Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 8
 Hvaða íslenski banki ákvað í vikunni að skrá hlutafé sitt í evrum í stað íslenskra króna? Hvað heitir konan sem tekur við sem framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna í september? Hvaða tungumál var byrjað að kenna aftur í Háskóla Íslands í vikunni eftir þriggja ára hlé? Íbúasamtök Laugardals mótmæla því að Skipulagsráð Reykjavíkur- borgar ætli að breyta deiliskipulagi í dalnum og heimila byggingu sambýlis með sex íbúðum fyrir geðfatlaða á lóð við Holtaveg 29b. Ráðgert er að byggja á húsið á lóð á milli Skólagarðanna í Laugardal og heimilis fyrir fjölfötluð börn við Holtaveg. Húsið á að vera fjögur hundruð fermetrar að grunnfleti og á tveimur hæðum. Kristín Þorleifsdóttir, talsmaður samtak- anna, segir að meðlimir þeirra mótmæli því að byggt verði á grænu svæði í Laugardaln- um. „Það er svo lítið eftir af slíkum svæðum í dalnum. Okkur telst til að einungis tíu til fimmtán prósent af dalnum séu eftir sem svæði sem ætluð eru til almenningsnota. Við viljum ekki fleiri byggingar í Laugardalinn því ef hann á að vera okkar Central Park þá þarf að hlífa þessum svæðum,“ segir Kristín. Á annað hundrað athugasemdir bárust Skipulagsráði Reykjavíkurborgar vegna breytingarinnar á deiliskipulaginu. Frestur til að skila athugasemdum rann út 30. ágúst. Breytingin á deiliskipulaginu verður tekin til afgreiðslu á fundi Skipulagsráðs Reykja- víkurborgar í dag. Leyniþjón- usta dönsku lögreglunnar handtók snemma í gærmorgun átta menn sem grunaðir eru um að hafa ætlað sér að fremja hryðjuverk. „Við höfum komið í veg fyrir hryðju- verk,“ segir Jakob Scharf, yfirmaður PET, leyniþjónustu dönsku lögregl- unnar. Hann segir mennina hafa legið undir grun í nokkurn tíma. Þeir eru „her- skáir íslamistar með tengsl við forystumenn í al-Kaída. Að okkar mati eru þarna bein tengsl við al- Kaída,“ sagði Scharf. Mennirnir eru á aldrinum 19 til 29 ára. Sex þeirra eru danskir rík- isborgarar en hinir tveir eru útlendingar. Lögreglan gerði húsleit á ellefu stöðum í Kaupmannahöfn fyrir dögun í gærmorgun. Nágrannar, sem fréttamenn hafa talað við, lýsa hinum handteknu sem vin- gjarnlegum nágrönnum, ósköp venjulegum. Þetta er í þriðja sinn frá árinu 2005 sem danska lögreglan hefur ráðist til atlögu gegn grunuðum hryðjuverkamönnum. Í dag hefj- ast í Kaupmannahöfn réttarhöld yfir fjórum þeirra, sem hand- teknir voru í fyrri aðgerðum af því tagi. Einn maður, Abdul Basit Abu Lifa, hlaut sjö ára fangelsisdóm í febrúar síðastliðnum. Komið í veg fyrir hryðjuverk í Danmörku Háskólinn á Akureyri mun í dag skrifa undir sam- starfssamning við BioPol ehf., nýtt sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd. Samningurinn felur í sér samstarf á sviði sjávarlíf- tækni. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu mun kjarna- starfsemi BioPol byggjast á rannsóknum á lífríki Húnaflóa, líftæknirannsóknum, nýsköpun og markaðssetningu á afurðum líftækni úr sjávarlífverum. Þá mun sjávarlíftæknisetrið annast háskólakennslu og varðveislu lífsýna. Sveitarfélagið Skagafjörður er eigandi seturs- ins en ætlunin er að fjölga hluthöfunum. Skrifa undir samstarf á sviði sjávarlíftækni

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.