Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2005, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 05.03.2005, Qupperneq 10
5. mars 2005 LAUGARDAGUR „Ég varð heillaður af persónu Precious Ramotswe og hinum lúmska húmor Alexanders McCall Smith.“ Anthony Minghella, leikstjóri Enska sjúklingsins 3 BÓKIN KOMIN Í VERSLANIR Kvenspæjarastofan slær í gegn! „Kvenspæjarastofan er bæði spennandi og skrifuð af djúpri einlægni og visku ... kjörin bók til að taka með sér í sumarfríið og er þýdd af mikilli hind. Ef ég væri með hattinn tæki ég hann ofan.“ Gunnar Gunnarsson, Rás1 „Fágæt lestrarnautn.“ Daily Telegraph DÓMSMÁL „Ég iðrast gerða minna og vildi að þetta hefði aldrei átt sér stað,“ sagði Hákon Eydal fyrir dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur en þar fór fram í gær aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum fyrir morðið á Sri Rahmawati í júlí síðastliðnum. Saksóknari krafðist hámarksrefsingar eða 16 ára fangelsis yfir Hákoni en verj- andi hans sagði það fráleitt þar sem engar forsendur væru fyrir svo ströngum dómi. Réttarhöldin töfðust um tvo tíma þar sem gleymdist að gera ráðstafanir til að sækja Hákon á Litla Hraun. Hákon Eydal bar fyrir dómin- um að morðið á Sri Rahmawati, barnsmóður hans og fyrrum sam- býliskonu, hefði verið framið í stundarbrjálæði og mikil hræðsla í kjölfarið hefði komið í veg fyrir að hann gæfi sig fram við lög- reglu strax eftir verknaðinn. Sagði hann þau Sri hafa átt nótt saman en morguninn eftir hafi komið til harðra orðaskipta um þriggja ára stúlku sem þau eiga saman en Sri meinað honum að umgangast og hitta um hríð. Þegar hún tilkynnti honum fullum hálsi að stúlkuna fengi hann aldrei að sjá aftur greip hann því- lík heift að hann myrti hana. Kyrking dánarorsökin Dánarorsök Sri var kyrking en krufning á líki hennar leiddi í ljós að þau fjögur höfuðhögg sem Hákon veitti henni áður með kú- beini hefðu að líkindum dregið hana til dauða. Kom fram að taubelti var vafið fast um háls hennar þegar hún lá meðvitund- arlaus eftir höggin á gólfi íbúðar Hákonar þar sem brotið var framið. Bar Hákon því við að ástæða þess hefði verið sú að mikið blæddi úr höfði fórnar- lambsins og hann hefði viljað stöðva blóðrásina með þeim hætti. Fannst saksóknara, Ragn- heiði Harðardóttur, sú skýring fráleit en verjandi Hákonar, Brynjar Níelsson, benti á að um- bjóðandi sinn hefði verið í mikilli geðshræringu á þeirri stundu og mundi meðal annars ekki greini- lega eftir hversu oft hann hefði barið Sri með kúbeininu. Kom fram fyrir dóminum að tæknideild lögreglu hafði fundið út með rannsóknum að höggin sem hann veitti Sri með kúbeininu voru þung og réttarmeinafræð- ingur staðfesti að ef kyrking hefði ekki átt sér stað mætti leiða að því líkum að höggin og blóðmissirinn hefðu dregið Sri til dauða. Aðspurður um af hverju hann geymdi kúbein í herbergi sínu sagði Hákon að það væri vegna hræðslu og sagðist hafa fengið hótanir um líkamsmeiðingar frá ættingjum Sri í talsverðan tíma. Stormasamt samband Hákon Eydal og Sri Rahmawati kynntust fyrst árið 2000 og hófu sambúð skömmu síðar. Ekki leið á löngu áður en Sri tilkynnti Hákoni að hún gengi með barni og kom fram í yfirlýsingu sam- eiginlegs vinar beggja að upp úr því hafi Sri farið að gera óraun- hæfar kröfur á Hákon. Fór hún meðal annars fram á að Hákon keypti íbúð fyrir sig og léti sig reglulega hafa peninga en vildi þó ekki stofna til fjölskyldu með honum eins og vonir hans stóðu til. Lauk þannig sjö mánaða sam- búð þeirra og upp frá fæðingu barnsins fór Sri fram á greiðslur ætlaði Hákon sér að sjá barn sitt. Gekk svo um hríð að sögn Hákonar og reyndist sama hvert hann leitaði sér fulltingis kom hann að lokuðum dyrum. Sagðist Hákon fyrir réttinum enn vera afar reiður út í kerfið eins og hann kallaði það en hann leitaði á náðir fjölmargra stofnana sér til aðstoðar í forsjármálinu án árangurs. Voru þau Sri áfram í sam- bandi annars lagið og hafði ástandið á milli þeirra batnað þegar hún gisti hjá honum nótt- ina fyrir morðið. Hafði hún að hans sögn komið við kvöldinu áður og fengið hjá honum pening og ætlað sér að koma aftur eftir miðnætti. Lét hún þó ekki sjá sig fyrr en um fimm leytið aðfara- nótt 4. júlí og gengu þau bæði til svefns skömmu síðar. Morgun- inn eftir hafði hann aftur á orði að fá að sjá dóttur sína sem svo endaði með þessum hörmulega atburði. Verðskuldar hámarksfangelsi Saksóknari lagði áherslu á það í málflutningi sínum hversu litla iðrun Hákon hefði sýnt eftir at- vikið og staðfesti sálfræðingur sem til var kallaður það mat. Sagði sá að Hákon bæri í sér vott af kvenhatri og þó að ljóst væri að hann hefði verið hrifinn af Sri voru orð hans og athafnir yfir- leitt neikvæðar gagnvart henni bæði fyrir og eftir morðið. Saksóknari sagði að með tilliti til hegðunar Hákonar, bæði fyrir og eftir verknaðinn, ásamt því mati sálfræðinga að hann væri sakhæfur réttlætti hámarks- fangelsi sem í íslenskum lögum eru 16 ár og taldi hann engar málsbætur hafa þrátt fyrir bar- áttu sína um forræði barns síns. Um einbeittan ásetning og brota- vilja hefði verið að ræða. Verjandi Hákonar sagði hins vegar ljóst að andleg heilsa hans eftir þrotlausa baráttu fyrir að sjá og umgangast dóttur sína hefði hrakað mikið og Hákon hefði verið í miklu ójafnvægi og geðshræringu þegar morðið var framið. Taldi hann og upp nokkra dóma sem hann taldi fordæmis- gefandi þar sem sakborningar voru dæmdir í fjögurra til sjö ára fangelsi fyrir svipaðan glæp og Hákon framdi. albert@frettabladid.is Bar fyrir sig stundar- brjálæði og hræðslu Hákon Eydal sem ákærður er fyrir morðið á Sri Rahmawati í júlí síðastliðnum sagðist iðrast gjörða sinna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Saksóknari sagði Hákon hafa sýnt litla iðrun og krefst hámarksrefsingar. Dómur verður kveðinn upp fljótlega. HÁKON EYDAL Í HÉRAÐSDÓMI Í GÆR Tveggja tíma töf varð á að málaferlin gætu hafist þar sem gleymst hafði að ná í Hákon að Litla Hrauni þar sem hann hefur verið í varðhaldi síðustu mánuði. Hákon sagðist fyrir dómnum sjá eftir gjörðum sínum og ber fyrir sig sturlun þegar hann framdi morðið á Sri Rahmawati. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.