Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 16

Tíminn - 21.08.1977, Blaðsíða 16
16 Sunnudagur 21. ágúst 1977 Um sögu Acta og arftaka hen siðar prentsmiðjustjóra Rikis- prentsmiðjunnar Gutenbergs, til að meta eignirnar. Persónulega þótti mér mat hans óforsvaran- lega lágt, en varð þó að sætta mig við það að mestu er til sölu kom. Þó hafði bókbandiö ekki verið metið, enda virtist mér sem matsmaður hafi ekki reiknað meö þvi að kaupendurnir kæröu sig um það. Enda reyndist svo, er til kaupanna kom. Hjólið snerist þó á þann veg að lokum að þeir sáu sig um hönd, sem siðar mun sagt frá. 15. ágúst 1936 berast mér eftir- farandi tvö bréf ,,Rvik, 15. ágúst 1936 Hér með tilkynnist yður aö ég segi hérmeð upp samkomulagi um prentun Nýja dagbláðsins i prentsmiðju yðar frá 1. október næstkomandi. — Fá þeim degi munu viðskiptin verða flutt úr prentsmiðju yðar. Hermann Jónasson. Til forstjóra prentsmiöjunnar Acta Rvik.” Hitt bréfið hljóðaði svo: „Reykjavik, 15 ágúst 1936. Hér með leyfi ég mér að til- kynna yður aö útgefendur blaös- ins Timinn i Reykjavik hafa ákveðið að hætta að skipta viö prentsmiðju yðar um prentun á blaðinu frá 1. okt. 1936 Virðingarfyllst, F.h.blaðsinsTiminn Magnús Stefánsson Til Prentsmiðjan Acta h.f., Reykjavik.” Þegar mér bárust þessi bréf var mér ljóst aö annaöhvort væru þeir nú ráðnir i aö kaupa Acta eða flytja prentun blaðanna i aðra prentsmiðju eða prentsmiðjur. Mér var það fyllilega ljóst, að Ólafur Thors vildi selja og hinir væru liklegir til að kaupa. Hafði ég þá samband við ólaf og Guð- björn og skýrði þeim frá framan- greindum bréfum. Það varð svo aö samkomulagi milli okkar að mér var falið að sjá um sölu prentsmiðjunnar. Ólafur mun svo hafa tjáð Jóni Arnasyni i Sam- bandinu að mér heföi verið falin sala prentsmiðjunnar. Væntan- legir kaupendur tilnefndu af sinni hálfu þá Sigurð Jónasson, for- stjóra Tóbaksverzlunarinnar og Jón Arnason i Sambandinu, siöar bankastjóra. Sigurður var mér allvel kunnugur frá þeim ti'ma er hann var við lögfræðinám i Há- skóla tslands þvi þá vorum við um tima mötunautar hjá Vigdisi matselju i Grjótagötu 4, húsi Stefáns Eirikssonar tréskurðar- meistara. Jón Arnason mætti aldrei á samningafundi. Við Sigurður Jónasson þráttuð- um tveir einir um kaup og sölu á Acta. Þá kom i ljós, að hann vildi aðeins kaupa prentsmiðjuna en alls ekki bókbandið. Ég benti hon- um á, aö hinir nýju eigendur mundu verða illa settir, ef þeir þyrftu undir högg að sækja til annarra aðila um bókbandsvinnu. Þá mundi fara likt og með prent- un Tímaritsins i tsafold 1917-19. Hann hélt aö bókbandið mundi verða baggi á félaginu. Það var ekki fyrr en ég var búinn að reikna útkomu bókbandsins siðustu 10 árin, sem sýndi að meðaltalshagnaður árlega var 4 þúsund kr. eða samtals 40 þúsund kr., að hann ákvaö loks að bók- bandið skyldi einnig keypt. — Litra A Kr. 500 Litra A Nr. Li5 HLUTAFÉLAGIÐ ACTA cm CVcw s c- p-íj.^Vetvi |C\\)i k ecÁz ó-ci', de'm- öceÁcz-t' ez Ác^eÁepc-ezzt' eé^-zcezt/t/éÁé cccf /ÁÁczéczÁÁcíÁc y&ezktez, et- eczpcZ'rcdc ezcf //??/?? Á////cÁ//c/ Ázc'z/z/zz/ c /zÁc/ez/c/czzp-c'zcc-C' zzc Ze&czccÁz/zc ^/eÁczzpS-zzz-cz-zz-zeez c^- /cezcÁccts á/ce//Ác/ezzz2- y/eczzz, et- ÁÁ^c ^eÁcc^-ócéZ'ó- ez&eezÁcz. ’/atzé.....é ée/.zÁ- e> Ol'tt' ÁÁÁrt/’Álý' sS^cét* / S1 ' Á /f C/S . 'tSsZ Tjmnr lllutabréf f Acta Prentsm. Acte h.f. IMSS: m r rrzjzj Pappirsbirgðirnar voru loks keyptar á sæmilegu verði. Meöan á samningsþófi okkar Sigurðar stóð þurfti hann að bregða sér upp i Borgarf jörð i tvo eöa þrjá daga. Meöan á þessum biðtima stóð kom Hermann Jónasson til min og tjáði mér, aö ekkertyröi úr kaupunum á Acta. Þeir ætluðu að setja upp nýja prentsmiðju.Égsvaraöiá þá leið, að ég hefði ekkert við þessu að segja. Ég mundi þá reka Acta áfram en spurði þó um leið: „Hvar ætlið þið þá aö fá starfs- menn i hina nýju prentsmiðju?” Þessu svaraði hann engu, en kvaddi bráölega. Eftir tvo eða þrjá daga var ég enn á ný kallaður á samningafund til Sigurðar Jónassonar. Þetta atvik reiknaði égá þá leið að með þessu hefði átt að knýja fram lægra verð á Acta. Þetta væri venjuleg klókindabragð lögfræðings. Ann- ars vorum við Hermann góðir kunningjar þá og raunar ávallt siðar. Ég get ekki skilizt svo við þenn- an þátt að ég minnist ekki þáver- andi forstjóra Sambands is- lenzkra samvinnufélaga Sigurðar Kristinssonar sem iðulega hljóp undir bagga og greiddi okkur fyr- irfram það sem var i prentun, þegar við áttum erfitt með að leysa út pantaðar pappirsbirgðir. Með ógleymanlegri ánægju og þakklæti minnist ég samskipta- anna við hann meðan Acta starfaði. Hann vareinn af þessum fágætu strangheiðarlegu mönn- um sem verða ógleymanlegir. í septembermánuði voru kaupsamningarnir undirritaðir Hinu nýja félagi stóð til boða að halda Acta-nafninu og einnig aö fá pappirsumboð okkar hvoru tveggja ókeypis. Það var ekki þegið. En þess i stað var Eddu- nafnið keypt af þáverandi Kommúnistaflokki, sem búinn var að tryggja sér það, en var fé- vana til að stofna eigin prent- smiðju. 28. desember 1936 var fundur haldinn i Hlutafélaginu Acta. Þar var samþykkt að slita félaginu og undirritaður kosinn i skilanefnd. — Það tók um ellefu ár að koma bókaleifum og umboðsölubókum i peninga. Að þeim tima loknum var félagið loks afskráð. Þegar allar skuldir höfðu verið greiddar kom loks til skipta dálit- il fjárhæð. Tjáði ég þá Ölafi Thors, hver fjárhæð kæmi I hlut þeirra bræðra. Þá kom enn á ný i ljós hin mikli og drengilegi höfö- ingsskapur Clafs þvi hann neitaði að taka við hlut þeirra bræðra. Hann sagði að það væri sizt of mikið að ég hefði það fé fyrir skilanefndarstarfið sem ég hefði annazt án þóknunar i meira en áratug. Jafnframt taldi hann það gleðja sig mest að enginn heföi oröið fyrir halla á viðskiptunum við Acta. Þar með lætég sögu Acta lokið. Hérhefurhúnaðeinsverið skráð i stórum dráttum. 1. október 1936 taka eftirtaldir 13 menn til starfa i Edduprent- smiðju sem áður höfðu starfað i Acta: Jón Þórðarson, Óskar Jónsson, Jón Sigurjónsson, Valdi- mar Guðmundsson, Páll Sigurðs- son Kristján Karl Kristjánsson, Agúst Guömundsson, Þórður Björnsson, Eyjólfur Eiriksson og Öli Þór Ólafsson. Ennfremur af bókbandi: Bjarni Ólafsson, Eirik- ur Magnússon og Guðrún Magnúsdóttir. Mér finnst fara vel á þvi að ég ljúki sögu Acta með þvi aö birta tvö erindi Ur óöi Þorsteins Gisla- sonar til prentlistarinnar 400 ára (sem sungið er með laginu Við siglu Kristján sjóli stóð i svælu” ogreyk” eftirMatthias Jochums- son): „Á fyrri timum fólkið sá ei fréttablað. En samt menn skráöu skammir þá og skýröu rangt og hlutdrægt frá, og lugu’ i grið hver annan á, samt allt um þaö, þvi þjóðin vildi fréttir fá, :/:en förumannsins tunga þá :/: var blað. Þvi allt með letra-lærdómum er lýðnum kennt, og beir, sem ráða ritstjórum og röskri sveit af prenturum eru’ herrar nú i heiminum með hæstri mennt. Þeir eiga heimsins úrvalslið :/: og æðst’ og mesta stórveldið :/: er prent.” Við eigendaskiptin samdist svo um við Sigurð Jónasson aö óskar Jónsson yrði prentsmiðjustjóri til aö byrja með, en undirritaöur annaöist gjaldkerastarfið auk þess að vinna fullan vinnudag. Mér er það minnisstætt er kom að fyrsta útborgunardegi vinnu- launa i Eddu. Engir peningar höfðu greiðstinn fyrir unnin verk. Ég hafði þvi tal af Sigurðí; Jónas- syni og tjáði honum að hann yröi að sjá mér fyrir greiöslufé. Sigurðurbrá hart viðog sendi mér nokkra fjárhæð sem nægði t>ó ekki fyllilega til greiðslu vinnu- launa. Við Óskar urðum að biöa með kaupgreiðslu fram I næstu viku, enda var þá greitt inn fyrsta og einasta hlutafjárloforðið sem ég tók á móti. Það var Magnús Torfason, fyrrv. sýslumaður sem lagði þá inn i sjóð prentsmiðjunn- ar fimm þúsund krónur. Aðrir hafa vitanlega verið búnir að greiða sinar upphæðir til Óskar Jónsson t vélasal prentsmiðjunnar Eddu Úr bókbandsstofu Eddu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.