Tíminn - 13.01.1978, Side 3
Föstudagur 13. janúar 1978
3
„Við óskum ekki
eftir Norglobal”
— segir Pétur Sigurðsson formaður ASV
GV — Okkur finnst það langsótt
að leigja skip erlendis frá tii að
vinna þann afla sem við getum
unnið sjálfir og við óskum ekki
eftir að fá Norglóbal hér inn á
firði, sagði Pétur Sigurðsson for-
maður Alþýðusambands Vest-
fjarða i viðtaii við Timann i gær,
er hann var spurður um hug
verkalýðsfólks á Vestfjörðum um
leigu norska bræðsluskipsins
Norglobal.
Pétur sagði einnig, að sér fynd-
ist það ótrúlegt að hér á landi
væri ekki nógur verksmiðjukost-
ur til að vinna aflann. Heldur en
að leigja Norglobal hlyti það að
borga sig að flytja aflann með
loðnuflutningaskipum til fjar-
lægra verksmiðja. — Við erum
næst loðnumiðunum, og hafa
verkalýðsfélög hér þvi ekki hug-
leitt þessi mál mikið. Auðvitað
láta þeir mest i sér heyra sem
mest brennur á, sbr. mótmæli
verkalýðsfélaga lím land allt und-
anfarna daga. Við skiljum full-
komlega þeirra sjónarmið.”
Skemmdir vegna
rigningar í
Vestmannaeyjum
ÁÞ —
veður
Gifurlegt
gerði i
vatns-
Vest-
V erkamannasam-
bandið styður
loðnusj ómenn
Fundur haldinn i Fram-
kvæmdastjórn Verka-
mannasambands ís-
lands fimmtudaginn 12,
janúar 1978, lýsir yfir
fullum stuðningi við sjó-
menn á loðnuskipum i
baráttu þeirra fyrir
hærra verði á loðnu.
Stjórnin harmar að merihluti
yfirnefndar Verðlagsráðs Sjávar-
útvegsins, skuli ráðast á kjör sjó-
manna, þess launahóps, sem
Krafla:
Hættir land-
sig í dag?
AÞ — Við gerum ráð fyrir að
landsig hætti á morgun eða hinn
daginn ineð sama áframhaldi. —
Sigið mun núna vera komið niður
I um 3 sentimetra á sólarhring,
sagði Eysteinn Tryggvason jarð-
visindamaður isamtaii við biaðið
i gærkveldi. — Það dregur úr
skjáiftum og til dæmis hafa ekki
komið neinir stórir skjáiftar í
dag.
þjóðarbúið byggir mest afkomu
sina á og er undirstaða fyrir
vinnu stærsta hóps launafólks i
landinu.
Skorar framkvæmdastjórnin
þvi á stjórnvöld að gripa strax inn
i deilu þessa, til leiðréttingar á
aflahlut sjómanna.
mannaeyjum i gær-
morgun og dag. Frost
var i jörðu og höfðu níð-
urföll hvergi nærri und-
an.
Vatn flæddi i nokkra
kjallara i gamla bænum
og m.a. varð hús Lions
manna illa úti.
Kallað var á aðstoð
slökkviliðsins og unnu
slökkviliðsmenn lengi
vel við að dæla vatni úr
húsum.
Ljóst er að nokkurt
eignatjón hefur orðið i
vatnsveðrinu.
V;
SAMBAND
ÍSJLENZKRA
SAMVINNUFÉLAGA >
1902 1977 \'r-.Z
/ \ S'
Ritgerðasamkeppnin er að tilefni 75 ára afmælis Sambandsins en þess
var einnig minnzt m.a. með útgáfu frímerkis. Á umsiaginu er mynd af
stofnfundi Sambandsins 1902.
Ritgerðasamkeppni um
samvinnuhreyfinguna:
i
Milljón
verðlaun
Samband fslenzkra samvinnu-
félaga efnir til ritgerðasam-
keppni meðal fslenzks æskufólks í
tilefni af 75 ára afmæli sfnu f
Útvegsmannafélag Vestf jarða:
Styður friðunar-
aðgerðir sjávarút-
vegsráðuneytisins
GV—Blaðinu hefur borizt fundar-
ályktun tJt vegsm annafélags
Vestfjarða og lýsir fundurinn
„furðu sinni á viðbrögðum út-
vegsmanna á Suðurnesjum vegna
útgáfu á reglugerð sjávarútvegs-
ráðuneytisins um veiðar i þorsk-
fisknet á vetri komanda, er ó-
skiijaniegt að útvegsmenn á Suð-
urnesjum skuli telja, að hægt sé
að draga úr sókninni i þorskstofn-
inn, án þess að það snerti á nokk-
urn hátt útgerð f þessum lands-
hluta, þar sem sóknin er mest i
hrygningarstofninn”.
Þá vekur fundurinn athygli á
þvi að allar þær aðgerðir ,,um
samdrátt i þorskveiðum, sem
ráðuneytið hefur gefið Ut til
þessa, hafa mætt fullum skilningi
viðkomandi hagsmunaaðila i öðr-
um landshlutum, enda þótt að
þær hafi valdið tilfinnanlegum
truflunum á veiðum og vinnslu,
ogkomið illa við marga. Má i þvi
sambandi benda á 12 daga þorsk-
veiðibann nú i desember, sem
hefir sennilega bitnað harðast á
vestfirzkri útgerð”.
fyrrá. Ritgeröarefniö er: Sam-
vinnuhreyfingin á Islandi — hlut-
verk hennar og starfsemi. öllu
æskufólki á aldrinum 14—20 ára
er boðin þátttaka, einstaklingum
eða hópum.
Milljón í verðlaun.
Tólf beztu ritgeröirnar hljóta
verðlaun, sex í aldursflokknum
14—17 ára og sex í aldursflokkn-
um 18—20 ára. Verðlaunin nema
alls einni milljón króna, 500 þús-
und krónur I hvorum flokki.
Fyrstu verölaun eru 200 þúsund
krónur, önnur verðlaun 100 þús-
und krónur og fjórar ritgerðir
hljóta þriöju verðlaun, 50 þúsund
krónur hver. Dómnefnd skipuð
þremur mönnum veitir verölaun-
in og getur ákveðið að fækka þeim
ef ástæöa þykir til.
Skilafrestur til 1. mai
Þeir sem óska eftir upplýsing-
um varðandi ritgerðarefniö geta
snúið sér til Fræðsludeildar Sam-
bandsins, Suöurlandsbraut 32,
simi 81255. Lengd ritgeröanna
skal vera 1000-3000 orö eöa 4—12
vélritaöar síður. Helztu verð-
launaritgerðirnar munu birtast I
timariti samvinnumanna, Sam-
vinnunni.Skilafrestur er til 1. mal
næstkomandi. Ritgerðirnar skal
merkja með dulnefni, en rétt nafn
fylgja I lokuðu umslagi. Utaná-
skriftin er: Samvinnan, Suöur-
landsbraut 32, 105 Reykjavlk.
Atök i Alþýðubandalaginu i Reykjavik:
Fer dr. Ólafur Ragnar
Grímsson í framboð?
JS — Miklar umræður eiga sér
stað um þessar mundir innan
Alþýðubandalagsins um fram-
boð tii alþingiskosninga I
Reykjavik. t síðustu kosningum
voru efstir á listanum þeir
Magnús Kjartansson fyrrum
ráðherra og Eðvarð Sigurðsson
formaður Dagsbrúnar, en næst
þau Svava Jakobsdóttir al-
þingismaður og Sigurður
Magnússon rafvirki hjá Rafafii.
Aiþýöubandalagið fékk þá tvo
menn kjörna i Reykjavik, og
einum uppbótarmanni betur.
Nú eru margir flokksmenn
þeirrar skoðunar að ástæða sé
til að skipta um i efstu sætum
listans i höfuðborginni. Bent er
á að þeir Magnús og Eðvarð hafi
lengi verið frammi á i flokknum
og á þingi, enda séu báðir
heilsutæpir. Heyrzt hefur að
stjórn flokksfélagsins i Reykja-
vik hafi viljað biða með
ákvarðanir um framboð eftir
þvi hvort þeir myndu ekki sjálf-
irhafa frumkvæði um breyting-
ar, en fáir Alþýðubandalags-
menn munu dirfast að fyrra
bragðiað ruska við foringjunum
Magnúsi og Eðvarð.
Framboðsmálin i Alþýðu-
bandalaginu i Reykjavlk standa
þannig núna, að flest bendir til
þess að þeir Magnús og Eðvarð
muni sitja sem fastast. Athyglin
hefur þvi beinzt upp á siðkastið
meira að þriðja og fjórða sæt-
inu, og hafa ýmis nöfn verið
Hver fer inn og hver fer út?
nefnd i sambandi við þau.
Það nafn sem einkum er talið
koma til álita er nafn ólafs
Ragnars Grimssonar doktors og
prófessors við Háskóla tslands.
Er fastlega gert ráð fyrir að
hann verði settur i annaðhvort
þriðja eöa fjórða sæti framboðs-
listans i Reykjavik. Sýnir þetta
mikið traustflokkseigendanna á
dr. Ólafi Ragnari, þar sem hann
er sjálfur búsettur I Reykjanes-
kjördæmi.
En kurl eru ekki öll komin til
grafarinnar enn, og má búast
við þvi að flokksmenn I Reykja-
vik hafi sitthvað að athuga við
hugsanlegt framboð dr. ólafs
Ragnars. Er loft allt mjög lævi
blandið i Alþýðubandalaginu
þessar vikurnar af þessum sök-
um, og hugsa þau Svava
Jakobsdóttir og Sigurður
Magnússon ráö sitt I tómi á
meðan.