Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 13
Sunnudagur 21. ágúst 1977 13 mjólk), hri'sgrjón stundum soðin með. Allmikil næring er i fjalla- grösum, þ.e. kolvetnissambönd aðallega, allt að 60% þurrefnis- þyngdar. Litið er um köfnunar- efnissambönd i þeim og öðrum fléttum, en talsvert af ýmsum fléttusýrum, er sumar hafa beiskt eða rammt bragð. Hafa sumar sýrurnar talsverða bakteriudrep- andi eiginleika, enda hafa fjalla- grös lengi verið notuð til lækn- inga. Fjallagrasate hefur m.a. slimleysandi áhrif og er notað gegn kvefi og hósta. Einnig voru fjallagrös talið góð við ,,maga- vindi og uppþembingi” — og yfir- leitt bæta meltinguna. Fjalla- grasaseyði var um skeið notað gegn berklum, unz völ var á nýj- um sterkari lyfjum. Hver veit nema almenn neyzla fjallagrasa hafi verið talsverð berklavörn fyrrá öldum? Þurrkuð og hreins- uð fjallagrös geta geymzt árum saman óskemmd. Fjallagrös vaxa viða i norðlæg- um löndum og til fjalla sunnar. helzt á fremur ófrjóum graslitl- um stöðum, enda þola þau illa samkeppni við hraðvaxta jurtir, sem fljótt vaxa þeim yfir höfuð. Rætt var um slýið mikla i • Reykjavikurtjörn f siðasta þætti. Þessi græni flóki hefur lengi und- anfarið hulið verulega hluta Tjarnarinnar. Endurnar synda innan um og lita út álengdar sem dökkirdeplar. Hér er nærmynd af slýinu, það likist helzt grænlituð- um ullarflóka. Stóra göndla eða flækjur rekur á land, fyrst þunga og vatns- mikla, en lauflétta er þeir þorna. Jurtamyndirnar i þennan þátt o.fl. þætti hafa ljósmyndarar Timans tekið að ósk höfundar, sem færði þeim jurtirnar. Nú fer berjatiminn i hönd, lik- lega verður talsverð berjaspretta i sumar. Margt kaupstaðafólk sækir þá að venju út i sveitirnar og fær leyfi til berjatinslu gegn vægu gjaldi viðast hvar. Flestir biðja um leyfi — enda sjálfsagt — og borga með glöðu geði. Ein- staka læðist þó litilmótlega með tinu sina i berjalönd, en taka þó „rukkun” vel ef að þeim er kom- ið. Ot af kann samt að bregða. Sögur ganga af vel klæddri frú sem stappaði niður fótum, fnæsti og skvetti úr berjailátinu! Kannski er hún lika svona heima hjá sér? Ég brá mér norður i land ný- lega. Alls staðar virtist kafgras, bæði á ræktuðu og óræktuðu landi. Minnist ég þess ekki að hafa séð svona jafnvel sprottið áður, t.d. út með Eyjafirði. A Akureyri sá ég i einum garði eplatré alsett hálfþroskuðum epl- um 8/8, og er það sannarlega ó- venjulegt. Þetta o.fl. eplatré höfðu i vor verið alþakin snjóhvit- um blómum. Disarunnar, einkum Syringa Reflexa, höfðu blómgazt mikið. Mörg börn hafa einhvern tima leikið sér að peningagrasi, öðru nafni lokasjóð. ,,Þú ert löngum mér i minni, mikið gull i' pyngju þinni”kvað einn er hann minntist bernskunnar. Lokasjóður er brögðóttur einsog nafngjafi hans, Loki ásatrúarinnar. Hann hefur blaðgrænu og vinnur kolefni úr loftinu eins og aðrar grænar jurt- ir.Ensvoaflar hann séraukabita með þvi að láta örmjóar rótar- greinar vaxa inn i rætur grasa og fleiri nábúajurta og sjúga úr þeim næringu! Hann er sem sé hálf- snlkjujurt eins og t.d. mistilteinn- inn, þó hann vaxi ekki beinlinis á öðrum jurtum. Margt er ein- kennilegt i náttúrunnar riki. Fjallagrös, tekin i Aðalvik á Ströi Smáravöndur f keri 20/7 1977

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.