Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 31

Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 31
Sunnudagur 21. ágúst 1977 31 Nú-Tíminn kynnir: ELVIS PRESLEY A þriðjudagskvöld spuröist andlát Elvis Presley um heim- inn, og sjónvarpsstöðvar og út- varpsstöðvar út um allan heim breyttu dagskrá kvöldsins á ýmsan veg i minningu hins látna. Jafnvel . islenzka sjónvarpið sá ástæöu til að skjóta inn ofurlitlum dagskrár- bút þar sem konungur rokksins tróö fram með eitt af sinum vin- sælustu lögum. Og nú er komið að Nú-Timanum. Við sem stöndum fyrir þess- um þætti erum nógu gamlir til að minnast Elvis Presley. 1 æsku okkar voru myndir hans algengar i bió og ótrúlega margir fengu kligju gagnvart Presley, sem þeir hafa þvi mið- ur enn ekki yfirstigið sumir hverjir. Þvi þrátt fyrir allt er Elvis Presley tvimælalaust ein- hver frábærasti dægurlaga- söngvari allra tima. Sjálft Elvis Presley-æðið var þó fyrir tið þess sem þetta skrif- ar. Og unglingarnir i dag ... Mér kæmi ekki á óvart þó margir þeirra furði sig óstjórnlega á öliu þessu uppistandi vegna andláts manns, sem kallaöi sig Elvis Presley og sagður hafa verið popp- og rokkstjarna. Hver var hann þessi Elvis Presley, sem þúsundir og aftur þúsundir syrgjenda ganga fram hjá á viðhafnarbörum eins og þar væri um þjóðhöfðingja aö ræða? —Við ætlum að reyna að svara þessari spurningu að ofurlitlu leyti og vikja frá okkur þeirri freistingu að benda ykkur á að spyrja pabba og mömmu. Elvis Presley var þó átrúnaðargoðið þeirra eins og Queen kann að vera ykkar eða Abba. Og sú var tiðin, að for- eldrar foreldra ykkar hneyksl- uðust þessi lifandi ósköp á framferöi unglinganna, skaka sig og apa allt upp eftir þessum illa upp alda Bandarikjamanni. Eins og afi minn sem leggur þá Elvis Presley og Louis Arm- t gamla daga. strong að jöfnu og kaliar öskur- apa. Hann má þó eiga það, að hann er meira hissa en hneyksl- aður. Hans músik er færeyskur þjóðsöngur, — en það er önnur saga. Sem sagt, hvað sem þið segið sem nú eigið heiminn, enn hefur enginn haft af Elvis Presley nafnbótina „Konungur rokks- ins”. Hún tilheyrir honum og honum einum, einstaklingnum sem flestar hefur fengið gullplöturnar og setthefur fleiri lög á toppinn en nokkur annar. Arið 1971 hafði hann fengið 28 gullplötur, bitlarnir rúmar 30 saman, og aðrir komast ekki með tærnar þar sern hann hafði hælana. Þið sem fædd eruð 1965 eruð réttri kynslóð yngri en Elvis Presley hér eru æviatriði hans: Fæddur Elvis Aaron Presley 8. jan 1935 i Missisippi i Banda- rikjunum. Hann ólst upp hjá strangtrúuðum foreldrum sin- um og stundaði i æsku ásamt þeim að syngja sálma á bæjar- samkomum. Það voru hans fyrstu spor á söngvarabraut- inni. Sinn fyrsta gitar gáfu for- eldrar hans honum þegar hann var 11 ára. Átján ára fann hann upp á þvi að færa móður sinni i afmælisgjöf litla plötu með eigin söng sem hann hafði látið taka upp i sérstöku stúdiói sem öllum' var opið til slikra hluta gegn þóknun. Eigandi þess, Sam Phillips, átti einnig Sun-plötuút- gáfuna og hann uppgötvaði Elvis eins og fleiri, t.d. Jerry Lee Lewis, Charlie Rich og Johnny Cash. Philllips gerði boð fyrir Presley tæpu ári siðar eða i júni 1954, og haföi tilbúiö fyrir hann „country” lag til upptöku. Presley tókst sæmilega upp i sveitalögunum og var taiinn með efnilegum söngvurum snemma árs 1955, en þó ekki meir. Og einmitt þá gerðist eitt af undrum veraldar. Plöturisinn RCA gaf Sun-útgáfunni litla 35.000 dollara fyrir samninginn við þennan svo til óþekkta söngvara plús útgáfuréttinn á þeim lögum sem Sun átti með Presley, sum þá þegar komin út en önnur ekki. Og RCA átti aldrei eftir að sjá eftir þessari áhættu fjárfestingu sem Sun gat ekki hafnaö. Sjáiftraust Elvis Presley tifaldaðist og nú hafði hann frjálsar hendur og góða möguleika á að koma söng sin- um á framfæri. Presley sagði skiliö við sveita- og negralög og tók upp sinn persónulega rokklagastil, sem enginn getur apað upp eftirhon- um. Og einmitt þetta skilur á milli snillingsins og hæfileika- mannsins, að gera eitthvað bet- ur en allir aörir og finna upp á þvi. út kom „Heartbreak Hotel” og unga fólkið '55 fékk eitthvað kjarnmeira og æðislegra að sjá og heyra en Bill Haley. Ungi hvitinginn með kraftmiklu „negraröddina” sló gjörsamlega i gegn meö nýjum stilog hverju topplaginu á fætur öðru Innan eins árs hafði hann unnið til 10 gullplatna og hvar- vetna skilið eftir sig ungar stúlkur i yfirliði! (Þ.e.a.s. mömmur jafnaldra ykkar i Bandarikjunum.) Hvaö olli? — Ýmislegt er svipað meö Presley og Bitla- byltingunum, fyrir nú utan það að Elvis Presley var átrúnaðar- goð flestra bitlastrákanna i æsku. Þessi tvö fyrirbrigði hafa gert hvað mestan usla á sviöi dægurlagatónlistar aldarinnar. Það gildir bæði um Presley og Bitlana að þar eru byitingar- menn og snillingar á sinu sviöi á réttri stund á réttum staö. Báð- um reyndist auðvelt að höfða til unga fólksins með tónlist sinni, útliti og sviösfarmkomu. Þegar rokkið hjá Bill Haley og gömlu kempunum var að verða þurrt, leiðinlegt og miðaldra, kemur Elvis Presley, ungur fallegur, með dáleiðsluröddina, skakandi mjöðmunum i nærskornum leðurklæðum og kemur fólkinu til að öskra. Og eru sálfræðingar ekki alltaf að sanna að við þurf- um alltaf ööru hvoru aö fá tæki- færi til að öskra af öllum lifs og sálarkröftum. En það að fyllast trú, virðingu, ást eða löngun til eins manns eða fleiri? Manndýrkun i þeirri mynd mun sjálfsagt fylgja mannkyninu um aldur og ævi og það má þó segja æsku 20. aldar til hróss, aö það beinist yfirleitt að góðum dægurlagasöngvurum frekar en færum mannaslátrurum eins og tilfellið er á siðum mannkyns- sögunnar. Fyrir rúmum 20 árum setti Elvis Presley sem sagt allt á annan endann með lögum eins og „Jailhouse Rock”, „Love me tender”, „Blue Suede Shoes”, „Hound Dog,” „All Shook Up” eða „Don’t Be Cruel”. Lög sem enn þann dag i dag eru í fullu gildi og menn eru enn aö uppgötva.Og i þrjú ár hélt Elvis aðdáendum sinum út um allan heim við efnið eða þangað til hann var kallaður i herinn. En Elvis Presley gleymdist ekki og aftur kom hann, að visu nokkuð breyttur. Mjaömaskak- ið var horfið og i stað kröftugra rokksöngva söng hann nú melódiskari lög, eins og „Are You Lonesome Tonight”, „His Latest Flame”, „It’s Now or Never”o.fl. Alltgóö lög og Elvis hélt átrúnaði aðdáenda sinna, sem elzt höföu með honum, en sifellt færra ungt fólk hreifst með. Það undirbjó jarðveginn fyrir Bitlana. Það verður að segjast, að sið- an hefur Presley stöðugt fariö aftur, þó alltaf hafi hann verið i sviðsljósinu ööru hvoru og gefiö útplötur. Að ráði umboðsmanns sins, Tom Parker, hætti hann hljómleikahaldi upp úr 1960 og gaf sig allan á vald framleiöslu glanssöngvamynda og plötur komu aöeins i framhaldi af myndunum. Nær allar þessar myndir hljóta aö teljast lélegar, gengu t.d. helzt á sýningum i 3-bió hér á landi og hafa ollið mörgum sem á horföu Frh. á bls. 39 Höfum fyrirliggjandi hina viðurkenndu Lydex hljóðkúta í eftirtaldar bifreiðar Audi I00S-1.S................. hljóðkutar aftan og franian Austiu M ini...........................hljóðk utar og púströr iti'dford viiruhila ...................Iiljóðkútar og pústl ör llroiuo li 0|> 8 cy 1..................Iiljóðkútar og púströr Clu'vrolct fólksbila ogvörubíla........hljóðkútar og pústriir llatsun disi'l— I00.A — 1 2IIA — 1200 — 1000 — 140— 180 ........................hljoðkutar og púslriir Chrvslt'i' f ranskur............................hljóðkúlar og púslrör Citrot'ii GS.....................................hljóðkutar og púslriir Ilodgf folksbila.......................hljoðkutar og pusli ör D.K AV . lólksbila..............................htjóðkútar og pústriir liat 1100 — 1500 — 124 — I 25 — 128 — 132 — 127 _. 121...................hljóðkútar og pustriir Kord, ameriska fólksbila.........................hljóðkúlar og púströr KordConful Cortina 1300— 1000 ..........hljóðkútar og pústriir Kord Kscort.....................................hljoðkútar og pústriir Kortl Taunus 12M — I3M — 17M — 20.M .. hljóókútar og pústriir II íIIiiian og Com mcr tólksb. og sendib... hljoðkúlar og púströr Austiu Gipsy jf ppi..............................hljóðkúlar og pústriir lnlcrnational Scout jcppi......................hljtiðkútar og púströr ltussajeppi (i A/. 00 ..................hljóðkúlar og púslriir Willvs jeppiog Wagoner...........................hljóðkútar og púströr Jecpster V0 ............................hljoðkúlar og púslriir Kange Kover..........hljóðkútar Irainan og aflan og púströr l.ada............................hljóðkútar frainan og aftan l.androver bensin og disel..............bljöökútar og púströr Mazda 818 hljoðkutar og púströr Ma/.da 1300 .....................hljóðkútar aftan og framan ■Ma/da 929 ......................hljoðkutar frainan og aftan Mercfdes Ken/ fólkshila 180 — 190 200 — 220 — 250 — 280............ Mcrcedes iienz vörubíla.......... M oskwltcll 403 —108 —112 ....... Morris Marina 1.3og 1.8.......... Opel Kekord og Caravan........... Opel Kadettog Kapitan............ Passat .......................... I’f ugeot 204 —404 — 504 ........ Kambler American ogClassic . . . Kenault K4 — Kti — K» — K 10 — K 12 — Klti............... Saab9(iog99 .......... .......... Scania Vabis 1.80 — 1.85 — I.K85 1.110 — I.Klltl — I.KI40......... Simca fólksbila.................. Skoda fólkshila og staliiwi...... Sunbcam 1250— 1500 — 14100 .... Taunus Tratisit bensin og disel ... Toyota folksbila ogstation....... Vauxhall fóiksbila............... Volga fólksbila ................. Volkswagen 1200 — K70 — 1300— 1300 og sendibila ......... Vnivo fólkshila .................. \olvo vnruhiia K84 — 85TD — N 88 — K88 — \8ii — K8li — .....hljóðkúlar og þúströr .....hljóðkúlar og púströr .....hljóðkútar og púströr .....hljóðkútar og púströr .....hljóðkútar og pustriir .....hljoðkúlar og púslrör hljoðkútar Iraman og aftan .....hljóðkútar og pústriir .....hljóðkutar og púslrör .....hljóðkútar og pústriir .....hljóðkútar og pústriir ...............hljóðkútar .....Iil joðkúlar og púströr .....hljóðkúlar og púslrör .....hljoðkútar og pústriir .....hljóðkútar og púslriir .....hljoðkútar og pústriir .....hljöðkúlar og púströr .....hljóðkútar og þústriir ....hljóökútar og púströr ....hljóðkútar og pústriir NXliTD — K8IÍTD og K89TD hljoðkútar Púströraupphengjusett i flestar geröir bifreiöa. Pústbarkar flestar stæröir Púströr í beinum lengdum 1 l/4"til 3 1/2" Setjum pústkerfi undir bila, simi 83466. Sendum i póstkröfu um land allt. ; Bifreiöaeigendur, athugið aö þetta er allt á mjög hagstæöu veröi og sumt á mjög gömlu verði. Gerið verösamanburö áður en þiö festið kaup annars staöar. Bílavorubúðin Fjöðrin h.f. Skeifan 2, simi 82944 HESTAMENN Með einu símtali er áskrift tryggð SÍMAR 28867-85111

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.