Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 2
2 rnmmt Sunnudagur 21. ágúst 1977 r t*au voru öll mjög ánægA meft ferftina, sem þau fóru um SuAurland frá Höfn i Hornafiröi til Reykjavlkur. Gist var I Nesjaskóla, Klaustri og Landmannalaugum. l.engst til v. er fararstjórinn Hallgrlmur Sæmundsson. Ljósm. Timinn Gunnar. — Esper- á ferð um ísland Þeir 1000 menn, sem komu hingað til lands til þess að sitja Al- þjóðaþing Esperantista dagana 30. júli til 6. ág- úst s.l., gerðu það ekki endasleppt. Eftir um viku fundarsetu og fjöl- breytta dagskrá i liki umræðna guðþjónusta, leikliúsferða og lista- sprangs yfirleitt, tóku vel flestir sér ferð á hendur um okkar hrjóstruga stóra land. Þar sem allar þjóðir töluðu sömu tungu Okkur finnst nú, að það þurfi nokkur auraráð, til þess að taka hverj- um snúningi og krók, sem boðið er upp á á þessu landi, en þingset- ar esperantista virtust engar peningaáhyggj- ur hafa. Þeir höfðu reyndar engar áhyggj- ur yfirleitt. Við tókum á móti einum hópnum, þar sem hann kom til Iteykjavikur eftir ferðalag frá Höfn i Hornafirði fimmtudag einn i fyrri viku og var glatt á hjalla, þótt heitt væri inni i rútunni og út varla stætt. Hefur talað Esperantó í tuttugn og fimm ár Fyrsta hittum við að máli (hún sat reyndar fremst i rút- unni) franska konu að nafni frú Vierne. Hún sagðist kenna við ladcnadeild háskólans i Mont- pellierog vera i afslöppunarferð frá starfi sinu. I 25 ár hefur hún talað esperantó og segist helzt ekki nota annað tungumál á ferðum sinum. Annars fengum við litið upp úr henni annað en breitt bros, merki góðvildar og ánægju. Frú Vierne hrósaði sérstak- lega óveðri sem þau höfðu lent i i Landmannalaugum og sagði slikt lifga mjög mikið upp á til- veruna. Hún virtist tilbúin að vaða vatn og eld fyrir okkar Við smelltum mynd af honum hr. Turin. Hann var svo kiminn á svip. Ljósm. Timinn Gunnar. ið eftir mikla setu og drifum við allan hópinn út i myndatöku. A meðan verið var að raða sér upp, töluðum við litillega við brezka konu að nafni frú Davi- es, en hún kvaðst sprottin frá Morecambe á Englandi. Frú Davies fórstrax að tala um feg- urð Islands og ósnortna náttúru þess, og lét það mjög ljúft i eyr- um eins og venjulega. Við spuröum frú Davies hven- ær hdn hefði fengið þá flugu i höfuðið að læra esperantó og orðið svo virkur þátttakandi, sem raun ber vitni. Hún kvaðst hafa orðið ekkja mjög skyndi- lega og hefði hún gengið i esperantó hreyfinguna frekar en að leggjast i sorg og sút. — Mig langaði frekar til þess að gera eitthvað ólíkt þvi, sem ég áður þekkti, og ég valdi rétt. Bezt hefði auðvitað verið að kunna esperantó frá upphafi. Málið gefur manni svo mikla möguleika i lifinu, vináttu við hið óliklegasta fólk og nýja inn- sýn i lifið almennt. rru Vierne f afslöppunarferð f tslands. I.jósm. Tíminn Gunnar. mikilfenglega land, eins og hún kallaði Island. — begar hér var komið sögu greip einn ferða- langurinn inn i og sagðist vilja koma þökkum sinum á framfæri til allra þeirra, sem staðið hefðu að ferðinni. Hún hefði verið al- veg dýrleg, leiösögumaðurinn fyndinn og skemmtilegur og bil- stjórinn ekki af verri endanum. Og það var kallast á á esper- antó, en þvi miður, blm. skyldi ekki nema undan og ofan af þeim kveðjum. Esperantó gefur mikla möguleika í lífinu Timi var til kominn til þess að leyfa fólkinu aðhreyfa sig dálit- Mig langaði til þess að gera eitthvaö ólfkt þvf, sem ég hafði áður gert, sagði frú Davie Timamynd Gunnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.