Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 17

Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 17
Sunnudagur 21. ágúst 1977 17 nar, prentsmiðjunnar Eddu Sigurðar. Enda þurfti ég ekki frekar að sækja fé til Sigurðar. Vorið 1937 fór Óskar Jónsson með Lúðrasveit Reykjavíkur að mig minnir, til Norðurlands. Meðan hann var á þvi ferðalagi áttiprentsmiðjan kostá að prenta rit um Hóla eða eitthvað um Hólastað. Gunnlaugur Björnsson kennari á Hólum átti að sjá um útgáfuna en rikissjóður styrkti hana að einhverju leyti. Ég vildi ekki verða af þessu verki, sem átti að staðgreiðast. Til að geta komið ritinu út, varðég um tima að bæta við mig fjögra tima setn- ingu á dag. Það dugði til þess, að ritið komst út á réttum tima. Þetta styrkti mjög afkomu prent- smiðjunnar. Eftir uppgjör á reikningum prentsmiðjunnar fyrir 1 1/4 úr ári, var mér tjáð að halli hefði orðið á rekstrinum. Þessu mótmælti ég og benti á, að ef Timinn væri látinn greiða sama verð, sem hann var prentaður fyrir i' Acta, væri um ágóða en ekki halla að ræða. Um svipað leyti var nýtt fólk ráðið til fyrirtækisins en ég hætti gjaldkerastarfinu aðstoðaði þó með útreikning vinnuseðlanna næstu fimm árin. Meðal hinna nýju starfskrafta man ég eftir Fjólu Haraldsdóttur skrifstofu- mey, sem jafnframt annaðist gjaldkerastarfið, en Þorleifur Þórðarson sá um bókhaldið. Páll Kolbeins kom ekki til Eddu fyrr en árið 1938 og varð þá skrifstofu- stjóri og bókhaldari. Af núverandi gömlu starfsfólki má nefna að Stefán Traustason tók til starfa i' Eddu 29. júlí 1940 og Gisli Kristjánsson skrifstofustjóri hóf störf i Eddu i maimánuði árið 1944. Ennfremurmá geta þess, að Stefán Traustason tók við verk- stjórn i Eddu i byrjun ágúst- mánaðar 1946 og gegnir nú yfir- verkstjórastarfi þar. — Báðir þessir menn hafa verið ómetan- legar hjálparhellur prentsmiðj- unnar undanfarna áratugi. Aður en ég lýk að fullu við þessa grein, vil ég með fáum orðum minnastþeirra prentsmiðjustjóra sem ég var samtima með i Eddu, meðan ég var þar við störf. óskar Jónsson var prent- smiðjustjóri i eitt ár. Fyrir utan að vera iðnlærður hafði hann einnig kynnt sér nokkuð prent- myndagerð og var þaulvanur að meðhöndla pappir. — Hann var einn af stofnendum Tónlistar- félagsins og félagi i lúðrasveitum bæjarins. — Eftir að næsti prent- smiðjustjóri tók við gegndi Óskar verkstjórastarfi næstu árin. Jafn- framt verðlagði hann verkin saman tima. Óskar andaðist 24. mai 1944. Eggert ó. P. Briem var prent- smiðjustjóri i Eddu 1937-42. Hafði áður verið skrifstofumaður hjá Eimskipafélagi íslands stundað tungumálanám i einkatimum verið bóksali og bókaútgefandi héri bæ 1931-35ogþvivelvanur að meðhöndla pappir, enda smekk- maður hinn mesti. Hann fylgdist vel með vinnubrögðum i smiðj- unniog bætti vinnuskilyrði á bók- bandinu svo afköst gætu orðið meiri enfólkinu þó liðið betur. Eysteinn Jónssontók við prent- smiðjustjórastarfi i Eddu er Briem hætti og gegndi þvi starfi 1942-47. Hann umgekkst alla jafnt, var jafn alúðlegur við alla. Ég hygg að öllum hafi þótt vænt um hann. Hann hafði mikla kunn- áttu og þekkingu til að bera var i Samvinnuskólanum 1927 starfs- maður i Stjórnarráðinu um tima skattstjóri i Reykjavik 1930-34 fjármálaráðherra 1934-39 og loks viðskiptamálaráðherra 193942 er hann tók við stjórninni i Eddu. Hann virtist þvi' fær i flestan sjó. Ekki mun honum þó hafa fallið vel starfið, þvi menntamála- ráðherra verður hann 1947-49 og fjármálaráðherra 1950-58. Auk alls þessa var hann búinn að vera þingmaður frá 1933. Hann var orðinn þingmaður 27 ára gamall. Þorsteinn Þ. Thorlacius varð svoprentsmiðjustjóriiEddu 1947- 60. Hann hóf prentnám hjá Birni Jónssyni á Akureyri 1906. Var handsetjari á Akureyri árin 1910- 12og i Reykjavik áHnl913-14, vél- setjari 1914-18 (lærði fyrstur vél- setningu hérlendis hjá Jakobi Kristjánssyni i prentsmiðjunni Rún). Hætti prentstörfum 1918. Varð bókhaldari Klæðaverk- smiðjunnar Gefjunar á Akureyri 1920-35. Gerðist bóksali 1934-48, er hann varð prentsmiðjustjóri i Eddu. — Hann hafði þvi hin beztu skilyrði og færni til að taka að sér sh'kt starf og hann rætki það með samvizkusemi og prvði meðan heilsan leyfði. Þorsteinn andað- ist 29. mai ’70 þá kominn á 84. aldursár. Meðan Þorsteinn stjórnaði Eddu var ætið hin bezta vinátta með okkur. Við áttum saman margar ánægjulegar stundir bæði við tafl spil og i ferðalögum. Hann var ávallt glaður i lund og gamansamur i orðum. Oftast var hann reiðubú- inn að vera með i skemmtanalifi okkar Edduliða og þa lét hann ekki sitt eftir liggja að gera félagslifið og kynninguna sem ánægjulegasta. — A fyrra hluta ævinnar, meðan hann dvaldi i Reykjavik var hann m.a. félagi i Lúðrasveitinni Hörpu. Meðan Þorsteinn dvaldi á Akureyri, tók hann m.a. þátt i söngstarfsemi og var um árabil félagi söngfélags- ins Heklu. Siðar varð hann með- stofnandi söngfélagsins Geysis. 1 öllum félagsskap sem Þorsteinn tók þátt i, var hann hrókur alls fagnaðar. Stefán Jónsson núverandi prentsmiðjustjóra tók við stjórn Edduprentsmiðju 1960 og gengir þvi starfi enn. Hann tók próf frá Núpsskóla 1926 og próf frá Sam- vinnuskólanum 1929. Hann var gjaldkeri þriggja sjúkrahúsa rikisins árin 1930-34 gjaldkeri og aðalbókari rikisspitalanna 1934- 37. Þá hefur hann og verið skrif- stofustjóri Gjaldeyris- og inn- flutningsnefndar, Viðskiptaráðs og Viðskiptanefndar, Gjaldeyris- Edduhús við Lindargötu i Reykjavík Úr setjarasal Eddu A myndinni er núverandi prentsmiðjustjóri Eddu, Stefán Jónsson og leyndarráð prentsmiðjunnar, Stefán Traustason, yfirverkstjóri, Gisli Kristjánsson, skrifstofustjóri, ólafur Karlsson, verkstjóri i vélasal, Grétar Sigurðsson, verkstjóri i bókbandi og Kristinn B. Sigurðsson, verkstjóri i setjarasal. og innflutningsdeildar og Inn- flutningsskrifstofu árin 1937-60. Ennfremur hefur hann verið i Verðlagsnefnd frá 1960. öll þessi störf sem honum hafa verið falin og hann hefur af hendi leyst benda til þess að Framsóknar- menn hafi talið hann vel i stakk búinn til að veita prentsmiðju þeirra forstöðu. Um það bil sem Stefán tók við forstöðu prentsmiðjunnar var ég að láta af störfum sem vélsetjari. Þó hætti ég ekki með öllu að starfa hjá Eddu. Um nokkurra ára skeið var ég þar við inn- heimtustörf unz ég slasaðist svo illilega i ársbyrjun 1970, að ég varðaðhætta þar öllum störfum. Stefán Jónsson sýndi mér þá þann höfðingsskap, að láta prentsmiðj- una greiða mér full laun allt það ár. Si'ðan hefur hann i nafni prent- smiðjunnar sent mér árlega ánægjulega jólagjöf. Þegar Prentsmiðjan Edda átti 40 ára afmæli á sl. ári var starfs- fólkið orðið 45 manns. öllum starfsfélögum minum i Edau, eldri og yngri færi ég hér með þakkir fyrir gott samstarf og óska þeim velgengni á ókomnum árum. Hér með læt ég lokið að rifja upp minningar liðinna ára um Acta og Eddu. — Sögu Eddu- prentsmiðju get ég alls ekki skráð hef ekki næga þekkingu og gögn til þess. En ég vil láta þess getið að ég hef óljósa vitneskju um það að Þorsteinn heitinn Thorlacius hafi verið búinn að gera drög að sögu Eddu-prentsmiðju. Kveð að lokum alla þá er þess- ar linur lesa, með vinsemd og virðingu. Jón Þórðarson Einstakt tækifæri Til sölu Chevrolet Blaizer skráður 1977. Vél 350 cub, aflstýri, veltistýri, aflhemlar og sjálfskiptur. Ekinn 8000 m. Verð 4.000.000.- Upplýsingar i sima 43226 utan skrifstofutima og i 23500 á vinnutima.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.