ísraelskum blaða- manni við fangavörð í útrýming- arbúðum nasista. ■ BLÓÐBAÐ Í KONGÓ Friðar- gæslulið Sameinuðu þjóðanna í Kongó hefur síðustu dægrin drepið allt að sextíu skæruliða í austurhluta landsins. Gæslulið- arnir segja skæruliðana hafa haldið svæðinu í hers höndum í mörg ár og telja þá auk þess ábyrga fyrir að hafa drepið níu friðargæsluliða. BANN VIÐ REYKINGUM STUTT Landsnefnd Lýðheilsustöðvar fagnar og lýsir yfir stuðningi við frumvarp sem miðar að banni við reykingum við öll húsakynni undir þaki, föstu eða hreyfanlegu, þar með talda veitinga- og skemmti- staði. Telur nefndin að draga muni úr reykingum almennt verði frum- varpið að lögum. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 76 11 0 2/ 20 05 www.urvalutsyn.is Verð frá: 39.900 kr.* á mann í smáhýsi m/einu svefnherbergi á Venesol Delia í 7 nætur *Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Ótrúlegt verð! Fáðu ferðatilhögun, nánari upp- lýsingar um gististaðina og reiknaðu út ferðakostnaðinn á netinu! Aukaferð 11.-18. mars Vegna mikillar eftirspurnar höfum bætt við aukaferð til Kanaríeyja með gistingu á Venesol Delia í Sonnenland. Nánari upplýsingar á www.urvalutsyn.is Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 - alltaf ódýrastir - STÓR HUMAR og risarækjur Opið laugardag 10-14 ■ AFRÍKA ■ TÓBAKSVARNARLÖG Hefurðu farið á skíði í vetur? SPURNING DAGSINS Í DAG: Er rétt hjá Landhelgisgæslunni að kaupa olíu í Færeyjum? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 88% 12% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON Fengju sveitarfélögin að hækka útsvars- stofninn um eitt prósentustig fengju þau fimm milljarða samanlagt.TEKJUAUKNING SVEITARFÉLAGANNA MIÐAÐ VIÐ HÁMARKSNÝTINGU ÚTSVARS Fjöldi Fjárhæð Kr. á íbúa Svf. yfir 10 þús. íbúa 1 65 millj. 6.136 Svf. milli 1.000 til 9.999* 6 200 millj. 8.152 Svf. milli 500 til 999 1 300 þús. 475 Svf. undir 500 22 26 millj. 10.105 Samtals 30 291,3 millj. * 175 milljónir af fjárhæðinni myndu renna til tveggja sveitarfélaga. BÓLUSETNING Þjóðir heims leggja áherslu á að til verði nægt bóluefni fyrir öll lönd ef fuglaflensan verð- ur faraldur. Myndin er óskyld efni fréttarinnar. VINNU VEGNA FUGLAFLENSU HRAÐAÐ Davíð Á. Gunnars- son segir umræðu ekki hafna um ein- stakar aðgerðir gegn fuglaflensu. TÍMARITIÐ KRYPPA KAMELDÝRSINS Titillinn þykir ef til vill óvenjulegur en í huga múslima er kryppan tákn trúfesti og athafnagleði. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.